Morgunblaðið - 23.09.2004, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
FULLTRÚAKJÖR
Samkvæmt lögum Einingar-Iðju fara kosningar fulltrúa félags-
ins á ársfund Alþýðusambands Íslands, og ársfund Starfs-
greinasambands Íslands fram að viðhafðri allsherjaratkvæða-
greiðslu í samræmi við reglugerð ASÍ um slíkar kosningar.
Félagið hefur rétt til að senda 13 fulltrúa á ársfund Alþýðu-
sambands Íslands, sem haldið verður í Reykjavík dagana 28.-
29.október nk.
Á ársfund Starfsgreinasambands Íslands, sem haldið verður á
Hótel Loftleiðum dagana 14.-15. október nk., hefur félagið
rétt á að senda 12 fulltrúa.
Framboðslistum eða tillögum til ársfundar ASÍ, og ársfundar
SGS þar sem tilgreind eru nöfn aðalfulltrúa í samræmi við
framanskráð og jafn margra til vara, ber að skila á skrifstofu fé-
lagsins í Skipagötu 14, Akureyri, eigi síðar en kl. 12:00 á há-
degi fimmtudagsins 30. september nk.
Hverjum framboðslista skulu fylgja meðmæli
100 fullgildra félagsmanna.
Akureyri, 21. september 2004,
stjórn Einingar-Iðju.
AKUREYRI
AKUREYRINGUM rennur til rifja
hve mjög miðbænum hefur hnignað á
undanförnum árum, verslunum hef-
ur fækkað og almennt þykir miðbær-
inn fremur óaðlaðandi, skuggsæll og
vindasamur. Þetta var á meðal þess
sem fram kom á opnu íbúaþingi sem
haldið var um liðna helgi, en niður-
stöður voru kynntar á fundi í gær-
kvöld. Þingið var liður í mótun
keppnislýsingar vegna alþjóðlegrar
hugmyndasamkeppni sem Akureyri í
öndvegi stendur fyrir. Ráðgjafafyr-
irtækið Alta sá um framkvæmd
þingsins og fulltrúar þess kynntu nið-
urstöður þess á fundinum í gærkvöld.
Bæjarbúar telja að snúa megi þró-
uninni við með því að fjölga íbúðum í
miðbænum, hafa þar matvöruversl-
un, hafa hann grænni, skjólmeiri og
litríkari.
Umræður hafa verið háværar að
undanförnu um byggingu háhýsa í
bænum og hið sama var uppi á ten-
ingnum á þinginu. Meirihluti þing-
gesta taldi þó að fara ætti varlega í að
raska einstakri bæjarmynd Akureyr-
ar með miklu hærri húsum en þeim
sem fyrir eru. Bæjarbúar telja að
Oddeyrartangi sé fýsilegur kostur
fyrir bryggjuhverfi, en þá myndi
Strandgatan tengjast miðbænum
enn frekar og ekki síst eftir að fyr-
irhugað menningarhús verður risið á
uppfyllingu neðst við götuna.
Fram komu óskir um að Skátagil
yrði skipulagt fyrir afþreyingu í
grænu umhverfi í tengslum við
miðbæinn.
Málefni Akureyrarvallar hafa ver-
ið ofarlega á baugi, enda liggur fyrir
að taka þarf ákvörðun um framtíð-
aruppbyggingu íþróttasvæða í bæn-
um vegna fyrirhugaðs landsmóts
2009. Almennur áhugi virðist vera
fyrir að áfram verði grænt svæði á
vellinum, t.d. fjölskyldugarður, en
einnig komu fram tillögur um að
byggja þar íbúðir eða verslunarhús-
næði.
Hugmyndasamkeppni um miðbæ-
inn hefst í lok október og verða til-
lögur kynntar á sumardaginn fyrsta
á næsta ári.
Samkeppnislýsing mótuð á fjölmennu íbúaþingi
Varlega verði farið í að
raska einstakri bæjarmynd
Morgunblaðið/Kristján
Samráð Akureyringar höfðu margt fram að færa á íbúaþinginu.
UNNIÐ er að smíði nýrrar brúar
yfir Hörgá á Ólafsfjarðarvegi sem
tekin verður í notkun í lok október
nk. Nýja brúin verður eftirspennt
tveggja akreina bitabrú, 38 metra
löng og með sjö metra háum stöpl-
um. Hún leysir af hólmi gamla ein-
breiða brú sem liggur yfir ána
rúmlega 100 metrum neðar. Að
sögn Birgis Guðmundssonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á
Akureyri, verður nýja brúin mikil
samgöngubót, enda er aðkoman að
gömlu brúnni slæm og krappar
beygjur beggja vegna hennar.
Það er fyrirtækið Mikael ehf. á
Höfn sem sér um framkvæmdina
en jarðvegsvinnan var í höndum
Árna Helgasonar í Ólafsfirði.
Framkvæmdir við verkið hófust í
byrjun ágúst sl. og hafa gengið vel
að sögn Gunnars Gunnlaugssonar,
eiganda Mikaels. „Við höfum feng-
ið gott veður og áin hefur verið til
friðs.“
Við nýju brúna verður byggður
0,7 km langur vegur sem tengist
núverandi vegi. Heildarkostnaður
við þessa framkvæmd er um 73
milljónir króna. Gamla brúin, sem
byggð var árið 1953, verður látin
standa og m.a. notuð sem reiðleið í
framtíðinni. Hún er 43 metra löng
og 3,8 metra breið.
Morgunblaðið/Kristján
Samgöngubót Starfsmenn Mikaels ehf. við brúarsmíðina við Hörgá.
Ný brú yfir Hörgá
mikil samgöngubót
AUSTURLAND
Kárahnjúkavirkjun | Töluverðar
mannabreytingar eiga sér nú stað í
slökkviliði og öryggiseftirliti
Impregilo við Kárahnjúkavirkjun.
Þannig eru þrír íslenskir sjúkrabíl-
stjórar og slökkviliðsmenn hættir
eða að hætta og íslenskur öryggis-
fulltrúi, sem átti m.a. að sinna þjálf-
un slökkviliðsins á virkjunarsvæði
Impregilo, hætti og flutti sig yfir til
Arnarfells og mun óánægju með ör-
yggiseftirlit og þjálfun slökkviliðs
meðal annars vera um að kenna.
Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri
Brunavarna á Héraði, sem bera
ábyrgð á að brunavarnir við Kára-
hnjúkavirkjun séu samkvæmt lög-
um, sagði í samtali við Morgunblaðið
að afar slæmt væri að missa þessa
menn úr brunavörnum á svæðinu,
því þeir hefðu verið kjölfestan í lið-
inu, með mikla
þjálfun og
reynslu. Erlendir
starfsmenn koma
að hluta í stað
þeirra og segir
Baldur þá eflaust
vera ágæta, en
ekki með þá
reynslu sem
æskileg væri.
Slökkvibúnaður ósamsettur
„Það hefur verið erfiður tími síðan
í sumar og þurft að fara út í mikla
hörku við Impregilo til að koma
brunavörnum í sæmilegt horf,“ segir
Baldur. „Þeir gerðu ekki þjálfunar-
áætlun fyrir sitt slökkvilið, þrátt fyr-
ir ítrekaðar beiðnir þar um, fyrr en
þeim var hótað öryggisvakt á svæðið
á þeirra kostnað. Við gerðum, í sam-
vinnu við Brunamálastofnun, útkall
á Impregilo í júlí sl. Þeir fengu al-
gera falleinkunn fyrir viðbrögðin.
M.a. kom í ljós að þrátt fyrir að allur
búnaður til slökkvistarfs við aðgöng-
in væri kominn á svæðið, var hann
ósamsettur og ónothæfur. Slökkvi-
bíllinn í Kárahnjúkum var nánast
ónothæfur því í honum var biluð
kúpling. Þeir gleymdu reykköfunar-
grímum og þjálfunin var öll í molum.
Í annarri æfingu seinna í sumar
var búið að laga slökkvibílinn, en í
ljós kom að hann var vatnslaus. Það
var ekkert í lagi og æfingin fór ger-
samlega út um þúfur. Þeir kunnu
ekki að setja vatn á bílinn eða nokk-
urn skapaðan hlut. Ég hef aldrei
staðið frammi fyrir öðru eins. En svo
var þetta tekið föstum tökum og fyr-
irtækið hefur tekið sig á. Í dag er
þetta þannig að þeir hafa haldið æf-
ingar og skila mér skýrslum um
þær.
Í síðasta bréfi mínu til þeirra
krafðist ég þess að æfingaáætlun
yrði sett upp fyrir slökkviliðin á öll-
um aðgöngum og í Kárahnjúkum út
verktímabilið og þeir yrðu að vera
búnir að því fyrir vissan tíma. Þeir
skiluðu áætluninni á ögurstund og
ég stóð yfir þeim fyrstu vikurnar á
eftir til að vera viss um að æfingar
ættu sér stað.“
Impregilo ber ábyrgðina
„Nú er búið að hafa æfingar í öll-
um vinnubúðum og búnaður á að
vera í lagi. Brunamálastofnun hefur
fylgst með að Brunavarnir á Héraði
sinni sínu hlutverki skv. lögum og
því er það Impregilo sem ber
ábyrgðina ef eitthvað fer úrskeiðis í
slökkvistarfi, ef og þegar á reynir,“
segir Baldur.
Hvað uppsagnir íslensku sjúkabíl-
stjóranna og öryggisfulltrúans
áhrærir, en þeir eru jafnframt yf-
irmenn slökkvistarfs samkvæmt ör-
yggishandbók Impregilo, segir
Baldur það vera einkar slæma þró-
un.
Ljósmynd/BJ
Fjölþjóðleg æfing Brunavarnir eru að færast í betra horf. Myndin er tekin
eftir æfingu fyrr á árinu og í henni tóku þátt um 20 manns.
Ljósmynd/Matthías Loftsson
Hætta í göngum Slökkviliðsstjórinn á Héraði hefur áhyggjur af bruna-
vörnum og þjálfun slökkviliðsmanna hjá Impregilo, ekki síst í göngunum.
Brunavarnir í Kárahnjúkum að færast í sæmilegt horf
Ekki gengið átakalaust
að þjálfa slökkviliðið
Baldur Pálsson