Morgunblaðið - 23.09.2004, Side 6
6 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Hallgrímskirkja
Guð er að tala við þig
ert þú að hlusta?
www.tlig.org
Vassula Ryden fjallar um guðlegan
innblástur sem hún hefur meðtekið allt frá
árinu 1985 og er ákall Drottins til alls
mannkyns um iðrun, sátt, frið og kærleika.
Spádómsskilaboðin Einlægt líf með Guði
eru þó umfram allt bón til kirkjunnar um
eitt samfélag allra kristinna manna.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
Ókeypis aðgangur.
Vassula Ryden
Sunnudaginn 3. október 2004, kl. 19.30
GÖTUM og heilum borgarhverfum var lokað
fyrir umferð bifreiða í fjölda borga í Evrópu í
gær vegna „bíllausa dagsins“ svonefnda.
Lokanir þessar þóttu víða skila annarri niður-
stöðu en stefnt var að því í mörgum borgum álf-
unnar skapaðist umferðaröngþveiti með tilheyr-
andi töfum og álagi á taugar ökumanna.
Í nokkrum borgum var deginum frestað þar til
um næstu helgi þegar almenn umferð verður
minni.
Í París, þar sem fyrsti „bíllausi dagurinn“ var
skipulagður árið 1998, sagði lögregla að umferð
hefði gengið betur en oft áður á þessum degi.
Hins vegar var minna svæði lokað nú fyrir
einkabílaumferð en oftast áður og um 250 lög-
regluþjónar voru kallaðir á aukavakt til að
stjórna umferðinni.
Í Aþenu voru umferðarhnútarnir í gærmorg-
un hins vegar enn erfiðari viðfangs en venja er
þrátt fyrir að ákveðið hafi verið að bjóða ókeypis
far með strætisvögnum. Hætt var við að loka
miðborginni fyrir bílaumferð en fyrir tveimur
árum leiddi slík lokun til gríðarlegrar umferðar-
teppu og mengunar.
Umferð gekk einnig afar hægt í Vínarborg
þar sem hringvegur umhverfis miðborgina var
lokaður fyrir einkabílum. Talsmaður stjórn-
arandstöðunnar í Austurríki sagði að bíllausi
dagurinn væri „yfirborðskennd aðgerð sem
breytti nákvæmlega engu“.
Alls tóku 1.125 borgir og bæir í Evrópu þátt í
„bíllausa deginum“ en yfirvöld í sumum höfuð-
borgum ákváðu þó að taka ekki þátt, þar á meðal
borgarstjórn Berlínar og Búdapest.
Amsterdam tekur heldur ekki þátt en þar náð-
ist ekki samkomulag um hvernig ætti að fjár-
magna áætlunina.
Öngþveiti
víða í Evrópu
París. AFP.
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, kom hjól-
andi til vinnu sinnar í gærmorgun, við upphaf bíl-
lausa dagsins. Í samtali við Morgunblaðið segir
hann það hafa verið skemmtilega tilviljun að
reiðhjólatúrinn hafi borið upp á bíllausa daginn.
Hjól og hjálm hafi hann keypt í fyrradag, ný-
kominn úr fríi erlendis þar sem þau hjónin hafi
leigt sér reiðhjól í tíu daga ferð. Þar hafi hann
komist að því að ekki veitti af að liðka sig betur.
„Ég ætla að hjóla meira til að halda góðri heilsu
og verða ekki allt of stirður. Þegar faðir minn var
orðinn níræður sagði hann við mig að ef maður
gæti ekki haft fótavist þá eltist maður fljótt. Þetta
rifjaðist upp og ég ætla að reyna að halda mér
við,“ segir Halldór.
Frá heimili hans í Reykjavík og niður á Aust-
urvöll eru rúmir tveir kílómetrar. Hann segir það
ekki mikið miðað við langar og strangar hjólaferð-
ir í fríinu nýlega þar sem einn daginn hafi lengst
verið hjólaðir 40 kílómetrar.
„Ég geri mér vonir um það næsta sumar að
vera kominn í svo góða þjálfun að geta hjólað yfir
Vaðlaheiði og þiggja góðar veitingar hjá Skúla
Ágústssyni í Vaglaskógi, sem býður duglegum
hjólreiðamönnum í grillveislu einu sinni á ári.
Markmiðið er að slást í þann góða hóp,“ segir
Halldór. Hann vonast til að fleiri þingmenn noti
reiðhjól sem samgöngutæki, hjólagrindur séu til
staðar í kjallara Alþingis og ef hjólreiðamönnum
fjölgi verði fleiri grindur settar upp.
Morgunblaðið/Kristinn
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, kom hjólandi til vinnu sinnar við Austurvöll í gær, í fyrsta sinn í
mörg ár, eða síðan hann var „ungur þingmaður“, eins og hann orðaði það.
Má ekki verða allt of stirður
EVRÓPSKRI samgönguviku lauk á
bíllausa deginum í gær. Að sögn
lögreglunnar í Reykjavík var ekki
að sjá að minni umferð væri í borg-
inni þrátt fyrir að fólk hefði verið
hvatt til að skilja einkabílinn eftir
heima. Tíu umferðaróhöpp urðu
milli kl. 15 og 19.15 sem þykir
nokkuð hátt hlutfall miðað við að-
stæður, að sögn Péturs Guðmunds-
sonar, aðalvarðstjóra lögreglunnar í
Reykjavík.
Björg Helgadóttir á umhverfis-
og tæknisviði Reykjavíkurborgar,
segir að litlu færri hafa verið á
ferðinni í einkabílum í dag til
klukkan 18 en á sama tíma fyrir
viku, samkvæmt talningum í Ár-
túnsbrekku, á Sæbraut, Miklubraut
og Kringlumýrarbraut. Litlu færri
bílar hafi þó farið um Ártúnsbrekku
og Kringlumýrarbraut síðdegis.
Samgönguvikan fór vel fram í
Hafnarfirði að sögn Guðjóns Inga
Eggertssonar, verkefnastjóra hjá
Hafnarfjarðarbæ. Guðjón nefnir að
hjólreiðaferð bæjarstjóra á höfuð-
borgarsvæðinu úr Hafnarfirði í
Elliðaárdal hafi verið sérlega
skemmtileg. „Í heildina má segja að
framkvæmdin hafi tekist vel en
gjarnan hefðu fleiri mátt taka þátt í
henni,“ segir Guðjón.
Að sögn Hrafnhildar Sigurðar-
dóttur, umsjónarmanns Fræðaset-
urs á Seltjarnarnesi, gekk vikan vel
á Nesinu eins og annars staðar.
Hún tekur þó undir það með Guð-
jóni Inga að þátttaka hefði mátt
vera meiri.
SVÞ mótmæla lokun
Hverfisgötu á bíllausum degi
Samtök verslunar og þjónustu
lýsa undrun sinni á því skilnings-
leysi á hagsmunum rekstraraðila í
miðborg Reykjavíkur sem þau
segja í tilkynningu að birtist í þeirri
ákvörðun borgarinnar að loka
Hverfisgötu neðan Snorrabrautar í
gær milli kl. 7 og 9 og 15 og 18 og á
milli Rauðarárstígs og Snorrabraut-
ar allan daginn í tilefni bíllausa
dagsins í evrópskri samgönguviku.
Engu minni bílaumferð á bíllausa deginum að sögn lögreglu og borgaryfirvalda
Tíu umferðaróhöpp síðdegis
Morgunblaðið/Kristinn
SJÓNVARPIÐ hefur tryggt sér
sýningarrétt á þáttunum um Lata-
bæ (Lazytown), að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá stofnuninni.
Gengið var frá samningum í gær í
höfuðstöðvum Latabæjar í Garða-
bæ, þar sem þættirnir eru teknir
upp.
„Hluti þáttanna hefur verið sýnd-
ur í Bandaríkjunum. Þar hafa þeir
vakið mikla athygli og náð til millj-
óna áhorfenda en þeir eru nú vin-
sælasta barnaefni sem þar er í boði
fyrir aldurshópinn 2–11 ára. Þætt-
irnir eru eitt stærsta verkefni sem
Íslendingar hafa ráðist í þá þessu
sviði,“ segir í tilkynningunni.
Þar kemur jafnframt fram að
ráðgert sé að hefja sýningar á þátt-
unum á Íslandi upp úr áramótum.
Þættirnir, sem voru teknir upp á
ensku, verða talsettir á íslensku
fyrir sýningu í Sjónvarpinu.
Sjónvarpið
sýnir Latabæ
AÐSTANDENDUR Hársins hafa
ákveðið að bæta við annarri sýn-
ingu á Hárinu í Íþróttahöllinni á
Akureyri annað kvöld vegna mik-
illar eftirspurnar á miðum. Uppselt
er á fyrri sýninguna sem hefst
klukkan 20.
Að sögn Björns Thors, leikara í
Hárinu, vonast sýningarhaldarar til
að fylla Höllina öðru sinni klukkan
23 sama kvöld og eru 1.500 sæti í
boði. Miðasala er hjá Leikfélagi Ak-
ureyrar, á leikfélag.is.
Tvær sýningar
annað kvöld
TVEIR fimmtán ára piltar voru
fluttir á slysadeild eftir að bíll valt
og lenti á ljósastaur við hringtorgið
við JL-húsið skömmu fyrir hádegi í
gær. Piltarnir voru fluttir á slysa-
deildina í Fossvogi en meiðsli
þeirra munu þó ekki hafa verið al-
varleg.
Morgunblaðið/Júlíus
Valt og lenti
á ljósastaur
STÓR vörubíll, svonefndur námu-
bíll sem vegur um 80 tonn með
farmi, valt 30–40 metra niður snar-
bratta hlíð við Kárahnjúka um tvö-
leytið í gær, skv. upplýsingum frá
lögreglunni á Egilsstöðum. Öku-
maðurinn var í bílbelti. Hann
meiddist og var hlúð að honum á
sjúkrastofunni á staðnum.
Valt 30–40 metra
niður bratta hlíð
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Ís-
lands segir í ályktun sem hún sam-
þykkti á fundi sínum í gær að hún
átelji forsvarsmenn Brims harðlega
fyrir aðför að skipulögðum vinnu-
markaði og umsömdum lágmarks-
kjörum með framferði sínu gagnvart
sjómönnum um borð í Sólbak EA-7.
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
sagði eftir fund miðstjórnarinnar í
gær, að mikil samstaða hefði verið
um ályktunina. „Í miðstjórn ASÍ
sitja formenn allra landssamband-
anna og formenn stóru félaganna.
Það eitt segir nokkuð um þungann í
þessari ályktun.“ Í ályktuninni segir
m.a. að það sé óþolandi að forsvars-
maður Brims skuli leyfa sér að beita
hótunum til þess að ná fram einhliða
ásetningi sínum um breytingar á
gildandi kjarasamningum. „Mið-
stjórn ASÍ lítur þetta mjög alvarleg-
um augum. Hér er um beina aðför að
skipulagðri verkalýðshreyfingu og
umsömdum lágmarkskjörum launa-
fólks að ræða, sem brugðist verður
við af fullri alvöru og hörku. Mið-
stjórn ASÍ mun beita sér fyrir því að
verkalýðsfélög verjist slíkri aðför
með öllum tiltækum ráðum,“ segir í
ályktuninni.
Voru ekki þvingaðir
Áhöfn skipsins Sólbaks sendi frá
sér yfirlýsingu í gær vegna umræð-
unnar síðustu daga. Þar er fullyrð-
ingum um meintan þrýsting og hót-
anir útgerðarmanna í garð
áhafnarinnar vísað á bug sem raka-
lausum þvættingi. Er ítrekað að það
sé alrangt að áhöfnin hafi verið
þvinguð til þess að starfa á skipinu.
„Undanfarna tvo mánuði hefur
verið unnið að útfærslu samnings um
breytt útgerðarmynstur á skipinu í
fullri sátt og samvinnu við útgerð-
ina,“ segir í ályktuninni
„Í tvígang hafa drög að samningi
verið kynnt fyrir samtökum sjó-
manna, vélstjóra og skipstjórnenda,
en jafnan verið hafnað. Þessi afstaða
hefur valdið okkur verulegum von-
brigðum og það hefur ekki síður
valdið vonbrigðum að þessir forystu-
menn hafa ekki gert tilraun til þess
að setjast niður með okkur og ræða
málin á málefnalegan hátt og leita
leiða sem allir gætu sætt sig við,“
segir í yfirlýsingunni frá áhöfninni á
Sólbaki.
Miðstjórn ASÍ átelur for-
svarsmenn Brims harðlega