Morgunblaðið - 23.09.2004, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Gunnar Haf-steinn Sigurðs-
son fæddist í Reykja-
vík 2. apríl 1929.
Hann andaðist á
gjörgæsludeild
Landspítalans við
Hringbraut 13. sept-
ember síðastliðinn.
Foreldrar Gunnars
voru hjónin Sigurður
Þorsteinsson skip-
stjóri, og Gróa Þórð-
ardóttir húsfreyja,
og var hann yngstur
11 barna þeirra.
Árið 1950 kvæntist
Gunnar Ólöfu Þór, f. á Akureyri
29. september 1930. Foreldrar
hennar voru hjónin Jón og Jó-
hanna Þór.
Börn Gunnars og Ólafar eru: 1)
Jón Þór, f. 1950, kvæntur Sigríði
Ólafsdóttur, f. 1954. Synir þeirra
eru Gunnar Þór, f. 1979 og Ólafur
Karl, f. 1985. 2) Gróa, f. 1953, gift
Pétri Jóhannessyni, f. 1953. Dæt-
ur þeirra eru Ólöf, f.
1981 og Birna, f.
1988. 3) Gunnar, f.
1956, sambýliskona
er Valva Árnadóttir,
f. 1950. 4) Jóhanna,
f. 1963, gift Pétri Ás-
geirssyni, f. 1962.
Synir þeirra eru Ás-
geir Hafsteinn, f.
1991 og Magnús, f.
1993.
Gunnar hóf störf
hjá Skipadeild SÍS
1946, lauk síðan
námi frá Stýri-
mannaskólanum í
Reykjavík 1953 og var eftir það
stýrimaður á ýmsum skipum
Skipadeildarinnar fram til ársins
1965 er hann hóf störf hjá Sam-
vinnutryggingum, síðar Vátrygg-
ingafélagi Íslands. Þar starfaði
hann til ársins 1994.
Útför Gunnars fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 13.30.
Það er með miklum söknuði að ég
kveð ástkæran föðurbróður minn og
einn besta vin minn, Gunna frænda.
Sem lítill gutti beið ég eftir Gunnari
á bryggjunum þegar hann kom í
land á Hvassafellinu og Dísarfellinu.
Hann átti alltaf glaðning handa
litlum snáðum og færði mér og
bræðrum mínum „útlenskt nammi“
sem ekki var auðfengið í þá daga.
Einnig dót sem var enn sjaldgæfara
líkt og magasleðann með stýrinu og
öllum „græjum“ sem við urðum að
láta af hendi vegna þess hve hættu-
legur sleðinn var í bænum. Rauði
brunabíllinn sem allir vildu leika
með og kínverja-sprengjurnar. Það
var Gunnari líkt að hafa skilning á
strákapörum og hann lagði sig fram
við að kenna okkur góðlátlega
„hrekki“ og hafði gaman af.
Sem unglingspiltur átti ég því láni
að fagna að fá að sigla undir stjórn
Gunnars í fyrstu ferð hans sem skip-
stjóra á Hamrafellinu árið 1965.
Ferðin var ævintýri og upp úr
standa lönd eins og Arúba og Perú
að ógleymdri siglingunni í gegnum
Panamaskurðinn. Margar skemmti-
legar sögur rifjast upp af Gunnari
og áhöfninni. Ég lærði margt af
Gunnari í þessari ferð. Hann hélt
hópnum saman með léttleika.
Áhöfnin var sem ein stór fjölskylda
þar sem glettni einkenndi samveru-
stundir. Þrátt fyrir að lítið bæri á
stéttaskiptingu um borð naut Gunn-
ar virðingar áhafnar í hvívetna. Við
minntumst oft þessara stunda á
seinni árum, nú síðast nokkrum dög-
um áður en Gunnar kvaddi. Mikið
var gaman að rifja upp þessar
stundir með honum og hvað við
hlógum mikið því að alltaf urðu sög-
urnar betri og betri.
Við hjónin fengum ítrekað að
kynnast hjálpsemi Gunnars og
atorku. Margvíslegar „reddingar“ í
tengslum við okkar fyrstu hjúskap-
arár þegar hann aðstoðaði við að út-
vega varning sem ekki var fáanlegur
hérlendis á þeim tíma. Einnig ómet-
anleg aðstoð þegar við byggðum
okkur heimili. Gunnar mætti með
pensilinn, „sparslið“ og góða skapið.
Ærslagangur og fjör fylltu okkur
Önnu nýju þreki og Gunnar hló dátt,
málaði allt húsið af einstakri natni
og vandvirkni utan sem innan. Þvílík
hjálp og aldrei tók Gunnar í mál að
taka greiðslu fyrir en sagði gjarnan;
„ég fæ lúðu í soðið hjá þér, Bubbi
minn“.
Á löngum vetrarvertíðum var allt-
af kátína þar sem Gunnar fann sér
stað í verkuninni og aðstoðaði okkur
við að hausa, kinna og gella. Starfs-
fólkið og stelpurnar mínar kepptust
við að vera í návist hans því að þar
leið tíminn fljótt. Gunnars verður
sárt saknað á kaffistofunni en frá-
sagnir hans og sýn á þjóðfélagsmál-
um, sér í lagi sjávarútvegsmálum,
komu okkur alltaf í gott skap.
Ég þakka fyrir allar stundirnar
með Gunnari og minningarnar sem
hann skilur eftir í hjarta mínu.
Elsku Lóa og fjölskylda, Guð veri
með ykkur í sorg ykkar.
Guðbjartur Einarsson.
Okkur bræðurna langar að minn-
ast hans Gunnars frænda, eins og
við kölluðum hann. Gunnar var
yngstur af ellefu föðursystkinum
okkar, faðir okkar var elstur. Gunn-
ar var tólf ára þegar hann missti föð-
ur sinn.
Gunnar byrjaði sem sendisveinn
hjá SÍS ungur að árum en síðar lá
leiðin á sjóinn hjá sama félagi. Árið
1946 sótti Gunnar nýtt skip, Hvassa-
fell, til Ítalíu. Hann lauk farmanna-
prófi frá Stýrimannaskólanum 1953
og var stýrimaður og skipstjóri hjá
SÍS til margra ára. Þegar Sam-
bandið keypti Hamrafell sem var þá
langstærsta skip sem Íslendingar
höfðu eignast varð hann stýrimaður
og síðar skipstjóri á því skipi.
Hamrafellið var olíuskip og var í
siglingum til Rússlands og S-Amer-
íku. Gunnar sá til þess að við bræð-
urnir komust allir að sem hásetar
hjá honum á Hamrafellinu.
Þegar Gunnar hætti á sjónum
varð hann tjónaskoðunarmaður hjá
sjódeild Samvinnutrygginga. Gunn-
ar var mikill veiðimaður bæði til sjós
og lands. Fljótlega eftir að hann hóf
störf hjá Samvinnutryggingum
eignaðist hann trillu, sem bar nafn
konu hans „LÓU“. Fram undir 1980
var Þorsteinn heitinn bróðir Gunn-
ars mikið með honum en þeir stund-
uðu handfæraveiðar og skutu svart-
fugl.
Er við bræður eignuðumst fisk-
verkun reyndist Gunnar okkur af-
burðavel. Hann var alltaf tilbúinn að
hjálpa okkur við öll þau störf er til
féllu. Á vertíðum starfaði skólafólk
hjá okkur á kvöldin og um helgar.
Gunnar hafði góð áhrif á þetta unga
fólk enda var hann hrókur alls fagn-
aðar með sinni léttu lund og glettni.
Gunnar kenndi okkur margt í
gegnum árin. Fjaran var ein af hans
sérgreinum og snemma kenndi hann
okkur að tína sprettfiska og aðra
„leyndardóma“ sem þar var að
finna.
Elsku Lóa, börn, tengdabörn og
barnabörn, Guð styrki ykkar í sorg-
inni.
Sigurður og
Stefán Einarssynir.
Mig langar með örfáum orðum að
kveðja hann elsku Gunna frænda
minn.
Hann Gunni frændi var litli bróðir
hans Einars afa og sem barni fannst
mér það alltaf stórfurðulegt að þessi
hvíthærði maður gæti verið litli
bróðir einhvers. Gunni frændi var
alveg frábær maður sem var alltaf
ótrúlega hress og aldrei leiddist mér
að vinna í fiskverkuninni þegar
Gunni frændi var í húsinu. Þá fengu
ófáir brandararnir að fjúka og
Gunni lék á als oddi. Hjá frænda
mínum fékk ég einnig óborganlegar
lýsingar af föður mínum og bræðr-
um hans og vandræðum þeim sem
þeir höfðu komið sér í sem börn.
Gunni frændi hafði frá hafsjó minn-
inga að segja og allar voru þær jafn
skemmtilegar.
Aldrei hugsa ég þó um hann
frænda minn án þess að konan hans,
hún elsku Lóa, komi upp í huga mér.
Hún var alltaf Lóa hans Gunna
frænda. Elsku Lóa, missir þinn og
barna þinna er mikill, ég kveð hér
elsku frænda minn og votta þér og
börnum þínum mína dýpstu samúð.
Ragna Sóley.
Yndislegt, fallegt og hlýtt sumar
er að kveðja, svo er einnig um minn
kæra föðurbróður Gunnar Hafstein
Sigurðsson, sem var eins og sumarið
bæði hlýr og fallegur.
Ég minnist hans sem besta bróð-
ur, sem leiddi mig mín fyrstu skref
út í lífið.
Örlögin höguðu því þannig til, að
við fæðingu er ég tekin inn á heimili
afa og ömmu, vegna veikinda móður
minnar. Gunnar er þá sjö ára.
Frá mínu fyrsta minni er hann í
huga mínum sem stóri bróðir.
Minningin frá bernskuárunum er
í ævintýraljóma. Þú varst mesti töff-
arinn í Vesturbænum, fallegur,
glettinn, stríðinn og allar stelpurnar
skotnar í þér. Þú varst duglegastur
á skautum, gast hjólað án þess að
halda um stýrið, gast stungið þér til
sunds úti í Örfirisey í kaldan sjóinn,
og svo mætti lengi telja.
Ég var ekki svo lítið montin að
eiga svona frænda. En lífið er ekki
alltaf dans á rósum.
Er Gunnar er tólf ára missir hann
föður sinn, Sigurð Þorsteinsson
skipstjóra. Nærri má geta hvílíkt
áfall það hefur verið fyrir ellefta
barnið í röðinni, og yngstur systkina
sinna. En hún amma, Gróa Þórðar-
dóttir, var dugleg kona, sem elskaði
og dáði örverpið sitt. Sú ást var ríku-
lega endurgoldin, því Gunnar unni
móður sinni heitt, og reyndist henni
góður sonur.
Nú er svo komið að töffarinn velur
sér ævistarf. Og ekki féll eplið langt
frá eikinni. Faðirinn, afinn skip-
stjórar og hafið kallaði á töffarann.
Hann tók farmannapróf frá Stýri-
mannaskóla Reykjavíkur 1953. Sjó-
mennskan varð ævistarfið. Hann var
háseti, stýrimaður og skipstjóri á
skipum Sambands ísl. samvinnu-
félaga frá 1946–1965. Síðar tjóna-
skoðunarmaður hjá Samvinnutrygg-
ingum.
Gunnar valdi vel þegar hann
kvæntist eftirlifandi konu sinni
1950, Ólöfu Þór, mikilli mannkosta-
konu.
Þau eiga fjögur góð börn og
tengdabörn, barnabörnin orðin sex.
Þetta varð lífið hans. Töffarinn með
gullhjartað varð umhyggjusamur
eiginmaður, faðir og afi. Hann dáði
fjölskyldu sína, og varð henni allt.
Þar naut sín hve Gunnar var ætíð
barngóður. Öll börn í stórfjölskyld-
unni elskuðu Gunnar frænda.
Nú verðum við að kveðja töffar-
ann okkar. Örlagadísirnar gáfu hon-
um miklar og góðar vöggugjafir,
sem við nutum öll í hans frændgarði.
Þrátt fyrir heilsubrest og miklar
þrautir, sem hrjáðu hann að síðustu,
hvarf aldrei stríðnisglampinn í aug-
unum, dillandi hláturinn og fallega
brosið hans.
Elsku Lóa, Jón Þór, Gróa, Gunn-
ar, Jóhanna, tengdabörn og barna-
börn.
Mikill er missir ykkar.
Megi góður guð styrkja ykkur í
sorg ykkar.
Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð
hjartans þakkir fyrir liðna tíð
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Guðrún Einarsdóttir.
Vestast í Vesturbænum voru fyrir
og upp úr aldamótunum 1900 mörg
heimili reykvískra sjómanna. Flest
voru þetta bárujárnsklædd timbur-
hús, mörg smá en falleg og oftast vel
við haldið. Stundum máluð í skærum
litum. Mörg standa þau enn og hafa
afkomendur frumbyggjanna fegrað
umhverfi þeirra og skrýtt smáar lóð-
irnar með blóma- og trjárækt. Þetta
er fallegt hverfi, götur þröngar en
mörg húsanna bera nöfn staðarins,
oft skorin út í tré og fest framan á
húsin.
Í einu þeirra fæddist Gunnar Haf-
steinn Sigurðsson árið fyrir Alþing-
ishátíðina. Húsið stendur við Lág-
holtsveg og hét Steinar. Sá háttur
tíðkaðist þá að strákarnir í hverfinu
voru nefndir eftir húsinu. Þannig
var heiti Gunnars á yngri árum
„Gunni í Steinabæ“. Munu margir
félagar hans og samskipverjar
minnast hans ennþá undir því heiti.
Þetta var algengt. Einn vina okkar
frá æskuárum, kunnur fótbolta-
kappi, var t.d. aldrei annað kallaður
en „Jón á Ellefu“. Það byggðist á því
að hann átti heima á Framnesvegi
11. Og þannig var um marga aðra.
Þarna í Steinabæ ólst Gunnar upp
hjá foreldrum sínum, Sigurði Þor-
steinssyni skipstjóra og konu hans,
Gróu Þórðardóttur. Hann var yngst-
ur ellefu barna þeirra. Ekki er að
efa að það hefur verið harðsótt að
sjá fyrir þessum stóra hópi og það í
byrjun kreppunnar miklu, sem
reyndar hófst í frumbernsku Gunn-
ars. En Sigurður var aflasæll for-
maður á báti sínum og hefur sjórinn
lagt þeim góða björg í bú. Og elstu
systkinin hófu störf á unga aldri og
hjálpuðu til eftir megni. Búhyggni
húsfreyjunnar hefur átt þar góðan
hlut.
Heimaslóð Gunnars var því í ná-
grenni sjávarins. Leikvöllurinn
bryggjurnar frá Geirsbryggju um
Slippinn og vestur að Grandagarði,
sem lá út í Effersey, eins og hún var
kölluð. Að vestan var svo sjávar-
garðurinn, öskuhaugar og strand-
lengjan með bugðunni allt vestur á
Seltjarnarnes. Þarna var barns-
skónum slitið. Auðvitað þekktust þá
allir íbúar hverfisins og mun Gunnar
snemma hafa heilsað þeim með
nafni. Upp úr fermingu fékk hann
oft að fljóta með á báti þeim sem fað-
ir hans hafði átt og bróðir hans gerði
út.
Hér má þess minnast að þessi bát-
ur hét Aðalbjörg RE og varð frægur
árið 1944 er honum var siglt í ham-
faraveðri undir Viðeyjarstrendur að
bjarga áhöfn tundurspillisins
Skeena frá Kanada. Tókst að bjarga
198 sjóliðum af skipinu. Er það ein-
hver mesta fjöldabjörgun, sem um
getur við Ísland. Það var Einar
bróðir Gunnars sem vænstan þátt-
inn átti í því afreki.
Nærvera hafsins, atvinna föður og
bræðra hefur snemma tekið Gunnar
Sigurðsson föstum tökum. Hann fór
sína fyrstu ferð á farskipi 17 ára
gamall, er hann var ráðinn háseti á
Hvassafell, sem SÍS gerði út.
Reyndar var hann einn þeirra, sem
sóttu skipið til Ítalíu. Hann innrit-
aðist svo í Stýrimannaskólann og
lauk þaðan námi árið 1953. Síðan
hófst ferill hans sem stýrimaður á
ýmsum skipum Sipadeildar SÍS, þar
á meðal var hann stýrimaður og
skipstjóri í afleysingum á Hamra-
fellinu, sem þá var stærsta skip Ís-
lendinga. Hann stundaði far-
mennsku fram til ársins 1965 er
hann hóf störf hjá Samvinnutrygg-
ingum, síðar Vátryggingafélagi Ís-
lands. Störf hans hjá trygginga-
félögunum sneru aðallega að
tryggingum og sjótjónum sem urðu
á skipum eða farmi þeirra svo og
tryggingamálefnum er vörðuðu sjó-
menn. Þessu starfi gegndi hann
fram til ársins 1994. Eftir að Gunnar
kom í land keypti hann trillubát,
Lóu RE 67, og stundaði um árabil
róðra samhliða vinnu sinni hjá
tryggingafélögunum. Hann var ein-
staklega starfsamur og hafði unun
af sjómennskunni. Má því segja að
starf hans hafi verið tengt sjónum
með einhverjum hætti alla starfsævi
hans.
Gunnar átti sér mörg áhugamál.
Eitt þeirra var stangveiði. Hann fór
liðlega með veiðistöngina og hafði
unað af því að njóta kyrrðarinnar við
veiðivötn eða heyra nið tærrar berg-
vatnsár. Eftir að tengdir tókust með
fjölskyldum okkar fyrir um tveimur
áratugum lágu leiðir okkar oft sam-
an í fjölskylduboðum. Var þá mörg
veiðisagan sögð, veiðistöðum í ám og
vötnum lýst og voru það sannarlega
góðar og glaðar stundir. Og oft fór
Gunnar með afastrákana Ásgeir og
Magnús og önnur barnabörn í veiði-
ferðir. Það var vel metið hjá unga
fólkinu.
Þótt Gunnar væri störfum hlaðinn
fann hann ávallt stundir til þess að
sinna barnabörnunum og annast
þær skyldur sem hann taldi að til-
heyrðu fjölskylduföðurnum. Glað-
sinna og góðhjartaður veitti hann
öðrum styrk með jákvæðu hugarfari
sínu. Þessir þættir skapferlis hans
sköpuðu honum þær vinsældir sem
hann öðlaðist í lífi sínu.
Gunnar kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Ólöfu Þór, á árinu 1950. For-
eldrar hennar voru hjónin Jón og
Jóhanna Þór á Akureyri. Þau
bjuggu um skeið í heimahverfi
Gunnars við Lágholtsveg, en fluttu
þaðan að Arnarfelli í Mosfellssveit.
Þar mun hafa verið frekar þröngt
um þau og gekk Ólöf í það að kaupa
íbúð á Víðimel meðan Gunnar var úti
á sjó. Þótti Gunnari það vel af sér
vikið. En árið 1968 byggðu þau sér
raðhús í Fossvogi þar sem þau
bjuggu síðan.
Gunnar átti við heilsubrest að
stríða síðastliðin tvö ár. Hann lést
eftir þung veikindi hinn 13. þ.m.
Hugur okkar vina hans er hjá Ólöfu
sem mest hefur misst og hjá afkom-
endum þeirra hjóna. Gunnari er
þökkuð samfylgdin og þess beðið að
blessun fylgi minningu hans.
Sigrún Hannesdóttir og
Ásgeir Pétursson.
„Góðan og blessaðan daginn,“
segir hress og kunnugleg rödd. Þar
er kominn Gunnar H. Sigurðsson
upp stigann að Fiskislóð 30. Það er
gjarnan um hádegisbilið. Gunnar
var einn af þeim mönnum sem kom
öðrum í gott skap, því hann var svo
léttur í lund.
Við Gunnar höfðum haft góð við-
skipti saman í gegnum árin áður
fyrr. Gunnar átti trillubát sem hann
skýrði Lóu. Hann og bróðir hans
Þorsteinn fóru margan róðurinn út á
flóann, ýmist á handfæraveiðar eða
að skjóta svartfugl. Það veit ég að
þeir bræður gengu sérstaklega vel
frá sínum afla. Gert var að fiskinum
og hann ísaður í kassa. Fuglinum
raðað um allan bátinn til kælingar.
Við urðum mjög góðir vinir og sakna
ég mjög þessa góða manns. Lóa. Ég
votta þér og fjölskyldu ykkar mína
innilegustu samúð og vona að Guð
styrki þig í þinni lífsbaráttu.
Helgi Hafliðason.
GUNNAR
HAFSTEINN
SIGURÐSSON
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.iswww.mosaik.is
LEGSTEINAR
sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4 - sími: 587 1960
Guðmundur
Jóhannsson
f. 10. 6. 1932
d. 8. 3. 1989
Minning þín lifir
Hvíl í friði