Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 11
FRÉTTIR
FARSÓTTAFRÉTTIR, nýtt fréttabréf á
vegum sóttvarnalæknis, hefur hafið göngu
sína hjá Landlæknisembættinu. Hægt er að
nálgast fréttabréfið, sem framvegis kemur
út einu sinni í mánuði á íslensku og ensku, á
heimasíðu Landlæknisembættisins,
www.landlaeknir.is.
Fram kemur að ástæðan fyrir ensku út-
gáfunni sé sú að mikið er spurt á erlendum
vettvangi um atburði líðandi stundar er
varða farsóttir og smitsjúkdóma. Sóttvarnir
séu í eðli sínu alþjóðlegar. Eftir sem áður
muni fréttir, tilkynningar, tilmæli og fyr-
irmæli frá embættinu birtast á vef Land-
læknisembættisins, eftir því sem tilefni er
til.
Ritstjóri Farsóttafrétta er Jónína Margrét
Guðnadóttir.
Farsóttafréttir
hefja göngu sína
AÐ LOKNUM ákveðnum skyldunámskeiðum í
meistaranáminu, sem m.a. fjalla um utanrík-
ismál Íslands, hlutverk og stjórnun alþjóða-
stofnana og stjórnun, skipulag og samninga-
tækni í alþjóðasamskiptum, geta nemendur
sérhæft sig á fimm sviðum; í fjölmenningu,
Evrópufræðum, smáríkjafræðum, opinberri
stjórnsýslu og alþjóðaviðskiptum.
Baldur Þórhallsson, dósent í stjórnmála-
fræði og formaður stjórnar Alþjóðamálastofn-
unar og Rannsóknarseturs um smáríki, segir
að markmiðið með náminu sé m.a. að mæta
vaxandi þörf í samfélaginu fyrir menntað
starfsfólk með þekkingu á alþjóðasamskiptum,
enda hafi umfang alþjóðasamskipta vaxið mjög
á undanförnum árum, á vegum hins opinbera,
samtaka og fyrirtækja.
„Fjöldi íslenskra stúdenta hefur sótt nám á
þessu sviði erlendis og svo mun verða áfram.
En það er líka mikilvægt að geta boðið upp á
námið hér á landi. Þannig svörum við bæði
kröfum stúdenta og atvinnulífsins,“ segir Bald-
ur, „og við munum skipuleggja námið þannig
að fólk geti stundað það með starfi“.
Baldur segir jafnframt að ekki sé gerð krafa
um að fólk sem sæki námið hafi BA-próf í
stjórnmálafræði. Námið er skipulagt þannig að
fólk með mismunandi háskólamenntun geti
stundað það.
Rannsóknir á utanríkismálum efldar
Markmið námsins er einnig að sögn Baldurs
að efla rannsóknir á utanríkismálum og al-
þjóðasamskiptum við Háskóla Íslands. Í
tengslum við meistaranámið sé stefnt að því að
auglýsa á næstu vikum nýja lektorsstöðu í al-
þjóðasamskiptum við stjórnmálafræðiskor en
hingað til hefur aðeins ein staða í alþjóðastjórn-
málum verið við skólann. Einnig nefnir Baldur
að námið komi til með að efla framhaldsnám við
stjórnmálafræðiskor, en þar er fyrir boðið upp
á meistaranám í opinberri stjórnsýslu MPA-
nám sem hátt í tvö hundruð manns stunda.
„Við viljum gera námið þverfaglegt og fjöl-
breytt,“ segir Baldur. „Nemendur geta ein-
beitt sér að alþjóðasamskiptum ef þeir vilja en
geta einnig valið um fimm sérsvið til að sér-
hæfa sig nánar og koma að þeirri sérhæfingu
m.a. kennarar úr viðskipta- og hagfræðideild,
lagadeild og hugvísindadeild, auk erlendra
kennara.“
Hluti námsins verður á ensku og opnar það
möguleika fyrir erlenda stúdenta að sækja
námið en fjöldi erlendra stúdenta hefur sótt
námskeið um smáríki sem kennt hefur ver-
ið í BA-námi við stjórnmálafræðiskor und-
anfarin ár.
Opinber stjórnsýsla er fjórði valmögu-
leikinn. Þar er fjallað um sérstöðu opinbers
rekstrar og lagaumhverfi hans Mikið af al-
þjóðasamskiptum tengist hinu opinbera
beint eða og beint og þekking á rekstri, lög-
um og reglugerðum því hagnýtt fyrir þá
sem starfa að alþjóðasamskiptum. Í fimmta
og síðasta lagi geta nemendur í meistara-
náminu sérhæft sig í alþjóðaviðskiptum
sem boðið er upp á í samstarfi við viðskipta-
og hagfræðideild. Þar er m.a. fjallað um al-
þjóðamarkaðssetningu og atvinnuvegi
ríkja.
Baldur segir að einnig sé í ráði að bjóða
15 eininga diplómanám í alþjóðasamskipt-
um við stjórnmálafræðiskor fyrir þá sem
vilja taka nokkur fög en ekki endilega ljúka
meistaranámi.
Deildarmúrar rofnir
Kennarar úr öðrum deildum en félagsvís-
indadeild munu koma að kennslu í meist-
aranáminu. Valur Ingimundarson, dósent í
sagnfræði, mun t.d. kenna námskeiðið ut-
anríkismál Íslands. „Á námskeiðinu verður
farið yfir söguna, utanríkisstefnu Íslands
frá seinni heimsstyrjöld fram á þennan
dag,“ segir Valur um námskeiðið. Til að
nálgast viðfangsefnið verður unnið út frá
kenningum um alþjóðastjórnmál, öryggis-
mál og alþjóðasagnfræði. Sérstaklega verð-
ur hugað að samskiptum við Bandaríkin
með tilliti til hermála, stjórnmála, menning-
ar- og efnahagsmála og aðildar Íslands að
alþjóðasamtökum eins og Sameinuðu þjóð-
unum og NATO.
Valur segir að í meistaranáminu í al-
þjóðasamskiptum sé lögð áhersla á þver-
faglega nálgun og reynt að rjúfa deildarmúra
og m.a. í þeim tilgangi eru fengnir kennarar úr
öðrum deildum til að kenna námskeið. „Námið
býður mörg tækifæri til samvinnu, tengir
stjórnmálafræði og sagnfræði saman og eykur
þar með samskipti á milli stjórnmálafræðinga
og sagnfræðinga,“ segir Valur.
En lengra verður seilst því í framtíðinni er
gert ráð fyrir að erlendir kennarar taki að sér
námskeið á ákveðnum sviðum, auk gestafyr-
irlesara í samráði við utanríkisráðuneytið. Þar
er samankomin mikil reynsla í alþjóðasam-
skiptum, gerð alþjóðasamninga og ýmsu því
sem snýr að þessu fag- og fræðasviði og því
mikilvægt að geta fengið ráð og aðstoð þaðan,“
segir Baldur.
Bæklingur með efni meistaranámsins verður
gefinn út í lok mánaðarins og fljótlega verður
hægt að nálgast upplýsingar um námið inni á
vef Háskóla Íslands. Þangað til eru áhuga-
samir beðnir að snúa sér til Margrétar S.
Björnsdóttur, forstöðumanns Stofnunar
stjórnsýslufræða og stjórnmála og umsjónar-
manns alþjóðasamskiptanámsins, msb@hi.is.
Í fyrsta lagi er hægt að sérhæfa sig á sviði
fjölmenningar og læra um áhrif menningar og
trúarbragða í alþjóðasamskiptum. Þar verður
fjallað um mismunandi menningarheima og
samþættingu stjórnmála og trúmála. Magnús
Þorkell Bernharðsson, lektor í nútímasögu
Mið-Austurlanda við Williams College í
Massachusetts í Bandaríkjunum, mun kenna
námskeiðin sem falla undir þetta svið.
Í öðru lagi geta nemendur sérhæft sig í Evr-
ópufræðum og lært um áhrif og stöðu ríkja í
Evrópusamrunanum. Þar er m.a. boðið upp á
námskeið sem fjalla um þær breytingar sem
hafa verið að eiga sér stað innan Evrópusam-
bandsins og Evrópuvæðingu, þ.e. áhrif Evr-
ópusamrunans á stjórnmál og stjórnsýslu í
EES-ríkjunum.
Þriðji valmöguleikinn er að leggja áherslu á
smáríkjafræði þar sem fjallað er um stöðu smá-
ríkja í alþjóðasamskiptum. Mun Baldur sjá um
þau námskeið. Verður þar m.a. fjallað um
Norðurlöndin, smáríki í alþjóðakerfinu og smá-
ríki í Evrópu, veikleika þeirra stöðu og áhrif.
Meistaranám í alþjóðasamskiptum í HÍ í haust
Þverfaglegt nám með
möguleikum á sérhæfingu
Í haust hefur göngu sína við
stjórnmálafræðiskor í Háskóla
Íslands tveggja ára meist-
aranám í alþjóðasamskiptum,
auk þess sem í ráði er að bjóða
styttra diplómanám í greininni.
Ný lektorsstaða við skorina
verður auglýst innan fárra
vikna í tengslum við námið.
Reuters
Hvaða breytingar hafa átt sér stað innan Evrópu-
sambandsins? Um það er m.a. fjallað í meistara-
námi í alþjóðasamskiptum.
Baldur Þórhallsson,
dósent í stjórn-
málafræði.
Margrét S. Björnsdóttir
er umsjónarmaður
náms í alþjóða-
samskiptum í HÍ.
ÁFORMAÐ er að opna aftur verslun Nóa-
túns við Hringbraut í vesturbænum í
Reykjavík í næsta mánuði, fyrir páska, en
nákvæm dagsetning liggur ekki fyrir, að
sögn Sigurðar Markússonar, rekstrarstjóra
Nóatúnsverslananna.
Verslunin skemmdist í bruna nokkru fyr-
ir jólin og hefur verið unnið að endurbótum
síðan.
„Staðreyndin er sú að það var meira af
skemmdum en menn gerðu sér grein fyrir í
upphafi, það þurfti að hanna allar lagnir al-
veg upp á nýtt,“ segir hann, og að verslunin
verði um leið betrumbætt og endurnýjuð frá
grunni. „Allt er þetta að taka sinn tíma,“
segir Sigurður, en bendir á að unnið sé í
versluninni nótt sem nýtan dag. Innrétt-
ingar og tæki í nýju verslunina séu þegar
komin til landsins.
Nóatún í Vesturbæ
opnað fyrir páska
LÁN til nautgriparæktar jukust um 12%
hjá Lánasjóði landbúnaðarins á síðasta
ári. Aukning til sauðfjárræktar nam 3%
en í öðrum greinum var samdráttur.
Samanlagt námu lánveitingar sjóðsins
1.208 milljónum króna sem er 11% sam-
dráttur frá árinu 2003.
Hins vegar jukust lán til framkvæmda
um 9% og einnig jukust lánveitingar til
bústofns- og vélakaupa. Á vef lánasjóðs-
ins segir að talsvert færri lán hafi verið
veitt til jarðakaupa árið 2004 en árið áð-
ur.
Lán til kúabænda
jukust um 12%
GRUNNSKÓLARNIR í Garðabæ, sem inn-
rita börn í 1. bekk, kynna starf sitt á opnum
kynningarfundi í dag, þriðjudag kl. 20–
21.30, í sal Tónlistarskóla Garðabæjar, að
Kirkjulundi. Á fundinum verður einnig
kynnt starf leikskóla í Garðabæ fyrir 5 ára
börn.
Foreldrar í Garðabæ velja sjálfir skóla
fyrir börn sín og gefst á fundinum kostur á
að kynnast áherslum í starfi allra skólanna í
Garðabæ sem hafa 1. bekk, segir í frétta-
tilkynningu.
Kynningarfundur um
val á skóla í Garðabæ
EITT hundrað ár eru í dag liðin frá
fæðingu Jóns Steffensen, prófessors
við læknadeild Háskóla Íslands, og í
minningu hans verður á föstudag
efnt til ráðstefnu og opnuð sýning í
máli og myndum um starf, einkalíf og
áhugamál Jóns. Að henni standa
Landsbókasafn Íslands – háskóla-
bókasafn og Þjóðminjasafn Íslands.
„Jón Steffensen var merkilegur
maður, húmanisti og vísindamaður
og afkastamikill fræðimaður á sviði
rannsókna í læknisfræði og mann-
fræði og hafði forgöngu um að stofna
Félag áhugamanna um sögu lækn-
isfræðinnar og safnaði miklu af lækn-
ingatækjum og skráði sögu þeirra,“
Þar er einnig skrifborð Jóns og mál-
verk af honum. Þá gáfu þau húseign
sína við Aragötu sem ganga skyldi til
viðhalds og eflingar sérsafninu og til
styrktar útgáfu handrita sem tengj-
ast sögu heilbrigðismála. Þá arf-
leiddu þau Læknafélag Íslands að
mestum hluta annarra eigna sinna
sem verja skal til að efla og byggja
upp Nesstofusafn en Jón átti mikinn
þátt í það að Nesstofa, bústaður
fyrsta landlæknis Íslands, komst í
eigu ríkisins og þar var komið upp
lækningaminjasafni.
Eins og fyrr segir verður á föstu-
dag opnuð sýning á bókum, hand-
ritum, munum og myndun sem
tengjast starfi Jóns Steffensen. Þann
dag hefst einnig ráðstefna kl. 15.30
sem heldur áfram laugardaginn 19.
febrúar kl. 9 til 16.50. Verða flutt er-
indi um Jón og störf hans og um efni
sem tengjast hinum mörgu fræða-
sviðum hans. Aðalfyrirlesari á föstu-
dag er prófessor Andy Cliff sem m.a.
ræðir um faraldra sem stafað hafa af
eldsumbrotum.
ritum verk um rannsóknir hans sem
ekki hafa enn verið gefin út.“
Hjónin Jón Steffensen og Kristín
Björnsdóttir gáfu Háskólabókasafni
sex þúsund binda bókasafn sitt eftir
sinn dag og hefur bókum um lækn-
isfræðileg efni verið komið fyrir í sér-
stakri deild á Landsbókasafni – há-
skólabókasafni sem ber nafn hans.
ir að ferill Jóns Steffensen hafi um
margt verið merkilegur. „Hann var
brauðryðjandi á mörgum fræðasvið-
um, til dæmis faraldsfræði, sögu
læknisfræðinnar, líffærafræði,
mannfræði og fornleifafræði og það
liggja merk verk eftir hann á öllum
þessum sviðum. Mörg þeirra hafa
komið út en það eru líka til í hand-
segir Örn Bjarnason, fyrrverandi rit-
stjóri Læknablaðsins, í samtali við
Morgunblaðið. Ásamt Erni hafa þau
Gísli Pálsson, Emilía Sigmarsdóttir,
Sigurður Örn Guðbjörnsson, Kristín
Bragadóttir og Jökull Sævarsson
undirbúið ráðstefnuna og sýninguna.
Jón Steffensen nam læknisfræði
við HÍ, stundaði síðar framhaldsnám
erlendis og var skipaður prófessor í
líffærafræði og lífeðlisfræði við HÍ
frá 1937. Frá haustinu 1957 kenndi
hann eingöngu líffærafræði og vefj-
afræði til 1972 og hann rak rann-
sóknastofu í meinefnafræði 1937 til
1972.
Gísli Pálsson prófessor tekur und-
Ráðstefna og sýning í tilefni aldarminningar Jóns Steffensens
Afkastamikill
á sviði læknisfræði
og mannfræði
Morgunblaðið/ÞÖK
Undirbúningur fyrir sýningu á bókasafni Jóns Steffensens í Þjóðar-
bókhlöðunni. Emelía Sigmarsdóttir og fleiri glugga í bækur.