Morgunblaðið - 15.02.2005, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
RAFIK Hariri, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra Líbanons, lést í
gær í mikilli spreng-
ingu í miðborg Beirút.
Hafði sprengjunni ver-
ið komið fyrir í bíl og
var hún sprengd er
bílalest Hariris ók hjá.
Svo öflug var
sprengingin, að bílarn-
ir í lest Hariris, sem
voru allir skotheldir og
sérstaklega styrktir,
voru bara brennandi
flök á eftir. Fórust um
10 manns í tilræðinu og
allt að 100 slösuðust.
Hariri var milljarðamæringur og
lagði sitt af mörkunum við uppbygg-
inguna eftir borgarastyrjöldina frá
1975 til 1990. Var hann forsætisráð-
herra frá 1992 til 1998 og aftur frá
2000 og þar til í október
síðastliðnum. Gekk
hann þá til liðs við
stjórnarandstöðuna
vegna deilna um af-
skipti Sýrlendinga af
málefnum Líbanons.
Vildi hann meðal ann-
ars ekki sætta sig við
þá kröfu Sýrlendinga,
að Emile Lahoud, gam-
all keppinautur Harir-
is, yrði áfram forseti í
þrjú ár.
Bandamenn Lah-
ouds og Sýrlendinga
sökuðu Hariri um að
hafa staðið á bak við
ályktun Sameinuðu þjóðanna í sept-
ember um að Sýrlendingar drægju
herlið sitt frá Líbanon en það voru
Bandaríkjamenn og Frakkar, sem
lögðu tillöguna fram.
Hariri er að mestu þökkuð upp-
byggingin í Líbanon eftir borgara-
stríðið en um leið kennt um að hafa
steypt landinu í miklar skuldir. Eru
þær rúmlega 2.000 milljarðar ísl. kr.
Voru stuðningsmenn
Sýrlendinga að verki?
Ekki er vitað enn hverjir bera
ábyrgð á ódæðinu en ekki fer hjá því,
að grunsemdirnar muni beinast að
stuðningsmönnum Sýrlendinga.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
fordæmdi hins vegar verknaðinn í
gær sem „skelfilegan glæp“ og Amr
Mussa, formaður Arababandalags-
ins, kvaðst óttast pólitískar af-
leiðingar þessa hryðjuverks. Tyrk-
landsstjórn fordæmdi einnig
„hryðjuverkið“ og franska stjórnin
hvatti í gær til, að skipuð yrði al-
þjóðlega rannsóknarnefnd til að
kanna hverjir bæru ábyrgð á glæpn-
um. Í yfirlýsingu frá Bandaríkja-
stjórn þar sem morðið var fordæmt,
sagði einnig, að það minnti á, að Líb-
anir ættu „að vera lausir við sýr-
lenska hersetu“.
Eftir að óöldinni í Líbanon lauk
hefur lítið verið um hryðjuverk þar.
Þetta er þó í annað sinn frá því í
október, að ráðist er gegn stjórnar-
andstöðunni með þessum hætti.
Beirút. AP, AFP.
Reuters
Svo öflug var sprengingin, að hún skildi eftir sig 10 metra djúpan gíg og skemmdir urðu á byggingum allt um
kring. Um 20 bílar stóðu í ljósum logum. Að minnsta kosti 10 manns fórust og allt að 100 hundrað slösuðust.
Rafik Hariri
Fyrrv. ráða-
maður í Líb-
anon drepinn
Var andvígur veru sýrlensks herliðs
í landinu – sumir óttast nýja vargöld
GERHARD Schröder, kanslari
Þýskalands, sætti í gær harðri gagn-
rýni vegna hugmynda hans sem
kynntar voru um liðna helgi um breyt-
ingar á vettvangi Atlantshafsbanda-
lagsins (NATO).
Því var haldið fram í gær í þýskum
dagblöðum að tillögur kanslarans
væru fallnar til þess eins að skaða
samband Þjóðverja og helstu banda-
manna þeirra, einkum Bandaríkja-
manna.
Peter Struck, varnarmálaráðherra
Þýskalands, flutti gestum á öryggis-
ráðstefnu í München boðskap kansl-
arans. Í ræðu Schröders var því m.a.
haldið fram að NATO væri „ekki leng-
ur helsti vettvangur bandamanna
beggja vegna Atlantshafsins til að
ræða og samhæfa stefnu sína“.
Í ræðunni var hvatt til róttækra
breytinga á vettvangi NATO til að
tryggja eðlilegt samstarf og samráð
og gera bandalagið fært um að bregð-
ast við nýjum ógnunum.
Schröder hvatti til þess að Evrópu-
sambandið (ESB) og Bandaríkin
settu á stofn nefnd hátt settra og
óháðra embættismanna til að kanna
hvaða leiðir væru færar til að efla
samstarf aðildarþjóðanna beggja
vegna Atlantshafsins. Fela ætti nefnd
þessari að skila skýrslu í byrjun
næsta árs og á grundvelli hennar yrðu
unnt „að draga nauðsynlegar álykt-
anir“.
Í ræðunni sagði og að samskipti
Evrópusambandsins og Bandaríkj-
anna nú tækju ekki mið af vaxandi
mikilvægi ESB. Þá væru núverandi
samráðsferli á vettvangi NATO ekki í
samræmi við „aðstæður og kröfur nú-
tímans“.
Efasemdir sagðar geta skapað
mikinn og djúpstæðan vanda
Í dagblöðum í Þýskalandi í gær
sagði að Schröder hefði verið veikur
um helgina og því ekki getað flutt
ræðuna. Struck hefði hins vegar verið
illa undir ræðuna búinn. Þannig hefði
hann ekki getað upp-
lýst hvort vilji kanslar-
ans væri sá að Atlants-
hafsbandalagið yrði
leyst upp. Aðstoðar-
menn Strucks hefðu
verið undrandi og von-
sviknir.
Dagblaðið Die Welt
birti í gær grein um
hina nýju stefnu kansl-
arans undir fyrirsögn-
inni „Schröder styggir
bandamenn innan
NATO“. Í grein þess-
ari var fullyrt að hug-
myndir kanslarans
myndu ekki verða til
þess að bæta samskiptin við Banda-
ríkin sem væru stirð fyrir. Bild, mesta
lesna dagblað Þýskalands, sagði í for-
ystugrein að mikill vandi og djúp-
stæður myndi skapast ef forysturíki
NATO í Evrópu tæki að efast um til-
verugrundvöll bandalagsins.
Dagblaðið Süddeutsche Zeitung
tók í svipaðan streng. Sagði það kansl-
arann hafa unnið mikinn ef ekki óbæt-
anlegan skaða ekki síst sökum þess
hvernig hann hefði kosið að setja fram
hugmyndir sínar í þessu efni. Taldi
blaðið að Schröder hefði látið í það
skína að framkvæmdastjóri NATO
sinnti ekki starfi sínu sem skyldi.
Joschka Fischer, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði á ráðstefnunni, sem
sérfræðingar í varnarmálum frá fjöl-
mörgum ríkjum heims sóttu, að hug-
myndin væri ekki sú að veikja NATO
heldur þvert á móti styrkja bandalag-
ið.
Þýsku dagblöðin voru flest sam-
mála um að huga mætti að breyting-
um innan NATO og treysta samstarf
aðildarríkjanna í Evrópu og Banda-
ríkjanna. Hins vegar voru þær aðferð-
ir sem Schröder lagði til gagnrýndar.
Þannig sagði Financial Times
Deutschland að fráleitt væri að fela
nefnd ráðgjafa að finna svör í þessu
efni heldur væri ábyrgðin hjá ríkis-
stjórnum aðildarríkj-
anna og leiðtogum
þeirra.
Dagblaðið Tages-
spiegel sagði í forystu-
grein á sunnudag að
ræða Schröders hefði
komið verulega á óvart.
Hann hefði ekki einungis
gagnrýnt NATO heldur
og lýst yfir því að hann
teldi ESB mikilvægara
fyrirbrigði í alþjóðmálum
en Atlantshafsbandalag-
ið.
Jaap de Hoop Scheff-
er, framkvæmdastjóri
NATO, lét það álit í ljós á
ráðstefnunni að samskipti Evrópu-
ríkjanna og Bandaríkjanna væru í
prýðilegu horfi á vettvangi bandalags-
ins. Í viðtali við AFP-fréttastofuna
sagði framkvæmdastjórinn að viður-
kenna bæri að alvarlegur ágreiningur
hefði myndast vegna innrásarinnar í
Írak. Hins vegar væri samstarfið gott
nú um stundir og Atlantshafstengslin
traust.
Hvatt til ESB-umræðu
í Noregi
Jan Petersen, utanríkisráðherra
Noregs, lýsti þeirri skoðun sinni í gær
að „efasemdir“ Þjóðverja á vettvangi
NATO hefðu í för með sér að hefja
yrði á ný umræðu um hvort Norð-
mönnum bæri að leita eftir aðild að
ESB. Væri vilji fyrir því að auka hlut
ESB á öryggismálum í álfunni á
kostnað NATO hlytu slíkar hugmynd-
ir að vekja athygli og áhyggjur í Nor-
egi. Hið sama hlyti að gilda um önnur
ríki NATO sem stæðu utan ESB:
Kanada, Ísland og Tyrkland. Þessi
ríki gætu staðið uppi sem „jaðarríki“
en hvað Norðmenn varðaði væri ljóst
að aðildin að Atlantshafsbandalaginu
væri önnur meginstoðin í utanríkis-
og öryggismálastefnu þjóðarinnar.
Hin væri aðildin að Sameinuðu þjóð-
unum.
Schröder sætir
harðri gagnrýni
Þýsk dagblöð telja hugmyndir kanslarans um breytingar
á NATO fallnar til að styggja bandamenn Þjóðverja
Gerhard Schröder
NIÐURSTÖÐUR
DNA-rannsóknar á dreng,
sem lifði af flóðbylgjuna á Sri
Lanka um jólin, liggja nú fyr-
ir. Sýna þær og sanna, að
hjónin, sem gerðu formlegt
tilkall til hans, eru foreldrar
hans.
Dómari á Sri Lanka ákvað,
að fram skyldi fara DNA-
rannsókn á drengnum, sem er
fjögurra mánaða, vegna frétta
um, að níu hjón alls héldu því
fram, að hann væri sonur
þeirra. Raunar var það síðar
borið til baka en rannsóknin
fór fram og hjónin, sem börð-
ust mest fyrir því að fá dreng-
inn, eru hans réttu foreldrar.
„Ég er svo sæll og ánægður
og þakka guði fyrir að fá
barnið mitt aftur,“ sagði faðir
þess, Murugupillai Jeyarajah,
en þau hjónin misstu allar
eigur sínar í flóðinu og búa nú
í búðum í Kalmunai.
Íhuga málssókn
Fyrr í mánuðinum voru þau
handtekin og sökuð um að hafa ætl-
að að stela drengnum á sjúkrahúsi
en þau voru þau einu, sem lögðu
fram formlegt tilkall til hans. Eru
þau nú að íhuga málssókn gegn yf-
irvöldum vegna þeirra andlegu
þjáninga, sem þau hafa liðið af
þeirra völdum.
Barnið fannst undir miklu braki
og var þá kallað „Barn 81“ þar sem
það var 81. manneskjan, sem flutt
var á sjúkrahúsið í bænum eftir
hamfarirnar. Talið er að alls hafi um
31.000 manns farist á Sri Lanka er
flóðbylgjan gekk á land.
„Barn 81“ komið
í hendur foreldra
sinna á Sri Lanka
AP
„Barn 81“ er nú komið til foreldra sinna
eftir sjö vikna þref.
Kalmunai. AFP.
UM 60 manns, hið minnsta,
týndu lífi í gær þegar eldur kom
upp í mosku í Teheran, höf-
uðborg Íraks.
Fréttir í gærkvöldi hermdu
að um 200 manns hefðu slasast í
brunanum. Eldurinn kom upp í
mosku í miðborg Teheran. Mik-
ill fjöldi fólks var þar saman-
kominn.
Talið er að eldurinn hafi
kviknað út frá olíuhitara sem
komið hafði verið fyrir í mosk-
unni en mjög kalt hefur verið í
Íran að undanförnu.
Komst eldurinn í klæðningu í
loftinu í bænasal kvenna og
breiddist hratt út. Talið var lík-
legt að tala látinna ætti eftir að
hækka en slökkviliðsmenn voru
enn að störfum seint í gær-
kvöldi.
Tugir farast í
eldsvoða í Teheran
Teheran. AFP.