Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 39 MINNINGAR ✝ Þóra Kristjáns-dóttir fæddist í Eyrarhúsum í Tálknafirði 28. apríl 1913. Hún lést á Dvalarheimilinu Hlíð á Akureyri 5. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristján Kristjánsson frá Mýri í Bárðardal, kennari, hreppstjóri og útvegsbóndi í Tálknafirði og síðar skógarvörður á Vöglum í Fnjóskár- dal. Hann var sonur Kristjáns Ingj- aldssonar umboðsmanns að Mýri í Bárðardal Jónssonar ríka og Helgu Stefánsdóttur, föðursystur Stephans G. Stephanssonar skálds. Móðir Þóru var Þórunn Jóhannes- dóttir Þorgrímssonar, sem var kunnur útvegsbóndi á Sveinseyri við Tálknafjörð, og konu hans Ragnheiðar Kristínar Gísladóttur. Þau Þórunn og Kristján eignuðust ellefu börn og náðu níu þeirra full- orðinsaldri en tvö dóu í frum- bernsku. Systkini Þóru, sem upp komust, voru: 1) Ólafur, verkstjóri á Patreksfirði, kona hans Oddný Sölvadóttir; 2) Sigríður; 3) Ragn- heiður Kristín, giftist Matthíasi E. Guðmundssyni, lögreglumanni í Reykjavík; 4) Jóhannes, deildar- stjóri KEA á Akureyri, kona hans var Gerður Benediktsdóttir; 5) Kristbjörg, gift Jóhannesi Eiríks- syni, ráðsmanni við Kristneshæli; veikinda móður sinnar send í fóst- ur til Ágústar Kristjánssonar og Margrétar Ingibjargar Jónsdóttur í Norðurbotni í Tálknafirði þar sem hún dvaldist fram yfir ferm- ingu. Þóra fór þá norður að Vögl- um í Fnjóskadal til foreldra sinna. Hún var við nám að Laugum í Reykjadal veturinn 1934–35. Þóra og Sigursteinn bjuggu á Grenivík, en einnig um tveggja ára skeið á Patreksfirði þar sem hann var vél- stjóri hjá Vatneyri, frystihúsi bræðra Þórunnar móður Þóru. Þau fluttu norður á ný vorið 1949 og ráðgerðu að byggja sér hús á Grenivík þegar Sigursteinn fékk botnlangabólgu um borð í Garðari EA og lést af völdum veikindanna. Eftir lát hans hélt Þóra börnum sínum heimili með tengdamóður sinni og Þóroddi mági sínum. Hún vann við ýmis tilfallandi verkefni, s.s. saltfiskverkum, beitingu, bakstur og fleira en kenndi einnig handavinnu við Grenivíkurskóla. Fljótlega eftir að yngsta dóttir hennar lést tæplega 12 ára gömul úr heilablóðfalli flutti Þóra búferl- um til Akureyrar. Hún starfaði á Kristneshæli, hjá skóverksmiðj- unni Iðunni og var ráðskona á síld- arplönum, fyrst á Raufarhöfn og síðar hjá bæði Sunnuveri og Norð- ursíld á Seyðisfirði hjá Hreiðari Valtýssyni og Elsu Jónsdóttur. Þóra tók við starfi ráðskonu á Sól- borg, heimili fyrir þroskahefta þegar til þess var stofnað árið 1970 og starfaði þar uns hún lét af störfum árið 1978 sökum heilsu- brests. Hún fór á Dvalarheimilið Hlíð í apríl 1980. Útför Þóru fer fram frá Gler- árkirkju á Akureyri í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður í Grenivíkurkirkjugarði. 6) Haraldur; 7) Helga; 8) Guðrún, gift Þóri Valdimarssyni, starfs- manni við Kristnes- hæli. Þóra var næst- yngst. Aðeins Krist- björg er á lífi af systk- inunum, en hún varð 100 ára 18. janúar síð- astliðinn. Þóra giftist 21. október 1938 Sigur- steini Jónssyni vél- stjóra frá Grenivík, f. í Holti við Grenivík 12. júlí 1910, d. 18. ágúst 1949. Foreldrar hans voru Jón Oddsson og Egedía Jóns- dóttir. Þau eignuðust fjögur börn, þau eru: 1) Hildur Mary, f. 18. ágúst 1940, d. 25. apríl 1999. Eig- inmaður hennar, Níels Brimar Jónsson, f. 24. janúar 1942, d. 27. apríl 2004. Þau eignuðust þrjú börn, Hönnu Þóreyju, Steinunni Elsu og Jón Viðar. 2) Þórunn Ey- dís, f. 12. maí 1944. Eiginmaður hennar er Þór Þorvaldsson, f. 7. október 1939. Þau eiga fimm dæt- ur, Margréti Þóru, Helgu Sigríði, Ingibjörgu Ebbu, Hjördísi Völu og Steinunni Maríu. 3) Jón Kristján, f. 4. apríl 1947. Eiginkona hans var Fjóla Sigurðardóttir. Þau skildu. Þau eignuðust þrjú börn, Guð- mund Þór, Sigurstein Mar og Ey- dísi Mary. 4) Steinunn, f. 18. sept- ember 1949, d. 20. ágúst 1960. Barnabarnabörn Þóru eru 17. Þóra ólst upp í Eyrarhúsum til fimm ára aldurs, en var þá í kjölfar Amma okkar, Þóra, hefur nú feng- ið hvíldina, eftir langan dag og strangan. Hún kveið ekki vistaskipt- unum, sannfærð alla tíð um að „fyrir handan“ myndi hún á ný hitta ástina sína, Sigurstein og dæturnar tvær sem fóru á undan henni, Steinunni og Hildi. Fyrst munum við ömmu Þóru á heimili okkar við Litluhlíð, en þangað kom hún þegar við vorum fárra ára. Síðar fékk hún svo vist á Dvalar- heimilinu Hlíð og þangað voru farnar ófáar ferðirnar. Það þótti alltaf jafn- spennandi að heimsækja ömmu á elli- heimilið, ellóið, enda margt sem heill- aði. Fyrst og fremst þótti okkur varið í nammiskúffu gömlu konunnar, þess beðið í ofvæni að hún gæfi út veiði- leyfi á þá ágætu skúffu. Svo átti hún forláta stól sem snerist og ekki leið- inlegt að setjast í hann og láta snúa sér í fleiri hringi. Yfirleitt var ákveðið fyrirfram hversu marga hringi mátti fara í hvert sinn! Á tímabili tók hún upp á því að leysa ungviðið út með peningagjöfum, var með þar til gerða poka með tíu króna peningum sem sérstaklega voru til þess ætlaðir að gleðja ungviðið sem leit inn til henn- ar. Á þessu stóra heimili, sem Hlíð er var líka gaman að fara í feluleiki, ferðast á milli hæða með lyftunni og svo gátu börnin líka dundað sér við leiki á gólfinu inni á herberginu henn- ar. Það var því alltaf spennandi að fara í heimsóknir á Hlíð. Ömmu þótti einkar skemmtilegt að bregða sér út í bíltúr og var þá ýmist ekið um bæinn, farið út í sveit og svo var toppurinn að fara alla leið út á Grenivík. Gjarnan dró hún þá upp veskið sitt og splæsti í bakkelsi sem helst átti að kaupa í Kristjánsbakaríi. Þetta var heilmikið ferðalag og margt spjallað. Ömmu þótti gaman að gefa og fyrir kom að hún var að ota að okkur ýms- um eigum sínum, þar á meðal fatnaði og ef henni þóttu undirtektirnar ekki nægilega góðar lét hún þess getið „að þetta væri nú bara alveg nýmóðins“. Skyldi ekkert í okkur að færast und- an því að taka við þessum ágætum flíkum „sem væru komnar í móð aft- ur“, eins og hún orðaði það. Þessi orðatiltæki hennar hafa lifað í fjöl- skyldunni og munu örugglega gera um ókomin ár. Við leiðarlok vonum við innilega að hún fái þá ósk sína uppfyllta að hitta nú fyrir gengna ástvini sína, svo sem hún þráði svo heitt. Hjördís Vala og Steinunn María. „Hreinlæti, þrifnaður og reglu- semi er æskilegt að sé svo mikill á heimilum að sem sjaldnast fari úr skorðum og þar af leiðandi ekki að taka stóra ræstingardaga. Gott mál- tæki segir að maður ætti helst ekki að þurfa að færa í lag heldur eigi maður ætíð að hafa í lagi. Einnig er húsmæðrum heimilanna nauðsynlegt og jafnvel öllu heimilisfólki að muna annað máltæki og það er: Að hafa vissan stað fyrir hvern hlut og hvern hlut á þeim vissa stað.“ Svo skrifaði Þóra Kristjánsdóttir hjá Kristjönu Pálsdóttur á Kvenna- skólanum á Laugum veturinn 1934– 35. Tilvitunin er tekin úr kaflanum Vorræsting en þar kemur fram að samt sé nú sjálfsagt að gera allsherj- ar ræstingu á öllu innan og jafnvel ut- an bæjar að vorinu, þegar tíð er orðin góð og nokkurn veginn orðið þurrt í kringum bæina. Síðan er nákvæm- lega útlistað hvernig best er að bera sig að við umrædda vorhreingern- ingu. Þarna var námsmeyjum einnig kennt að búa til sápu, hvernig best færi á að þvo hvítan þvott og mislitan, ullarþvott og gluggatjöld og nokkrar síður í glósubókinni fjalla sérstaklega um hreinsun á karlmannafötum, stíf- ingu þeirra og pressingu. Námsefnið tileinkaði Þóra sér með ágætum, hreinlætið í fyrirrúmi og þess gætt að ekki færi svo úr skorðum að taka þyrfti stóra ræstingardaga, hlutirnir hver á sínum vissa stað. Lífið fór ekki alltaf mildum hönd- um um Þóru Kristjánsdóttur. Henni féll ætíð þungt að hafa ekki notið æskuáranna í stórum hópi systkina sinna, á hinu mannmarga og stönd- uga heimili foreldra sinna fyrir vest- an. Sagði stundum frá því hvað hún orgaði á leiðinni, fimm ára gömul þegar verið var að flytja hana á milli bæja, frá Eyrarhúsum eftir að móðir hennar veiktist. Líka frá kvöldinu þegar hún nýkomin í fóstrið var vak- in upp og allt heimilisfólk þusti út á hlað þar sem gaf að líta uppljómaðan himin í suðri. Þá var hafið Kötlugosið 1918 og þóttu mikil undur að sjá him- ininn loga. Fátt virðist hún annað hafa kært sig um að muna frá barn- æskunni. Lítið annað var í það minnsta til frásagnar. Besti tími ævinnar voru árin með Steina, eiginmanninum sem reyndist henni afar vel. Milli þeirra voru mikl- ir kærleikar. Hann var hrifsaður úr faðmi fjölskyldunnar, Þóru og barnanna þriggja, tæplega fertugur en mánuði síðar fæddist yngsta dótt- irin sem fékk nafn hans. Það er ekki öfundsvert hlutskipti að standa uppi ekkja með fjögur börn, 36 ára gömul, engar almannatryggingar til staðar, meðlög eða bætur af neinu tagi. Góð- viljað fólk bætti það upp að svo miklu leyti sem hægt var, systur sem tóku að sér að sjá börnunum fyrir fatnaði, trillukarlar lögðu nýveidda ýsu á tröppurnar á Akurbakka þegar þeir komu af sjónum, þorpsbúar keyptu af henni nýbakaðar smákökur, tengdamóðir hennar og mágur sem héldu með henni heimili. Það var henni kappsmál að hafa börnin hjá sér, senda þau ekki til vandalausra svo mikið var á sig lagt. Að missa svo hana Steinu, sem ekki náði 12 ára aldri var meiri harm- ur en hægt er með góðu móti að ráða við og sjálfsagt hefur aldrei almenni- lega verið komist yfir þá raun. Þessir atburðir gerðust áður en ömmubörnin komast til vits og ára. Þau muna konu sem var hress og kát, konu sem hafði yndi af því að gefa og gleðja, miðla af reynslu, kenna bæn- ir, vestfirsk orðatiltæki, segja sögur af síldarplönum. Konu sem kom eins og stormsveipur inn í eldhús dætra sinna með gamanyrði á vör, hnoðaði, hrærði, þeytti og skellti á augabragði upp veislu, 15 sortir, ekkert múður og kökurnar sumar á fjölda hæða. Engum duldist hver stjórnaði í eld- húsinu þegar ættmóðirin var mætt með hvíta svuntu. Fyrirmæli gefin á báða bóga og eftir þeim var farið möglunarlaust. Þóra enda vön að hafa mikið um- leikis, fór létt með að elda ofan í fjöldann allan af hungruðu síldarsölt- unarfólki á árum áður. Þá sýndust mörg spjót á lofti í einu og mikill gustur á þeirri gömlu. Metnaðurinn að bjóða bragðgóðan mat en ekki síð- ur var mikið lagt upp úr ráðdeild og aðhaldsemi þegar kom að því að kaupa inn. Nýta matinn vel og bjóða afganginn daginn eftir í nýjum bún- ingi. Bruðl tíðkaðist ekki. Þegar að austan var komið eftir síldarvertíð var veskið í þykkara lagi. Þá var ekkert til sparað ef unnt var að gleðja ungar sálir. Pantaði Óla vindil út í Skarðshlíð og svo var ekið til heildsalans Valda Bald þar sem súkkulaðikex var verslað í kassavís Hennar háttur og vani að kaupa stórt inn. Þannig fékkst alltaf mestur af- slátturinn. Heilsuna missti hún snemma. Ekki orðin sjötug þegar eitt og annað fór að gefa sig í skrokknum. Fór því til þess að gera „ung“ inn á stofnun, en lét sér vel líka. Ekki vön öðru en taka því sem að höndum ber, þegjandi oft- ast og hljóðalaust. Dvalarheimilið Hlíð var hennar heimili í nær 25 ár. Þar var gott starfsfólk og alveg prýð- is matur, sagði hún og taldi sig bæði hafði vit á og smekk fyrir góðri mat- seld. Um meira var ekki beðið. Fyrir fáum árum missti hún svo elstu dótt- urina, Hildi. Þeirri harmafregn tók hún af æðruleysi, brá orðið hvorki við sár né bana. Sjálf hefði hún kosið að fá að fara í hennar stað. Því fékk hún bara ekki ráðið. Á Hlíð hafði hún hvað mest yndi af handavinnunni. Átti þar góðar stund- ir við að mála myndir á boli fyrir langömmubörnin, kodda- og svæfil- ver sjálfsagt í hundraðatali handa af- komendum sínum, gestum og gang- andi. Það er því viðeigandi að kveðja ömmu Þóru, nú þegar lagt er upp í Grenivíkurförina hinstu og vitna til þeirra áletrana sem hvað mestra vin- sælda nutu á svæflunum hennar: Góða nótt. Sofðu rótt. Margrét Þóra. ÞÓRA KRISTJÁNSDÓTTIR Kistur - Krossar Prestur - Kirkja Kistulagning Blóm - Fáni Val á sálmum Tónlistarfólk Sálmaskrá Tilk. í fjölmiðla Erfisdrykkja Gestabók Legstaður Flutningur kistu á milli landa og landshluta Landsbyggðar- þjónusta ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Einarsson Sverrir Olsen Bryndís Valbjarnardóttir Oddur Bragason Guðmundur Þór Gíslason Komum heim til aðstandenda ef óskað er REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÞÓRDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Eir, lést á Landspítala Fossvogi föstudaginn 11. febrúar. Ingibjörg Guðjónsdóttir, Guðjón Róbert Ágústsson, Einar Guðjónsson, Helga Guðmundsdóttir, Þorbjörg Guðjónsdóttir, Gylfi Ernst Gíslason, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HALLA GÍSLADÓTTIR, Hólmgarði 45, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt sunnudagsins 13. febrúar. Baldur Skarphéðinsson, Halla Björg Baldursdóttir, Magnús Páll Albertsson, Gísli Baldursson, Ragnheiður Sigurgeirsdóttir og barnabörn. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Skil Minningargreinar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is (smellt á reitinn Morgun- blaðið í fliparöndinni – þá birtist valkosturinn „Senda inn minning- ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs- ingum). Skilafrestur Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðju- degi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til- tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningar- greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.