Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 15.02.2005, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 15. FEBRÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður Ingv-arsson fæddist í Stíflu í V-Landeyjum 6. september 1927. Hann lést á Sauðár- króki 3. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Ingvar Sigurðsson, f. 30. mars 1901 á Nesi í Norðfirði, d. 11. jan- úar 1979, og Hólm- fríður Einarsdóttir, f. 22. apríl 1896 í Berjanesi í V-Land- eyjum, d. 25. ágúst 1979. Eftirlifandi systkini Sigurðar eru: Elín, f. 17. september 1920, Ráðhildur, f. 25. maí 1929, Sigurgestur, f. 10. nóv- ember 1933, og Kristbjörg, f. 13. maí 1936. Látin eru: Sigurður Halldór, f. 1. nóvember 1914, Aðalheiður Sigur- veig, f. 5. október 1916, Einar, f. 14. ágúst 1922, Guð- laug, f. 16. október 1923, Jólín, f. 1. nóv- ember 1924, og Trausti, f. 15. júlí 1926. Sigurður var ókvæntur og barn- laus. Útför Sigurðar verður gerð frá Sauðárkróks- kirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Við minnumst með nokkrum orð- um Sigurðar Ingvarssonar, bróður, mágs og frænda. Sigurður ólst upp í stórum systk- inahópi í gamla torfbænum í Stíflu í V-Landeyjum ásamt öðru heimilis- fólki sem var mun fleira í þá daga en nú tíðkast. Þar lærðu öll börnin að prjóna leppa í skinnskó eða tátiljur hjá Jólínu ömmu. Siggi þótti uppá- tektasamur krakki og þar sem hann nennti ekki þessum prjónaskap varð útkoman eitthvað undarleg; ein- kennilegir skór sem hann klæddi köttinn Slött í sem var lítt hrifinn af uppátæki stráksa. Sagan lifir enn og hefur kætt margan krakkann enda hafði Siggi gaman af að rifja hana upp. Raunar lýsir þetta bernskubrek skapferli Sigga nokkuð vel því ávallt var stutt í glettni og spaugilega sýn á menn og málefni. Hann var léttur í lund og dagfarsprúður, þótti dugleg- ur verkmaður enda hraustbyggður og ósérhlífinn. Eftir stutta barnaskólagöngu, eins og títt var hjá fólki af hans kyn- slóð, fór Siggi til sjós og var sjómað- ur til margra ára, lengst á togar- anum Surprise frá Hafnarfirði. Á þeim árum bjó hann hjá systrum sínum, í Hófgerðinu, Stíflu og í Há- logalandi. Síðar vann hann til margra ára hjá vegagerðinni við brúarsmíði. Um 1981 fór Siggi að vinna hjá fiskverkuninni Meitlinum í Þorlákshöfn og bjó hann síðan þar í bæ. Var hann þar í nágrenni við Sig- rúnu systurdóttur sína og hennar fjölskyldu sem reyndist honum ávallt vel. Við geymum minningar okkar um Sigga; sjáum hann fyrir okkur þar sem hann stendur við vegavinnubúð- irnar í brúarsmíðinni; á köflóttri skyrtu, bústinn, með skeggið, hlæj- andi dátt og býður upp á íslenska kjötsúpu sem var sérstakt eftirlæti hans. Siggi var sérlega barngóður, sló á létta strengi við þau og tók þau gjarnan með í leik og störf. Við þökkum kynni liðinna ára. Blessuð sé minning Sigurðar Ingvarssonar. Þýtur í stráum þeyrinn hljótt, þagnar kliður dagsins. Guð er að bjóða góða nótt í geislum sólarlagsins. (Trausti Á. Reykdal.) Sigurgestur, Sigrún, Áslaug, Frosti og Þórdís Björk. SIGURÐUR INGVARSSON ✝ Magnea DagmarTómasdóttir fæddist í Reykjavík 2. nóvember 1946. Hún andaðist á Landspítalanum við Hringbraut hinn 6. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Magnea Dag- mar Sigurðardóttir, f. 11.11. 1906, d. 28.1. 1999, og Tóm- as Sigvaldason, f. 26.12. 1907, d. 11.6. 1980. Systkini Magneu eru: Hall- dóra Erla, f. 28.9. 1931, maki Stefán G. Stefánsson, f. 4.2. 1934; Sigurður, f. 10.6. 1933, d. 22.8. 1990, maki Valdís Ólafs- dóttir, f. 25.4. 1936; Inga Valdís, f. 31.8. 1937, maki Helgi Rafn Traustason, f. 18.4. 1937, d. 21.12. 1981. Hinn 14.11. 1976 giftist Magn- ea eftirlifandi eiginmanni sínum Rúnari Þórhallssyni, f. 16.1. 1937. Synir þeirra eru: Þórhall- ur Rúnar, f. 3.8. 1975, sambýlis- kona Guðrún Vigdís Jónasdóttir, f. 16.12. 1977; Tóm- as, f. 1.2. 1979, sam- býliskona Hrefna Jónsdóttir, f. 31.7. 1979, eignuðust þau dóttur hinn 3. febr- úar 2005. Þórhallur Rúnar á dótturina Lísu Margréti, f. 4.11. 1997. Magnea vann hin ýmsu störf á sínum yngri árum, m.a. hjá Eimskipafélagi Íslands bæði á sjó og landi. Mestan hluta ævinnar vann hún við verslunarrekstur, en síð- ustu ár starfaði hún í mötuneyti starfsfólks Og Vodafone. Magnea var alla tíð mjög virk í félagsmálum. Hún var í líknar- félaginu Hvítabandinu og um tíma í stjórn þess, einnig starf- aði hún í Mæðrastyrksnefnd. Magnea var mikill stuðnings- maður KR og starfaði hún með KR-konum. Útför Magneu fer fram frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Æ, hvað lífið getur verið ósann- gjarnt eins og það getur líka verið yndislegt. Við fjölskyldan erum nú búin að fá að kynnast því á síðustu dögum hvað lífið er fljótt að breytast úr gleði í sorg. Öll vorum við í skýjunum yfir litlu nýfæddu prinsessunni hjá Tomma og Hrefnu og full tilhlökkun- ar yfir fæðingu næsta krílis hjá okkur Rúnari eftir fáeinar vikur. Þá dynur sorgin yfir og þú, Magnea mín, ert rif- in í burtu frá okkur bara sísvona, eng- inn aðdragandi, bara farin og okkur er bara ætlað að taka því. Þú sem varst svo spennt yfir allri þessari fjölgun og hlakkaðir svo til að fá fleiri barnabörn, það voru svo góðir og spennandi tímar framundan. Þú náðir ekki einu sinni að sjá og knúsa litlu nýfæddu prinsessuna. Við trúum því samt að þú sért hérna hjá okkur og fylgist vel með og eigir eftir að hjálpa okkur að leiða börnin rétta leið í gegnum lífið. Við eigum eftir að vera dugleg að segja börnunum okkar frá ömmu Magneu sem hlakkaði svo til að fá þau í heim- inn til að umvefja þau hlýju og ást, líkt og hún Lísa Margrét var svo heppin að fá að njóta frá þér (þó svo að það hafi verið alltof skammur tími). Það var svo yndislegt sjá hvað þið Lísa voruð nánar og miklar vinkonur og ég veit að hún á einnig eftir að vera dug- leg við að segja ófæddu systkini sínu og litlu frænku sinni margar góðar sögur af ömmu Magneu. Elsku Magnea mín, mig langar að þakka þér fyrir að vera alltaf til stað- ar fyrir okkur og takk fyrir að taka mér svona vel þegar ég kom inn í fjöl- skylduna. Takk fyrir hjálpina og stuðninginn í frekar brösóttri meðgöngu minni og það er aldrei að vita nema það eigi eft- ir að reynast rétt, eins og þú sagðir svo oft við mig, að ég muni gleyma öll- um erfiðleikunum um leið og ég fái barnið í hendurnar og gefi þér annað barnabarn síðar, en við sjáum nú bara til með það. Allavega verð ég þér líka að eilífu þakklát fyrir að takast svona vel til með að ala af þér svona gott mannsefni fyrir mig og mun ég halda áfram að gera mitt besta í að passa upp á frumburð þinn. Takk fyrir allt, elsku tengdamamma, minning þín lif- ir með okkur öllum. Megir þú hvíla í friði. Elsku fjölskylda, megi góður guð blessa okkur öll Guðrún Vigdís. Elsku hjartans Magnea mín. Það var hræðilegt reiðarslag að frétta að þú værir búin að kveðja þennan heim. Öllum að óvörum ertu kölluð burt frá okkur og verðum við að trúa því sem eftir lifum að þú farir í æðra hlutverk langt í burtu frá okkur. Magnea var einstaklega atorku- mikil kona og var fátt sem fram hjá henni fór. Hún starfaði um árabil hjá Mæðrastyrksnefnd og Hvítabandinu og svo má ekki gleyma hún var gall- harður KR-ingur. Það var alveg sama hvað bjátaði á, Magnea var alltaf fyrst til að bjóða fram hjálparhönd og lýsir það hennar karakter vel. Einstaklega ljúf og góð kona ásamt því að vita al- veg nákvæmlega hvað hún vildi í líf- inu. Í huga mér eru ekki til orð til að lýsa því hversu lífið getur verið ósann- gjarnt. Þú sem varst búin að bíða í of- væni eftir tveimur barnabörnum sem voru á leiðinni og annað nýkomið í þennan heim þegar þú kveður hann. Þú sem fékkst ekki einu sinni að knúsa litlu ömmustelpuna þína. En þetta sannar víst það að þegar eitt líf kviknar, þá slokknar á öðru, eins ósanngjarnt og það er í þessu tilviki. Að lokum langar mig að votta öllum í þessari góðu og samheldnu fjölskyldu mína dýpstu samúð. Megi guð fylgja ykkar öllum. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgr. Pét.) Elskan mín, hvíldu í friði. Megi Guð almáttugur vaka yfir þér. Þínar tengdadóttir og ömmustelpa, Hrefna Jónsdóttir og óskírð Tómasdóttir. Elsku Magnea. Á laugardagskvöld- ið sagði ég við pabba minn, að ég ætl- aði að senda þér blóm á sunnudeg- inum, því að ég kæmist ekki til þess að heimsækja þig. Á sunnudags- morgninum hringdi pabbi í mig og sagðist vera að koma til mín til þess að tala við mig. Um leið og ég lagði símann á fékk ég sting í hjartað, ég fann á mér að það var ekki allt eins og það átti að vera. Svo kom hann til mín og sagði við mig að þú værir dáin. Ég trúði því ekki, það gat ekki verið að þú værir farin frá mér. Tilhugsunin um að þú værir farin var svo skrítin, þú sem varst mér eins og mamma. Ég man þegar ég var sex ára og bjó í Reykjavík, þá veiktist mamma mín og þú tókst mig að þér. Ég man það var alltaf svo gaman hjá okkur. Pabbi tal- aði alltaf um hvað þú dekraðir við mig, þú varst mér alltaf svo góð og ég gat talað við þig um allt. Ég vildi að ég hefði getað verið hjá þér meðan þú varst á sjúkrahúsinu, en þar sem við bjuggum hvor á sínu landshorninu þá var það ekki hægt. Ég veit að þú ert á góðum stað núna og ég mun alltaf hugsa um þig. Megi englarnir vera með þér. Gyða Valdís. Elsku besta amma mín. Takk fyrir allt sem að við höfum gert saman og takk fyrir allt sem þú ert búin að gefa mér, það besta er hálsmenið, línu- skautarnir og það allra besta þú. Ég hefði aldrei fengið þetta allt ef þú hefðir ekki verið til. Þú varst besta vinkona mín og ég ætla alltaf að muna eftir þér. Og ég ætla að kveikja á kerti á hverjum einasta degi. Ég ætla að vera dugleg að mæta á KR leiki og ég veit að þú verður þar með mér eins og alltaf. Ég hugga mig við það að þú dóst alveg eins og þú vildir, sofnaðir og fannst ekkert til. Ég elska þig, elsku amma mín. Sofðu rótt. Þín Lísa Margrét. Elsku Magnea. Það er alltaf erfitt að sætta sig við það þegar einhver ná- kominn er kallaður burt út þessu lífi. Minningarnar eru margar og góðar. Þinn ljúfi sterki persónuleiki hafði víða áhrif. Það var ekki bara fjöl- skyldan sem fékk að njóta hlýju þinn- ar. Hvítabandið, Mæðrastyrksnefnd og KR-konur fengu að njóta krafta þinna svo um munaði. Aldrei sástu eftir þeim tíma og sýndir í verki að sælla er að gefa en þiggja. Við viljum þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum sam- an. Hvíl í friði. Elsku pabbi, Rúnar, Tommi og fjöl- skyldur, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Sveinn B. Rúnarsson, Halldóra Ólafsdóttir, Bertha Þyrí og Ragnar Ágúst. Úti er grátt og kalt. Veturinn í al- mætti sínum. Lýsir ef til vill hugar- ástandi þess er skrifar. Mín elskulega frænka, vinkona og hálfgildings systir er látin langt um aldur fram. Magnea Dagmar Tómasdóttir var fædd 2. nóv. 1946, dóttir hjónanna Magneu Dagmarar Sigurðardóttur og Tómasar Sigvaldasonar sem bæði eru látin. Mæður okkar voru systur og feður okkar systrasynir þannig að skyldleikinn var mikill. Ung að árum fór hún að dvelja í sveitinni á Árbakka tíma og tíma á sumrin. Er ég fór svo á skóla til Reykjavíkur dvaldi ég á heimili foreldra hennar í góðu yfirlæti og tengdist fjölskyldunni föstum böndum. Unglingsárin eru björt í minningunni og full af glaðværð, en af henni átti Magnea nóg. Það sem við Magnea upplifðum saman væri efni í bók. Hún giftist Rúnari Þórhallssyni og saman eiga þau synina Þórhall Rúnar og Tómas. Búskap sinn hófu þau á Brekkustíg 8 en síðan lá leiðin í Kópa- voginn. Dagmar móðir Magneu flutti með þeim og var í skjóli þeirra til dauðadags. Var einkar kært milli mægðnanna og annaðist Magnea móður sína af einstakri elsku. Atorkusöm var Magnea í meira lagi og kunni því illa að sitja auðum hönd- um. Hún var glaðvær og gestrisin og kunni því vel að hafa fólk í kringum sig enda vön tíðum gestakomum úr foreldrahúsum. Var oft glatt á hjalla á heimili Magneu og Rúnars og vel tek- ið á móti þeim sem voru á ferð. Félagsmál voru Magneu einkar hugleikin og vann hún af krafti að þeim eins og öðru er hún tók sér fyrir hendur. Má þar nefna sem dæmi Mæðrastyrksnefnd og Kvenfélagið Hvítabandið en verkefnum þar sinnti hún af alhug. Ég kveð kæra vinkonu og frænku og þakka áratuga tryggð og vináttu við mig og fjölskyldu mína bæði í gleði og sorg. Ég bið guð að gefa eigin- manni, sonum og fjölskyldum þeirra styrk og trú á að allt í lífinu hafi ein- hvern tilgang. Einnig flyt ég kveðjur og þakkir frá systkinum mínum frá Árbakka og fjölskyldum þeirra. Far þú í friði og hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigrún Bjarnadóttir. Kæra frænka, mig langar að kveðja þig með nokkrum orðum sem erfitt var að koma á blað, þar sem andlát þitt bar svo brátt að. Minningarnar um allar samverustundirnar með þér hafa streymt fram í huga minn síð- ustu daga. Þegar ég var lítil stelpa og fór til Reykjavíkur með mömmu og pabba þá var ávallt gist hjá ömmu og afa á Brekkustígnum. Alltaf var tilhlökkun hjá mér og spennandi að fá að fara upp til Magneu frænku á kvöldin til að spila eða spjalla. Þú varst alltaf svo þolinmóð og góð við mig og hafðir allt- af tíma til að fara með mig hitt og þetta um borgina þegar ég kom suð- ur. Minnisstæður er mér sumarmán- uðurinn sem ég réð mig til þín í barna- pössun þegar ég var tólf ára. Þá átti ég að passa Þórhall Rúnar á meðan þú varst að vinna á skrifstofunni hjá Eimskip. Fyrsta kvöldið sem ég var hjá þér gat ég engan veginn sofnað af því að mér var svo illt í maganum. En þú varst fljót að sjúkdómsgreina litlu frænku þína þar sem hún hafði aldrei áður verið í burtu ein frá foreldrum sínum. Þú hughreystir mig og sagðir að þetta myndi lagast mjög fljótt sem það og gerði. Skrítið fannst mér þegar pabbi hitti þig þá kallaði hann þig alltaf Lillu, ég skildi þetta ekki fyrst, af því að þú hést Magnea frænka. En þetta var gælunafn sem bara pabbi notaði um þig eða ég minnist þess ekki að hafa heyrt neinn annan kalla þig þessu nafni. Aldrei kom ég suður öðruvísi en að koma við hjá Magneu frænku. Ógleymanleg er mér samveru- stundin okkar í október 2003. Ég og fjölskylda mín viljum senda Rúnari, Þórhalli Rúnari, Guðrúnu, Lísu Margréti, Tómasi, Hrefnu, óskírðri Tómasdóttur, mömmu, Erlu og Stefáni innilegar samúðarkveðjur. Missir ykkar og okkar allra er mikill en ég bið góðan Guð að styrkja okkur öll á þessum erfiðu tímum. Með kærri þökk fyrir allt og allt, kæra frænka. Hvíl þú í friði. Hjördís Anna og fjölskylda. Í dag verður til moldar borin vin- kona okkar og mikill KR-ingur, Magnea Tómasdóttir. Við kynntumst fyrst náið er við vorum kosnar í stjórn KR-kvenna, allt konur á ólíkum aldri, með ólíkan uppruna og uppeldi, en eitt áttum við sameiginlegt; að við er- um allar KR-ingar og berum hag fé- lagsins fyrir brjósti og þar var Magn- ea fremst meðal jafningja. Er stjórnin tók til starfa valdist Magnea í ritara- starfið sem reyndist happadrjúgt fyr- ir stjórnina því að áreiðanleiki, ná- kvæmni og heiðarleiki var henni í blóð borið. Hún sinnti þessu starfi með miklum sóma og er kæruleysi kom upp í ritun fundargerðar hjá okkur hinum áminnti hún okkur góðlátlega og benti okkur á að þetta væri skrá yfir sögu félagsins og vandvirkni myndi borga sig til framtíðar. Stjórn- in var heppin að hafa hana innan- borðs. Ein af annarri hættu í stjórn og nýjar konur tóku við en þessi stjórn- arkjarni hélt sambandi og hittust hver hjá annarri til að spjalla og halda við góðri vináttu. Magnea var mikill stuðningsmaður fótboltans og mætti á alla leiki meistaradeildar, bæði hjá strákunum og stelpunum. Hennar verður sárt saknað á pöllunum á KR- vellinum í sumar. Stuðningur hennar við félagið var mikils virði fyrir okkur KR-inga, en að hafa stuðningsmann eins og Magneu innanborðs gerir fé- lagið sterkara. Við vinkonurnar sökn- um hennar en geymum góðar minn- ingar. Við sendum fjölskyldu hennar okkar innilegustu samúðarkveðjur. F.h. fyrrverandi stjórnar KR- kvenna Sólveig, Guðlaug, Guðrún, Hafdís og Þóra. MAGNEA DAGMAR TÓMASDÓTTIR  Fleiri minningargreinar um Magneu Dagmar Tóm- asdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Höf- undar eru: Tómas Dagur o.fl.; Ragnhildur G. Guðmundsdóttir; Erla Jónsdóttir; Þórólfur Árnason; Ragnhildur Ragnarsdóttir; Guð- mundur o.fl.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.