Morgunblaðið - 16.04.2005, Page 1
STOFNAÐ 1913 101. TBL. 93. ÁRG. LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
bls. 22-23
Ástarsaga
er ekki klám
Rætt við aðalleikarann í kvik-
myndinni 9 Songs | Menning
Lesbók, Börn og Íþróttir
Lesbók | Áhrifavaldar kvikmyndagerðarmanna Samband listar og
lífs Börn | Einkaviðtal við Kalla á þakinu Hefur séð Svamp í sjón-
varpi Íþróttir | Með tilboð frá Flensburg Fuglaregn hjá Lonard
„ÞAÐ var kraftaverk að Anna Sigrún skyldi
lifa þetta háa fall af og einnig kraftaverki lík-
ast hvað hún hefur náð sér vel,“ segir Stein-
unn I. Stefánsdóttir, móðir fimm ára hnát-
unnar sem í janúarlok fór fram af svölum á
fjórðu hæð fjölbýlishúss, féll tólf metra niður
og lenti á steyptri stétt. Við fallið mjaðma-
grindarbrotnaði litla stúlkan, spjaldhryggurinn
í bakinu brotnaði og vinstri lærleggur, lungun
mörðust og gat kom á annað lungað auk þess
sem hún brákaði kinnbein. Eftir björgunar-
aðgerðir á Landspítalanum – háskólasjúkra-
húsi tók sex vikna sjúkrahúslega við, en vegna
brotanna var Anna Sigrún rúmliggjandi lengst
af þess tíma. Núna er litla stúlkan óðum að
endurheimta fyrri þrótt, en hún þurfti að læra
að ganga á ný eftir slysið. Og í dag gengur hún
og valhoppar hjálparlaust, eins og blaðamaður
varð vitni að á leikskólanum hennar, Múla-
borg, í gær þar sem Anna Sigrún afhenti
þremur deildarstjórum LSH bókina Tákn með
tali, en sjálf notaði hún það til að tjá sig meðan
hún var tengd við öndunarvél á gjörgæslu.
„Það má alls ekki príla úti á svölum“
Að sögn Steinunnar hefur Anna Sigrún aldr-
ei viljað tjá sig um slysið frá því að það átti sér
það, þar til í gær er slökkviliðsmennirnir Stef-
án Kristinsson og Gunnar R. Ólafsson, sem
komu á slysstað skömmu eftir slysið, komu í
heimsókn á Múlaborg. Voru þeir komnir í
þeim tilgangi að ræða helstu slysagildrur
heima og heiman. Þegar þeir brýndu fyrir
krökkunum að ekki mætti príla, hvort heldur
sem væri í gluggum, stillönsum eða svölum,
heyrðist Anna Sigrún segja hátt og snjallt:
„Það er rétt. Það má alls ekki príla úti á svöl-
um og sérstaklega ekki uppi á fjórðu
hæð.“/18–19
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Anna Sigrún (2. f.h.) spilar við vinkonur sínar á Múlaborg, Hörpu og Maríu Sif, undir vökulu auga Rebekku Jónsdóttur leikskólastjóra.
Batinn kraftaverki líkastur
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
hyggst þvinga fram nýjar kosningar fái hann
ekki þingstuðning til að mynda nýja stjórn.
Fjórir ráðherrar og tveir flokkar sögðu sig í
gær úr samsteypustjórn hans og hefur rík-
isstjórnin því ekki lengur meirihluta í efri
deild en hins vegar
nauman meirihluta í
hinni neðri. Stjórn Berl-
usconis hefur setið síðan
2001 en kjörtímabilið
rennur út á næsta ári.
Stjórnin hefur setið
lengur en nokkur önnur
stjórn á Ítalíu síðan í
seinni heimsstyrjöld.
Auk hægriflokks Berl-
usconis, Forza Italia, eru
tveir helstu flokkar hennar Þjóðarfylkingin
og Norðurbandalagið.
Berlusconi krafðist þess í gær að Kristilegi
demókrataflokkurinn (UDC) kæmi aftur til
stjórnarsamstarfs. „Annaðhvort snýr UDC
aftur eða kosið verður fyrir tímann,“ sagði
forsætisráðherrann. Fjórir ráðherrar UDC
sögðu sig úr stjórninni í gær og krafðist
flokkurinn þess að Berlusconi segði af sér og
ný samsteypustjórn yrði mynduð. Einn af
ráðherrum flokksins, Marco Follini, hét því
hins vegar að flokkurinn myndi eindregið
styðja ríkisstjórnina á þingi. En Berlusconi
sagðist ekki myndu sætta sig við að vera háð-
ur flokknum með þeim hætti og eiga stöðugt
á hættu að hann setti fram nýjar kröfur.
Fyrr í mánuðinum galt stjórnin afhroð í
héraðakosningum sem margir telja fyrirboða
um það sem vænta megi í næstu þingkosn-
ingum. Óánægðir liðsmenn stjórnarinnar
saka Berlusconi um að huga ekki nógu mikið
að bættum kjörum í sunnanverðu landinu en
leggja þess í stað áherslu á skattalækkanir.
Hótar að
láta kjósa
Silvio Berlusconi
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MEIRA en hálf milljón manna deyr
árlega í Evrópu af völdum ofnotkunar
áfengis, að sögn blaðsins Dagens
Nyheter í gær. Kom þetta fram á ráð-
stefnu Alþjóðaheil-
brigðisstofnunar-
innar, WHO, í
Stokkhólmi og hef-
ur tíðnin aukist um
15% frá árinu 2000.
„Ef bætt er við
dauðsföllum vegna
slysa eða ofbeldis
þar sem áfengi er
óbein orsök marg-
faldast þessi tala dauðsfalla,“ segir
Sven Andréasson, sérfræðingur hjá
stofnun almannaheilbrigðis í Svíþjóð.
Evrópudeild WHO mælir m.a. með
því að álögur á áfengi verði hækkaðar,
miklar hömlur lagðar á áfengisauglýs-
ingar og gripið verði til fyrirbyggjandi
ráða í umferðarmálum, atvinnulífi og
heilbrigðisþjónustu. Hörð andstaða er
þó við slíkar stýriaðgerðir í Evrópu-
sambandinu en í sunnanverðri álfunni
er víða litið á áfengi sem hverja aðra
neysluvöru. Einnig vega hagsmunir
vínframleiðenda þungt í umræðunum.
Mannskæð
ofdrykkja
„VIÐ vorum staddir í nágrenninu og heyrðum
að stúlka hefði dottið niður af annarri hæð.
Okkur fannst það nógu alvarlegt, en þegar
við komum á staðinn reyndist þetta vera á
fjórðu hæð, sem gerði þetta enn alvarlegra,“
segja Stefán Kristinsson og Gunnar R. Ólafs-
son, hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins,
sem voru fyrstir á slysstað. Komu þeir félagar
í heimsókn á leikskólann Múlaborg í gær til
að ræða við börnin um helstu slysahættur sem
leynast á heimilinu. Aðspurðir sögðu þeir
dásamlegt að fylgjast með þeim góða bata
sem Anna Sigrún hefði náð. „Börn bjargast
stundum á ótrúlegan hátt. Maður trúir því
hreinlega ekki hvað þau eru seig,“ segir
Gunnar.
Börn bjargast oft
á ótrúlegan hátt
UGLUSPEGLAR við MIT-háskólann í Massachusetts, unnu skemmti-
legan sigur á dögunum. Þá settu þeir saman „vísindalega“ ritgerð,
sem var bara bull, eitt allsherjar nafnorðahröngl frá upphafi til enda,
og fengu hana samþykkta sem umræðuefni á vísindaráðstefnu.
Jeremy Stribling segir að hann og tveir félagar hans við skólann
hafi verið að ræða um það, að verðleikar sumra vísindaráðstefna
væru ekki ýkja miklir og þær aðeins haldnar í gróðaskyni.
Þeir tóku sig því til og settu saman ritgerð, algerlega samheng-
islausa, málfræðilega sem merkingarlega, en gættu þess vel að láta
hvert vísindaheitið reka annað og sum tilbúin. Þetta skreyttu þeir síð-
an með óskiljanlegum töflum og kortum. Raunar létu þeir oft tölvuna
sína eina um að setja bullið saman. Sagði frá þessu á fréttavef CNN.
Ritgerðina sendu þeir til aðstandenda vísindaráðstefnu, sem haldin
verður í Orlando í Flórída 10. til 13. júlí, og fengu hana samþykkta.
Bullið tekið gott og gilt