Morgunblaðið - 16.04.2005, Page 50
50 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
EINS og flestir vita hefur heims-
meistarakeppnin í skák verið í
ógöngum síðan 1993. Þá urðu heims-
meistararnir tveir í stað eins; annars
vegar sá sem varð sigurvegari í
heimsmeistarakeppnum sem alþjóð-
legu skáksamtökin, FIDE, hafa
haldið og hinsvegar sigurvegari
keppna sem samtök á vegum Kasp-
arovs stóðu fyrir. Á heimasíðu
FIDE, www.fide.com, er þessa dag-
ana að finna upplýsingar um heims-
meistaramót sem samtökin hyggj-
ast halda í október næstkomandi.
Forseti samtakanna, Kirsan
Ilymzhinov, sem jafnframt er forseti
sjálfstjórnarlýðveldisins Kalmykíu í
Rússlandi, hefur heitið að eyða
600.000 bandaríkjadölum svo að
keppnin geti farið fram í Elistu, höf-
uðborg lýðveldisins. Hugmynd
FIDE er að átta skákmenn keppi
um sameiginlegan heimsmeistara-
titil, þeir fjórir skákmenn sem tefldu
heimsmeistaraeinvígi á síðasta ári
og fjórir aðrir skákmenn sem hafa
hæsta meðaltal skákstiga á stiga-
lista FIDE 1. júlí 2004 og 1. janúar
2005. Í fyrri hópinn falla FIDE
heimsmeistarinn Rustam Kaz-
imdzhanov (2670), Michael Adams
(2737), Peter Leko (2763) og heims-
meistarinn í „klassískri skák“, Vlad-
imir Kramnik (2753). Síðarnefndi
hópurinn samanstendur af Garry
Kasparov (2812), Viswanathan An-
and (2785), Veselin Topalov (2778)
og Alexander Morozevich (2717).
Taki einhver þessara keppenda ekki
þátt munu þeir skákmenn taka sæti
þeirra sem hafa haft hæstu stigin að
meðaltali á fyrrnefndum stigalistum
FIDE. Þessar reglur voru gefnar út
31. mars sl. og var þá jafnframt opn-
að fyrir þann möguleika að keppnin
væri haldin annars staðar en í El-
ista. Svo að það væri hægt þyrfti
FIDE að hafa borist boð um slíkt
fyrir 28. apríl nk. Það er raunhæft
að ætla að ef slíkur mótshaldari gæti
útvegað sem samsvari 100 milljón-
um íslenskra króna myndi vera
hægt að tryggja að eingöngu einn
heimsmeistari yrði viðurkenndur.
Þessi fjárhæð er ekki ýkja há sam-
anborið við að á nokkrum dögum
hefur blaðamanni á Morgunblaðinu
ásamt öðrum aðilum tekist að safna
hlutafjárloforðum í Símann upp á
marga milljarða. Halda mætti áfram
með samanburðinn og nefna að
varla má líta á fasteignaauglýsingar
þessa dagana nema að einbýlishús
slagi upp í að kosta 100 milljónir
króna. Áhugamenn um skák á Ís-
landi hafa sýnt það og sannað að
kraftaverk geta gerst á undraverð-
um tíma. Þannig hefur Skákfélagið
Hrókurinn á síðustu árum staðið
fyrir skákviðburðum sem engan ór-
aði fyrir að hægt væri að halda.
Hverjum hefði dottið í hug að fara til
Grænlands og boða þar fagnaðarer-
indið um skák eða standa fyrir þró-
unarstarfi í Afríku og hjálparstarfi í
Sarajevo með því að kenna skák?
Fyrir utan þetta hefur félagið haldið
ótal alþjóðleg skákmót á Íslandi með
miklum myndarbrag. Vissulega er
félagið ekki lengur keppnisfélag
heldur einblínir á barna- og ung-
lingastarfið en samt – ef einhver ís-
lenskur aðili ætti að geta bjargað
heimsmeistaramálunum í skák þá er
það Skákfélagið Hrókurinn. Al-
mennt hefur starf Hróksins haft
hvetjandi áhrif á aðra innan skák-
hreyfingarinnar, þannig hefur
Skáksambandi Íslands tekist að
vekja meiri athygli á sér en áður, t.d.
með áherslu á kvennaskák. Með
hliðsjón af því að Kasparov er hætt-
ur að tefla og líkur standi til þess að
Judit Polgar fengi að taka þátt í
heimsmeistarakeppninni er einnig
upplagt fyrir Skáksambandið að fá
fjársterka aðila til þess að halda
keppnina. Bankarnir græða á tá og
fingri þessa dagana og í stað þess að
eyða fjárfúlgum í að æfa auglýsinga-
leikstjóra í að taka upp flott mynd-
skeið gætu menn Mammóns lagt til
hliðar andvirði tveggja til þriggja
raðhúsa á höfuðborgarsvæðinu og
bjargað heimsmeistaratitlinum í
skák frá ævarandi glötun. Þetta
snýst bara um að vilja, þora og geta!
Slíkt framlag myndi tryggja að
sköpun á æðstu stigum skáklistar-
innar haldi áfram. Það er alltaf nota-
legt að sjá fallega skák og fyrir
stuttu naut einn sterkasti skákmað-
ur Rússlands, Alexey Dreev, þeirrar
auðnu að tefla frábæra sóknarskák.
Dreev þessi er sennilega kunnastur
fyrir margslunginn byrjunarundir-
búning og mikla endataflstækni en á
sjötta Karpov-mótinu í Rússlandi
fyrir skömmu var annað uppi á ten-
ingnum gegn kúbverska stórmeist-
aranum Lenier Dominguez.
Hvítt: Alexey Dreev (2704)
Svart: Lenier Dominguez (2661)
1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3
e6 5. Rf3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. g4!?
Þessi leikur er orðinn mjög al-
gengur í þessu afbrigði slavneskrar
varnar en Alexey Shirov lék þessu
fyrstur manna árið 1992 á Apple
skákmótinu í Reykjavík gegn Þresti
Þórhallssyni. Síðan þá hafa margir
beitt þessari hugmynd, þar á meðal
Kasparov.
7...dxc4 8. Bxc4 e5 9. Bd2 O-O 10.
O-O-O exd4 11. Rxd4 Re5 12. Be2
Rexg4 13. Hhg1 Rxf2
Svartur er nú tveim peðum yfir en
línurnar að svara kónginum eru
hálfopnar og það þykir hvítu hrók-
unum ekki leiðinlegt. Svarta staðan
er því mun vantefldari en sú hvíta
þar sem mjög erfitt er að koma í veg
fyrir að sókn hvíts þróist stig af
stigi.
Sjá stöðumynd 1
14. Hdf1 Rh3 15. Hg2 Be5?! 16.
Rf3! De7 17. Bd3 g6 18. Bc4 Rg4 19.
Rxe5 Rxe5 20. Re4 Kh8 21. Rf6 b5
22. Be2 Rd7? 23. Bc3! Dxe3+ 24.
Kb1 Rxf6 25. Hxf6 Kg8
Svartur er nú þrem peðum yfir en
hefur hvorki komið hróknum sínum
né biskup á drottningarvæng út.
Riddarinn er úti á kanti og líkist ei-
lítið gömlum fanti. Mesti vandinn
liggur þó í kóngstöðunni sem hrynur
nú til grunna með snjallri hróksfórn.
26. Hgxg6+! fxg6 27. Hxg6+ Kf7
Svartur hefði orðið mát eftir 27...
hxg6 28. Dxg6#. Nú fer kóngurinn
svarti út á vergang á mitt borð og
það boðar ekki gott þegar andstæð-
ingurinn hefur drottningu, hrók og
biskupapar til að þjarma að honum.
28. Hg7+ Ke6
28...Ke8 hefði ekki gengið upp
vegna 29. Bh5+.
29. Bg4+ Kd5
29... Kd6 hefði verið svarað með
30. Dd1+! og svörtum eru allar
bjargir bannaðar.
30. Dd1+ Ke4
30... Kc5 hefði ekki gengið upp
vegna 31. b4+ Kc4 32. Db3+ Kd3
33. Dc2+ og 30... Kc4 hefði verið
svarað með 31. Db3+. Eftir texta-
leikinn vinnur hvítur drottninguna
til baka og þarf þá ekki að spyrja að
leikslokum.
31. He7+ Kf4 32. Hxe3 Bxg4 33.
Dd4+ Kg5 34. Dg7+ Kh5 35.
Dxh7+ Kg5 36. He5+ Hf5 37. Bd2+
og svartur gafst upp.
Íslandsmót grunn-
skólasveita í skák
Íslandsmót grunnskólasveita í
skák 2005 fer fram dagana 16. og 17.
apríl nk. í húsnæði Taflfélags
Reykjavíkur, Faxafeni 12, Reykja-
vík. Tefldar verða níu umferðir, um-
hugsunartími 20 mín. á skák fyrir
hvern keppanda.Keppt er í fjögurra
manna sveitum (auk varamanna).
Taflið hefst báða daga kl. 13.00 og
gert er ráð fyrir að það standi fram
til kl. 18.00. Tiltekin skilyrði þarf að
uppfylla til að taka þátt en að öllum
líkindum getur Skáksamband Ís-
lands séð til þess að flestir þeir sem
vilja geti teflt. Sigurvegari í þessari
keppni mun öðlast rétt til að tefla í
Norðurlandamóti grunnskólasveita,
sem haldið verður í Danmörku í
haust. S.Í. mun veita aðstoð við
skipulagningu og þjálfun vegna
Norðurlandamótsins og greiða fyrir
einn fararstjóra en fjármögnun er
að öðru leyti á ábyrgð viðkomandi
skóla.
Þriðja mótið í Tívolísyrpu
Íslandsbanka og Hróksins
Þriðja Tívolímót Íslandsbanka og
Hróksins hefst í höfuðstöðvum
bankans, Kirkjusandi, sumardaginn
fyrsta, 21. apríl, kl. 13. Mótið er fyrir
öll börn á grunnskólaaldri og verða
veitt glæsileg verðlaun í boði Eddu,
Skífunnar, Pennans, 12 tóna og
Íslandsbanka. Teflt er við fyrsta
flokks aðstæður hjá Íslandsbanka
svo að mótið verði bæði skemmtilegt
auk þess að veita mikilvæga reynslu.
Teflt verður í einum opnum flokki
en verðlaunað fyrir bestan árangur
keppenda sem sækja nám í 1.–3.
bekk, 4.–6. bekk og 7.–10. bekk.
Eftir mótið munu 6 krakkar úr
hverjum flokki tryggja sér rétt til
þess að tefla á úrslitamótinu þar
sem fyrstu verðlaun verða ferð fyrir
tvo til Kaupmannahafnar. Íslands-
banki og Hrókurinn verðlauna einn-
ig þau sem lenda í 1., 2. eða 3. sæti á
hverju stigamóti. Að auki eru veittar
viðurkenningar fyrir mætingu og
framfarir og á öllum mótum er dreg-
ið í happdrætti. Krakkar eru beðnir
um að skrá sig sem fyrst á Tívolí-
mótið með því að senda rafpóst á
netfangið hrokurinn@hrokurinn.is
eða hafa samband við Mána í síma
867 7730.
Er hægt að bjarga
heimsmeistara-
keppninni í skák?
daggi@internet.is
Helgi Áss Grétarsson
SKÁK
FIDE
Um Ísland og HM
Október 2005
Forseti FIDE, Kirsan Ilymzhinov,
hefur boðað til HM í október 2005.
Stöðumynd 1.
Smáauglýsingar 569 1111 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Antík-borðstofusett úr gegn-
heilli eik. Keypt í Magasin du
Nord rétt eftir aldamótin 1900.
Skenkur, línskápur, borð og stól-
ar. Tilboð óskast. Sími 661 4920.
Dýrahald
Nutro - 30% afsláttur! Þurrfóður
fyrir hunda og ketti í hæsta gæða-
flokki. Full búð af nýjum vörum.
30% afsláttur af öllu. Opið mán-fös
kl. 10-18, lau. 10-16 og sun. 12-16.
Tokyo, Hjallahrauni 4,
Hafnarfirði, sími 565 8444.
Ferðalög
Ef þig vantar gistingu í
Frankfurt, Þýskalandi, kíktu þá
www.appartement-1-frankfurt.de
Geymið auglýsinguna
Veitingastaðir
Sparaðu þúsundir með 22
krónum á dag! Frystihólf til leigu.
Tilvalið fyrir veiðina, heimilið og
veitingastaði. Vortilboð - 30% af-
sláttur. Frystihólfaleigan Gnoð-
arvogi 44 - sími 553 3099.
www.frystiholf.is
frystiholf@frystiholf.is
Heilsa
Lithimnulestur (augnlestur) og
heilsuráðgjöf fyrir einstaklinga
og litla hópa. Er einnig með nudd
og svæðanudd.
Heiðar Ragnarsson,
sími 898 1501.
Heimilistæki
Sturtuklefar frá kr. 39 þús.
Nuddbaðkör með 50% afslætti.
Ný sending af inni- og útiflísum.
Húsheimar, Lækjargötu 34,
Hafnarfirði, sími 553 4488,
husheimar.is .
Bílskúrssala í Hraunbæ 17
sunnudaginn 17. apríl frá kl. 12
til 18. Húsgögn, heimilstæki,
barnavörur o.fl. Wolksvagen
Golf '95. Uppl. í síma 567 2311.
Húsnæði í boði
Til leigu risíbúð á svæði 101
Hentar vel einstaklingi eða pari.
Leiga 55.000 krónur á mánuði.
Trygging 55.000 kr. og meðmæli
skilyrði. Upplýsingar í símum
55 3 5124 og 561 4467.
Til leigu einbýlishús í Folda-
hverfi, Grafarvogi. Hús + bílskúr,
gardínur fyrir gluggum, ísskápur
+ uppþvottavél. Leigist án hús-
gagna. Leigutími til 30. júlí '05.
Uppl. í síma 843 0456.
Húsnæði í boði Tvö rúmgóð ein-
staklingsherb. með hreinlætisað-
stöðu og litlu eldhúsi miðsvæðis
í borginni (105 Rvík). Langtíma-
leiga. Reglusemi algjört skilyrði.
Upplýsingar í síma 551 5158 til kl.
20.00.
Húsnæði óskast
Íbúð óskast sem fyrst Óska eftir
2ja-3ja herb. íbúð.
Greiðslugeta 50-60 þús. á mán.
Skilvísum greiðslum heitið.
Upplýsingar í síma 862 4589.
Vantar íbúð miðsvæðis (40-70
þús.) Reglusömu og skilvísu pari
vantar íbúð á sv. 101, 105, 103
STRAX. Erum tilbúin að borga allt
að 70 þús. á mánuði. Getum
útvegað mjög góð meðmæli.
Sími 869 7252.
4ra herb. íbúð óskast til leigu
á höfuðborgarsvæðinu, helst sér-
býli. Góðri umgegni heitið og skil-
vísum greiðslum. Reyklaus lang-
tímaleiga. Uppl. í síma 869 9971.
4ra herb. íbúð eða stærri
óskast strax Reyklaus og reglu-
söm fjölskylda vantar strax 4ra
herb. íbúð eða stærri, helst í
Hafnarfirði eða nágrenni. Uppl.
í síma 565 1392 eða 897 1392.
Atvinnuhúsnæði
Til leigu tæplega 100 fm húsnæði
í Hafnarfirði. Salur m. stórri hurð
og palli. Mjög fallegt, nýuppgert
húsnæði. 3ja fasa rafmagn.
Upplýsingar í síma 898 8577.
Tangarhöfði - hagstæð leiga.
Glæsilegt 200 fm skrifstofuhúsn.
á 2. hæð til leigu á ca 600 kr. fm.
Skiptist í rúmgott anddyri, 7 her-
bergi með parketi, fundar- og
eldhúsaðstöðu, geymslu og
snyrtingu. Uppl. í vs. 562 6633, hs.
553 8616.
Sumarhús
Sumarhús — orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Námskeið
Þyngdarstjórnun /Sterk sjálf-
smynd. Orkusviðs og undirmeðvit-
undarfræði notuð í einkaþjálfun
og meðferð við huglægu, tilfinning-
alegu og líkamlegu ójafnvægiN-
otuð er m.a.EFT (Emotional Free-
dom Techniques) og dáleiðsla
(Hypnotherapy)
Viðar Aðalsteinsson dáleiðslu-
fræðingur s:694 5494
www.EFTiceland.com
Upledger stofnunin auglýsir
Námskeið í orkuvinnu og
samþættingu orkuvinnu við önnur
líkamsmeðferðarform verður
haldið 21.-24. apríl nk. Upplýsing-
ar og skráning í síma 466 3090 og
á www.upledger.is/greinar
MCP Windows XP kerfisstjóra-
nám hefst 3. maí. Alls 63 stundir
á aðeins kr. 69.000. Vandað nám
hjá viðurkenndum Microsoft
skóla. Upplýsingar á vefnum og
í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn www.raf.is
CRANIO-SACRAL MEÐFERÐ
Nýtt 300 st. réttindanám hefst
22. apríl (A stig), B stig 28. maí.
Námsefni á íslensku.
Íslenskir leiðbeinendur.
Gunnar 699 8064, Inga 695 3612.
www.cranio.cc www.ccst.co.uk.
íbúð óskast til leigu Reglusöm
3ja manna fjölsk. óskar eftir að
taka á leigu góða 3—4 herb. íbúð
á svæði 101, 105, 107 eða 170 frá
1. ágúst til 2ja ára. Skilvísum
greiðslum heitið. Meðmæli ef
óskað er. Uppl. í s. 545 7850 eða
00 1 613 728 3609.
Útsala á hundarúmum, þrjú verð
1.500, 2.000, 2.500.
DÝRABÆR - Hlíðasmára 9,
Kóp., s. 553 3062, opið 13-18
mán.-fös., 11-15 laugard.