Morgunblaðið - 16.04.2005, Side 58

Morgunblaðið - 16.04.2005, Side 58
58 LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Stóra svið Miðasalan er opin: Mánud. og þriðjud.:10:00-18:00, mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00, laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00 Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is HÉRI HÉRASON e. Coline Serreau Lau 23/4 kl 20, Fö 29/4 kl 20, Lau 7/5 kl 20 AUSA eftir Lee Hall - Í samstarfi við LA Fi 21/4 kl 20 - Síðasta sýning Ath: Miðaverð kr 1.500 HÉRI HÉRASON snýr aftur - Fyndið - ferskt - fjörugt - farsakennt SVIK eftir Harold Pinter Samstarf: Á SENUNNI, Sögn ehf og LA. Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 Aukasýningar SEGÐU MÉR ALLT e. Kristínu Ómarsdóttur Su 17/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20 Síðustu sýningar BÖRN 12 ÁRA OG YNGRI FÁ FRÍTT Í BORGARLEIKHÚSIÐ Í FYLGD FULLORÐINNA - gildir ekki á barnasýningar! Nýja svið, Litla svið og Þriðja hæðin ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur Í kvöld kl 20 - UPPSELT, Su 17/4 kl 20 - UPPSELT, Mi 20/4 kl 20 - UPPSELT, Fi 21/4 kl 20, - UPPSELT, Fö 22/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 23/4 kl 20 - UPPSELT, Su 24/4 kl 20 - UPPSELT, Fö 29/4 kl 20 - UPPSELT, Lau 30/4 kl 20 - UPPSELT, Su 1/5 kl 20 - UPPSELT, Fi 5/5 kl 20 HÍBÝLI VINDANNA leikgerð Bjarna Jónssonar eftir vesturfarasögu Böðvars Guðmundssonar Í kvöld kl 20, Su 17/4 kl 20, Fi 21/4 kl 20, Fö 22/4 kl 20, Lau 30/4 kl 20, Su 8/5 kl 20, Fö 13/5 kl 20 Fáar sýningar eftir DRAUMLEIKUR eftir Strindberg Samstarf: Leiklistardeild LHÍ Su 24/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20 - UPPSELT Síðustu sýningar RIÐIÐ INN Í SÓLARLAGIÐ e. Önnu Reynolds Í samstarfi við Leikhópinn KLÁUS Í kvöld kl 20 Fö 22/4 kl 20, Lau 23/4 kl 20 AUGNABLIKIÐ FANGAÐ - DANSLEIKHÚSIÐ fjögur tímabundin dansverk Fi 21/4 kl 19.09 - Frumsýning, Su 24/4 kl 19.09, Su 1/5 kl 19.09 Aðeins þessar 3 sýningar TERRORISMI e. Presnyakov bræður Mi 20/4 kl 20, Fi 28/4 kl 20, Fi 5/5 kl 20 KALLI Á ÞAKINU e. Astrid Lindgren Í samstarfi við Á þakinu Aðalæfing mi 20/4 kl 18 - UPPSELT, Frumsýning fi 21/4 kl 14 - UPPSELT, Lau 23/4 kl 14, Su 24/4 kl 14, Su 1/5 kl 14, Su 1/5 kl 17 Apótekarinn eftir Haydn Óperustúdíó Listaháskóla Íslands og Íslensku óperunnar 29. apríl kl. 20 - Frumsýning 1. maí kl. 20 - 2. sýn - 3. maí kl. 20 - 3. sýn 8. maí kl. 20 - 4. sýn - 10. maí kl. 20 - 5. sýn - Lokasýning Ath. Aðgangur ókeypis www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200 Íslenska óperan v/Ingólfsstræti Pósthólf 1416 - 121 Reykjavík Sími: 511 6400 4 600 200 leikfelag.is Miðasölusími Pakkið á móti frumsýnt 15. Apríl Pakkið á móti Eftir Henry Adams Lau. 16.4 kl 20 2. kortas. UPPSELT Fim. 21.4 kl 20 3. kortas. UPPSELT Fös. 22.4 kl 20 4. kortas. UPPSELT Lau. 23.4 kl 20 5. kortas. UPPSELT Mið. 27.4 kl 20 Aukas. Nokkur sæti laus Fös. 29.4 kl 20 6. kortas. Örfá sæti laus Lau. 30.4 kl 20 Örfá sæti laus Leikhúsgestir munið glæsilegan matseðil S: 568 0878 Pónik og Einar í kvöld ÓVENJU létt stemning ríkti í Grafarvogskirkju rétt fyrir tónleika Lúðrasveitarinnar Svans á mánu- dagskvöldið. Tónleikagestir sátu ekki í sætum sínum heldur gengu fram og til baka og voru á svipinn eins og þeir væru í áhugaverðu safni, enda er Grafarvogskirkja líf- lega hannað hús með skemmtilega afstrakt og litríkri altarismynd sem er svo risastór að hún er stöðugt fyrir augum manns. Hljóðfæraleik- ararnir voru líka lausir við helgi- slepju og spígsporuðu um kirkjuna í rólegheitunum; lá við að mörkin á milli áheyrenda og lúðraþeytara væru ekki alltaf alveg ljós. Enda eru meðlimir lúðrasveitarinnar flestir ungir að árum; ég gat ekki betur séð en margir þeirra væru langt komnir nemendur í Tónlistar- skólanum í Reykjavík. Afslappað andrúmsloftið ein- kenndi einnig sjálfa tónleikana, enda var megnið af músíkinni þeirrar gerðar sem maður tengir helst við óteljandi bréfsnepla svíf- andi í loftinu. Verk eins og Blásið hornin eftir Árna Björnsson, Rheinfelden Sketches eftir Philip Sparke og Merry-go-round eftir sama tónskáld eru svo full af gleði að þó að fyrir hafi komið hnökrar á borð við óhreina tóna, of sterkan trompetleik á kostnað annarra hljóðfærahópa og ónákvæmni í takti, þá skipti það litlu máli. Rétti andinn var til staðar í tónlistinni og það var aðalatriðið. Rúnar Óskarsson stjórnaði sveit- inni af skörungsskap og hljóðfæra- leikararnir fylgdu honum oftast ágætlega. Eitt athyglisverðasta at- riði efnisskrárinnar var Concert- piece nr. 2 eftir Mendelssohn en þar voru tvær ungar stúlkur í ein- leikshlutverki, Ólöf Ásta Jósteins- dóttir á bassetthorn og María Konráðsdóttir á klarinettu. Frammistaða þeirra var með mikl- um sóma, samspilið var í góðu jafn- vægi og önnur tæknileg atriði komu einnig vel út. Greinilegt var að þarna var hæfileikafólk á ferð- inni. Í það heila voru þetta ágætir tónleikar; eins og áður sagði hefði þurft að fága ýmislegt betur, en þegar stuðboltar þeyta lúðra sína og hljóðpípur af slíku hömlulausu fjöri þá er manni alveg sama um tæknilegar misfellur; það er ein- faldlega ekki annað hægt en að skemmta sér. Stuðboltar þeyta lúðra sína TÓNLIST Grafarvogskirkja Tónlist eftir Árna Björnsson, Douglas Wagner, Carl Strommen, Philip Sparke, Johan de Meij og Mendelssohn. Lúðra- sveitin Svanur lék undir stjórn Rúnars Óskarssonar. Mánudagur 11. apríl. Lúðrasveitartónleikar Jónas Sen MERRY Go Round er nafnið á hljómklukku, sem er útskriftarverk- efni Hildar Ingveld- ardóttur Guðnadóttur af nýmiðlabraut Listaháskóla Íslands í vor. Hildur er fyrsti nemandi skólans sem útskrifast af þessari braut. Hljómklukkan felur í sér viðamikla uppsetn- ingu og verður flutt af 14 færanlegum hljóð- færaleikurum í stórri hljóðmynd og magn- aðri lýsingu og hljómar í Klink og Bank í kvöld. En hvað er eiginlega hljómklukka? „Já, það er mjög góð spurning,“ seg- ir Hildur og hlær. „Af því að þetta eru ekki venjulegir tónleikar fannst mér ekki við hæfi að kalla þetta það. Þetta er frekar í ætt við gjörning. Það sem ég er að gera í þessari hljómklukku er að setja upp hvernig ég sé tíma, hvernig tími er skipulagður og hvernig fólk lifir í tíma.“ Þátttakendurnir í hljómklukku Hildar eru Andrew D’Angelo, Áki Ásgeirsson, Guð- björg Hlín Guðmunds- dóttir, Guðmundur Steinn Gunnarsson, Guðný Jónsdóttir, Hilmar Jensson, Jó- hann Jóhannsson, Júlía Mogensen, Kjartan Sveinsson, Matthías M.D. Hem- stock, Ólafur Björn Ólafsson, Ólöf Helga Arnalds, Páll Ívan Pálsson og Skúli Sverrisson, auk hennar sjálfr- ar. Að sögn Hildar munu hljóðfæra- leikararnir allir standa á pöllum sem eru á hjólum og verður þeim ýtt um allt rýmið í kringum áhorfendur, sem sitja í hring og mynda þannig skífu klukkunnar, meðan þeir spila. Sjálf mun hún sitja í miðju hringsins og spila á selló, umkringd hátölurum sem leika þar til gerða hljóðmynd. Hún segir hugtakið tíma hafa ver- ið að veltast fyrir sér lengi. „Það þegar maður gleymir stað og stund finnst mér svo ótrúlega merkilegt ástand, því manni er svo mikið stjórnað af því hvað klukkan er og hvað tekur langan tíma að gera þetta og hitt,“ segir Hildur, sem leit- ast við að túlka tímann og tímaleysi í hljómklukkunni Merry Go Round í dag. Útskriftartónleikar LHÍ | Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir Tíminn túlkaður í hljómklukku Hljómklukkan Merry Go Round hljómar í Klink og Bank í kvöld klukkan 20. Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir GALLERÍ Box er nýtt gallerí á Akureyri í gömlu sýningarrými sem áður hét Kompan og var í umsjón Aðalheiðar S. Eysteins- dóttur. Þetta er um 6 fermetra „alternatíft“ og „non-profit“ sýn- ingarrými eins og það kallast á út- lensku og sem slíkt telst þetta varla gallerí eins og þekkist í myndlistarheiminum þar sem starfsemin er ekki þess eðlis. En við Íslendingar höfum tamið okk- ur að rugla í þessu orði eins og við getum og kallað hin ýmsu rými „gallerí“. Allt frá skókassa til skranverslana. Gallerí Box er við innganginn á vinnustofu Jónu Hlífar Halldórs- dóttur, Hönnu Hlífar og Daggar Stefánsdóttur sem jafnframt eru umsjónarmenn rýmisins. Hafa þær stöllur kosið að bjóða Að- alheiði S. Eysteinsdóttur að kveðja sitt gamla svæði með því að vera fyrsti sýnandi boxins. Gerir hún það á tilfinningalegum nótum, enda fóstraði hún rýmið í 14 ár ásamt því að hafa vinnustofu sína fyrir innan. Aðalheiður stígur dans í vinnustofurýminu og syng- ur í takt við vinsæl dægurlög. Þetta sýnir hún á myndbandi sem rúllar í 40 mínútur og verður Að- alheiður, sem er sælleg kona, rjóðari og móðari þegar á líður. Ég geri ekki ráð fyrir að lögin séu valin af handahófi heldur að þau hafi tilfinningalegt gildi fyrir listakonuna, en hún afhjúpar sig nokkuð á þessari sýningu. Ung stúlka sem situr á stól, smíðuð úr spýtum eins og Aðalheiði er lagið, er æskumynd listakonunnar og á rúðu rýmisins er texti þar sem hún segir lítillega frá æskuárum sínum. Innsetningin er beint framhald af ágætri sýningu sem Aðalheiður hélt í Skaftfelli á Seyðisfirði síð- astliðið sumar. Mér þykir hún öllu opinskárri í þetta sinn. Maður getur reyndar velt því fyrir sér hvenær listamenn segja áhorf- andanum of mikið og hvenær ekki. Hve mikið svigrúm hann ætti að hafa til túlkunar. Þetta eru auðvitað viðkvæm mörk en úr því að verkið er þetta tilfinn- ingalegt þykir mér textanum ofaukið að lokaorðunum und- anskildum, þ.e. að hún hafi verið viðráðanlegt barn – hún söng og dansaði. Textinn í heild sinni er í frásagnarformi sem höfðar til höf- uðsins og drepur þar með tilfinn- ingalega upplifun sem mér fannst svolítið pirrandi uppbrot í hita leiksins. Annars hefur Aðalheiður verið vaxandi í listinni undanfarin ár. Er augljóslega að endurskoða eigið líf í listsköpun sinni með áhugaverðum afleiðingum og nær vissulega að gera stóra hluti í þessu litla rými. Stórt í litlu rými MYNDLIST Gallerí Box Sýningu lokið. Aðalheiður S. Eysteinsdóttir Jón B.K. Ransu Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.