Morgunblaðið - 16.04.2005, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 16.04.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2005 59 MENNING Fr um Varðskipið TÝR Sýning á silfurskúlptúrum og örsmáum skipslíkönum, Sigurðar Þórólfssonar, gullsmiðs, í Norræna húsinu kl.12-17. Síðasta sýningarhelgi. STYRKUR TIL TÓNLISTARNÁMS Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms erlendis á næsta skólaári 2005-2006. Veittur er styrkur að upphæð kr. 600 000. Umsóknir, með upplýsingum um námsferil og framtíð- aráform, sendist fyrir 31. maí nk. til formanns sjóðsins: Arnar Jóhannssonar, pósthólf 8620, 128 Reykjavík. Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni umsækjenda. Vika bókarinnar hefst áþriðjudag með veglegridagskrá sem stendur óslit- ið fram á sunnudag. Á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda varð Benedikt Kristjánsson fram- kvæmdastjóri fyrir svörum og kvaðst vera að leggja lokahönd á að taka saman dagskrá vikunnar en hún verður kynnt í heild sinni á þriðjudag. Sú hefð hefur skap- ast að bókaútgefendur í samstarfi við bóksala gefa viðskiptavinum bókaverslana sérstaka bók í til- efni Viku bókarinnar og að þessu sinni er það Árbók bókmennt- anna sem Njörður P. Njarðvík hefur tekið saman. Lesendur Morgunblaðsins hafa fengið þægi- legan forsmekk að bókinni því úr henni hefur verið birt tilvitnun dagsins frá því í byrjun apríl. Dagskráin að öðru leyti er gríðarlega fjölbreytt og skemmti- leg og má nefna að skáld verða á faraldsfæti um skóla, bókasöfn, kaffihús og lista- og menning- arstofnanir um allt land alla vik- una og flytja ljóð og segja sögur. Settar verða upp leiksýningar og leikarar í ýmsum gervum úr ís- lenskum barnaleikritum birtast, t.d. H.C. Andersen sjálfur í Gerðubergi. Stofnun Sigurður Nordal efnir til málþings um At- hafnalandið Ísland og er það haldið í minningu Ragnars Jóns- sonar í Smára. Verður m.a. leit- ast við að svara spurningunni At- hafnaskáld – hvar er Ragnar í Smára samtímans?    Engin vika án verðlauna gætilíka verið slagorð bókavik- unnar því tvenn verðlaun verða afhent. Barnabókaverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur og Bókaverðlaun barnanna verða af- hent á sumardaginn fyrsta. Á Gljúfrasteini ætlar Pálmi Gests- son leikari að lesa úr verkum nóbelsskáldsins undir yfirskrift- inni Sumarkoma á Gljúfrasteini. Alþjóðadagur bókarinnar er svo laugardagurinn 23. apríl, (fæð- ingardagur Halldórs Laxness) og flytur verðlaunaskáldið Sjón ávarp dagsins. Eins og nærri má geta láta út- gefendur ekki deigan síga í út- gáfu þegar bókum er hampað svo eftirminnilega í sumarbyrjun. Hjá bókaútgáfunni Sölku eru allir í sumarskapi að sögn Hildar Hermóðsdóttur útgáfustjóra. Af vorútgáfu Sölku útgáfu nefnir Hildur fyrstar fjórar bæk- ur um hollustu og heilbrigði. Hreystin kemur innan frá eftir Maríu Costantino í þýðingu Þor- valdar Kristinssonar. „Þessi bók fjallar um hvernig á að hreinsa og afeitra líkamann svo hann vinni betur úr fæðunni og brenni því sem afgangs er. Það er greinilega mikill áhugi fyrir þessu efni og bókin hefur selst ágætlega frá því hún kom í bóka- búðir,“ segir Hildur.    Leyndarmál franskrar salat-sósu opinberað Íslendingum er forvitnileg bók eftir Helen Magnússon. „Þessi litla en fallega bók verð- ur gefin út á fjórum tungumálum: íslensku, ensku, frönsku og þýsku. Undanfarin ár hefur íslensk matarhefð tekið miklum breyt- ingum og nú þykir salat sjálfsagt og nauðsynlegt með hverri mál- tíð. Það er af sem áður var; flotið góða hefur vikið fyrir hollum og auðmeltum olíum – sem er ein- mitt að finna í þessum gómsætu vínegrettum höfundar. Þar mæt- ast frönsk matarmenning eins og hún gerist best og nýstárleg notkun á fersku, íslensku hráefni. Safabókin er einnig eftir Mariu Costantino í þýðingu Nönnu Rögnvaldardóttur en þar er okk- ur kennt að útbúa fjöldann allan af ljúffengum og hollum ávaxta- og grænmetissöfum og þeyt- ingum. Þetta er fallega mynd- skreytt og lystug bók fyrir heil- næma sælkera. Ætigarðurinn er falleg bók eft- ir listakonuna Hildi Hákonar þar sem hún kennir okkur að rækta jörðina okkar allan ársins hring. Inn á milli eru girnilegar upp- skriftir, ráðleggingar til að öðlast betri heilsu og áhugaverðar frá- sagnir um lífið og tilveruna. Þetta er þarft alfræðirit fyrir alla þá sem vilja tengjast jörðinni bet- ur og borða hollari mat,“ segir Hildur. Af allt öðrum toga en þó með sumarstemningu er Gamla góða Kaupmannahöfn eftir Guðlaug Arason. „Guðlaugur hefur undanfarin sumur lóðsað Íslendinga um sögufræga staði í Kaupmannahöfn. Nú hefur hann sett þessa ferð á bók með ara- grúa af fróðleik og tilheyrandi skemmtisögum. Á stórmarkaði trúarbragðanna – nýjar trúarhreyfingar og dul- hyggja er stórvirki eftir sr. Þór- hall Heimisson sem fjallar þar um helstu trúarbrögð heims auk þess sem hann gerir grein fyrir nýjum straumum og stefnum. Þetta rit er það eina sinnar tegundar á ís- lensku og er því þarft í fram- haldsskóla og fyrir alla þá sem hafa áhuga á þeim miklu áhrifum sem trúarbrögðin hafa á sam- félög víða um heim,“ segir Hildur og bætir því við að fleiri bækur séu væntanlegar frá Sölku í sum- ar og haust en ekki er hægt að skilja við Sölku útgáfu án þess að nefna skemmtilegt framtak. „Við hjá Sölku ákváðum að hrinda af stað námskeiða- og fyrirlestraröð þar sem teknar eru fyrir vinsæl- ustu handbækur útgáfunnar. Markmiðið með þessum fyrir- lestrum er að sinna lesendum sem vilja fá sem mest út úr þeim bókum sem þeir eru ánægðir með. Nánari upplýsingar um þetta má fá á heimasíðu forlags- ins, www.salkaforlag.is,“ segir Hildur Hermóðsdóttir útgáfu- stjóri. Bók, bók, bók, íslensk bók ’Hjá Sölku útgáfu eruallir í sumarskapi að sögn Hildar Hermóðs- dóttur útgáfustjóra.‘ AF LISTUM Hávar Sigurjónsson Morgunblaðið/Sverrir havar@mbl.is FRAMHALDSSKÓLARNIR á Akureyri hafa ekki farið varhluta af „sjóveikinni“ sem stingur sér niður í hverjum menntaskólanum á fætur öðrum þessi árin. En að sjálfsögðu eru einkennin með ör- lítið öðrum blæ en fyrir sunnan. Tónlistin er allajafnan „live“, þ.e. ekki er notast við upptekinn og aðkeyptan undirleik heldur settar saman hljómsveitir með skóla- félögunum (auðvitað eru samt á þessu undantekningar í báðar átt- ir). Það sem tapast af fagmennsku vinnst aftur í formi ferskleika og sannfæringar, því allt snýst þetta jú um að bera á borð eigin sköp- un. Með Rígnum er síðan stigið eitt skref í viðbót því handritið er eftir tvo skólapilta (eða hvort þeir eru nýútskrifaðir, skiptir ekki máli) og efnið sótt í aðstæður nemendanna sjálfra; rómaðan ríg- inn milli skólanna tveggja sem sameinast um sýninguna. Grindin er svo sótt í Rómeó og Júlíu, svo- lítið eins og ættarmótsnefndir Montags og Kapúletts sameinist um skemmtiatriði. Handritið hefur margt gott við sig. Í fyrri hlutanum, meðan verið er að lýsa aðstæðum og hrinda at- burðunum af stað, tekst þeim bæði að skjóta sannfærandi skeytum á mór- alinn í báðum skólum og ýkja ástandið upp úr öllu valdi. Mörg meinfyndin at- riði birtast okk- ur, ekkert þó snilldarlegra en kórsöngur mont- inna MA-inga sem slær út ég elska menn hjá Versló um árið sem er best heppnaða tónlistar- atriði sem ég hef séð í framhalds- skólasýningu. Og talandi um þann skóla, að gera verslóstjörnuna Þorvald Davíð að persónu í verk- inu sem hliðstæðu Parísar greifa í Rómeó og Júlíu er innblásin og dýrðlega andstyggileg hugmynd. Í síðari hlutanum þyngist nokk- uð róðurinn þegar dramað hellist yfir. Þannig er það líka í Rómeó og Júlíu, en það verður að segjast eins og er að hinum ungu höf- undum fatast nokkuð flugið í al- vörunni. Það er eitthvað við hinar ýktu og skemmtilegu aðstæður sem þeir skapa í fyrri hlutanum sem vinnur gegn harminum og siðferðislegri alvörunni sem þeir vilja greinilega fyrir allan mun skila. Meira frelsi gagnvart frum- verkinu, meiri hlýðni við aðstæð- urnar sjálfar í skólunum, léttari efnistök hefðu gert sýninguna frá- bæra, og á endanum skilað sterk- ari áhrifum. Þess í stað er hún „bara“ verulega eftirtektarverð frumraun og frábært þrekvirki í uppfærslu á öllum póstum. Sviðsetningin er ansi hreint mögnuð hjá Þorleifi og orkustigið hátt. Sérstaka aðdáun mína vöktu kraftmikil og frábærlega útfærð slagsmálaatriði, aftur eitthvað sem ég hef ekki séð nálægt því svona vel gert í öðrum skólasýningum og þó víðar væri leitað. Kannski má segja að stundum verði aðstæð- urnar í Gryfjunni til þess að of margar sekúndur líði milli atriða en vel má vera að það þéttist. Jafnframt má reikna með að hljóðmaðurinn, sem ekki átti góð- an dag, verði öruggari á sínu eftir því sem sýningum fjölgar. Hljóm- sveitin var mögnuð, en söngur nokkuð misgóður. Allir helstu leikarar skila góðu verki. Mestur er stjörnubragurinn á Guðmundi Inga Halldórssyni í hlutverki Verslingsins, eins og vera ber. Foringjar gengjanna tveggja voru vel leystir af Unni Birnu Björnsdóttur og Þorkeli Stefánssyni. Elskendurnir sömu- leiðis ágætir hjá Albert Sigurðs- syni og Snjólaugu Svölu Grét- arsdóttur. Hópurinn var samstiga mjög þrátt fyrir mikinn hamagang á köflum, rós í hnappagat leik- stjórans sem er flinkur umferð- arstjóri. Rígurinn er einstakt verk um margt. Samvinna tveggja skóla um verk sem fjallar um ósam- komulag þeirra. Grettistak ungs fólks sem er mikið niðri fyrir um eigið líf og vill miðla því sjálft á eins áhrifaríkan hátt og kostur er. Gallarnir fölna við hlið hinnar augljósu ætlunar. Svona á að gera þetta! Af fornri heift LEIKLIST Leikfélög Menntaskólans og Verkmenntaskólans á Akureyri Höfundar: Andri Már Sigurðsson og Ævar Þór Benediktsson. Leikstjóri: Þorleifur Arnarsson. Hljómsveitarstjóri: Sigurður Helgi Oddsson. Frumsýnt í Gryfjunni í Verkmenntaskólanum laugardaginn 9. apríl 2005 Rígurinn Þorleifur Örn Arnarsson Þorgeir Tryggvason ÍSLENDINGAR eru þátttak- endur í evrópsku verkefni á sviði ljósmyndunar sem heitir Breytt ásýnd. Ljósmyndun á breyttum myndum evrópskrar menningar. Þema þessa árs er: Án vinnu. Sérstök dóm- nefnd í Slóvakíu hefur valið Orra Jónsson úr hópi umsækj- enda sem fulltrúa Íslands í verkefninu. Þátttakan er fólgin í að fara til starfa í tvo mánuði í borg- inni Poprad í Slóvakíu í tengslum við ljósmyndagall- eríið Dom Fotografie. Síðan mun hollenskur ljósmyndari koma til Íslands og dvelja hér við myndatökur. Það kom í hlut Íslendinga að velja einn þátttakanda úr hópi fimm hollenskra umsækj- enda. Þar varð fyrir valinu ljósmyndarinn Rob Hornstra, en hann er nýútskrifaður í ljósmyndun frá Listaakadem- ínunni í Utrecht. Bók með ljósmyndum Hornstra, Comm- unism and Cowgirls, kom út árið 2004. Úrval ljósmynda sem unnar eru í verkefninu í þátt- tökulöndunum verður sýnt í Museum Folkwang í Essen í Þýskalandi snemma árs 2006 og síðan á farandsýningu sem sett verður upp hjá samstarfs- aðilum í verkefninu. Aðalskipuleggjandi verkefn- isins er Háskólinn í Sunder- land í Englandi en samstarfs- aðilar eru í Finnlandi, Hollandi, Þýskalandi, Spáni, Slóvakíu, Tékkóslóvakíu og Litháen auk Íslands. Aðalsam- starfsaðili við verkefnið á Ís- landi er Þjóðminjasafn Ís- lands. Orri Jóns- son tekur þátt í Evr- ópuverkefni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.