Morgunblaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 10
Ný 2.700 fermetra verslunar- og þjónustumiðstöð var opnuð á Reyðarfirði í gær Reyðarfjörður | Glæsileg opn- unarhátíð var haldin í gær þegar Molinn, ný verslunar- og þjónustu- miðstöð, var opnuð á Reyðarfirði. Klipptu þeir Guðmundur Bjarna- son bæjarstjóri og Smári Geirs- son, forseti bæjarstjórnar, á borða og léku nemendur Tónskóla Eski- fjarðar og Reyðarfjarðar fyrir gesti. Boðið var upp á tíu metra langa súkkulaðitertu sem gestir gerðu góð skil, en áætla má að rúmlega þúsund manns hafi komið í Mol- ann fyrsta daginn. Voru ýmis opn- unartilboð í gangi og gestahapp- drætti þar sem vinningar voru úr nýjum verslunum miðstöðvarinnar. Samtals er húsnæðið 2.700 fer- metrar og er það talið rúmgott og glæsilegt. Er húsnæðið í eigu Fasteignafélagsins Smáragarðs, en það fyrirtæki er hluti af Nor- vikur-samstæðunni sem meðal annars á og rekur BYKO- verslanirnar. Er byggingaraðili ÍAV. Nú þegar hafa verið opnaðar í miðstöðinni matvöruverslunin Krónan, tískuverslunin Pex og sport og veiðivöruverslunin Veiði- flugan. Á næstunni koma inn Lyfja og Landsbankinn og síðan verslunin ÁTVR, auk þess sem Verkfræðistofan Hönnun hf. og Fjarðabyggð verða með skrif- stofur í miðstöðinni. Sjálfsafgreiðslubakarí Er verslun Krónunnar um 700 fermetrar. Þar er boðið upp á fjöl- breytt úrval af matvöru og bús- áhöldum og einnig er þar svokall- að sjálfsafgreiðslubakarí, þar sem bakað er á staðnum. Versl- unarstjóri er Jónatan Már Sig- urjónsson. Hjá Veiðiflugunni er lögð áhersla á fjölbreyttan útifatnað s.s. 66°N, Puma, Regatta, LOOP, Scarpa o.fl. Einnig er mjög gott úrval af veiðivörum frá Sako, Tikka og Remington. Í búðinni er auk þess að finna sérstaka golf- deild með flest það sem golfiðk- endur þurfa. Verslunarstjóri er Björgvin Pálsson. Tískuverslunin Pex leggur mikla áherslu á glæsilegan fatnað, m.a. Hummel-línuna í fatnaði og ýmsa fylgihluti, Ecco- og Blend-skó og flottustu línur í fótboltaskóm. Verslunarstjóri er Steinunn Sig- urðardóttir. Fjölmenn opnunarhátíð í Molanum Morgunblaðið/Hallfríður Víglundur Gunnarsson, eigandi Pex, Kristinn V. Jóhannsson, SÚN-Veiðiflugan, Hróar Björnsson, rekstrarstjóri Krónukeðjunnar, og Guðmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Smáragarðs, við opnun Molans í gær. 10 LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Winnipeg | Varanleg sýning um vestur-íslenska íshokkíliðið Fálk- ana, the Winnipeg Falcons, var opnuð í nýju MTS-íþrótta- og sýn- ingarhöllinni í Winnipeg að við- stöddu miklu fjölmenni. MTS-höllin var formlega vígð í vetur. Hún er í miðbæ Winnipeg þar sem stórverslun Eaton’s var áð- ur og er gert ráð fyrir að um millj- ón manns heimsæki hana árlega. Signý Eaton, sem var af íslenskum ættum, var eiginkona Johns Davids, fyrrverandi stjórnarformanns fjöl- skyldufyrirtækisins sem afi hans, Timothy Eaton, stofnaði. Signý hélt íslenskri arfleifð hátt á lofti og nú hafa Fálkarnir tekið við hlutverkinu sunnan megin við Portage Avenue. Íshokkí varð ólympíuíþrótt 1920. Fálkarnir tryggðu sér rétt til að keppa fyrir hönd Kanada í Ant- werpen í Belgíu fyrir um 85 árum og urðu fyrstu Ólympíumeistararn- ir í greininni. Allir leikmenn liðsins nema einn voru af íslenskum ættum og þeim var fagnað sem þjóðhetjum við komuna til Kanada eftir sig- urinn. Fyrir fjórum árum átti að ganga framhjá Fálkunum þegar Kanada ætlaði að minnast fyrrverandi meistara á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake 2002. Forystumenn ís- lensk-kanadíska samfélagsins brugðust við með mikilli baráttu fyrir stöðu Fálkanna í sögunni og svo fór að íshokkíyfirvöld játuðu yf- irsjón sína og gerðu Fálkunum hátt undir höfði á leikunum í Utah. Staða Fálkanna styrkist Síðan hefur staða Fálkanna styrkst og í haust sem leið var stofnuð nefnd til að koma varan- legri sýningu um Fálkana á lagg- irnar. Við veggsvæði sem úthutað var á jarðhæð hallarinnar gegnt myndum af þeim íshokkíleikmönn- um sem hafa verið teknir inn í frægðarsetur Manitoba (Manitoba Hockey Hall of Fame) hefur verið haganlega fyrir komið liðsmynd af Fálkunum, ágripi af sögu þeirra, upplýsingum um meistarana og stjórnendur þeirra, búningum, blaðaúrklippum og eftirlíkingum af gullverðlaununum. Gary Doer, forsætisráðherra Manitoba, Mark Chipman, framkvæmdastjóri Hallarinnar, og Dan Johnson, formaður fram- kvæmdanefndarinnar the Falcons Forever Exhibit Campaign, afhjúp- uðu verkið og séra Ingþór Ísfeld blessaði sýninguna. Fálkarnir fyrir allra augum Morgunblaðið/Steinþór Dan Johnson fyrir framan sýningarsvæðið í MTS-höllinni í Winnipeg. FIMLEIKAFÉLAG Hafnarfjarðar tók á dögunum í notkun nýtt knatt- hús í Kaplakrika sem fengið hefur nafnið Risinn. Húsið er tæpir 3.000 fermetrar að flatarmáli með 45x66 metra gervigrasvelli. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Lúðvík Geirsson bæjarstjóri fluttu ávörp í tilefni af vígslu hússins, en það kom í hlut Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbankans, að tilkynna um nafn hússins fyrir hönd styrktaraðila þess, sem eru Actavis, Eimskip og Landsbankinn. Jón Rúnar Halldórsson, formaður hlutafélagsins FH-knatthús, sagði nýja knatthúsið vera byltingu fyrir starfsemi knattspyrnudeildar FH, enda gætu knattspyrnumenn nú stundað æfingar við mun betri skil- yrði en áður, óháð veðri. Allt hafnfirskir verktakar utan einn Framkvæmdir við Risann hófust 15. október sl. en tafir urðu á jarð- vinnu vegna flutnings hitaveituæðar sem lá um byggingarstaðinn og vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Lokið var við grunn hússins í mars og var þá hafist handa við að reisa sjálft húsið. Helstu verktakar við byggingu hússins voru Fjarðargrjót, sem sá um jarðvinnu, Fjarðarmót, sem sá um mótasmíði og steypuvinnu, Suð- urlist, sem sá um að reisa húsið ásamt fulltrúum frá framleiðanda, Gaflarar, sem sáu um raflagnir, og Sport-Tæki, sem lögðu gervigrasið. Þess má geta að allir verktakarnir utan sá síðast taldi eru hafnfirskir, skv. upplýsingum frá forsvarsmönn- um knatthússins. Húsið er keypt frá Finnlandi en klæðningin er fram- leidd af Ferrari í Frakklandi. Fyrsti formlegi kappleikurinn í Risanum verður í dag, á Þóris- mótinu svonefnda sem stendur til morguns, í minningu Þóris Jóns- sonar, fyrrverandi formanns knatt- spyrnudeildar FH, sem lést af slys- förum í fyrra. FH tekur knatthúsið Risann í notkun Morgunblaðið/Árni Torfason Það kom í hlut Björgólfs Guðmundssonar, stjórnarformanns Landsbankans, að ljóstra upp um nafn hússins. Fyrsti kappleikurinn í dag í minningu Þóris Jónssonar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.