Morgunblaðið - 23.04.2005, Page 31

Morgunblaðið - 23.04.2005, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 31 menn eru ekki alltaf sam- milli flokka. Við gerum okk- rein fyrir því að samstarf út á að sýna eðlilega sann- a tillit til samstarfsaðilanna undum verður þessi að r og stundum hinn. Það fer og aðstæðum en ekki met- gna hefur þetta gengið vel. nig verði það áfram. ð það hafi engu breytt um f hvor okkar situr í forsæti. það yrði eitthvað mjög erfitt milli manna. Það hefur ekki verið.“ Davíð sagði að hann og Halldór hefðu handsalað samkomulag um samstarf flokkana á Þingvöllum eftir kosningarnar 1995 um að mynda ríkisstjórn flokkanna tveggja. „Ég held því nú ekki fram að við höfum handsalað því til 10 ára. En það var ágætisbyrjun. Við höfðum enga sérstaka ástæðu til þess að vera sérstakir vinir, við Halldór á því augnabliki. Halldór var bú- inn að vera öflugur leiðtogi stjórnarand- stöðu og ég býst við að ég hafi verið held- ur frekur forsætisráðherra. Það þurfti töluvert til af hálfu beggja ná sama: það hefur gengið vel.“ Davíð og Halldór ræddu nokkuð um vinnubrögð í samstarfinu á blaðamanna- fundinum. Halldór sagði að í samstarfi flokka væri nauðsynlegt að aðilar tækju tillit til samstarfsflokksins. Af hálfu sumra væri slík kallað, að gefa eftir við samstarfsflokkinn. Þetta væri hins vegar forsenda fyrir því að samstarfið skilaði árangri. Halldór sagði að í ríkisstjórninni hefðu menn tamið sér að vera fljótir að taka ákvarðanir frekar en að draga í lang- an tíma að taka þær. Í einhverjum til- vikum leiddu þessi vinnubrögð til þess að menn tækju ekki endilega 100% réttar ákvarðanir, en það væri sín reynsla að það væri betra að taka fljótt á málunum en að vera að fresta endalaust ákvarð- anatöku. Það væri bara ávísun á vand- ræði. Davíð sagði að forystumenn flokkanna hefðu á þessum 10 árum sýnt sveigj- anleika þegar upp kæmi ágreiningur. Ef annar flokkurinn gæti ekki hugsað sér að fara ákveðna leið í tilteknu máli þá væru menn ekki að halda henni til streitu. Menn einfaldlega finndu þá aðra leiðir. Davíð og Halldór sögðu báðir engan vafa leika á að rétt skref væru stigin með sölu Símans. Halldór sagði enga ástæðu fyrir ríkið að standa í samkeppnisrekstri. Með sölunni yrði hægt að styrkja rík- issjóð og fá fjármagn til brýnna sam- félagslegra verkefna. „Við erum að leysa úr læðingi 60–80 milljarða sem bundnir eru í Símanum. Það mun engin breyting verða á þjónust- unni við fólkið í landinu, nema að hún kannski batnar eins og gerðist með bank- ana,“ sagði Davíð. Davíð vék einnig að vegamálum og gagnrýni á Héðinsfjarðargöng. „Menn sögðu að þetta væri vitlaus forgangs- röðun. Mönnum finnst einfalt að segja þetta. En menn eiga þá að spyrja, var þetta sett fremst í forgangsröðina? Nei, menn byrjuðu á allt öðrum verkefnum. Það er ekki farið að huga að svona verk- efnum fyrr en umferðin er orðin þannig að 95% af henni eru á bundnu slitlagi. Þá fara menn í svona verkefni sem auðvitað nýtast öllu landinu og styrkir það og eflir. Þetta er í samræmi við forgangsröðun, en við byrjuðum bara á öðru.“ Hefur hug á að halda áfram í stjórnmálum Davíð veiktist í fyrrasumar og hefur verið í strangri endurhæfingu. Hann sagðist aðspurður hafa fullan hug á að halda áfram í stjórnmálum. „Ég hef ekki hug á öðru,“ sagði Davíð. „Ég var orðinn mjög slappur áður en ég fór inn í þessa seinni aðgerð. Mér fannst þegar ég var að ganga í Skerjafirð- inum að ég væri farinn að búa í fjalllendi, en það er bara hluti af þessu dæmi. Ég var tekinn af tilteknum lyfjum og þá verð- ur maður svona slappur. Þetta var allt hluti af prógrammi sem hefur gengið vel,“ sagði Davíð. Davíð sagði að þó að hann væri búinn að vera lengi í ríkisstjórn væri ekki hægt að segja að hann væri búinn að koma öllu í verk. Stjórnmálin væru þannig að stór hluti verkefnanna snerist um að bregðast við hlutum sem upp koma. „Þá er aðalsp- ursmálið, hvernig eru þessir menn til að taka á slíkum málum? Það stendur ekkert um þau í stjórnarsáttmálanum. Og þá er spurningin, geta þeir unnið saman? Geta þeir verið fljótir til ákvarðana? Eru þeir að tala saman af heilindum eða eru þeir alltaf að velta fyrir sér hvað kemur vel út fyrir þá?“ Davíð minnti á að hann væri ekki nema 57 ára gamall. „Mér liggur ekkert á, hvorki að fara eitthvað né vera eitthvað, en ég held að ég hafi enn krafta til að gera góða hluti.“ ur aukist um 51% á 10 árum Morgunblaðið/Gollimsson og Davíð Oddsson sögðu að árangur af stjórnarsamstarfinu þessi 10 ár væri góður. egol@mbl.is fyrir flokkana undanfarinn áratug, ásamt mök- um. Voru flestir ráðherranna mættir til fagn- aðarins, en þrír þeirra áttu þess ekki kost að vera viðstaddir. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks tók við völdum 23. apríl 1995 að loknum kosningum sem fram fóru 8. apríl og hélt hún sinn sinn fyrsta fund 25. apríl. Davíð Oddsson var í forsæti ríkisstjórnarinnar og sömuleiðis í tveimur næstu ríkisstjórnum flokkanna. Á síðasta hausti tók Halldór Ás- grímsson við embætti forsætisráðherra en Davíð Oddsson varð utanríkisráðherra. rnarsamstarfi í Ráðherrabústaðnum n Pálsson, sendiherra í Danmörku, og eiginkona hans Ingibjörg Rafnar, Þorgerður Katrín Gunn- menntamálaráðherra, Kristrún Eymundsdóttir, eiginkona Halldórs Blöndal þingforseta, Ingi- lmadóttir, fyrrum heilbrigðisráðherra, og Sólveig Pétursdóttir, fyrrv. dómsmálaráðherra. Davíð Oddsson forsætisráðherra, Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og eiginkona hans, Margrét Einarsdóttir, Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, og eiginkona hans, Vigdís Gunn- arsdóttir, í Ráðherrabústaðnum í gærkvöld. Fjær eru Halldór Ásgrímsson og Árni M. Mathiesen.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.