Morgunblaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.04.2005, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 2005 25 MINNSTAÐUR voru strákarnir í 9. bekk í hljóm- sveitinni algerir snillingar. Sýningin hefði ekki orðið svona góð án frábærrar úrsetningar Stef- áns Þorleifssonar, tónlistarkenn- ara, á lögunum. Oft svitnaði maður yfir löngum og erfiðum setningum en þegar allt endar svona frábær- lega vel man maður bara góðu hlut- ina.“ Þorlákshöfn | Bugsy Malone eftir Alan Parker í þýðingu Guðjóns Sig- valdasonar var sett upp í Grunn- skólanum í Þorlákshöfn. Það voru nemendur í 10. bekk sem settu upp leiksýninguna. Leikstjóri var skóla- stjórinn, Halldór Sigurðsson. Tón- menntakennari skólans, Stefán Þorleifsson æfði söngatriði. „Með uppfærslu leikverka í skól- um er víða komið við og ýmsum námsþáttum sinnt á óhefðbundinn hátt. Slík vinna er einnig ákveðin tilbreyting og eykur samkennd þar sem hópur unglinga sameinast í að ná ákveðnu takmarki og gleðst saman þegar því er náð,“ sagði Halldór Sigurðsson skólastjóri. Allir lögðu eitthvað af mörkum Helga Guðbjarnardóttir sem lék Blúsí Brún sagði er fréttaritari spjallaði við hana: „Þetta var alveg rosalega gaman, ég hef tekið þátt í nokkrum leiksýningum áður en aldrei eins stóru verki. Á hverju ári sýnir 10. bekkur eitthvert leikrit til að safna peningum fyrir skólaferð sem farin er á vorin. Ég bauð mig fram í í svona stórt hlutverk af því að mér finnst mjög gaman að leika og undirbúa svona leiksýningu. Maður þarf að vera sjálfstæður og hugmyndaríkur til skapa per- sónuna sem maður á að leika. Það er auðvitað erfitt að finna tíma því á sama tíma vorum við í aukatímum til að vinna upp það sem tapaðist í verkfallinu og svo eru margir í íþróttum líka en okkur tókst að láta þetta ekki rekast á. Ég hvert alla sem tækifæri hafa til að taka þátt í svona starfi, ég mun ávallt muna eftir þessu þegar ég verð eldri.“ Hjalti Einarsson sem lék Bugsy tók undir orð Helgu og bætti við: „Það að vinna svona vinnu utan skólatíma eflir hópinn mikið, það er ekkert grín að setja saman svona stórt og mikið leikverk, það koma margir að því og það þarf samvinnu og skipulag, maður þurfti að fórna ýmsu.“ Vilborg Jóna Gunnarsdóttir sem lék Gosa var sammála en bætti við: „Þetta var frábær sýning. Allir í bekknum lögðu eitthvað af mörk- um. Við fengum mikla hjálp frá kennurum og mörgum öðrum. Svo Söngleikur settur upp í skólanum Verkefnið eflir nem- endahópinn mikið Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Söngleikur Stór hópur elstu nemenda grunnskólans tekur þátt í uppsetningu söngleiksins Bugsy Malone. Eftir Jón H. Sigurmundsson Djúpivogur | Leikfélag Djúpavogs frumsýndi í gærkvöldi verkið Með veröldina í vasanum. Verkið, sem er gamanleikur með söngvum, skrifar Hallgrímur Odds- son í samvinnu við leikhópinn, en Hallgrímur er jafnframt leikstjóri. „Verkið gerist í þvottahúsi í sameign,“ segir leikstjórinn. „Þarna eru nokkr- ar konur búsettar og gengur erfiðlega að koma sér saman um hvernig reglum skuli háttað í sameigninni. Þær eiga við ýmis vandamál að glíma og verkið er bæði um hvernig vandinn vindur upp á sig og lausn hans.“ Alls kemur um tugur manns að sýning- unni, en leikendur eru fimm talsins. Hallgrímur, sem kemur frá Bíldu- dal, hefur ritað fleiri verk og hlaut m.a. verðlaun hjá LA fyrir uppistand um jafnréttismál. Hann segir leik- hefðina unga á Djúpavogi og verið sé að byggja upp hefð. „Hér eru allir boðnir og búnir í allt og virðist vera mjög jákvætt viðmót við leiklistina.“ Næstu sýningar verða á Hótel Framtíð 24. apríl kl. 15 og 29. apríl kl. 21. Með veröldina í vasanum h ö n n u n : w w w . p i x i l l . i s Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 BÆJARL IND 12 - S : 544 4420 201 KÓPAVOGUR Falleg garðhúsgögn úr gegnheilu tekki -20% Stækkanlegt borð (120cm x 120cm + 60cm) og sex staflanlegir stólar Verð : 83.400.- Tilboðsverð: 66.720.- -20% Átthyrnt borð (120cm x 120cm) og fjórir klappstólar Verð : 47.500.- Tilboðsverð: 38.000.- -10% Sefgras sófasett 3+1+1 (sessur fylgja) Verð : 144.000.- Tilboðsverð: 129.600.- -20% Washington bekkur Verð : 42.000.- Tilboðsverð: 33.600.- Fáanlegar í 3 litum í garðhúsgögn Sessur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.