Morgunblaðið - 24.11.2005, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 35
UMRÆÐAN
www.fl ugger.is
10
3
5
4
3
Gæðamálning
Gott verð
Polytex 7
Ljósir litir 4 lítrar 1.990 kr.
Íslensk gæðamálning með góða hulu, endingargóð
og auðveld í notkun.
Skeifan 4
Snorrabraut 56
Bæjarlind 6
Dalshraun 13
Hafnargata 90
Austursíða 2
Austurvegur 69
Hlíðarvegur 2-4
Sólbakka 8
Flügger ehf
Stórhöfða 44
110 Reykjavík
Sími 567 4400
ÞAÐ ER ánægjuefni geta rætt
um ríkisframtak, sem hefur stór-
aukið lífsgæði fjölda fólks, gert það
sjálfsbjarga og að virkum þátttak-
endum í þjóðarframleiðslunni. Jafn-
framt hefur þetta framtak verið
þjóðarbúinu mjög svo arðbært. Hér
er um að ræða Grensásdeild Land-
spítala háskólasjúkrahúss, en þar
fer fram starfsemi, sem ekki heyrist
mikið um í daglegu tali. Þangað
koma þau, sem sakir atburða eins og
slysa, stoðkerfisaðgerða eða heila-
skaða þurfa endurhæfingar við og
það oft í langan tíma. Þorri þessa
fólks er ekki sjálfbjarga, þegar það
kemur, en með þrotlausri þjálfun og
aðstoð nær meirihlutinn því marki
og þar af verður hluti virkur í at-
vinnulífinu og skattgreiðendur á ný í
stað þess að þurfa að þiggja örorku-
lífeyri eða aðrar bætur um ókomna
tíð.
Þessi árangur hefur ekki náðst af
tilviljun. Á Grensási hefur byggst
upp frábært hámentað, velþjálfað og
samhent lið lækna, hjúkrunarfólks,
iðju- og sjúkraþjálfa, sem ásamt
góðu aðstoðarfólki hefur þróað það
sem kalla mætti hágæða endurhæf-
ingarsmiðju. En þessi starfsemi
virðist ekki metin að verðleikum af
mörgum öðrum en þeim sem hafa
notið hennar.
Samkvæmt Hagstofu Íslands
fjölgaði íbúum landsins frá árinu
1973, þegar Grensásdeild tók til
starfa, og þar til nú um tæp 40%.
Jafnframt hefur meðalaldur hækk-
að, sem leitt hefur til hlutfallslegrar
hækkunar á fjölda þeirra sem end-
urhæfingu þurfa. Fjöldi legurúma á
deildinni, 48, hefur hins vegar staðið
í stað. Og jafnframt er annarri af
þeim tveimur hæðum , sem sjúkra-
stofurnar eru á, lokað að sumri til í
einn mánuð. Þá er stofan þar sem
sjúklingar eru þjálfaðir á bekkjum
sem og æfingartækjastofan mjög
þröngar, er gerir aðkomu erfiða fyr-
ir þá sem eru í hjólastól eða ganga
við hækjur, sem og starfsfólkið.
Í iðjuþjálfun er sjúklingurinn m.a.
settur í umhverfi, sem er líkast því
sem finna má á venjulegu heimili og
felst þjálfunin í því að gera hann/
hana sjálfsbjarga í því umhverfi. Þar
er brýn þörf fyrir stærri og betri að-
stæður til að beita megi allri þeirri
tækni, sem endurhæfing getur boðið
upp á.
Aðgengi og þjálfun í tölvunotkun
sjúklinga er sáralítil. Er það miður
því fátt getur betur linað áþján ein-
angrunar og víkkað sjóndeild-
arhring þeirra, sem bundnir eru við
rúm eða hjólastól, en að læra á og
hafa aðgang að tölvu og geta þar
með komist í samband við heim
ótæmandi fróðleiks, upplýsinga og
afþreyingarmöguleika. Skerðingu
líkamlegrar athafnagetu fylgir mikil
andleg áreynsla og kvíði, sem getur
oft breyst í geðfötlun um lengri eða
skemmri tíma og því þýðingarmikið
að samfara líkamlegri endurhæfingu
fari líka þjálfun í að styrkja og við-
halda geðheilsu.
Grensásdeild er oft lokahlekk-
urinn í meðferðarkeðju, sem hefst
með liðaskiptum eða öðrum aðgerð-
um. Hæft lið þeirra, sem þær að-
gerðir framkvæma nýtist ekki til
fulls því legurúm vant-
ar. Langir biðlistar
sjúklinga, sem búa við
stöðuga verki hafa því
myndast.
Um arðbærni Grens-
ásdeildar þarf ekki að
fjölyrða. Árið 2004 voru
samkvæmt Hagstofu
Íslands meðalatvinnu-
tekjur á hvern starf-
andi einstakling á land-
inu 2,716 m.kr. og
samkvæmt ríkisskatt-
stjóra voru meðal
tekjutengdir skattar og útsvör á ein-
stakling um 660 þús. kr.. Það árið
var heildarrekstrarkostnaður legu-
og dagdeilda Grens-
ásdeildar 411. m.kr. og
göngudeildar 131
m.kr., samtals 542
m.kr.. Fjöldi legu og
dagdeilda sjúklinga
var 589. Á göngudeild
voru 3.269 komur. Þótt
eingöngu sé miðað við
fyrri töluna (margir
göngudeildarsjúkling-
ar voru áður legu-
sjúklingar), og miðað
við að aðeins 20%, 118,
geti horfið til starfa á
ný mundu árlegar atvinnutekjur
þeirra nema 320 m.kr. og skatta-
tekjur ríkisins af þeim um 78 m.kr.
Innan tveggja ára mundu því at-
vinnutekjur þeirra nema hærri upp-
hæð en heildarkostnaði Grens-
ásdeildar árið, sem þeir dvöldu þar
og skattatekjur ríkisins af þeim
mundu á tæpum sjö árum greiða
upp þann kostnað. Þá er ótalinn
sparnaðurinn við að lækka má eða
fella niður örorkubætur og lífeyri,
sem ella hefði þurft að greiða. Og
hvað þau snertir, sem geta ekki farið
á vinnumarkaðinn aftur en þjálfast
nóg til að geta bjargað nauðþurftum
sínum sjálf þá eru seint metin til fjár
þau auknu lífsgæði sem það færir
þeim.
Einn besti mælikvarði á þróun-
arstig þjóðar er hvernig hún annast
aldna, sjúka og aðra , sem geta ekki
bjargað sér sjálfir um lengri eða
skemmri tíma. Þótt frábærlega hafi
tekist með Grensásdeild þarf mun
meira. Auðvitað er það skylda rík-
isins að mæta þessari þörf betur en
gert hefur verið. En er það ekki
jafnframt skylda okkar, sem deildin
hefur byggt upp, að styðja við hana
ekki aðeins í orði heldur líka í verki?
Það þarf að gera á skipulagðan máta
og ættum við sem flest að leggja
hönd þar á plóginn.
Grensás – Deildin gleymda?
Gunnar Finnsson fjallar um
starfsemi Grensásdeildar
’Þessi starfsemi virðistekki metin að verð-
leikum af mörgum öðr-
um en þeim sem hafa
notið hennar. ‘
Gunnar Finnsson
Höfundur er rekstrarhagfræðingur,
fv. aðstoðarframkvæmdastjóri hjá
Alþjóðaflugmálastofnuninni og
dvaldist á Grensásdeild.
Gull- og
Silfursmiðjan Erna
Skipholti 3 • sími 552 0775 • www.erna.is
Fallega Jólaskeiðin
frá Ernu
kr. 6.900