Morgunblaðið - 24.11.2005, Page 33

Morgunblaðið - 24.11.2005, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 33 UMRÆÐAN Óformleg menntun og þátttaka ungs fólks í samfélaginu Dr. Howard Williamson flytur fyrirlestur um óformlega menntun og þátttöku ungs fólks í samfélaginu í Háskólanum í Reykjavík, stofu 101, mánudaginn 28. nóvember nk. kl. 13:15 Fyrirlesturinn er í boði menntamálaráðuneytisins og Háskólans í Reykjavík. Dr. Howard Williamson er prófessor í European Youth Policy in the School of Humanities, Law and Social Sciences við Háskólann í Glamorgan Wales. Áður hefur hann starfað við háskólana í Oxford, Cardiff og í Kaupmannahöfn og hefur unnið ötullega að málefnum ungmenna í Evrópu í yfir 20 ár. Hann hefur unnið að stefnumótun í málefnum ungs fólks bæði í Bretlandi og fyrir ýmis lönd. Þá hefur hann mjög komið að stefnumótun Evrópusambandsins og Evrópuráðsins í málefnum ungs fólks. Síðasta bók hans er The Milltown Boys Revisited (2004). Árið 2002 var hann sæmdur heiðursorðunni CBE (Commander of the British Empire) fyrir störf sín að málefnum ungs fólks. Fyrirlesturinn er sérstaklega áhugaverður fyrir þá er vinna með og starfa að stefnumótun í málefnum ungs fólks, hjá frjálsum félagasamtökum, opinberum aðilum og aðra er bera hag þeirra fyrir brjósti. Þátttaka er öllum opinn, aðgangur er ókeypis. Vinsamlega staðfestið þátttöku með tölvupósti til charlotta@ru.is. FÆRNI TIL FRAMTÍÐAR Menntamálaráðuneytið www.ru.is AÐ UNDANFÖRNU hafa um- ræður um málefni og þjónustu við aldraða aukist til muna. Gangi mannfjöldaspár eftir sem allar líkur benda til munu Íslendingar, 65 ára og eldri verða rúmlega 60.000 eða um 19% þjóðarinnar árið 2030! Árið 2000 voru aldraðir rúmlega 32.000 eða um 11,6% af heildarfjölda þjóð- arinnar. Þessar tölur eru af- ar ánægjulegar. Öldr- uðum fjölgar, þeim líð- ur betur og þeir lifa lengur en áður og við getum notið leiðsagnar þeirra og reynslu í lengri tíma en nokkru sinni fyrr. Þessar stað- reyndir hafa verið kunnar um áratugi og yfirvöld lagt sig í líma við að bæta enn hag og kjör aldraðra sem eiga allt gott skilið. (Mér er það ljósara en nokkru sinni fyrr eftir að ég varð aldraður. Mað- ur finnur það best á eigin skinni!) Er kannski hægt að gera betur? Árið 1991 lágu fyrir niðurstöður rannsókna aldraðra kvenna á Norð- urlöndum (Gamle kvinner i Norden) og tók Sigríður Jónsdóttir, fé- lagsfræðingur, þátt í þeim rann- sóknum fyrir hönd Íslands. Margt fróðlegt kom fram í rannsókn henn- ar sem vert væri að rifja upp en hér skal aðeins bent á tvennt. Í fyrsta lagi verða ísl. konur eldri en karlar eins og vitað er og þær eru fleiri en karlar, og í öðru lagi er gert ráð fyrir að fleiri aldraðar konur verði einar í framtíðinni, ógiftar og/eða hafi aldrei gifst eða verið í sambúð. Samkvæmt síðustu mannfjölda- spám Hagstofunnar fjölgar þeim Ís- lendingum hlutfallslega mest á næstu 25 árum sem eru 80 ára og eldri og konur í meirihluta. Árið 1990 náðu 22 Íslendingar 100 ára aldri, 20 konur en aðeins 2 karlar. Árið 1999 náðu 26 Íslendingar þessum aldri og árið 2000 voru þeir alls 43, 30 konur og 13 karlar. Líf- aldur kvenna á Íslandi eru tæplega 83 ár og sveinbarn sem fæðist á okkur dögum getur átt von á því að lifa í rúm 79 ár sem er hæsti líf- aldur í heimi. Eðlilegt er að álykta að því fleiri sem aldraðir verða þeim mun fleiri eru einstæðir og einangraðir nema eitthvað sérstakt komi til. Upp úr 1980 lagði þáverandi ellimálafulltrúi Reykjavíkurborgar, Geirþrúður Hildur Bernhöft, til að skoðað yrði samstarf á milli opinberra aðila og annarra sem veittu öldruðum ein- hverja þjónustu eða umönnun, en hún hafði þá reynslu af mikilli þátt- töku sjálfboðaliða í félagsstarfi aldr- aðra sem nær allir voru konur á miðjum aldri og eldri. Hún hafði nýlega kynnt sér málefni aldraðra í Bandaríkjunum og Englandi og hitt samstarfsfólk á Norðurlöndum, m.a. dr. Evu Beverfelt sálfræðing hjá norska öldrunarfræðifélaginu sem var brautryðjandi í rann- sóknum á högum, aðstæðum og við- horfum aldraðra, en Danir voru einnig framarlega í öldrunarþjón- ustu þá eins og nú og óhræddir við að fara ótroðnar slóðir. Af einhverjum ástæðum komst þetta samstarf aldrei á. Nokkrum árum síðar var aftur lögð fram til- laga um að athugað yrði starf Rauða krossins, heimsóknarþjón- usta, safnaðarstarf og athvarf aldraðra, starf félags eldri borgara og fleiri og reynt að sam- hæfa og stilla saman strengi. Af einhverjum ástæðum komst þetta samstarf aldrei á. Öldruðum fjölgar og fleiri einangrast og verða einmana. Í áð- urnefndri norrænni rannsókn kom í ljós að hætta virðist á að eldri konur vilji ekki verða fjölskyldu sinni og nærættingjum til byrði og nauðsyn- legt sé að hlusta á rödd aldraðra og sjálfsákvörðunarrétt þeirra. Í grófum dráttum má segja að eftirfarandi aðilar veiti öldruðum í heimahúsum þjónustu af einhverju tagi: 1. Sveitarfélög, – félagsleg heima- þjónusta, félags- og tómstunda- starf, heimsending matar, ráð- gjöf, dagþjónusta, akstursþjónusta o.fl. 2. Ríki, – heimahjúkrun, heilsu- gæsla, dagspítalar, hvíldarinn- lagnir, öldrunarlækningadeildir o.fl. 3. Rauði kross Íslands, heimsókn- arþjónusta, félagsleg þátttaka og samvera 4. Söfnuðir, – athvarf, sam- verustundir, ræktun trúar, sál- gæsla o.fl. 5. Félag eldri borgara, Félag áhugafólks um íþróttir aldraðra – félagsstarf, áhugamál, hagsmuna- mál, menningarmál, hreyfing og forvarnarstarf o.fl. Ýmis félagasamatök veita einnig félögum og aðstandendum sjúkra aldraðra ýmiskonar þjónustu, en af fátæklegri upptalningu má spyrja: Geta fulltrúar áðurnefndra aðila ekki hist til skrafs og ráðagerða, séð svart á hvítu hvað hver gerir, hvernig er unnt að nýta starfs- krafta með markvissari hætti og deila niður verkefnum til þess að þjóna öldruðum heima betur en gert er, einnig með þeirri upplýs- ingatækni/miðlun sem í boði er, í hvaða sveitarfélagi sem er á land- inu? Málefni aldraðra hafa verið í „nefndum og ráðum og farvegi“ í langan tíma. Í Reykjavík hefur t.d. verið uppstokkun á öllum sviðum höfuðborgarinnar þar sem litið er á fjölskyldurnar og málefnin í heild. Í þeirri skipulagsbreytingu má eng- inn verða útundan og engin ástæða til að bíða með að fara af stað með sveigjanlegan starfssamning á milli opinberra aðila og annarra aðila sem veita þjónustu við aldraða. Reykjavíkurborg og heilbrigð- isráðuneyti hafa unnið saman að könnun um samþættingu fé- lagslegrar heimaþjónustu og heima- hjúkrunar heilsugæslunnar og er áreiðanlega tækifæri til skipulagn- ingar sem kemur öldruðum að miklu gagni. Er ekki unnt að kortleggja alla sjúka, einmana aldraða á ákveðnu svæði/sókn og bjóða þeim samstarf við þá sem þeir óska til þess að auka öryggi þeirra, bæta líðan þeirra og auka lífsgæði? Aldraðir og einangrun Þórir S. Guðbergsson fjallar um málefni eldri borgara ’Er ekki unnt að kort-leggja alla sjúka, ein- mana aldraða á ákveðnu svæði/sókn og bjóða þeim samstarf við þá sem þeir óska til þess að auka lífsgæði þeirra?‘ Þórir S. Guðbergsson Höfundur er kennari, félagsráðgjafi og lífeyrisþegi. Jakob Björnsson: Útmálun helvítis. „Álvinnsla á Íslandi dregur úr losun koltvísýrings í heiminum borið saman við að álið væri alls ekki framleitt og þyngri efni notuð í farartæki í þess stað, og enn meira borið saman við að álið væri ella framleitt með raforku úr elds- neyti.“ Þorsteinn H. Gunnarsson fjallar um rjúpnaveiðina og auglýsingu um hana, sem hann telur annmarka á. Eggert B. Ólafsson: Vega- gerðin hafnar hagstæðasta til- boði í flugvallarrútuna. Örn Sigurðsson: Bornir eru saman fjórir valkostir fyrir nýj- an innanlandsflugvöll. Aðsendar greinar á mbl.is www.mbl.is/greinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.