Morgunblaðið - 24.11.2005, Side 51

Morgunblaðið - 24.11.2005, Side 51
skylduráðs: Að neyta eða njóta jólanna? verður kl. 9–10. Erindi halda: Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi á Akureyri, Björk Vilhelmsdóttir borgarfulltrúi og fulltrúi í fjölskylduráði og Óskar H. Ósk- arsson sóknarprestur á Akureyri. Fund- arstjóri er Soffía Gísladóttir. Fyrirlestrar Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræð- um við HÍ | Unnur Dís Skaptadóttir, mann- fræðingur, heldur fyrirlestur á vegum RIKK í Háskóla Íslands, Öskju, stofu N132, kl. 12.15–13.15. Umfjöllunarefnið er konur sem hreyfanlegt vinnuafl og rannsóknir sem varpa ljósi á reynslu kvenna sjálfra og mót- un kyngerfis í tengslum við störf og etn- ískan uppruna. Nánar: www.rikk.hi.is. Sögufélag | Marteinn H. Sigurðsson flytur fyrirlestur hjá Nafnfræðifélaginu um papa– örnefni, 26. nóv. kl. 13.30. Hann fjallar um vandamál sem tengjast þeim örnefnum m.a. hvort klerka- eða munkaheitið papi eigi ávallt við því ýmislegt bendir til að sum örnefnin feli í sér orð sem lýsi landslagi. Tilraunastöð HÍ Keldum | Vilhjálmur Svansson dýralæknir heldur fyrirlestur kl. 12.15–18. Smáveirusótt í hundum er sjúk- dómur sem canine parvovirus veldur. Veira þessi greindist fyrst í hundum um 1980. Í fyrirlestrinum verður fjallað um gerð veir- unnar og þróun frá 1980, sjúkdóms- einkenni í hundum, bólusetningar og hér- lendar rannsóknir á parvoveirum úr hundum. Málstofur Rannsóknastofnun í hjúkrunarfræði | Ingibjörg Hjaltadóttir MSc, lektor við HÍ og sviðsstjóri á LSH gerir grein fyrir nið- urstöðum rannsóknar á áhrifum breytts mönnunarlíkans á gæði þjónustu og starfs- ánægju starfsfólks á öldrunarlækn- ingadeild á LSH. Af niðurstöðum er ljóst að móta varð nýjar samskiptaleiðir og ábyrgðarsvið. Málstofn fer fram á morgun kl. 12. Málþing Menntamálaráðuneytið | Í tilefni af 60 ára afmæli UNESCO 16. nóvember sl. boðar ís- lenska UNESCO-nefndin til kynning- arfundar um UNESCO, Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna og málþings í menntamálaráðuneytinu, fundarsal á 4. hæð kl. 14–16. Ráðhús Reykjavíkur | Málþing um mið- borgarskipulag og ferðamannaverslun auk pallborðsumræðna verður kl. 15–18. Að málþingi loknu verða veitt verðlaun Þróun- arfélags miðborgarinnar fyrir þróun og uppbyggingu í miðborginni og Njarð- arskjöldurinn – hvatningarverðlaun Reykjavíkurborgar. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis. Iðnó | Fjölskylduráð efnir til morgunfundar kl. 9–10 undir yfirskriftinni: Að neyta eða njóta jólanna? Allir velkomnir. Námskeið Staðlaráð Íslands | ISO 9000. Námskeið 1. desember. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir meg- ináherslum og uppbyggingu kjarnastaðl- anna í ISO 9000 röðinni og þekki hvernig þeim er beitt við að koma á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Nánari upplýsingar og skráning á www.stadlar.is. Frístundir Kiwanisklúbburinn Geysir | Félagsvist í kvöld kl. 20.30 í Kiwanishúsinu, Mos- fellsbæ, í landi Leirvogstungu á bökkum Köldukvíslar við Vesturlandsveg. Spila- verðlaun. Útivist Stafganga í Laugardalnum | Tímar fyrir byrjendur og vana kl. 17.30. Upplýsingar og skráning á www.stafganga.is eða gsm 6168595/6943571. Hönnun Listaháskóli Íslands | Fyrirlestur í LHÍ, Skipholti 1. stofu 113 kl. 17–18. Franski arki- tektinn Charles Bessard flytur fyrirlestur er hann nefnir: From modernism to mod- ernity. Bessard er gestakennari við Hönn- unardeild LHÍ. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2005 51 MENNING 1. Rf3 e6 2. c4 b6 3. g3 Bb7 4. Bg2 f5 5. 0-0 Rf6 6. d4 Be7 7. d5 0-0 8. Rd4 c5 9. Rc2 Re8 10. Rc3 Bf6 11. Dd3 Rd6 12. Hd1 e5 13. e4 g6 14. exf5 gxf5 15. Rb5 e4 16. De2 Rxb5 17. cxb5 d6 18. Dh5 Bg7 19. Re3 Df6 20. Rc4 De7 21. Bf4 Hf6 22. Bh3 Df8 23. Rxd6 Hxd6 24. Bxf5 Hg6 25. d6 Bd4 26. Bxg6 hxg6 27. Dxg6+ Dg7 28. De8+ Kh7. Staðan kom upp á heimsmeist- aramóti 20 ára og yngri sem lauk fyrir skömmu í Istanbúl í Tyrk- landi. Tomi Nybäck (2.563) hafði hvítt gegn Deep Sengupta (2.400). 29. Hxd4! cxd4 29. ... Dxd4 hefði ekki verið skárra sökum 30. Be5. 30. Be5 Dd7 31. Dh5+ Kg8 32. Hc1 De6 33. Dh8+ Kf7 34. Dg7+ og svartur gafst upp þar sem eftir 34. …Ke8 35. Hc7 Rd7 36. Hxd7! er fátt til varnar hjá svörtum. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Nemendur 1946–1948 NEMENDUR Héraðsskólans á Laugarvatni 1946–1948. Fyrirhugað er að mæta til aðventumessu í Bú- staðakirkju sunnudaginn 27. nóv- ember kl. 11. Kaffi eftir messu. Idol – Jólapakkar ÉG eins og mjög margir aðrir var mjög hissa á framgöngu dómnefnd- arinnar í Idol föstudaginn 18. nóv- ember. Þegar dómnefndin var spurð hverjir væru líklegastir til að komast áfram nefndi enginn í nefndinni aug- ljósan kandidat, sem svo átti eftir að komast auðveldlega áfram. Öllum sem voru mér nærri fannst augljóst hvaða tvö kæmust áfram, en ekki þessari svokölluðu dómnefnd. Var hún ekki að hlusta eða er dóm- greindin bara ekki betri en þetta hjá þeim? Von að spurt sé. Jólapakkar Icelandair hafa litið dagsins ljós og kemur í ljós tæplega 40% hækkun á þeim. Til að mynda hækkaði Saga class fargjald til USA úr 39.900 í 54.900. Þessi hækkun er auðvitað út úr öllu korti – og ekki hef ég séð neina skýringu á þessu. Einar. Borgarstjóri valinn í kosningu ÉG HEF verið að velta því fyrir að tveir síðustu borgarstjórar hafa ekki verið kosnir af fólkinu heldur skip- aðir af Samfylkingunni. Finnst þetta umhugsunarefni því þeir voru ekki valdir af fólkinu. Finnst skýlaust að borgarstjóri eigi að vera valinn í kosningum. Sigrún. Hálsmen týndist HÁLSMEN tapaðist fyrir hálfum um mánuði. Þetta er gullmen sem svipar til þess að vera hjartalaga. Er með nokkrum steinum í röð og svo einum stærri í miðju mensins. Skilvís finnandi hafi samband í síma 561 1000 eða 822 2437. Morgunblaðið/Sverrir Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is FJÖLBREYTILEG dagskrá verður á Súfistanum, Laugavegi 18, í kvöld. Sex höfundar Eddu útgáfu lesa úr nýjum bókum sínum, skáldverkum, ljóðum og ævi- minningum. Steinunn Sig- urðardóttir les úr Sólskinshest- inum, Sölvi Björn Sigurðsson úr Gleðileiknum djöfullega, Marta María Jónasdóttir og Þóra Sigurð- ardóttir lesa úr Djöflatertunni, Sól- veig Einarsdóttir úr Hugsjónaeldi og Guðni Th. Jóhannesson úr Völ- undarhúsi valdsins. Dagskráin hefst klukkan 20.00. Lesið úr bókum á Súfistanum Steinunn Sigurðardóttir Fréttir á SMS HVAÐ SKIPTIR ÞIG MÁLI ÞEGAR ÞÚ SELUR EIGNINA ÞÍNA? VIÐ BJÓÐUM: DP FASTEIGNIR ERU BYGGÐAR Á GRUNNI OG ÞEKKINGU DP LÖGMANNA Fasteignasalan DP FASTEIGNIR er í Félagi Fasteignasala. - Heiðarleg og vönduð vinnubrögð. - Persónulega þjónustu. - Þekkingu. - Þrír löggiltir fasteignasalar starfa hjá DP FASTEIGNUM. Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali Höfum trausta kaupendur að atvinnuhúsnæði, allt frá 200 fm til 10.000 fm. Sérstök eftirspurn er eftir atvinnuhúsnæði sem er í útleigu. Nánari uppl. veita Sverrir Kristinsson og Óskar Rúnar Harðarson. EIGENDUR ATVINNUHÚSNÆÐIS ATHUGIÐ - STAÐGREIÐSLA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.