Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 326. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Daglegt líf
í desember
Alda og Hörður Jónsbörn eru
jólabörn fram í fingurgóma | 28
Viðskipti | Danskar fasteignir freista Kuldahrollur í orkumálum
Íþróttir | Deilumál hjá Þrótti Hasselbaink viðurkennir spilafíkn
Málið | Stúdíósánd ofmetið Nýja Ford-fyrirsætan
www.postur.is
5.12.
er síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum til landa
utan Evrópu!
STEINUNN Valdís Óskars-
dóttir borgarstjóri segir ýmis
vandamál tengjast hugmynda-
fræðinni um skóla án aðgrein-
ingar og að taka verði mið af at-
hugasemdum kennara í þeim
efnum. „Kennarar segjast ekki
ráða við hlutina án þess að fá að-
stoð í formi þroskaþjálfa, fleiri
kennara eða fjármagns,“ segir
Steinunn Valdís, sem sl. hálft ár hefur heimsótt alla
44 grunnskóla borgarinnar og hlustað eftir athuga-
semdum jafnt nemenda sem kennara. Fór hún í síð-
ustu heimsóknina í gær þegar hún heimsótti Norð-
lingaskóla í Norðlingaholti sem tók til starfa í haust.
Í skólum borgarinnar er unnið út frá hugmynd-
um um skóla án aðgreiningar, þar sem sérdeildir
skólanna hafa í einhverjum mæli verið lagðar niður,
og hugmyndum um einstaklingsmiðað nám.
Að sögn Steinunnar Valdísar hafa margir kenn-
arar haft á orði að þeir ráði ekki við hlutina án þess
að fá aðstoð inn í bekkina og nefndi hún dæmi af
kennara með 20 manna bekk þar sem 5 einstakling-
ar eru með hegðunarfrávik. „Ég finn að þetta liggur
mikið á mörgum kennurum. En ég er viss um að
þessi hugmyndafræði er rétt, „skóli án aðgreining-
ar“. Ég held að það þurfi að taka mið af þessum at-
hugasemdum og hugsanlega setja meiri stuðning í
einhverju formi inn í skólana, það þarf kannski ekki
alltaf að vera í formi fjármagns en það þarf að vera í
formi fræðslu og stuðnings við kennara.“
Steinunn segist hafa öðlast nýjan skilning á
einkaskólunum eftir að hafa heimsótt þá. „Þessir
skólar eiga það sammerkt að vera litlar einingar
sem halda vel utan um sinn nemendahóp. Þeir búa
ekki alltof vel fjárhagslega en við höfum þó verið að
auka framlag til þeirra á undanförnum árum.“
Hlusta þarf á kennarana
Þarf að taka mið | 36
Að mati borgarstjóra þarf að styðja betur við „skóla án aðgreiningar“
Steinunn Valdís
Óskarsdóttir
Hefur fengið nýjan skilning á starfi einkaskólanna í borginni
Viðskipti, Íþróttir og Málið
HERSVEITIR stjórnarinnar í
Bagdad munu í auknum mæli á næstu
mánuðum taka forystuna í baráttunni
gegn uppreisnarmönnum í Írak en
þau umskipti krefjast „tíma og þol-
inmæði“, að sögn George W. Bush
Bandaríkjaforseta. Hann flutti í gær
ræðu á fundi með flotaskólanemum í
Annapolis í Maryland og sagði m.a. að
ekki kæmi til greina að tímasetja nú
þegar hvenær bandaríska herliðið
yrði flutt frá Írak. Það yrði ekki gert
nema fullur sigur væri í augsýn.
„Við munum hafa sigrað þegar
hermdarverkamenn og liðsmenn
Saddams geta ekki lengur ógnað lýð-
ræðinu í Írak, þegar íraskar örygg-
issveitir geta tryggt eigin borgurum
öryggi og þegar Írak er ekki lengur
griðastaður fyrir hermdarverkamenn
sem skipuleggja nýjar árásir á okk-
ur,“ sagði Bush. Um leið og forsetinn
flutti ræðu sína var dreift 35 blað-
síðna plaggi frá stjórn hans um stefn-
una í Írak og ber það heitið „Áætlun
um sigur í Írak“. Er þar leitt getum
að því að hægt verði að fækka í herlið-
inu í Írak 2006.
Forsetinn viðurkenndi að illa hefði
gengið að þjálfa fleiri liðsmenn í her
og öryggissveitum Íraka, borið hefði
á því að þeir flýðu þegar í harðbakk-
ann slægi. En árangur hefði náðst síð-
ustu mánuði. Bush sagði að verkefni
bandaríska herliðsins myndu breyt-
ast, minna yrði um að það yrði sent í
eftirlitsferðir, það myndi hverfa úr
borgunum og leggja meiri áherslu en
áður á afmarkaðar aðgerðir gegn
mikilvægum skotmörkum. En yfir-
menn herja í Írak myndu ákveða hve
marga hermenn þyrfti, ekki stjórn-
málamenn í Washington.
„Þreytt mælskubrögð“
Andstæðingar Bush töldu fátt nýtt
hafa komið fram í ræðunni. Leiðtogi
demókrata í öldungadeildinni, Harry
Reid, sagði forsetann hafa endurtekið
„enn einu sinni þreytt mælskubrögð
sín um að „halda kúrsinum stöðug-
um“ og enn einu sinni missti hann af
tækifæri til að móta raunverulega
stefnu um sigur í Írak þannig að her-
menn okkar geti snúið heim“.
Bush biður
um „tíma og
þolinmæði“
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Lyon, París. AP, AFP. | Læknar hafa í
fyrsta skipti í sögunni grætt hluta af
andliti látinnar mannveru á andlit
annarrar. Voru það læknar í borg-
unum Amiens og Lyon í Frakklandi
sem unnu þetta afrek í sameiningu á
sunnudag.
Læknar skýrðu
ekki frá aðgerðinni
fyrr en í gær, þeir
vildu fullvissa sig
um að allt hefði
gengið að óskum.
„Almennt ástand
sjúklingsins er
prýðilegt og allt lít-
ur eðlilega út,“
sagði í yfirlýsingu læknanna. Sjúk-
lingurinn er 38 ára gömul kona frá
Valenciennes. Hún missti neðrihluta
andlitsins (nef, varir og höku) þegar
hundur réðst á hana. Læknarnir
fluttu húð, fitu og æðar af látnum líf-
færagjafa, sem hafði veitt samþykki
sitt, og græddu líffærin á konuna, að
sögn eins læknanna, Jean-Michel
Dubernard. Konan mun að sögn
læknanna ekki líta út eins og líf-
færagjafinn en hún mun heldur ekki
líta út eins og hún gerði fyrir slysið.
Konan fékk víðtæka sálfræðiráð-
gjöf fyrir aðgerðina sem stóð yfir í
fimm klukkustundir. Hún verður á
lyfjum sem hjálpa líkamanum að
samþykkja ágræddu líffærin, oft
hafnar líkaminn slíkum líffærum
sem aðskotahlutum. Ekki er vitað
hvort andlitshreyfingar konunnar
verða fullkomlega eðlilegar.
Kona fær
nýtt andlit
Jean-Michel
Dubernard
FARÞEGUM sem ferðast með
strætó á höfuðborgarsvæðinu hefur
fækkað um 6–8% milli ára samkvæmt
upplýsingum frá Ásgeiri Eiríkssyni,
framkvæmdastjóra Strætó bs. Eru
þá fyrstu 10 mánuðir þessa árs bornir
saman við fyrstu 10 mánuði ársins
2004. Farþegum hefur verið að fækka
um 3% að jafnaði á milli ára undan-
farin ár og er fækkunin því meiri en
verið hefur. Nýtt leiðakerfi sem tekið
var í notkun í sumar á einhvern þátt í
þessari fækkun, að sögn Ásgeirs.
Tekjuáætlun Strætó bs. fyrir þetta
ár kemur því líklega ekki til með að
standast, segir Ásgeir, og útlit er fyr-
ir að um 40 milljónir vanti upp á.
Hann segir að nú sé verið að vinna að
úttekt á nýja leiðakerfinu og í kjölfar-
ið verði gerðar tillögur um endurbæt-
ur á því. Verður þá reynt að mæta
þeim athugasemdum og ábendingum
sem borist hafa frá farþegum og
vagnstjórum. Segir Ásgeir að þó að
búið sé að kynna nýja leiðakerfið sé
öll markaðssókn eftir og hún fari
brátt í hönd.
Farþegum Strætó fækkaði
um 6 til 8% milli ára
Reuters
Bush forseti kom seinna á vettvang í flotaskólanum í Maryland en vænst
hafði verið. Nokkrir af nemendunum voru orðnir þreyttir á biðinni.
Beðið eftir forsetanum