Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 35 MENNING Mórar – nærvídd heitirharla óvenjuleg bóksem nýverið kom úthjá 12 tónum. Útgáfu- fyrirtækið þarf þó ekki að koma á óvart þegar eðli bókarinnar er skoð- að, því hér er nefnilega um að ræða ljósmyndabók með hljóðmyndum á geisladiski sem er hluti af bókinni, og stuttum skrifuðum inngangi eftir Braga Ólafsson. Hljóðmyndina hef- ur Matthías M.D. Hemstock gert, en ljósmyndarinn að baki myndum bókarinnar er Katrín Elvarsdóttir. „Hugmyndin þróaðist smám sam- an,“ segir hún aðspurð um tilurð bókarinnar í samtali við Morg- unblaðið. „Ég bjó erlendis um langt skeið og sá því hina dularfullu ís- lensku náttúru með dálítið öðrum augum en þeir sem búa hérna. Árið 2000 byrjaði ég að taka myndirnar í bókinni þegar ég kom heim í stutt frí og safnaði þeim í nokkrum ferð- um á tveimur árum.“ Hljóð og myndir um allt land Við skoðun náttúrunnar fór smám saman að vakna með Katrínu hugmyndin um íslenska náttúru sem dularfulla, og dregur hún það fram í myndum sínum með afar sér- stökum hætti. Þær eru allar svart- hvítar, aðeins úr fókus og mynd- efnið órætt á köflum. „Hugmyndin um mórann vaknaði, og ég var kom- in með þó nokkuð af efni þegar ég talaði við Matthías um að gera þessa bók saman. Ég sýndi honum það sem ég var með og hann greip strax hugmyndina á lofti. Það kom í ljós að hann hafði sjálfur mikinn áhuga á slíkum hlutum; hafði lesið mikið af draugasögum þegar hann var barn og stoppar gjarnan á eyði- býlum þegar hann skreppur út á land. Ég vissi ekkert um þann áhuga fyrirfram.“ Í kjölfarið unnu þau sinn hluta bókarinnar hvort í sínu lagi; Katrín hélt áfram að ferðast um landið og safna myndefni, og Matthías gerði slíkt hið sama og safnaði hljóðefni. „Hann hélt á svipaðar slóðir og ég hafði farið,“ segir hún en myndirnar eru teknar um allt land, meðal ann- ars með viðkomu í gömlu hvalstöð- inni í Hvalfirði og síldarverksmiðju á Djúpuvík. „Hann tók hljóð bæði á slíkum stöðum og einnig umhverf- ishljóð,“ segir Katrín og bætir við að hún sé afar ánægð með útkom- una, sem er vægast sagt dularfull. Katrín segist ekki hafa séð bók af þessu tagi áður, heldur hafi hug- myndin einfaldlega vaknað hjá henni sjálfri. Aðspurð fyrir hvern Mórar – nærvídd sé hugsuð svarar hún að enginn sérstakur markhóp- ur hafi verið hafður í huga þegar bókin var gerð. „En það er kannski mismunandi hvernig fólk upplifir þetta efni; fólk hér á landi hefur kannski upplifað þetta áður, en fyr- ir útlendingum getur það verið nýtt.“ Takmarkaður heimur Hún segist gjarnan hafa viljað færa nýjungar í ljósmyndalistinni hingað heim með bókinni, enda sé heimur ljósmyndunar á Íslandi nokkuð takmarkaður enn sem kom- ið er. „Hann er töluvert á eftir, sér- staklega kannski Bandaríkjunum þar sem listrænar ljósmyndabækur hafa komið út í hundrað ár. Þær eru hins vegar rétt að byrja að koma út hér.“ Það er kannski til sönnunar orð- um Katrínar, að ekkert bókaforlag fékkst til að gefa bók hennar út, og því leitaði hún til 12 tóna um útgáfu. „Fólk skildi þetta ekki alveg,“ segir Katrín, sem segist þó hafa fengið mjög góð viðbrögð við bókinni eftir að hún kom út. Mórarnir hafa getið af sér annað verkefni, sem Reykvíkingum gefst kostur á að upplifa í kvöld en var frumflutt á nýafstaðinni menning- arhátíð í Köln fyrir skemmstu. „Þá flutti Matthías tónlist á lifandi máta á staðnum, og myndunum mínum var varpað á skjá. Við bjuggum til myndasýningu sem var alveg stýrð og tímasett í takt við tónlistina, sem er dálítið ólík upplifun frá því að fletta bókinni og hlusta á diskinn sjálfur,“ segir hún. „Þjóðverjarnir tóku þessu mjög vel og margir komu á eftir til að ræða við okkur. Það fólk náði þessu alveg, en svo veit maður ekkert hvernig fólk hérna, sem sjálft þekkir Ísland mjög vel, tekur þessu.“ Að því er hægt að komast í Ný- listasafninu í kvöld kl. 20. Þá munu Matthías og Katrín taka þátt í sýn- ingu Tilraunaeldhússins, Takkar, en Tilraunaeldhúsið stendur fyrir tónlistarviðburðum í safninu alla þriðjudaga, fimmtudaga og laug- ardaga fram til 19. desember. Bækur | Mórar – nærvídd eftir Katrínu Elvarsdóttur og Matthías M.D. Hemstock kemur út hjá 12 tónum Hin dularfulla íslenska náttúra Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir Myndirnar í bókinni Mórar – nærvídd voru teknar um allt land. Ljósmynd/Katrín Elvarsdóttir „Ég bjó erlendis um langt skeið og sá því hina dularfullu íslensku náttúru með dálítið öðrum augum en þeir sem búa hérna,“ segir Katrín. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is Matthías og Katrín flytja myndir og hljóð úr bókinni í Nýlistasafninu í kvöld kl. 20. www.nylo.is „ Á N U P P H A F S – Á N E N D I S “ Sölut ímabi l 5. - 19. desember Sölustaðir: Home Art - Smáralind Kokka - Laugavegi 47 Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsinu Villeroy & Boch búðin - Kringlunni Valrós - Akureyri Norska húsið - Stykkishólmi Bláa blómið - Höfn Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra Markmiðið með sölu Kærleikskúlunnar er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þeirra þágu. A F H E N D I N G K Æ R L E I K S K Ú L U N N A R 2 0 0 5 Útgefandi: Styrktarfélag lamaðra og fatlaðraK Æ R L E I K S K Ú L A N Í dag, 1.desember kl. 14:00, býður Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra landsmönnum til athafnar í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu, í samstarfi við Listasafnið og Íslandsbanka. Komið og njótið stundarinnar með okkur. eftir Rúrí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.