Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 57
FRÉTTIR
Atvinnuauglýsingar
Sölumenn og -konur
vantar strax
Vantar sölumenn strax í verslanir okkar.
Um er að ræða fullt starf á Laugavegi,
en hlutastörf í öðrum verslunum.
Dressmann.
Saumakona
Vandvirk saumakona óskast til starfa hjá
iðnfyrirtæki í húsgagnaiðn.
Upplýsingar eru veittar í síma 553 9595.
Raðauglýsingar 569 1100
Félagsstarf
Aðalfundur Félags
sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi
verður haldinn miðvikudaginn 7. desember
2005 kl. 17.30 í félagsheimili sjálfstæðismanna,
Álfabakka 14.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórn Félags sjálfstæðismanna
í Hóla- og Fellahverfi.
Fundir/Mannfagnaðir
Barri hf.
Aðalfundur
Aðalfundur Barra hf. fyrir rekstrarárið 2005
verður haldinn í Gistihúsinu Egilsstöðum
fimmtudaginn 8. desember kl. 20:00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins
sjá nánar á www.barri.is.
Tillögur, breytingartillögur á samþykktum fé-
lagsins, ársreikningur og skýrsla endurskoð-
enda liggur frammi til skoðunar á skrifstofu
félagsins, Kaupvangi 19, Egilsstöðum, frá og
með 1. desember.
Til sölu
Til sölu
ca 40 pottofnar
í mismunandi stærðum. Henta vel fyrir
þá sem eru að gera upp eldra húsnæði.
Til sýnis og sölu á Skúlagötu 51.
Upplýsingar veitir Aron Karlsson í síma
861 3889.
Hótel í Reykjavík
Af sérstökum ástæðum er til sölu lítið og nota-
legt hótel í mjög góðum rekstri allt árið. Hótelið
hefur starfað í 10 ár og er með góða viðskipta-
vild. Verð 162 millj.
Þeir, sem hafa virkilegan áhuga, sendi póst á
hotel-108@visir.is til að fá nánari upplýsingar.
Félagslíf
I.O.O.F. 11 1861218½ E.k.
Landsst. 6005120119 VII
Í kvöld kl. 20.00
Fullveldishátíð. Umsjón Heimil-
asambandið. Allir velkomnir.
I.O.O.F. 5 1861218 EK FI
Fimmtudagur 1. des. 2005
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42.
Predikun Ester Jacobsen.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Allir velkomnir.
www.samhjalp.is.
Raðauglýsingar sími 569 1100
SÍMINN hefur ákveðið
að gefa eina milljón
króna í framkvæmda-
sjóð til Barna- og ung-
lingageðdeildar Land-
spítalans, (BUGL).
Síminn hefur um nokk-
urra ára skeið varið
einni milljón króna til
góðs málefnis í stað þess
að senda jólakort til fyr-
irtækja og einstaklinga.
BUGL veitir börnum og
unglingum með geð- og
þroskaraskanir marg-
víslega þjónustu. Marg-
vísleg verkefni eru fram
undan hjá Barna- og
unglingageðdeildinni og
ber þar hæst fyrirhug-
aðar framkvæmdir við
fyrsta áfanga á stækkun
húsnæðis dag- og
göngudeildar BUGL.
Gjöf Símans mun fyrst og fremst
renna í byggingasjóðinn en fyr-
irhugað er að framkvæmdir hefjist
eftir tvo mánuði, segir í fréttatil-
kynningu.
Síminn styrkir BUGL
Á myndinni tekur Eydís Kr. Sveinbjarnardóttir,
sviðsstjóri hjúkrunargeðsviðs LHS, við einni
milljón króna frá Katrínu Olgu Jóhannesdóttur,
framkvæmdastjóra markaðssviðs Símans.
NÝLEGA komu fulltrúar Svaln-
anna færandi hendi á Reykjalund
og afhentu sjúkraþjálfunardeild
stofnunarinnar æfingahjól, gang-
bretti og sjúkralyftukerfi til notk-
unar í hjálparklefa við sundlaug.
Tilefnið er 60 ára afmæli Reykja-
lundar, endurhæfingarmiðstöðvar
SÍBS, á þessu ári.
Þessi búnaður er kærkomin við-
bót við tækjakost þjálfunardeilda á
Reykjalundi þar sem þessi tæki eru
tæknilega mjög fullkomin og öflug,
segir í fréttatilkynningu.
Svölurnar, félag fyrrverandi og
núverandi flugfreyja, hafa fyrst og
fremst aflað fjár með útgáfu og
sölu á jólakortum sem eru sérhönn-
uð fyrir félagið, oftast af einhverri
félagskonu.
Svölurnar verða á ferðinni í
Kringlunni laugardaginn 3. desem-
ber og selja jólakortin en allur
ágóði rennur ávallt til góðgerða-
starfsemi.
Á myndinni eru fulltrúar Svaln-
anna sem komu á Reykjalund: Anna
Þrúður Þorkelsdóttir, Fríða Valdi-
marsdóttir, Þórhildur Sandholt,
Kristín Björnsdóttir, Rannveig Ás-
björnsdóttir og Aðalheiður Emils-
dóttir.
Svölurnar færa Reykjalundi gjöf
BJÖRN Friðrik Brynjólfsson,
fréttamaður á RÚV, hefur verið
ráðinn aðstoðarmaður Einars
Kristins Guðfinnssonar sjávar-
útvegsráðherra og hefur störf 1.
des. nk.
Björn Friðrik útskrifaðist úr
stjórnmálafræði frá H.Í. 1997 og
hagnýtri fjölmiðlun ári síðar. Hann
hefur verið fréttamaður hjá RÚV
og stjórnandi þátta bæði á Rás 1 og
Rás 2 frá 1999.
Aðstoðarmaður
sjávarútvegs-
ráðherra
LÖGREGLAN auglýsir eftir öku-
manni grænnar fólksbifreiðar sem
keyrði utan í unga stúlku á gang-
braut á móts við Hólabrekkuskóla
mánudaginn 28. nóvember kl.
15.45. Ökumaðurinn ræddi við
stúlkuna og ók síðan af vettvangi
þar sem talið var að stúlkan væri
ómeidd.
Umræddur ökumaður er sagður
hafa verið í ullarpeysu og gallabux-
um. Hann er beðinn um að hafa
samband við lögregluna í Reykja-
vík í síma 444 1000. Jafnframt er
óskað eftir því að vitni að atburð-
inum gefi sig fram við lögregluna.
Lýst eftir vitnum
LÖGREGLAN í Keflavík lýsir eftir
stolinni bifreið af gerðinni Nissan
Patrol árg. 1991 (YU-646). Jeppinn
er rauður að lit og var stolið frá
Lyngmóa í Njarðvík hinn 3. nóv-
ember. Jeppinn er upphækkaður á
38 tomma dekkjum með spil í fram-
höggvara. Þeir sem kynnu að hafa
upplýsingar um bifreiðina eru vin-
samlegast beðnir að láta lögregl-
una vita í síma 112 eða 420 2400.
Lýst eftir
stolnum jeppa
FERLINEFND Kópavogs veitir við-
urkenningu fyrir gott aðgengi
laugardaginn 3. desember, á al-
þjóðadegi fatlaðra. Gunnar I. Birg-
isson, bæjarstjóri í Kópavogi, af-
hendir viðurkenninguna í
Félagsheimili Kópavogs. Að þessu
sinni voru þrjár stofnanir bæjarins
tilnefndar til verðlauna, en ein
verðlaun eru veitt.
Þrjár stofnanir
tilnefndar
STJÓRN Sambands ungra sjálf-
stæðismanna hefur sent frá sér
ályktun þar sem harðlega er gagn-
rýnd framganga Valgerðar Sverr-
isdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, að fara fram á það við stjórn
og forstjóra Byggðastofnunar að
stofnunin hefji lánastarfsemi að
nýju, þrátt fyrir að eiginfjárhlutfall
stofnunarinnar sé komið niður fyrir
þau mörk sem áskilin eru í lögum.
„Telur SUS það forkastanlegt af
hálfu ráðherrans að hvetja til lög-
brota með þessum hætti. SUS bend-
ir á að þær stofnanir sem í hlut
eiga, þ.e. Byggðastofnun og Fjár-
málaeftirlitið, sem fer með eftirlit
með starfsemi Byggðastofnunar,
heyra báðar undir iðnaðar- og við-
skiptaráðherra. SUS hvetur til þess
að vonlausum lífgunartilraunum á
úreltri ríkisstofnun verði hætt þeg-
ar í stað. Hafi Byggðastofnun á ein-
hverjum tíma átt tilverurétt, þá er
sá tími löngu liðinn nú þegar bæði
fyrirtæki og einstaklingar geta
nálgast lánsfé á almennum markaði
á góðum kjörum.“
SUS vill hætta
vonlausum lífg-
unartilraunum