Morgunblaðið - 01.12.2005, Side 24
24 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AUSTURLAND
Neskaupstaður | Í síðustu viku voru þemadagar í
Nesskóla þar sem fengist var við orku, vináttu og
börn jarðar. Mismunandi aldursstig fengust við mis-
munandi þemu. Unglingarnir unnu með orkuna og
fóru m.a. að skoða framkvæmdir við Fljótsdals-
virkjun. Yngstu börnin unnu með verkefni tengd
þjóðarbrotum nemenda í Nesskóla, en í skólanum
eru nemendur frá 12 þjóðlöndum. Krakkarnir á mið-
stigi unnu með vináttuna og sendu m.a. öllum fyr-
irtækjum bæjarins vinakort.
Í lok þemavikunnar var haldin sýning þar sem af-
rakstur vikunnar var kynntur fyrir bæjarbúum.
Margt var að skoða og sjá á sýningunni og m.a. var
hægt að kaupa vinauppskriftir af þessum stöllum,
Elísabetu Ýrr Steinarsdóttur og Dagnýju Ástu Rún-
arsdóttur.
Allur ágóði af sölu vinauppskriftanna rennur til fé-
lagasamtakanna Vinir Indlands. Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Vinauppskriftir
til sölu Neskaupstaður | Sam-vinnufélag útgerðar-manna í Neskaupstað
hefur ákveðið að gefa
gervigras á nýjan knatt-
spyrnuvöll í Neskaup-
stað auk girðingar í
kring um völlinn. Ætl-
unin er að leggja gervi-
grasið á gamla mal-
arvöllinn. Þessi
höfðinglega gjöf kemur
sér mjög vel þar sem nú-
verandi grasvöllur verð-
ur aflagður, en hin nýja
stóra frystigeymsla Síldarvinnsl-
unnar, sem nú er verið byggja,
nær inn á hann.
Nýi völlurinn verður í hjarta
bæjarins og auðveldar því æf-
ingasókn, sérstaklega yngri flokk-
ana frá því sem verið hefur, en
grasvöllurinn sem nú er úr leik var
í útjaðri bæjarins. Ætla má að
þessi stórgjöf Samvinnufélags út-
gerðarmanna nemi tugum millj-
óna.
Stórgjöf frá SÚN
Breyting Hér á gervigrasvöllurinn að vera.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Fáskrúðsfjörður | Laugardaginn 26.
nóvember hætti Viðar Sigurbjörnsson
kaupmaður verslunarrekstri, en þá
lokaði hann verslun sinni Hinni búð-
inni á Fáskrúðsfirði Viðar byrjaði
verslunarferil sinn hjá kaupfélaginu
ungur að árum. Hann hóf svo að versla
sjálfur á Fáskrúðsfirði árið 1961, í litlu
húsi á Búðavegi 13 og hlaut verslun
hans nafnið Viðarsbúð. Í fyrstu af-
greiddi Viðar viðskiptavini sína yfir
borðið, en seinna breyttist búðin í litla
kjörbúð. Eftir að verslunartími var
gefinn frjáls og smærri verslanir viku
fyrir stórverslunum, hætti Viðar
rekstri Viðarsbúðar en opnaði í stað-
inn Hina búðina að Skólavegi 50. Þar
seldi hann fatnað, gjafavöru, hann-
yrðavörur og ýmislegt fleira ásamt því
að bjóða upp á ljósatíma. Var þar lengi
eitt mesta úrval gjafavöru á öllu Aust-
urlandi og þótti Viðar standa sig vel í
innkaupum á varningi. Nú hefur Hinni
búðinni verið lokað og þar með lýkur
44 ára samfelldum verslunarrekstri
Viðars á Fáskrúðsfirði. Hann er nú um
sjötugt og segir mál til komið að hvíla
sig á erlinum.
Lokar eftir 44 ár
í verslunarrekstri
Álversstrompur | Flutninga-
skipið Happy Ranger lagðist að ál-
vershöfninni í annað skipti liðna
helgi og hafði um borð lofthreins-
istrompinn fyrir álverið. Voru hlut-
ar lofthreinsistrompsins og fleiri
forsamsettar einingar vestari loft-
hreinsistöðvarinnar affermd.
Strompurinn er í fimm hlutum og
vegur neðsta einingin 90 tonn, önn-
ur 140 tonn, þriðja 60 tonn, fjórða
56 tonn og sú efsta 39 tonn. Loft-
hreinsistöðin er smíðuð á Spáni og
í Portúgal. Hún kemur í tilbúnum
einingum sem eru settar saman á
svæðinu.
Þessi sending er önnur í röðinni
en sú fyrsta kom 1. nóvember.
Þriðja og síðasta sending loft-
hreinsistöðvarinnar er svo áætluð í
apríl á næsta ári.
Grafarholt | Nýr leikskóli var
formlega tekinn í notkun í Graf-
arholti í gær, en þá afhenti Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir börnum og
starfsliði leikskólann, og börnin
þökkuðu að sjálfsögðu fyrir með
söng. Skólinn hefur hlotið nafnið
Reynisholt.
Sigurlaug Einarsdóttir, nýr leik-
skólastjóri á Reynisholti, segir að á
leikskólanum verði lögð sérstök
áhersla á snertingu, jóga og slökun,
en það var einmitt efni MA-
ritgerðar Sigurlaugar. „Við leggj-
um áherslu á þessa þætti, verðum
með léttar snertingar, jóga og
jógaleiki. Eftir áramótin verður
starfsmönnum boðið upp á jóga, og
vonandi stefnum við á það að bjóða
foreldrum að vera þátttakendur
með okkur í jóganu,“ segir Sig-
urlaug. „Við munum líka nýta okk-
ur náttúruna, þetta er skóli sem
staðsettur er í einstöku umhverfi, í
trjálundi við Reynisvatnið.“
Gengur vel að manna stöður
Ágætlega hefur gengið að manna
stöður á Reynisholti, en þar verða
60-70 börn á þremur deildum.
Tvær deildir eru þegar farnar að
taka við börnum, en deildin með
yngstu börnunum verður tekin í
notkun eftir áramót. Starfsfólkið
tínist inn á næstunni og í vetur, og
þrír nýútskrifaðir deildarstjórar
bætast í hópinn í vor.
Erfiðlega hefur gengið að manna
stöður á leikskólum í Reykjavík,
sérstaklega í Grafarholti og Graf-
arvogi, en Sigurlaug segist ekki
hafa skýringu á því hvers vegna
henni hafi gengið vel að manna
stöður í nýja leikskólanum. „Nú
veit ég ekki hvað það er sem veldur
því, hvort það er að þetta er lítill
leikskóli, eða hvort það er hug-
myndafræðin sem vekur athygli.“
Jóga í boði í leikskólanum
Reynisholti í Grafarholti
Morgunblaðið/Ómar
Afhending Stefán Jón Hafstein, formaður menntaráðs Reykjavíkur, afhendir Sigurlaugu Einarsdóttur, leik-
skólastjóra á Reynisholti, leikskólann, en hún tók við honum fyrir hönd samstarfsfólks síns og nemenda.
Hafnarfjörður | Jólaþorpið hefur nú
verið opnað á ný í miðbæ Hafnar-
fjarðar, en það er útimarkaður sem
er opinn um helgar þar sem selt er
ýmislegt sem tengist jólunum.
Markaðurinn hefur verið starfrækt-
ur fyrir jólin undanfarin ár, en í ár er
hann kominn á nýuppgert Thorsplan
við verslunarmiðstöðina Fjörð.
Margt var um manninn í jólaþorp-
inu um síðustu helgi, veðrið skartaði
sínu fegursta og börn og fullorðnir
fylgdust með því þegar ljósin á jóla-
trénu voru tendruð. Jólaþorpið er
opið allar helgar til jóla frá 12–18, og
til kl. 22 á Þorláksmessu.
Fjölmargir sækja
Jólaþorpið heim
Álftanes | Stofnaður hefur verið að-
gerðahópur til að vekja umræðu um
skipulagstillögu meirihluta bæjar-
stjórnar Álftaness á miðbæjarsvæði
sveitafélagsins. Hefur verið opnaður
nýr vefur aðgerðahópsins á slóðinni
www.betribyggd.net.
Segja forsvarsmenn hópsins tillögu
meirihlutans umdeilda, en veruleg
andstaða við hana hafi komið í ljós í
undirskriftasöfnun. Tillagan liggi nú
fyrir til samþykktar og skammur tími
gefist því til andmæla. Efna samtökin
til opins húss í Haukshúsum næstu
helgi, 3.–4. desember, milli kl. 13 og
17, þar sem rætt verður um skipu-
lagsmál og hvernig megi hafa áhrif á
miðbæjarskipulagið, og munu undir-
skriftalistar liggja frammi.
Aðgerðahópur
gegn miðbæj-
arskipulagi
Seltjarnarnes | Fjölskyldur á Sel-
tjarnarnesi sem eiga börn hjá dagfor-
eldrum og í leikskóla munu njóta
systkinaafsláttar af leikskólagjöldum
hér eftir, en hingað til hefur systk-
inaafsláttur ekki verið veittur vegna
barna hjá dagforeldrum, að því er
fram kemur í frétt frá bæjarfélaginu.
Afslátturinn hefur verið veittur
vegna barna á leik- og grunnskóla
þannig að fjölskyldur hafa notið af-
sláttar af leikskólagjöldum eða gjöld-
um fyrir Skólaskjól. Fjölskylda með
tvö börn, annað á leikskóla en hitt í
grunnskóla sem nýtir Skólaskjól, fær
þannig 25% afslátt fyrir annað barnið,
og fjölskyldur með þrjú börn fá 50%
afslátt fyrir það þriðja. Það sama á við
ef börnin eru á sama skólastigi.
Systkinaaf-
sláttur vegna
dagforeldra