Morgunblaðið - 01.12.2005, Síða 47

Morgunblaðið - 01.12.2005, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 47 UMRÆÐAN RÍKISSTJÓRN Íslands hefur lagt fyrir Alþingi lagafrumvarp, sem á sér vart hliðstæðu í kristn- um samfélögum Vesturlanda. Frumvarpið er sett fram undir formerkjum jafnréttis og mann- réttinda í því skyni að gera sam- kynhneigðum kleift að ganga í hjónaband líkt og karl og kona væru. Að vísu hlífir rík- isstjórnin þjóðkirkj- unni í bili við því að þurfa að vera auð- mjúk ambátt tíð- arandans, en stjórn- arandstaðan mun taka þann kaleik frá henni og aðstoða dyggilega við það óþurftarverk, ásamt mörgu innan- kirkjufólki, sem nú leggur nótt við dag, svo finna megi fáránleikanum stoð í kenningu Krists. Og meðan á öllu þessu stendur, er biskupinn yfir Íslandi líkt og skoðanalaus hornreka gagnvart mögnuðustu atlögu sem lagt hefur verið til gegn íslensku þjóðkirkjunni og hefur honum þó verið trúað fyrir veraldlegum og andlegum mál- efnum hennar. Leiðtogahlutverk er jafnan vandasamara, en hlut- verk vikapilts. Vissulega þarf mikið hug- myndaflug til að gera tvo karla að hjónum eða tvær kerlingar, en fé- lagsfræðiþjóðfélagið lætur ekki að sér hæða; þar skal allt leyfilegt óháð staðföstum grunngildum, sem þó hafa agað mannskepnuna í aldanna rás. Enginn karl má eiga tvær konur, þótt báðar vildu og öfugt. Hvers vegna ekki? Er ekki skömminni skárra fyrir konu að eiga hálfan hlut í góðum karli, en heilan hlut í vondum? Er það ekki hámark sjálfselskunnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt. En úr því að sú nöt- urlega staðreynd blasir við, er réttast að gera þá kröfu á ríkið að börn séu til útdeilingar handa hommum og lesbíum í hjónabandi – í jafn- réttisskyni. Þá er auðvitað enginn að huga að þeim sjálf- sögðu mannréttindum barna, að eiga bæði föður og móður, sem öll börn jú eiga, því ekkert barn verður til nema fyrir tilverknað sæðis karls og eggs konu. Ég geri ráð fyrir því að umboðsmaður barna hafi einhverja rökstudda skoðun á þessu, eða eru sjónarmið hans óþörf í mannréttinda- og jafnrétt- isbaráttu homma og lesbía? Það hefur löngum verið þekkt að sumt fólk leggur ást á sitt eig- ið kyn, en það er ekki þar með sagt að slík háttsemi sé eðlileg, heldur þvert á móti. En hin kristnu samfélög Vesturlanda eru frjálslynd og umburðarlynd. Þau skilja að sum okkar eru öfugsnúin og afbrigðileg og láta refsilaust í dag, enda kærleiksboðskapurinn grunntónn í trúnni. En fyrr má nú rota en dauðrota, það var aldr- ei meiningin að leiða hið af- brigðilega og ófrjóa til öndvegis. Íslenskt samfélag hefur á und- angengnum árum komið verulega til móts við samkynhneigða og er skemmst að minnast laga um staðfesta samvist (1996), þótt ótrúlega fáir hafi nýtt sér þá rétt- arbót. Hvað skyldi valda því? Og hið nýja frumvarp ríkisstjórn- arinnar felur í sér margháttaðar réttarbætur, sem margir geta fallist á. En mörkin hljótum við að draga við frumættleiðingu (með hliðsjón af mannréttindum barna) og giftingu í kirkjum landsins. Samkynhneigðir geta mér að meinalausu stofnað sína sérkirkju og iðkað þar sína homma- og lesbíuguðfræði og lag- að hana að sínum hugmynda- heimi. En á því er enginn áhugi, vegna þess að það á að knésetja þjóðkirkjuna með góðu eða illu, en kljúfa hana ella. Að elska sitt eigið kyn Gústaf Níelsson fjallar um hjónaband samkynhneigðra ’… það á að knésetjaþjóðkirkjuna með góðu eða illu …‘ Gústaf Níelsson Höfundur er sagnfræðingur. Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Yamaha píanó. Yamaha píanó og flyglar með og án SILENT búnaðar. Veldu gæði – veldu Yamaha! Samick píanó. Mest seldu píanó á Íslandi! Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 357.000 kr. Goodway píanó. Fáanleg í svörtu, hnotu og mahoný. Verð frá 238.000 kr. 15 mán. Vaxtalausar greiðslur. Estonia flyglar. Handsmíðuð gæðahljóðfæri. Steinway & Sons Fyrir þá sem vilja aðeins það besta. Til sýnis í verslun okkar. H L J Ó Ð F Æ R A H Ú S I Ð Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • 591 5350

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.