Morgunblaðið - 01.12.2005, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 55
Frá Hreppamönnum
Í byrjun október var tekið til við
spilamennskuna eftir sumarhlé en
spilað er einu sinni í viku þ.e. á
mánudagskvöldum. Nú fyrir
skömmu var lokið við einmennings-
keppni.
Eina konan sem tók þátt í keppn-
inni stóð uppi sem sigurvegari.
Keppt er um kóngsbikarinn sem
gefinn var til minningar um fjall-
kónga tvo sem spiluðu með okkur á
árum áður, Gest Guðmundsson frá
Syðra-Seli og Helga S. Jónsson frá
Ísabakka.
Efstu sæti í keppninni:
Margrét Runólfsdóttir 225
Karl Gunnlaugsson 205
Ari Einarsson 204
Gunnar Marteinsson 204
Pétur Skarphéðinsson 197
Viðar Gunngeirsson 196
Þá fór fram fyrir skömmu hin ár-
lega keppni við spilafélaga úr Rang-
árþingi eystra og fóru Hreppamenn
halloka mjög en austanmenn, sem
komu í heimsókn að Flúðum, sigruðu
með 100 stigum gegn 40 stigum
Hreppamanna. Það er eins og Njálu-
blóð renni í æðum þeirra enn, svo
mikil er bardagasnilldin.
Nú stendur yfir tvímennings-
keppni og er spilað á sex borðum.
Úrslit frá þeim spennandi bardaga
koma að lokinni keppni
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 28. nóvember voru
spilaðar umferðir 5 og 6 í aðalsveita-
keppninni.
Talsverðar sviptingar leiddu til
þess að staða efstu sveita er nú þessi:
Guðlaugur Bessason 109
Sunnan 3 plús 1 101
Dalabúar 100
Einar Sigurðsson 93
Næsta mánudag 5. desember
verður aðalsveitakeppninni svo fram
haldið.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni var spiluð í
Ásgarði, Stangarhyl mánud. 28.11.
Spilað var á 11 borðum og var með-
alskorin 216 stig.
Árangur N–S
Bragi Björnsson – Albert Þorsteinss. 268
Sæmundur Björnss. – Oddur Halldórss. 234
Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánsson 233
Árangur A–V
Hannes Ingibergss. – Viggó Nordqvist 282
Magnús Oddsson – Magnús Halldórss. 263
Tómas Sigurjónss. – Friðrik Jónss. 257
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Áformað var að hefja þriggja
kvölda barómeter tvímenning hjá fé-
laginu en aðeins 14 pör mættu á
staðinn og var þá ákveðið að spila
eins kvölds Howell-tvímenning og
reyna að hefja barómeterinn 5. des-
ember þess í stað ef næg þátttaka
fæst. Feðginin Anna Guðlaug Niel-
sen og Guðlaugur Nielsen hafa verið
í stuði hjá félaginu undanfarið og
skoruðu mest í Howell-tvímenningn-
um.
Lokastaða efstu para:
Anna G. Nielsen – Guðlaugur Nielsen 47
Jóhann Stefánsson – Guðm. Baldursson 43
Sigrún Pétursdóttir – Jóna Magnúsdóttir 40
Guðlaugur Sveinsson – Guðrún Jörgensen24
Ingibjörg Ottesen – Garðar F. Jónsson 10
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Fimmtudaginn 17. nóvember sl.
var þriðja og síðasta kvöldið í Mál-
arabutlernum spilað.
Lokastaða efstu para í mótinu
varð þessi:
Runólfur Þ. Jónsson – Stefán Short 65
Höskuldur Gunnarss. – Jón S. Péturss. 63
Björn Snorras. – Kristján M. Gunnarss. 57
Grímur Magnússon – Sigurður Vilhjálms-
son/Gísli Þórarinsson 47
Þröstur Árnason – Þórður Sigurðsson 45
Fimmtudagskvöldið 24. nóvember
sl. hófst síðan þriggja kvölda Hrað-
sveitakeppni. Raðað var niður í
sveitirnar með hliðsjón af úrslitum
úr Málarabutlernum. Sjö sveitir taka
þátt í mótinu. Efstu sveitir eru:
Garðar, Gunnar, Gísli og Magnús 663
Þröstur, Þórður, Grímur og Sigurður 570
Ólafur S., Guðjón E., Örn G. og Páll S. 550
Árangur spilara er jafnframt
reiknaður með butlerútreikningi.
Efstu spilarar eru:
Garðar Garðarsson 3,58
Gunnar Þórðarson 3,58
Gísli Hauksson 1,22
Magnús Guðmundsson 1,22
Nú er að komast skriður á heima-
síðumál félagsins. Heimasíðan hefur
fengið nýja slóð, http://
www.bridge.is/bsel og mun ritari sjá
um að koma upplýsingum inn á síð-
una á næstunni.
Frá FEBH
Þriðjudaginn 29. nóvember var
spilað á 9 borðum og var meðalskor
216.
Úrslit urðu þessi í N/S
Bjarnar Ingimarss. – Kristján Ólafsson 242
Sverrir Jónsson – Oddur Halldórsson 236
Stígur Herlufsen – Sigurður Herlufsen 236
A/V
Jón Gunnarsson – Sigurður Jóhannsson 253
Þorvarður S. Guðmss. – Jón Sævaldsson 250
Skarphéðinn Lýðss.– Jón Ól. Bjarnas. 230
Kauphallartvímenningurinn
hafinn hjá BR
Fyrsta kvöldið í hinum sviptinga-
mikla Kauphallartvímenningi var
spilað hjá félaginu þriðjudaginn 29.
nóvember. Skorin eru há eins og sést
á þeim sem náðu bestum árangri á
fyrsta kvöldinu:
Júlíus Sigurjónss. – Hrólfur Hjaltason 1051
Rúnar Einarsson – Guðjón Sigurjónsson 922
Sverrir Þórisson – Björn Friðriksson 877
Þorgeir Halldórss. – Garðar Þ. Garðarss.749
Matthías Þorvaldss. – Magnús Magnúss. 682
Sigtryggur Sigurðss. – Runólfur Pálss. 653
Bridsfélag Hreyfils
Lokið er fjórum umferðum af
fimm í hausttvímenningnum og er
staða efstu para þessi:
Birgir Kjartanss. – Árni Kristjánss. 367
Dagur Halldórss. – Björn Stefánss. 354
Daníel Halldórss. – Ágúst Benediktss. 353
Jón Sigtryggss. – Skafti Björnss. 341
Hæsta skor síðasta spilakvöld:
Daníel Halldórss. – Ágúst Benediktss. 68
Dagur Halldórss. – Björn Stefánss. 64
Birgir Kjartanss. – Árni Kristjánsson 63
Jón Sigtryggss. – Skafti Björnss. 63
Spilað er á mánudagskvöldum í
Hreyfilshúsinu.
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 28. nóvember var
spiluð fjórða umferð í aðaltvímenn-
ingi félagsins og eru nú aðeins tvö
kvöld eftir. Ef eitthvað hefur spenn-
an í mótinu heldur aukist og ljóst að
þeir sem áhuga hafa á sigri í mótinu
þurfa heldur betur að vera á tánum
síðustu tvö kvöldin.
Flestir höfðu afskrifað þá félaga
Sigga fiskifræðing og Stefán fjár-
málastjóra. Í fyrstu umferð fengu
þeir skell, 20 í mínus, en eftir það
skoruðu þeir látlaust og höfðu 72%
skor eftir kvöldið. Auðvitað ekki
annað hægt en að taka ofan fyrir
þeim.
Sveinn og Magnús gefa ekkert eft-
ir og heldur ekki Borgnesingarnir
Jón – Rúnar – Unnsteinn, sem auð-
vitað þekkja ekkert annað en sigur.
Hvanneyringarnir Lárus og Svein-
björn eru vart nema rólfærir þetta
árið því undanfarin tvö ár hafa þeir
verið búnir að vinna þetta mót á
þessum tímapunkti. Gott að það
skuli ekki vera eins og eitt af nátt-
úrulögmálunum að þeir vinni.
Úrslit urðu annar sem hér segir.
Sigurður Einarss. – Stefán Kalmansson 111
Magnús Magnúss. – Sveinn Hallgrímss. 67
Sveinbjörn Eyjólfsson – Lárus Pétursson 56
Jón Eyjólfss – Baldur Björnsson 51
Og heildarstaðan er:
Magnús Magnúss. – Sveinn Hallgrímss. 196
Jón – Rúnar – Unnsteinn 196
Sveinbjörn Eyjólfss. – Lárus Péturss. 182
Jón Eyjólfsson – Baldur Björnsson 167
Sigurður Einarss. – Stefán Kalmansson 165
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Margrét Runólfsdóttir með Kóngs-
bikarinn.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
RAUÐGRÆNT ríkisstjórnar-
mynstur og velferðarríki framtíð-
arinnar voru aðalefni fundar for-
manna vinstri-grænu flokkanna í
Helsinki 27.–28. nóvember. Fjár-
málaráðherra Noregs, Kristin Hal-
vorsen, formaður Sosialistisk Ven-
streparti (SV), gerði grein fyrir
málefnasamningi og fyrstu verk-
efnum nýju norsku rauðgrænu rík-
isstjórnarinnar.
Í fréttatilkynningu frá Vinstri-
hreyfingunni (VG) um fundinn
kemur fram að norska stjórn-
armynstrið hefur áhrif á pólitíska
umræðu á hinum Norðurlönd-
unum. Formaður VG á Íslandi,
Steingrímur Sigfússon og Suvi-
Anne Siimes, formaður Vinstri-
flokksins í Finnlandi, hafa bæði
setið í samsteypustjórnum. Reynsl-
an frá Noregi eflir sömuleiðis um-
ræðuna um rauð-grænar sam-
steypustjórnir í Danmörku og
Svíþjóð og þá með þátttöku Social-
istisk Folkeparti (SF) sem Villy
Søvndal leiðir og Vinstriflokksins
sænska undir forystu Lars Ohly.
Norrænu vinstri-grænu flokk-
arnir hafa myndað með sér banda-
lag, NGLA (Nordic Green Left
Alliance), sem stendur fyrir fund-
um a.m.k. einu sinni á ári þar sem
formenn og framkvæmdastjórar
flokkanna skiptast á skoðunum og
reynslu, hafa samstarf um al-
þjóðleg tengsl og fjalla um sérstök
efni sem varða þróun hvers flokks
fyrir sig. Áður en formennirnir
hittust að þessu sinni fór fram ráð-
stefna NGLA og austur-evrópskra
umhverfishreyfinga, kvennahreyf-
inga og verkalýðsfélaga á austur-
vestur ráðstefnu í Ríga (www.east-
west-network.org).
„Fundurinn í Helsinki fól meðal
annars í sér opið málþing í finnska
þinghúsinu og á vegum finnska
Vinstriflokksins þar sem fjallað
var um framtíð velferðarríkisins á
tímum alþjóðavæðingar. Á mál-
þinginu kynntu formennirnir
fjölda hugmynda og tillagna varð-
andi þróun velferðarríkisins. Aðför
nýfrjálshyggjunnar að velferð-
arsamfélaginu mætir sífellt meiri
andspyrnu í Evrópu. Fram kom að
einmitt norræna velferðarríkið,
þar sem velferðarkerfið er öflugt
og samneyslan hlutfallslega mikil,
er það kerfi sem best ræður við
áhrif alþjóðavæðingarinnar, vegna
sveigjanleika síns og mikillar
áherslu á þátttöku allra í sam-
félaginu. Fjöldi aðila hefur bent á
þessa staðreynd, t.d.The Econom-
ist, OECD, Sameinuðu þjóðirnar,
og nú síðast í skýrslunni Norð-
urlöndin – sem alþjóðlegt sig-
ursvæði en skýrslan er unnin af
dönsku fyrirtæki fyrir Norrænu
ráðherranefndina. Baráttan fyrir
eflingu velferðarríkisins er eitt
höfuðverkefna flokkanna í vinstri-
græna bandalaginu,“ að því er seg-
ir í tilkynningu.
Norrænir vinstri-grænir
mynda nýtt bandalag
Á myndinni eru Steingrímur Sigfússon (Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð), Kristin Halvorsen, Sosialistisk Venstreparti í Noregi, Suvi-Anne
Siimes, Venstreforbundet (VAS) í Finnlandi, Villy Søvndal, Socialistisk
Folkeparti (SF) í Danmörku og Lars Ohly, Venstrepartiet í Svíþjóð.
FRÉTTIR
HÓTEL Reykjavík Centrum hlaut
viðurkenningu Þróunarfélags mið-
borgarinnar 2005 fyrir framlag til
þróunar og uppbyggingar í miðborg
Reykjavíkur, en þetta er í fjórtánda
sinn sem viðurkenningin er veitt. Þá
hlaut Franch Michelsen, úr-
smíðameistari við Laugaveg 15,
Njarðarskjöldinn, hvatning-
arverðlaun Reykjavíkurborgar og
Íslenskrar verslunar, sem ferða-
mannaverslun ársins 2005, en
Njarðarskjöldurinn var nú veittur í
níunda sinn.
Í umsögn dómnefndar Þróun-
arfélags miðborgarinnar segir m.a.
að glæsileg hótel hafi verið áberandi
í uppbyggingu miðborgarinnar að
undanförnu. Segir þar að uppbygg-
ingin við Aðalstræti hafi tekist ein-
staklega vel. „Þar er endurlífgaður
gamli timburhúsastíllinn með sér-
lega nærfærnum og fagmannlegum
hætti,“ segir m.a. í umsögn dóm-
nefndar.
Hótel Reykjavík Centrum er í
hjarta borgarinnar og byggt á göml-
um grunni, en elsti hluti hússins við
Aðalstræti 16 var byggður árið 1764.
Báðum megin við húsið og fyrir aft-
an það eru nýbyggingar, sem gerðar
eru í stíl sögufrægra húsa sem áður
stóðu við Aðalstræti, Fjalakattarins
og Uppsala. Hótelið er í öllum þrem-
ur byggingunum og tengibyggingu
og útlit hótelsins er sótt til Reykja-
víkur upp úr aldamótunum 1900.
Við byggingu hótelsins komu í ljós
rústir skála frá landnámsöld og á
næsta ári verður opnuð sýning-
araðstaða undir hótelinu.
Fjórir ættliðir úrsmiða
Við tilnefningu Njarðarskjald-
arins fyrir ferðamannaverslun árs-
ins er leitast við að verðlauna versl-
un sem hefur náð góðum árangri í
sölu- og markaðsstarfi til erlendra
ferðamanna, sýnt frumkvæði og
frumleika, veitir góða þjónustu og
hefur á að skipa afgreiðslufólki sem
býr yfir þjónustulund, góðri tungu-
málakunnáttu og þekkingu á sölu-
vörunum. Auk þess er lagt mat á út-
lit verslunarinnar, lýsingu,
merkingar og aðkomu.
Það sem einkum stendur upp úr
við valið að þessu sinni er árangur í
sölu til erlendra ferðamanna sem og
gott orðspor verslunarinnar. Orð-
spori sem, að sögn dómnefndar, hef-
ur farið langt út fyrir landsteinana.
Úrsmíðaverslun Frank Michelsen
byggist á traustum stoðum sem ná
allt aftur til ársins 1909, þegar
Frank Michelsen hinn fyrsti stofn-
aði úrsmíðaverslun sína á Sauð-
árkróki. Það er Frank Michelsen
hinn þriðji sem er handhafi Njarð-
arskjaldarins í ár en hann tók við
starfi föður síns árið 1992. Hann
hafði þá numið úrsmíði af föður sín-
um rétt eins og hann hafði numið af
föður sínum. Fjórði ættleggur úr-
smiða í beinan karllegg starfar hjá
Franch Michelsen og hyggur á stóra
hluti í úrsmíðum og sölu í framtíð-
inni.
Morgunblaðið/Þorkell
Fulltrúar Hotel Reykjavík Centrum taka við viðurkenningu Þróunarfélags miðborgarinnar.
Tvö fyrirtæki í miðborginni
hlutu viðurkenningar