Morgunblaðið - 01.12.2005, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 59
DAGBÓK
VIÐ SELJUM ATVINNUHÚSNÆÐI
FYRIR FYRIRTÆKI OG FJÁRFESTA
I I I
I I I
VELDU EIGNAMIÐLUN
eignamidlun@eignamidlun.is www.eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
ÚTSALA ÁRSINS!
ALLT Á 100 KR. STK.
– BÆKUR – TÍMARIT – JÓLASKRAUT –
– HÚFUR – NÆRFÖT – LEIKFÖNG – O.FL. –
AÐEINS Í 3 DAGA!
FRÁBÆRT VERÐ
(FÖSTUDAG, LAUGARDAG OG SUNNUDAG)
LANGHOLTSVEGI 42 – OPIÐ FRÁ KL. 11-17.
Afmælistilboð á öllum fatnaði
og snyrtilínu dagana 1.-10. des.
15-25% afsláttur
Ásnum – Hraunbæ 119 – Sími 567 7776
Opið virka daga kl. 11:00-18:00 – laugardaga kl. 11:00-14:00
er 2ja ára
Út er komin í nýrri útgáfu SögufélagsJárnsíða og kristinréttur Árna bisk-ups Þorlákssonar. Að útgáfunnistanda sagnfræðingarnir Már Jóns-
son og Magnús Lyngdal Magnússon ásamt
Haraldi Bernharðssyni málfræðingi. Útgáfunni
fylgir ítarlegur inngangur ásamt atriðaorða-
skrá. Við frágang texta var farin sú leið að not-
ast við nútímastafsetningu en halda málfarinu.
Haraldur Bernharðsson málfræðingur sá um þá
hlið málsins, í samvinnu við Má sem sá um
Járnsíðu og Magnús sem annaðist kristinrétt-
inn. Þess má geta að hvorugur textinn hefur
komið út á Íslandi fyrr, en Járnsíða kom síðast
út í Kaupmannahöfn árið 1847 og kristinréttur í
Osló árið 1895.
Lögbókin Járnsíða frá 1271 og kristinréttur
Árna biskups Þorlákssonar í Skálholti frá 1275
voru fyrstu lögin fyrir Ísland eftir að það varð
hluti af ríki Noregskonungs árin 1262–1264 og
komu í stað lagasafnsins Grágásar. Már Jóns-
son segir aðalhvatann að útgáfunni hafa verið
þann að koma fram með nýja og aðgengilega
útgáfu textanna sem þó lýtur ströngustu fræði-
legu kröfum, en Már stóð að sams konar útgáfu
Jónsbókar í fyrra. „Járnsíða er forveri Jóns-
bókar en með þeim lögum var skilgreind ný
skipan samfélags í landinu. Kristinréttur kom
út nokkrum árum á eftir Járnsíðu og var und-
irstaða kirkjustarfs og kristni í tæp 300 ár.
Textarnir eru því undirstaða að skilningi á ís-
lenskri sögu síðmiðalda sem var mikið blóma-
skeið. Engu að síður hefur einungis verið hægt
að nálgast þessa texta í eldgömlum útgáfum
sem ekki er nokkur leið að nálgast nema á
bestu söfnum. Kristinréttur var t.d. falinn í
ritsafninu Norges gamle love, prentaður með
gotnesku letri sem til dæmisnemendur mína
hryllir við.“
Már bendir á að tímabilið sem um ræðir hafi
verið vanrækt í fræðilegum rannsóknum og
megi búast við auknum áhuga á því á næstu ár-
um sem útgáfunni er reyndarætlað að stuðla
að. „Þetta er tímabilið eftir hið svokallaða hrun
þjóðveldisins sem lengi hefur verið litið á sem
niðurlægingartímabil. En þegar lagatextarnir
eru skoðaðir finnast þar engin merki um að
innlimunin í norska ríkið hafi verið hörmuð af
Íslendingum þó svo að ákveðin réttindabarátta
hafi átt sér stað í kjölfarið á endurmótun laga-
umhverfisins. Velmegun var mikil á þessum
tíma og má ætla að það hafi verið breyttum
lagabókstaf og tengslunum við Noreg að þakka.
Það urðu róttækar breytingar á réttarfari, rétt-
arfarsreglum, erfðareglum og eignalögum sem
gera þarf nánari rannsóknir á. Af þessum sök-
um spái ég því að þetta tímabil muni njóta vax-
andi athygli á næstu árum og er nýjum út-
gáfum lagatexta ætlað að vera skref í þá átt.“
Sagnfræði | Ný útgáfa Járnsíðu og kristinréttar Árna biskups
Vanrækt og misskilið tímabil
Már Jónsson er
prófessor í sagnfræði
við Háskóla Íslands.
Hann stundaði nám
við Háskólann í Björg-
vin, Sorbonne-
háskóla í París og Há-
skóla Íslands þaðan
sem hann lauk dokt-
orsprófi árið 1993.
Már er kvæntur Mar-
gréti Jónsdóttur, dós-
ent í spænsku við Há-
skólann í Reykjavík,
og eiga þau þrjá syni.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
ef málfar skyldi kalla: „Þeir eru
ekki að vanda sig við þetta“ o.s.frv.
Ég mundi allt í einu eftir gömlum
texta: „Allir eru að gera það gott –
nema ég“ – og samdi ljóð, ef ljóð
skyldi kalla:
Allir eru að éta það,
allir eru að éta það,
allir eru að éta það,
hver eftir öðrum,
upp.
Kristinn Kristmundsson.
Lyklakippa í óskilum
LYKLAKIPPA fannst í Söluturn-
inum Glæsibæ síðastliðinn laug-
ardag. Kippan er með málbandi og
margir lyklar viðhangandi. Eig-
andinn getur vitjað lyklakippunnar
í Söluturninum Glæsibæ, eða
hringt í síma 8994221.
Gullhringur með
glærum steinum tapaðist
VEGLEGUR gullhringur með
demöntum tapaðist 23.11. síðastlið-
inn.
Hringurinn er mjög tilfinn-
ingatengt djásn. Hringurinn fylgdi
fingri eigandans við Grandaveg,
JSB Lágmúla, Hamraborg Kópa-
vogi og við leikskólann Kjarrið í
Kópavogi. Skilvís finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í síma
5545828 eða 8956378. Fundar-
launum heitið.
Er Vala Matt
þensluhvetjandi?
Í LJÓSVAKA Moggans sunnudag-
inn 27. nóvember skrifar Ásgeir
Ingvarsson athyglisverða grein þar
sem leitt er lík-
um að því að
fjölmiðlakonan
góðkunna, best
þekkt sem Vala
Matt, „leiði of-
neyslu lands-
manna“. Það er
kannski best að
það komi fram
strax að und-
irritaður er
ekki tengdur
Völu Matt á nokkurn hátt fyrir ut-
an að móðir hennar kenndi honum
í barnaskóla.
Að fjölmiðlastarf Völu Matt sé
höfuðorsök þess að fólk fari í
„skrúðgönguna miklu“ sem hlykkj-
ast um húsgagna- og fatabúðir
landsins til þess að kaupa hluti
sem það þarf ekki, er athyglisverð
lífsskoðun. Það hljóta einnig að
teljast vonbrigði fyrir Seðlabanka
Íslands, sem einungis getur gripið
til vaxtahækkana til þess að
sporna við þenslu, ef það er svo
Vala Matt sem knýr hana áfram.
En ætli auglýsingar á síðum
Moggans kyndi þá ekki einnig
undir þenslu? Undirritaður hefur
margoft keypt vöru eða þjónustu
sem auglýst hefur verið í Mogg-
anum og kynt þannig undir þensl-
una. Að kaupa dagblað er ekki
sjálfsagt og er eins þensluhvetj-
andi og hvað annað, og að segja
upp Mogganum er ein leið til þess
að draga úr þenslu, enda er tryggð
undirritaðs gagnvart Mogganum
ekki lengur innmúruð og fer
þverrandi með greinum sem þess-
um.
En undirrituðum þykir ennþá
vænt um Moggann sinn, sem eitt
sinn boðaði leiftursókn gegn verð-
bólgu, en sér nú ástæðu til þess að
fara í leiftursókn gegn Völu Matt.
Heimur versnandi fer og nú eru
síðustu forvöð fyrir Moggann að
sannfæra undirritaðan um að hann
eigi að halda áfram að kaupa hann.
Sigfús Ásgeir Kárason.
Að vera að standa sig
ÉG fór seint á fætur í morgun og
var rétt að ljúka við að lesa í
Mogganum ágæta grein Halldórs
Þorsteinssonar, „Ég er að standa
mig …“, þegar þátturinn „Í viku-
lokin“ var kominn áleiðis í útvarp-
inu mínu. Aftur og aftur glumdi í
eyrum þessi sama tíska í málfari,
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. c4 Be7 6. d4 Bg4 7. h3 Bh5 8.
Bd3 Rf6 9. Rc3 O-O 10. d5 Rbd7 11.
Be2 c5 12. dxc6 bxc6 13. Rd4 Bxe2
14. Dxe2 Hc8 15. O-O He8 16. Be3
Da5 17. Hfd1 Bf8 18. Dd2 Dh5 19.
Rde2 Rc5 20. Rg3 Dg6 21. Hac1 Hb8
22. b4 Hxb4 23. Rce2 Ha4 24. Rf4
Dg5 25. Re6 De5 26. Rxf8 Hxf8 27.
Bd4 De7 28. Rf5 Dd7
Staðan kom upp í 1. deild þýsku
deildarkeppninnar. Florian Grafl
(2413) hafði hvítt gegn Jan Werle
(2509). 29. Rxg7! Rfe4 29…Kxg7
gekk að sjálfsögðu ekki upp vegna
30. Dg5+. 30. Dh6 f6 31. Rh5 Re6
32. f3 Rg3 33. Rxg3 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Snjöll blekking.
Norður
♠95
♥D9 S/NS
♦ÁD9632
♣K109
Vestur Austur
♠G76 ♠ÁK104
♥10432 ♥ÁG85
♦105 ♦G4
♣7542 ♣ÁG8
Suður
♠D832
♥K76
♦K87
♣D63
Ítalirnir Lauria og Versace tóku
þátt í haustleikunum í Denver og
spiluðu í sveit George Jacobs ásamt
Zia, Rosenberg og Katz. Þeir urðu í
öðru sæti í Reisingermótinu, nokkru
á eftir Nickell-sveitinni sigursælu
(Hamman, Soloway, Rodwell,
Meckstroth og Freeman).
Í spilinu að ofan varð Versace
sagnhafi í tveimur gröndum eftir
upplýsandi sagnbaráttu:
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- Pass
Pass 1 tígull Dobl 1 spaði
Pass 2 tíglar Dobl Pass
2 hjörtu Pass Pass 2 grönd
Pass Pass Pass
Sú regla er orðin útbreidd meðal
keppnismanna að spila út næst-
hæsta spilinu gegn grandi frá léleg-
um lit, frekar en fjórða hæsta. Vest-
ur hóf því leikinn með hjartafjarka –
öðru hæsta.
Versace lét níuna úr borði og drap
gosa austurs með kóng. Sjö slagir
eru til reiðu, en sá áttundi er fjar-
lægur. Til greina kemur að fara inn í
borð á tígul og reyna að læðast
framhjá laufás austurs, en þetta er
ekki líklegt til árangurs – austur sér
að sagnhafi er að stela áttunda
slagnum og mun rjúka upp með lauf-
ás og taka slagina á hjarta og spaða.
Versace fann betri leið – hann
spilaði hjarta á drottninguna í öðr-
um slag! Austur hélt að Versace
væri að byggja upp áttunda slaginn
á hjartatíu og skipti yfir í smáan
spaða. Versace fór upp með drottn-
inguna og fékk þar úrslitaslaginn
(enda ljóst að austur var með ÁK
eftir doblin tvö).
Þessi snjalla blekking byggðist á
réttri túlkun á útspilinu. Frá bæj-
ardyrum austurs gat fjarki vesturs
verið næsthæsta frá 7432 eða 10432.
Og með því að spila hjartanu sjálfur,
sannfærði Versace austur um að tían
væri hjá sagnhafa og því þyrfti vörn-
in að fá fjóra slagi á spaða.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Fréttasíminn 904 1100