Morgunblaðið - 01.12.2005, Síða 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Opið 8-24 alla daga
í Lágmúla og Smáratorgi
„ÉG HITTI bóndann á Heiðabæ í
Þingvallasveit fyrir nokkru og
hann sendi mér þessa hænga í
fóstur,“ segir Jón Stefánsson, org-
anisti í Langholtskirkju og áhuga-
maður um mat, sem nú er að láta
myndarlega tíu punda bleikju-
hænga úr Þingvallavatni síga á
þurrklofti sínu á Langholtsveg-
inum. „Þetta var jólamatur hér í
eldgamla daga í Mývatnssveitinni
og er enn gert í dag í litlum mæli.
Fólk kom alls staðar að úr Þing-
eyjarsýslu, meira að segja austan
úr Möðrudal til að næla sér í jóla-
hæng.“
Bændur í Þingvallasveitinni eru
ekki kunnugir þessari verkunar-
aðferð, en voru mjög forvitnir um
hana að sögn Jóns, sem hefur yf-
irleitt fengið þurrkuðu bleikjuna
sína að norðan. „Frændur mínir
hafa verkað þetta fyrir mig, en svo
prófaði ég að gera þetta á loftinu
hjá mér, þar sem ég reyni að líkja
eftir kjöraðstæðum í náttúrunni,“
segir Jón. „Það þykir best að gera
þetta á haustin þegar það er frost.
Ég hengi þetta upp þar til þetta er
orðið þurrt að utan en svo hendi
ég þessu í frystikistuna hjá mér og
hengi það síðan upp aftur og svo-
leiðis til skiptis þangað til þetta er
tilbúið. Ég prófaði þetta í fyrsta
skipti með þorsk og það svínvirk-
aði, þannig að ég ákvað að prófa
þetta með silunginn og það var
það sama.“
Silungur er ekki það eina sem
Jón þurrkar á loftinu. Meðal þess
sem þar má finna er kofareykt
sauðahangikjöt fyrir jólin, en það
er mest borðað hrátt eftir þurrk-
un. Þá er þar svínslæri sem er nú
orðið að því sem kallað er Parma-
skinka. „Við erum t.d. þessa dag-
ana að gæða okkur á læri sem er
búið að hanga í 23 mánuði.“
Siginn silungur er mun mildari
en það sem Íslendingar þekkja
sem siginn fisk, hann er laus við
kæsta bragðið sem mörgum er illa
við. „Það er meira svona sætt
bragð af honum,“ segir Jón.
Jón Stefánsson organisti ræktar gamla þingeyska jólahefð
Gómsætir signir bleikjuhængar
eru á þurrkloftinu hjá Jóni
Morgunblaðið/Ómar
ÞAÐ er 62% munur á hæsta og lægsta
verði vörukörfu með tíu algengum
bakstursvörum samkvæmt verðkönn-
un sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í
matvöruverslunum á höfuðborgar-
svæðinu í gær.
Vörurnar í körfunni voru ódýrastar í
Bónus en dýrastar í versluninni 10–11.
Þá er mikill verðmunur á einstaka
vörum til baksturs og einnig á tilbún-
um jólakökum. Alls reyndist 298%
munur á hæsta og lægsta verði tveggja
kílóa poka af Dansukker-strásykri og
rúmlega 159% munur var á hæsta og
lægsta verði hálfs kílós poka af kók-
osmjöli.
Alls voru fjörutíu og fimm vöruliðir
teknir fyrir í þessari könnun verðlags-
eftirlits ASÍ og reyndist Bónus oftast
með lægsta verðið og verslunin 10–11
með hæsta verðið. Tuttugu og fjórir
vöruliðir af fjörutíu og fimm voru til
bæði í Bónus og Krónunni og var einn-
ar krónu verðmunur í sextán tilfellum.
! 2
! ! ! ! ! ! ! ! ! !
- 3
E:#
9::F
"#
$
#
%&#
% #
'( &)
*&)
&)
+ )
$#,
-..
/-..
01/
..
Mikill verð-
munur á hrá-
efni í jóla-
baksturinn
Daglegt líf í desember
NOVATOR Telecom Bulgaria, fyr-
irtæki í eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, hefur náð sam-
komulagi við Advent International
sem felur í sér að Novator eignast
kauprétt á öllum bréfum Advent í
Viva Ventures, sem má leysa inn á
næstu mánuðum og árum. Viva
Ventures á 65% hlutafjár í búlg-
arska símanum, BTC, og er Novat-
or því í raun að
taka við hlut
Advent í BTC.
Samkvæmt
heimildum
Morgunblaðs-
ins keypti
Björgólfur Thor
10% hlut til við-
bótar í BTC og
miðað við um
150 milljarða
króna heildarverðmæti símafyrir-
tækisins nema þau viðskipti um 15
milljörðum króna.
Símafyrirtæki í fimm löndum
Alls mun andvirði viðskiptanna
með fyrirtækið, að endurfjármögn-
un meðtalinni, nema um 100 millj-
örðum króna. Félög tengd Björg-
ólfi Thor eiga nú orðið síma-
fyrirtæki í fimm löndum í Evrópu.
Auk Búlgaríu eru það Finnland,
Pólland, Tékkland og Grikkland.
Samanlagt er sú fjárfesting Björg-
ólfs Thors vel á annað hundrað
milljarða króna.
Björgólfur Thor var einn af
stofnendum Viva Ventures og hef-
ur verið stjórnarmaður í BTC.
Hann segist af þessu tilefni hafa
mikla trú á BTC og búlgarska fjar-
skiptageiranum. „Ég er sannfærð-
ur um að BTC og [farsímafyrir-
tækið] Vivatel eigi eftir að leika
mikilvægt hlutverk í þróun búlg-
arska fjarskiptamarkaðarins,“
segir hann.
Eftir Bjarna Ólafsson
og Björn Jóhann Björnsson
Björgólfur Thor
Björgólfsson
Ræður yfir 75% hlut
í búlgarska símanum
FYRIRTÆKIN Stímir, sem smíðar ýmis
tæki og búnað fyrir álver, og Vélsmiðja
Hjalta Einarssonar hafa sameinast. Við sam-
eininguna verður til hópur tíu fyrirtækja sem
starfa að hönnun, smíði, uppsetningu og við-
haldi á ýmiss konar vélbúnaði og tækjum fyr-
ir álver og iðnfyrirtæki auk þess að veita
tæknilega ráðgjöf. Þetta stafar af því að átta
fyrirtæki á þessum sviðum eru í eigu Vél-
smiðju Hjalta Einarssonar. Samanlagður
starfsmannafjöldi hins sameinaða fyrirtækis
verður um 110 manns og veltan vel á annan
milljarð króna.
Fyrirtækin sem sameinast auk Stímis og
Vélsmiðju Hjalta Einarssonar eru ITT-Iðn-
tölvutækni, Ljósaberg, Landvélar, Straum-
rás, Zink Stöðin, U.S.H. Sandblástur og
málning, Pétur O. Nikulásson og Viðhald og
iðntækni.
Ingi B. Rútsson segir að Stímir hafi verið í
mikilli sókn á erlendum mörkuðum undan-
farin ár og gengið vel. Með sameiningu Stím-
is og Vélsmiðju Hjalta Einarssonar opnist
hins vegar miklir möguleikar til enn frekari
sóknar, jafnt hér á landi sem erlendis.
Vélsmiðja Hjalta Einarssonar er fjöl-
skyldufyrirtæki sem Hjalti stofnaði fyrir um
þremur áratugum og er í eigu fjölskyldu
hans.
Stímir er í eigu bræðranna Karls, Óskars,
Sumarliða, Inga og Rúts Rútssona en þeir
stofnuðu fyrirtækið ásamt föður sínum, Rúti
Óskarssyni, árið 1995. | C14
Tíu vélbún-
aðarfyrir-
tæki undir
einn hatt
ÖLGERÐIN Egill Skallagríms-
son hefur gert samning við Jap-
an Tobacco um dreifingu og sölu
á Iceland Spring-flöskuvatni í
Japan. Andri Þór Guðmunds-
son, forstjóri Ölgerðarinnar,
segir það munu taka tvö til þrjú
ár að vinna vatninu markað í
Japan, en möguleikarnir sem
samningnum fylgja séu mjög
miklir. Iceland Spring sækir
mjög á erlendis og verða um 6,3
milljónir lítra af vatni fluttar út
til Bandaríkjanna á þessu ári en
voru rúmlega 2,9 milljónir lítra á
síðasta ári. Er þetta aukning um
117%.
Andri Þór leggur þó áherslu á
að menn hafi ekki smitast af
„vatnsvírusnum“ og búist ekki
við því að verða auðmenn á einni
nóttu af því að selja vatn til út-
landa. „Vatnsframleiðslan er
góð aukabúgrein fyrir okkur hjá
Ölgerðinni,“ segir Andri. | C1
Íslenskt
vatn selt
til Japans
MARGIR nemendur gengu út úr
samræmdu íslenskuprófi sem lagt
var fyrir stúdentsefni í gær án
þess að skrifa neitt á prófblaðið.
Ingi Ólafsson, aðstoðarskólastjóri
Verzlunarskóla Íslands, segir að
um 25–30 hafi verið í hverri stofu í
upphafi, en eftir klukkutíma hafi
víða 2–3 setið eftir. 80–90% hafi því
skilað auðu prófblaði.| 6
Morgunblaðið/Ásdís
Gengu út úr prófi