Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.jpv.is
BÓKIN SEM UNGA FÓLKIÐ ER AÐ TALA UM
Meira en tvær milljónir
eintaka seldar í 37 löndum.
Kvikmynd eftir sögunni væntanleg í júní 2006.
„Eitt
óvenjulegasta
verk ársins“
The Observer
„Ekki á hverjum
degi sem unglingar
senda frá sér svo
vel heppnaðar
metsölubækur.“
Árni Matthíasson / MORGUNBLAÐIÐ
„Algjörlega frábær bók.“
Hugi.is
NÝRRI þverpólitískri sjö manna
nefnd um fjölmiðla verður falið að
semja lagafrumvarp á grundvelli
þeirra tillagna sem lagðar voru fram
af fjölmiðlanefnd síðastliðið vor.
Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórn-
arinnar í gærmorgun, að tillögu Þor-
gerðar K. Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra. Miðað er við að
nefndin hefji störf í janúar, en að
sögn Þorgerðar verða henni ekki
sett nein tímamörk. „Nefndin mun fá
þann tíma sem hún telur þörf á.“
Páll Hreinsson, forseti lagadeildar
Háskóla Íslands, verður formaður
nefndarinnar, en Páll Þórhallsson
lögfræðingur verður varaformaður,
samkvæmt tillögu ráðherra. Auk
þess eiga allir flokkar á Alþingi að
tilnefna hver sinn fulltrúa í nefndina.
Þegar nefndin hefur verið skipuð
verður hún þar með þriðja nefnd
menntamálaráðherra, sem mun
fjalla um eignarhald á fjölmiðlum.
Fyrsta nefndin lauk störfum með
skýrslu sinni í apríl 2004, en önnur
nefndin skilaði ráðherra fjölmiðla-
skýrslu í apríl á þessu ári.
Þorgerður segir mikilvægt að sátt
náist um fjölmiðlafrumvarpið og fjöl-
miðlalög. Ákvörðun ríkisstjórnarinn-
ar frá því í gær sé í samræmi við þá
áherslu sína. „Þetta er í samræmi við
það sem ég hef sagt á þingi, þ.e. að
reynt verði að skapa þverpólitíska
sátt um málið og
að allir stjórn-
málaflokkar komi
að samningu
frumvarpsins,“
segir hún.
Mestu skipti
að ná sátt
Þorgerður
sagði í viðtali við
Morgunblaðið í
haust að hún teldi niðurstöðu síðari
fjölmiðlanefndarinnar um 25% há-
mark á eignarhlut á fjölmiðlum vera
of háa. Innt eftir því nú hvort hún
telji að nýja nefndin eigi að taka mið
af þeim skoðunum segir hún svo ekki
vera. Margir hafi lýst yfir öðrum
skoðunum á eignarhaldinu en fjöl-
miðlanefndin, m.a. þingmaður Sam-
fylkingarinnar.
Hún kveðst hafa sínar persónu-
legu skoðanir á því hvert eignarhald-
ið eigi að vera, en meira máli skipti
að ná samfélagslegri sátt um fjöl-
miðlalög. Hún segir ennfremur mik-
ilvægt að viðhalda þeirri þverpóli-
tísku sátt sem myndaðist um málefni
fjölmiðla í starfi síðustu fjölmiðla-
nefndar. Af þeim sökum sé mikil-
vægt að fulltrúar allra þingflokka
eigi aðild að nýrri fjölmiðlanefnd,
sem móta eigi nýtt frumvarp um fjöl-
miðla.
Sjö manna þverpólitísk nefnd
semji nýtt fjölmiðlafrumvarp
„Nefndin mun fá
þann tíma sem
hún telur þörf á“
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
MÁNAÐARLAUN forseta Íslands
hækka um tæp 93 þúsund eða um
6% og laun forsætisráðherra um
tæp 75 þúsund eða rúm 8% frá
áramótum samkvæmt ákvörðun
Kjaradóms. Aðrir ráðherrar
hækka einnig um 8% og sömuleiðis
alþingismenn sem fá eftir hækk-
unina tæp 500 þúsund í mánaðar-
laun.
Laun forsetans verða 1,6 milljón
krónur á mánuði, laun forsætisráð-
herra tæp 990 þúsund og laun ann-
arra ráðherra um 890 þúsund.
Kjaradómur ákveður laun æðstu
embættismanna þjóðarinnar og
kjörinna fulltrúa. Síðast hækkuðu
laun þeirra skv. Kjaradómi 1. júlí
sl. og þá um 2%.
Lagfæringar á launaflokkum
Í rökstuðningi Kjaradóms kem-
ur fram að dómurinn hafi gert
grundvallarbreytingar á launakerfi
sínu með úrskurði 10. maí 2003
með því að samræma launatöflur
sínar og kjaranefndar. Raðaði
Kjaradómur í samræmda launa-
flokka eftir því sem eðlilegt var
talið með tilliti til samanburðar á
störfum og ábyrgð. Kjaranefnd
hafi í millitíðinni úrskurðað launa-
hækkanir umfram hækkanir sem
Kjaradómur hefur úrskurðað, m.a.
með færslum milli launaflokka.
Þær ákvarðanir hafa áhrif á launa-
kerfi Kjaradóms og verði að hafa
hliðsjón af þeim. Er það niður-
staða Kjaradóms að lagfæra beri
launaflokka til samræmis við
ákvörðun dómsins frá árinu 2003,
til þess að viðhalda þeim grund-
velli sem þá var lagður. Þá hækka
laun á almennum vinnumarkaði að
jafnaði um 2,5% um áramótin og
skal sú hækkun einnig ná til þeirra
sem taka laun samkvæmt ákvörð-
unum Kjaradóms.
Séu forseti Íslands, ráðherrar
og þingmenn frátaldir fá aðrir sem
Kjaradómur úrskurðar um ákveð-
inn einingafjölda ofan á dagvinnu-
laun. Einingafjöldinn er mismun-
andi eftir embættum, á bilinu
23–54 einingar en fyrir hverja ein-
ingu eru nú greiddar 4.975 kr. og
hækkar verð hennar frá 1. júlí sl.
um 8%.
Í rökstuðningi Kjaradóms segir
að dómurinn túlki þau fyrirmæli í
lögum um að bera saman starfs-
kjör með „tilliti til starfa og
ábyrgðar“ svo, að eðlilegt sé að
laun þeirra embættismanna sem
Kjaradómur úrskurðar skuli borin
saman við laun embættismanna
sem ákveðin eru í kjarasamningum
eða að ákvarðanir eru teknar um
með öðrum hætti en í kjarasamn-
ingum og er þar einkum átt við
ákvarðanir kjaranefndar. Einnig
ber Kjaradómi að líta til annarra
þátta, svo sem lífeyrisréttinda,
ábyrgðar í starfi o.fl. Hvað varðar
samanburð starfa og samanburð
vegna ábyrgðar verði ekki fram
hjá því litið við launaákvarðanir,
að þessir aðilar gegna æðstu störf-
um í landinu samkvæmt viðteknum
kenningum um þrígreiningu rík-
isvaldsins.
Kjaradómur hækkar laun æðstu embættismanna og
kjörinna fulltrúa þjóðarinnar frá næstu áramótum
$ %
%
&%&'
() *
)+ ,
-
,%
. /
. ,
0% 0% 1 * /+
*
/+
)
/+
#
2-
3*)*
+/) &+
3*)* /) &+
01
* 4
56
! !
"#$
%$ $
%&$
&"$&
&"$&
%&
%&
& !$
&%!
#%!!
#$!"$
#&%
""$"
'
#!!
( )
$ ) "*
+, -$!!
!!"
!
""
!"
!"
!! "
!! "
!! "
! !
" "
" !"
'
"&
Laun forseta hækka um
6% en annarra um 8%
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
STEINUNN Valdís Óskarsdóttir
borgarstjóri hefur ákveðið að úr-
skurður Kjaradóms um hækkun
launa æðstu embættismanna muni
ekki ná til borgarstjórans í
Reykjavík.
Kemur þetta fram í yfirlýsingu
sem hún sendi fjölmiðlum í gær-
kvöldi. Laun borgarstjóra hafa
miðast við laun forsætisráðherra,
en skv. úrskurðinum áttu launin
að hækka um 75.000 kr. á mánuði
frá áramótum, segir í yfirlýsing-
unni.
Hækkun nær ekki
til borgarstjóra
HÆSTIRÉTTUR sýknaði í gær út-
gáfufyrirtækið Dag Group, áður
Skífan, af kröfu trommaleikara um
greiðslur vegna útgáfu á safndisk-
um. Með þessu sneri Hæstiréttur við
dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem
hafði dæmt trommuleikaranum í vil.
Trommuleikarinn, Gunnlaugur
Briem, hafði um langa hríð tekið
þátt í að leika tónlist inn á tónlistar-
diska sem Dagur Group gaf út, án
þess að skriflegir samningar hefðu
verið gerðir í hvert skipti. Ágrein-
ingurinn laut aðallega að því hvort
hvort túlka bæri samkomulag
trommuleikarans og Dags Group á
þann veg að fyrirtækinu hefði verið
heimilt að endurútgefa tónlist á
safndiskum. Fram kom fyrir dómi að
trommuleikarinn hafði ekki gert
frekari reikninga eða fengið sérstak-
ar greiðslur þó að tónlist hefði í ein-
hverjum tilvikum verið gefin út á
safndiskum áður.
Hæstiréttur taldi því að honum
hefði borið, þegar hann tók að sér
þann hljóðfæraleik sem leiddi til
málarekstursins, að taka það fram
að hann áskildi sér rétt til sérstakrar
greiðslu fyrir endurútgáfu. Ekki var
heldur fallist á sjónarmið um að
brotið hefði verið gegn sæmdarrétti.
Málið dæmdu Árni Kolbeinsson,
Ingibjörg Benediktsdóttir og Jón
Steinar Gunnlaugsson. Ragnar Að-
alsteinsson hrl. flutti málið af hálfu
Dags Group en Guðni Á. Haraldsson
hrl. var lögmaður trommuleikarans.
Átti ekki rétt
á greiðslum
fyrir safndiska
KONUKOT verður opið allan sólar-
hringinn frá og með morgundegin-
um, 22. desember.
Konukot hefur verið opið og rekið
af Reykjavíkurdeild Rauða krossins
frá því í nóvember á síðasta ári en
um er að ræða tilraunaverkefni til
tveggja ára.
Frá opnun athvarfsins hafa tæp-
lega 50 heimilislausar konur nýtt sér
aðstöðuna. 5–10 þeirra eru tíðir not-
endur þjónustunnar.
Konukot opið allan
sólarhringinn