Morgunblaðið - 21.12.2005, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Útrás íslensku
glæpasögunnar
Hverju skila
erlendir
útgáfusamningar
til forlaganna?
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
á morgun
TVÍTUG stúlka úr Kópavogi stend-
ur fyrir styrktartónleikum fyrir
fórnarlömb jarðskjálftanna í Pak-
istan, hinn 29. desember næstkom-
andi í Austurbæ. Hin stórhuga Aníta
Ólöf Jónsdóttir fékk hugmyndina að
tónleikunum í framhaldi af fé-
lagsfræðiáfanga hjá Hjördísi Ein-
arsdóttur og hafa þær saman unnið
að skipulagningu tónleikanna.
Aníta útskrifaðist úr Mennta-
skólanum í Kópavogi í síðustu viku
svo það er nóg að gera hjá henni, en
hún fann sér engu að síður tíma til
að hrinda hugmyndinni í fram-
kvæmd.
„Ég var í áfanga um íslam og Mið-
Austurlönd. Fólk á þessum svæðum
hefur fengið mjög neikvæða umfjöll-
un og margir eru haldnir fordómum
gagnvart því. Við lærðum að þetta er
falleg trú og gott fólk og svo áttum
við að skrifa ritgerð út frá blaða-
greinum sem við söfnuðum um mál-
efni þessa fólks,“ segir Aníta.
„Ég fór þá að grúska mikið í frétt-
um um þennan mikla jarðskjálfta og
ég varð miður mín við að lesa um hve
lítið hefði safnast til styrktar þessu
fólki. Það hefur safnast um 80% af
þeirri upphæð sem Sameinuðu þjóð-
irnar báðu um til styrktar fórn-
arlömbum flóðbylgjunnar, en aðeins
12% fyrir fólkið sem lenti í jarð-
skjálftanum.“
Fjöldi landsþekktra
tónlistarmanna
Aníta segist telja að atburðirnir
hafi fallið í skuggann þar sem fáir
Vesturlandabúar séu á hamfara-
svæðunum í Pakistan.
„Mér fannst ég verða að gera eitt-
hvað, því það varð svo mikið af sak-
lausu fólki fyrir þessu. Mér datt þá í
hug að halda styrktartónleika og
Hjördís tók mjög vel í þá hugmynd,“
segir hún. „Kópavogsdeild Rauða
krossins er líka með okkur í þessu
og starfsmenn þar munu sjá til þess
að ágóði tónleikanna skili sér til
þurfandi fólks á jarðskjálftasvæð-
unum.“
Á tónleikunum koma fram Ske,
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur
Kristjánsson, Dúndurfréttir, Helgi
Rafn ásamt Twisted Reality Show,
Milljónamæringarnir ásamt Páli
Óskari og Bogomilfont, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Shadow Parade,
Ragnheiður Gröndal, Pétur Ben,
Myst, Leaves, Jagúar, Jón Ólafsson
og Synic Guru. Allir listamennirnir
gefa vinnu sína, ásamt kynninum,
Atla Þór Albertssyni, leikara.
Styrktaraðilar tónleikanna eru
Landsbankinn, Kópavogsbær, Og-
Vodafone, KB banki og VÍS.
Hjördís er himinlifandi með fram-
tak Anítu.
„Það hugsa svo margir með sér
hvað þetta séu hræðilegir atburðir
og óska þess að þeir gætu gert eitt-
hvað, en fæstir fara af stað og gera
það,“ segir Hjördís. „Aníta kom til
mín og sagðist verða að gera eitt-
hvað. Hún kom sjálf með þessa hug-
mynd og mér fannst svo merkilegt
að fá þarna nemanda sem vildi raun-
verulega gera eitthvað í málunum.
Þetta sýnir manni að ein manneskja
getur komið miklu til leiðar.“
Hjördís bendir á að miðar á tón-
leikana séu tilvalin jólagjöf, en mið-
inn kostar 2.500 krónur. Miðasala er
hafin á midi.is en sala í Austurbæ
hefst 27. desember.
Styrktartónleikar fyrir fórnarlömb jarðskjálftanna í Pakistan
„Mér fannst ég verða
að gera eitthvað“
Morgunblaðið/Ómar
Hjördís segir Anítu sýna að ein manneskja geti komið miklu til leiðar.
Eftir Hrund Þórsdóttur
hrund@mbl.is
TENGLAR
..............................................
www.midi.is
SAMKVÆMT lýsingu á ástandi
eins og það var í lok síðasta mán-
aðar höfðu 75.–80.000 manns látist
af völdum jarðskjálftans, sem átti
upptök sín í Muzaffarabad í Pak-
istan. Um 70.000 voru særðir og
um 3,5 milljónir manna voru tald-
ar heimilislausar.
Veðurfar og landfræðileg lega
hefur hamlað flugi og öðrum sam-
göngum þannig að hjálparstarf fór
seint af stað og hið alvarlega
ástand hefur smám saman komið í
ljós. Hús og önnur mannvirki í
þorpum og bæjum gjöreyðilögðust
vegna skjálftans sem einnig kom
af stað aurskriðum sem ollu mik-
illi eyðileggingu. Mörg fórn-
arlambanna búa í litlum og mjög
afskekktum þorpum í fjalllendi og
því hafði ekki enn náðst til allra
sem slösuðust og misstu heimili
sín við lok nóvembermánaðar.
Þetta er ein flóknasta hjálpar-
aðgerð sem Rauði krossinn hefur
ráðist í meðal annars vegna aur-
skriða, eftirskjálfta, strjálbýlis,
ónýtra vega, erfiðs veðurfars og
þess að fórnarlömbin búa á átaka-
svæðum.
Ein flóknasta
neyðaraðgerðin
„ÞAÐ er skýr stefna hjá bankanum
að aðhafast ekkert í þessum málum
á meðan lagaóvissa ríkir um hvort
bankinn má yfir höfuð veita þessar
upplýsingar,“ sagði Ingólfur Helga-
son, forstjóri Kaupþings banka þeg-
ar leitað var viðbragða við kröfu
Ríkisskattstjóra um upplýsingar frá
viðskiptabönkunum um skuldir við-
skiptavina vegna forskráningar á
skattframtöl. Nefndi Indriði sér-
staklega Kaupþing banka í Morgunblaðsfrétt í gær og
spurði hverju hann hefði að leyna fyrir skatt-
yfirvöldum hér sem hann léti skattyfirvöldum í té af
fúsum vilja í Noregi og Svíþjóð.
Fjármálaeftirlitið hefur ekki tekið afstöðu til þess
hvort bönkum og öðrum fjármálafyrirtækjum beri
skylda til að afhenda skattyfirvöldum upplýsingar um
skuldir viðskiptamanna, skv. upplýsingum sem feng-
ust hjá Jónasi Fr. Jónssyni, forstjóra Fjármálaeft-
irlitsins.
Álitamál um afhendingu þessara upplýsinga hafa
ekki komið inn á borð Persónuverndar skv. upplýs-
ingum stofnunarinnar.
Aðhafast ekkert
á meðan laga-
óvissa ríkir
Ingólfur Helgason
„ÞAÐ liggur fyrir að íslensk fjármálafyr-
irtæki hljóta að fara eftir lögum þessa
lands,“ segir Guðjón Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og verð-
béfafyrirtækja (SBV). Samtökin hafa lýst
því yfir í svari til Ríkisskattstjóra að fjár-
málafyrirtækjum sé ekki heimilt að af-
henda embætti Ríkisskattstjóra upplýs-
ingar um skuldir viðskiptamanna vegna
forskráningar á skattframtöl.
Ríkisskattstjóri lýsti furðu sinni á þess-
ari afstöðu í Morgunblaðinu í gær og
sagði allar lagaheimildir fyrir hendi.
Benti hann auk þess á að í nágrannalönd-
um væri bönkum og fjármálafyrirtækjum
skylt að afhenda skattyfirvöldum sam-
bærilegar upplýsingar.
„Í lögum um fjármálafyrirtæki er skýrt
ákvæði um þagnarskyldu um hagi við-
með því að senda skattyfirvöldum slíkar
upplýsingar, að sögn hans.
Ítreka boð um samstarf
Guðjón bendir einnig á að SBV bauðst
þegar á árinu 2001 að taka þátt í sam-
starfi við skattyfirvöld um forprentun á
framtöl fyrir þá viðskiptamenn sem þess
óskuðu.
„Vegna þessa tilnefndu samtökin fimm
fulltrúa í samstarfsnefnd Ríkisskattstjóra
og SBV, sem Ríkisskattstjóri átti að
stýra. Þessi nefnd hefur aldrei verið köll-
uð saman. Við ítrekuðum boð um þetta
samstarf í seinustu viku í bréfinu til Rík-
isskattstjóra. Væri ekki nær að kalla
samstarfsnefndina saman fremur en að
vera með stóryrði í fjölmiðlum,“ segir
hann.
skiptavina þeirra, sem
lúta að öllum viðskipta-
upplýsingum, bæði
hvað varðar eignir og
skuldir,“ segir Guðjón.
„Löggjöfin á Íslandi er
í samræmi við það sem
tíðkast víða í Evrópu,
þó að sum Skandinav-
íulönd gangi lengra,“
bætir hann við.
Guðjón minnir einnig á að fyrir dóm-
stólum eru nú í gangi mál þar sem
ágreiningurinn snýst um hvernig beri að
túlka gildandi lög varðandi það hvort fjár-
málafyrirtækjum beri að afhenda skatt-
inum upplýsingar. Á meðan því máli er
ólokið sé ófært fyrir fjármálafyrirtækin
að taka þá áhættu að vera að brjóta lög
Framkvæmdastjóri SBV segir skýr ákvæði í lögum um þagnarskyldu fjármálafyrirtækja
Ófært að fyrirtæki taki
áhættu á lögbroti
Guðjón Rúnarsson
Samstarfsnefnd SBV og ríkisskattstjóra aldrei kölluð saman