Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 19

Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 19 ERLENT Glymur hanskar 4.900 kr. Langjökull skíðahanskar 6.900 kr. Mjúkar gjafir Flatey húfa 2.400 kr. Surtsey húfa 2.400 kr. www.66north.is BENJAMIN Netanyahu fór með sig- ur af hólmi í leiðtogakjöri Likud- flokksins og þar með lauk umskiptum sem lýst hefur verið sem „mikla- hvelli“ í stjórnmálum Ísraels. Póli- tíska landslagið hefur gerbreyst á rúmum mánuði og áhrif hvellsins koma ekki að fullu í ljós fyrr en í þing- kosningum sem fram fara 28. mars. Netanyahu var kjörinn leiðtogi Likud í stað Ariels Sharons forsætis- ráðherra sem sagði sig úr flokknum og stofnaði nýjan miðflokk, Kadima, 21. nóvember. Áður hafði Shimon Peres beðið auðmýkjandi ósigur fyrir Amir Peretz, verkalýðsforingja af gamla skólanum, í leiðtogakjöri Verkamannaflokksins 10. nóvember. Tveir af þremur stærstu flokk- unum eru því undir forystu nýrra leiðtoga og sá þriðji er aðeins mán- aðar gamall nú þegar hundrað dagar eru til kosninga. Margir þingmenn og ráðherrar Likud hafa gengið til liðs við flokk Sharons og Verkamannaflokkurinn hefur misst Shimon Peres sem ætlar að sitja í ríkisstjórn nýja flokksins komist hann til valda í kosningunum eins og flest bendir til. Smærri flokkar hafa einnig látið á sjá eftir pólitísku hamfarirnar. Þeirra á meðal er Shinui, sem aðhyllist ver- aldarhyggju í stjórnmálum og fékk 15 þingsæti í síðustu kosningum. Hon- um er nú aðeins spáð fimm sætum. Óvissan magnaðist enn um helgina þegar Ariel Sharon var fluttur á sjúkrahús vegna vægs heilablóðfalls. Kjósendur voru þá minntir á að þeir taka talsverða áhættu með því að veðja á glænýjan flokk sem stendur og fellur með einum manni sem er á 78. aldursári og heilsutæpur. Skoðanakannanir, sem gerðar voru á mánudag, benda þó til þess að veik- indi Sharons hafi ekki haft áhrif á fylgi Kadima. Flokknum er nú spáð 39–42 þingsætum og Verka- mannaflokknum 21–22. Likud fékk 40 þingsæti í síðustu kosningum en er nú aðeins spáð þrettán. Hafa færst til vinstri Í stjórnmálum Ísraels hefur oft mikið gengið á en ólíklegt er að lands- menn hafi áður orðið vitni að þvílíkum umskiptum á svo skömmum tíma. „Það er afar óvenjulegt að þrír flokkar skuli stefna að því að fá minnst 20-25 þingsæti í kosningum,“ hafði fréttastofan AFP eftir ísraelska fréttaskýrandanum Yossi Alpher. Haim Ramon, fyrrverandi þing- maður Verkamannaflokksins, líkti pólitísku hamförunum við „mikla- hvell“. Hann telur umskiptin eðlileg- ar afleiðingar breytts pólitísks and- rúmslofts í Ísrael og meðal Palestínumanna eftir að Mahmoud Abbas varð leiðtogi þeirra við fráfall Yassers Arafats. „Síðasta árið hefur allt stjórn- málakerfið færst til vinstri – það út- skýrir kjör Peretz og stofnun Kadima,“ sagði Ramon, sem hefur gengið til liðs við flokk Sharons. „Lik- ud hefur ekki færst til hægri, heldur er það Sharon sem hefur breyst eins og þorri almennings.“ Sharon var eitt sinn álitinn harð- línumaður og lengra til hægri í stjórnmálunum en nokkur annar for- sætisráðherra í sögu Ísraels. Hann hefur lagað sig að breyttum að- stæðum, fer nú fyrir miðjumönnum, en harðasti hægrikjarninn situr eftir í Likud. „Hefur litlu að fagna“ Amotz Asa-El, dálkahöfundur Jerusalem Post, sagði að Netanyahu gæti ekki gert sér vonir um sigur í þingkosningunum og helsta verkefni hans yrði að afstýra enn meira fylg- istapi. „Netanyahu hefur litlu að fagna. Þótt hann hafi komist til valda í hesthúsinu hafa pólitísku gæðing- arnir, sem það var þekkt fyrir, fælst og verkefni Netanyahus til 28. mars verður að finna þá og smala þeim saman.“ Fréttaskýrandinn Sima Kadmon tók í sama streng í grein á fréttavefn- um ynetnews.com og sagði að Sharon hefði verið bænheyrður með kjöri Netanyahus. Auðveldara yrði fyrir forsætisráðherrann að kljást við Net- anyahu en Silvan Shalom utanrík- isráðherra, sem varð í öðru sæti í leið- togakjörinu, og tengja hann við róttæk hægriöfl. Netanyahu er 56 ára og fór fyrir Likud í þingkosningum árið 1996 þegar flokkurinn bar sigur úr býtum. Hann beið hins vegar mikinn ósigur fyrir Verkamannaflokknum þremur árum síðar þegar Ehud Barak varð forsætisráðherra. Netanyahu hefur sakað Sharon um að hafa látið undan herskáum hreyf- ingum Palestínumanna með því að kalla ísraelska herliðið á Gaza- svæðinu heim. Hann hefur lofað að gefa ekki hernumin svæði á Vest- urbakkanum eftir nema Ísraelar samþykki það í þjóðaratkvæða- greiðslu. Sharon hafnaði þjóðar- atkvæði um brotthvarfið frá Gaza. Ariel Sharon bænheyrður með kjöri Netanyahus? Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is Reuters Benjamin Netanyahu með eiginkonu sinni í gær þegar tilkynnt var að hann hefði verið kjörinn leiðtogi Likud-flokksins í Ísrael. Washington. AFP. | Vinsældir George W. Bush Bandaríkjaforseta hafa vax- ið samkvæmt nýjum fylgistölum en Bush hefur undanfarið haldið uppi markvissum vörnum fyrir stefnu sína í mál- efnum Íraks og þykir það skýra fylgissveifluna. 47% Banda- ríkjamanna segj- ast nú ánægðir með störf hans en hlutfallið var aðeins 39% í byrj- un nóvember. Eftir sem áður er meirihluti Bandaríkjamanna ósáttur við störf forsetans, eða 52% þeirra sem tóku þátt í könnun The Washington Post og ABC-sjónvarpsstöðvarinnar. Lítil breyting meðal demókrata Í könnuninni var spurt sérstaklega um það hvernig fólk teldi forsetanum hafa til tekist varðandi Íraksmálin og voru 46% ánægð með Bush í þeim efnum, það er 10 prósentustigum meira en í nóvember. 56% segja for- setann standa sig vel í baráttunni gegn hryðjuverkum, það hlutfall var 48% í nóvember. Fram kom í frétt The Washington Post að það væri einkum íhaldsmenn og repúblikanar sem væru ánægðari með Bush en áður, lítil breyting hefði orðið meðal miðjumanna, hófsamra og demókrata. Niðurstöður könnunar CNN/USA Today benda á hinn bóginn ekki til að sveifla hafi orðið á fylgi Bush í kjölfar ræðuhalda hans, sú könnun sýnir að aðeins 41% Bandaríkjamanna telja hann standa sig vel í embætti. Vinsældir Bush aukast George W. Bush

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.