Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
UMFANGSMIKLAR fram-
kvæmdir í suðurálmu Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri hafa ver-
ið boðnar út en um er ræða
innréttingu á 1. og 2. hæð. „Við er-
um í sjöunda himni með að þetta
skuli vera komið þetta langt áleiðis
en það hefur vissulega tekið tíma
sinn. Þetta þýðir að við horfum
fram á að geta tekið þessar tvær
síðustu hæðir hússins í notkun í
upphafi árs 2007. Það verður stór
áfangi í starfseminni eftir öll þessi
þrengsli sem við höfum mátt búa
við á undanförnum árum,“ sagði
Vignir Sveinsson framkvæmda-
stjóri fjármála og reksturs á FSA.
Suðurálma sjúkrahússins er fimm
hæða steinsteypt bygging ásamt
kjallara.
Vignir sagði að stjórnsýsla spít-
alans yrði á 2. hæð, fjármálstjórn-
un, yfirstjórn lækninga og hjúkr-
unar og fleira sem tilheyrir
stjórnunarþættinum. Á 1. hæð
verða lyflækningadeild II, spegl-
unardeild og móttökuaðstaða sér-
fræðinga. Á efstu hæð suðurálmu
er barnadeildin en á svokallaðri
núll-hæð, sem verið er að taka í
notkun þessa dagana, eru barna-
og unglingageðlækningar, iðju-
þjálfun, sjúkraþjálfun, meinafræði-
deild og stækkun á rannsókna-
deild. „Það er verið að flytja
starfsemi þessara eininga í þessum
mánuði, þannig að það er heilmikið
að gerast,“ sagði Vignir.
Hann sagði að eftir væri að
leysa mál varðandi tengingu við þá
álmu sem nú er verið að taka í
notkun en að næsta stóra skrefið
yrði bygging legudeildarálmu.
„Nefnd sem var skipuð til að skoða
framtíðarhúsnæði lagði til að
byggð yrði sérálma sunnan við
sjúkrahúsið fyrir legudeildir. En
það er ekki fyrirsjáanlegt að ráðist
verði í þá framkvæmd alveg á
næstunni.“
Lokaframkvæmdir við suðurálmu
FSA boðnar út
„Við erum í
sjöunda himni“ SAMNINGUR um rekstur leik-skólans Hólmasólar við Helga-magrastræti var undirritaður í
gær, en það gerðu Margrét Pála
Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri
Hjallastefnunnar, sem mun reka
leikskólann og Kristján Þór Júl-
íusson, bæjarstjóri á Akureyri.
Samningurinn gildir til loka árs-
ins 2009.
Samið var við Hjallastefnuna í
kjölfar útboðs að sögn bæj-
arstjóra, en hann sagði menn hafa
velt vöngum yfir því af hverju
bærinn væri að bjóða út rekstur
leikskóla. Hann gæti fullyrt að á
Akureyri væru einhverjir bestu
leikskóla landsins, en hið sama
mætti segja um leikskóla Hjalla-
stefnunnar. Kvaðst hann afar
ánægður með tilboð Hjallastefn-
unnar, gott væri að fá nýjar vídd-
ir inn í leikskólarekstur í bænum,
það myndi einungis styrkja og
bæta þá þjónustu sem sveitarfé-
lagið byði á þessu sviði. „Þetta er
stór áfangi í skólasögu bæjarins,“
sagði Kristján Þór.
Margrét Pála gerði grein fyrir
rekstri og hugmyndafræði Hjalla-
stefnunnar og sagðist gleðjast yf-
ir að taka við rekstri leikskóla í
sínum gamla heimabæ, Akureyri.
Hugmyndafræði Hjallastefnunnar
gengur m.a. út á að nem-
endahópnum er skipt eftir kynj-
um í kjarna, til að mæta ólíkum
þörfum beggja kynja og til að
leyfa stúlkna- og drengjamenn-
ingu að njóta sín, jafnhliða því að
unnið er gegn neikvæðum afleið-
ingum hefðbundinna staðalímynda
og kynhlutverka. Þá er áhersla
lögð á opinn og skapandi efnivið
og lausnir barnanna sjálfra í stað
leikfanga og hefðbundinna náms-
bóka og í þriðja lagi er lagt upp
úr jákvæðum aga og hegð-
unarkennslu þar sem nemendur
læra lýðræðislega samskiptahætti
innan ákveðins ramma.
Margrét Pála sagði það stór-
kostlegt tækifæri að hafa á einni
hendi bæði rekstrar- og faglega
stjórn leikskólans, þar sköpuðust
möguleikar og tækifæri sem ekki
hefðu áður verið fyrir hendi hér á
landi.
Leikskólinn Hólmasól verður
tekinn í notkun næsta vor, en
hann er sex deilda leikskóli og
gert ráð fyrir að hann rúmi allt
að 157 börn. Stöðugildi verða 30
og leikskólagjöld þau sömu og í
öðrum leikskólum bæjarins. Með
tilkomu þessa nýja leikskóla
verða starfandi 13 leikskólar í
bænum, en næsta haust verða alls
1.150 börn í leikskólum á Ak-
ureyri. Enginn biðlisti er fyrir
börn, 2ja ára og eldri, hjá leik-
skólum Akureyrar.
Hjallastefnan mun reka
leikskólann Hólmasól
Morgunblaðið/Kristján
Leikskóli Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Margrét Pála Ólafsdóttir,
framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar, undirrituðu samninginn.
KEA hefur ráðið Bjarna Hafþór
Helgason sem fjárfestingastjóra fé-
lagsins og mun hann hefja störf um
áramót. Fjárfestingastjóri KEA
annast framkvæmdastjórn tveggja
dótturfélaga KEA, sem eru fjárfest-
ingafélögin Hildingur og Upphaf, en
stofnfé þeirra félaga er um 1.700
milljónir króna.
Bjarni Hafþór Helgason fæddist
árið 1957 og útskrifaðist sem við-
skiptafræðingur frá Háskóla Íslands
árið 1983. Hann hefur auk þess lög-
gildingu til verðbréfamiðlunar.
Hann hefur síðastliðin ár verið skrif-
stofustjóri Lífeyrissjóðs Norður-
lands og m.a. annast skrifstofurekst-
ur sjóðsins, markaðsmál,
séreignardeild og starfað við eign-
astýringu.
Fjárfestingastjóri KEA
Reykjavík | Hlutfall óendurnýjan-
legra orkuauðlinda, þ.e. brennsla
jarðefniseldsneytis í vegsamgöng-
um, virðist fara vaxandi í réttu
hlutfalli við aukna bílaeign Reyk-
víkinga og er nú um 40% á móti
60% notkun orku frá endurnýjan-
legum auðlindum, s.s. rafmagni og
heitu vatni. Er það meðal niður-
staðna úr nýrri skýrslu Umhverf-
issviðs Reykjavíkurborgar sem
nefnist „Umhverfisvísar Reykja-
víkurborgar 2005 – Samgöngur á
landi og orkunotkun“ sem kynnt
var Umhverfisráði í gær.
Markmið skýrslunnar er að gefa
mynd af ástandi helstu þátta er
þarfnast athygli borgaryfirvalda á
sviði umhverfismála. Fjallað er um
sex megin umhverfisvísa sem allir
fjalla beint og óbeint um áhrif
samgangna á borgarsamfélagið.
Meðal þess sem kemur fram í
skýrslunni er að útstreymi kol-
díoxíðs frá vegsamgöngum í
Reykjavík hefur vaxið um 14,5%
milli áranna 1999 og 2004 en á
sama tímabili hefur heildarfjöldi
ökutækja aukist um 15%. Þar af
hefur bensínfólksbílum fjölgað um
9% og fólksbílum sem ganga fyrir
dísilolíu um 51,6% en þrátt fyrir
fleiri bíla á götum borgarinnar
virðist meðalakstur notaðra og
nýrra bíla standa í stað eða
minnka.
Þróun á bílaflota Reykvíkinga er
á þann veg að stærri og aflmeiri
fólksbifreiðir eru nú á götum borg-
arinnar og nýskráðar bifreiðir eru
þyngri og kraftmeiri en eldri ár-
gangar. Vaxandi vetrargildi svif-
ryks undanfarin þrjú ár eru líkast
til afleiðing þess en þó hafa árs- og
vetrargildi svifryks farið lækkandi
milli áranna 1995 og 2005. Þrátt
fyrir það þykir ljóst að aðgerða er
þörf ef uppfylla á heilsuverndar-
mörk sem taka gildi árið 2010.
Svipuð tilhneiging er með niturs-
díoxíð og hefur magn þess minnk-
að undanfarin tíu ár en gildin
hækkað á ný frá árinu 2002 og
hafa verið nálægt eða farið yfir
heilsuverndarmörk.
Færra fólk ferðast
með strætó til vinnu
Ferðamáti Reykvíkinga var
einnig til skoðunar og kom í ljós að
ferðirmeð einkabílum til vinnu
hafa aukist úr 74,3% árið 2003 í
78,4% árið 2005. Aðeins fara um
5,3% til vinnu sem farþegi í bíl
sem er nánast sami fjöldi og árið
2000.
Hlutur strætisvagna í ferðum til
vinnu fer minnkandi úr 5,2% í
3,9% á sama tímabili og hefur
minnkað um heil sex prósent frá
árinu 2000. Hlutur strætisvagna
minnkar einnig verulega þegar lit-
ið er á ferðir til skóla eða um tæp
níu prósent frá árinu 2003.
Ný skýrsla um umhverfisvísa sem
allir fjalla um áhrif samgangna
Þyngri og kraft-
meiri bifreiðar á
götum borgarinnar
FÉLÖGUM í MND félaginu hefur
verið gert kleift að kaupa bensín
og olíu á þjónustudælum hjá Esso,
á sambærilegu verði og á sjálfs-
afgreiðsludælum en Guðjón Sig-
urðsson, formaður MDN félagsins,
og Ingi Þór Hermannsson, mark-
aðsstjóri neytendasviðs Esso,
skrifuðu undir samning þess efnis
í gær. Er hreyfihömluðum með
þessu gert að standa jafnfætis
þeim sem geta notað sjálfs-
afgreiðsludælur. Guðjón segist
hafa haft samband við Esso vegna
þess að hreyfihamlaðir velji ekki
að fara á þjónustudælu heldur
verði þeir að gera það út af fötlun
sinni. Þar var vel tekið í beiðni
Guðjóns. „Mér finnst þetta bæði
jafnréttismál og kjaramál“, segir
Guðjón. „Vonandi fylgja fleiri í
kjölfarið nú þegar ísinn er brot-
inn. Ég vona að þetta heimfærist
á alla hreyfihamlaða“.
Guðjón Sigurðsson, formaður MND félagsins, og Ingi Þór Hermannsson,
markaðsstjóri neytendasviðs Esso, undirrita samninginn.
Geta verslað á
sjálfsafgreiðsluverði
Kópavogur | Gert er ráð fyrir að
rekstrarafgangur samstæðureikn-
ings Kópavogsbæjar verði tæpir 2,7
milljarðar króna á næsta ári, eða
30% af skatttekjum, og hækki um
500 milljónir króna milli ára. Fjár-
hagsáætlun fyrir næsta ár var lögð
fram á fundi bæjarstjórnar á mánu-
dag.
Í tilkynningu frá Kópavogsbæ
segir að eins og undanfarin ár muni
rekstrarafgangurinn skila sér til
áframhaldandi uppbyggingar þjón-
ustustofnana og niðurgreiðslu
skulda.
Meirihlutinn í bæjarstjórn ætlar
m.a. að veita sérstakan afslátt af
álagningu fasteignaskatts, vatns-
skatts og holræsagjalds þannig að
álagningin lækki um 5% að raunvirði
milli ára þótt skattstofn til álagning-
ar fasteignagjalda hækki um 30–35%
vegna hækkunar á markaðsvirði
íbúða. Einnig leggur meirihlutinn til
lækkun vatnsskatts úr 0,19% af fast-
eignamati í 0,13%. Samtals mun
þessi aðgerð lækka skatta bæjarbúa
um rúmar 400 milljónir, að því er
kemur fram í tilkynningu.
Tekjuafgang-
ur eykst um
500 milljónir
EINN umsækjendur er um embætti
sóknarprests í Hallgrímspresta-
kalli, Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra, sem auglýst var 14. nóv-
ember sl. Umsækjandi er sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson, prestur við
Hallgrímskirkju. Jón Dalbú mun
taka við embætti sóknarprests af
sr. Sigurðir Pálssyni, sem lætur af
störfum fyrir aldurs sakir.
Embættið veitist frá 1. febrúar
2006.
Einn sækir um
Hallgrímskirkju
♦♦♦