Morgunblaðið - 21.12.2005, Page 26

Morgunblaðið - 21.12.2005, Page 26
daglegtlíf ídesember EINLÆG VINÁTTA SÚKKULAÐI HOLLT fannst vel við hæfi að nýr íbúi bæri sama nafn,“ segir Heimir og bætir við að nánustu vinir og ættingjar kalli hana Ólu. Hann segir að hún taki sér ævinlega fagnandi þegar hann kemur heim í lok vinnudags. „Þá vill hún hafa alla athyglina og leyfir mér ekki að tala í síma fyrst eftir að ég kem heim. Hún kann ekki að tala mannamál enn þá, en ég er að vinna í því. Hún apar upp öll hljóð í kringum sig og á kvöldin áður en við förum að sofa, þá laumar hún sér undir sængina hjá mér og fer yfir hljóðaforðann sinn og hann er oft mjög fjöl- breyttur, hún kann til dæmis að herma eftir örbylgjuofninum, sms-hljóðum símans og fugl- unum í garðinum.“ H ún fær léttsaltaðan hamborgar- hrygg á jólunum og eitthvað gott í eftirmat,“ segir Heimir Fjeldsted um hana Ólöfu Jónu sem er páfagaukurinn hans og fylgir honum hvert sem hann fer, nema í vinn- una. „En ég hugsa að hún verði að vera í búrinu sínu á meðan við borðum jólamatinn, því hún er ekki alveg nógu vel að sér í borðsið- um enn þá. Það er ekki mjög vinsælt að hún sé að spranga um á milli matardiskanna á meðan fólk borðar hátíðarmatinn. Hún gerir sér ekki heldur grein fyrir að það er ekki við hæfi að kúka á táhreina og nýstraujaða borðdúka.“ Lítið líf bærðist undir kápunni Heimir segir að Ólöf Jóna fái að sjálfsögðu jólagjafir eins og aðrir fjölskyldumeðlimir. „Ég veit að afabörnin mín eru búin að kaupa eitthvað fínt handa henni, sennilega rólu eða eitthvað slíkt sem hún getur leikið sér í og ég ætla að kaupa eitthvað fallegt líka, kannski bjöllu.“ Heimir eignaðist Ólöfu í apríl á þessu ári en upphafið að komu hennar í hans líf, nær lengra aftur í tímann. „Ég vinn sem strætisvagnabíl- stjóri og það var í fyrrasumar sem ung kona kom inn í vagninn hjá mér í Grafarholti og ég sá eitthvað hreyfast undir kápunni hennar og spurði hvort henni væri svona mikið niðri fyr- ir. Hún tjáði mér að svo væri alls ekki, þetta væri bara páfagaukurinn hennar og hún sýndi mér hann. Hún sagði mér að hún tæki gaukinn með sér hvert sem hún færi, líka í vinnuna. Mér þótti hann mjög fallegur og gæfur og spurði hvort hún gæti reddað mér einum slíkum. Það var auðsótt, enda karlfugl á leiðinni til hennar fyr- ir þessa dömu hennar og hún sagði að ég gæti fengið fyrsta ungann. Hún bauðst til að handmata ungann á fyrstu dögunum, því þannig verða þeir svo mann- gæfir, en til þess þarf hún að vakna á tveggja tíma fresti.“ Bannar mér að tala í símann Heimir segir að hann og Ólöf Jóna hafi verið óaðskiljanleg frá þeirra fyrsta fundi. „Ég gaf henni þetta nafn vegna þess að ég bý í íbúð frænku minnar sem hét þessu nafni og mér Ólöf Jóna á það til að spjalla við mannfólkið nágranna sína og henni er stundum boðið í mat, en það kann hún vel að meta, enda borðar hún nánast hvað sem er. „Henni var boðið í lax um daginn og henni þótti hann svo góður að hún kunni sér ekki hóf og endaði á að gubba yfir mig.“ Heimi og Ólöfu Jónu hefur ævinlega verið vel tekið þar sem þau koma, en óneitanlega vekur gaukurinn í hálsmáli hans athygli fólks. „Flestir gleðjast yfir þessu og kjá framan í hana og spyrja um hana. En um daginn var okkur vísað út úr matvörubúð og það er í fyrsta sinn sem einhver hefur haft horn í síðu Ólafar Jónu, sem er hvers manns hugljúfi.“  GÆLUDÝR | Dvergpáfinn Ólöf Jóna fær hátíðarsteik og jólapakka á aðfangadagskvöld Kúrir í hálsmálinu hvert sem hann fer Morgunblaðið/Ómar Ólöf Jóna spjallar við afabörn Heimis, þau Daníel Má og Erlu Rós. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Heimir Fjeldsted og félagi hans, páfagaukurinn Ólöf Jóna. ÞÓ AÐ brunum af völdum kerta hafi fækkað undanfarin ár má reikna með að 60–90 íbúðir skemmist vegna kertabruna um áramótin. Nú orðið tíðkast það að blómaverslanir útbúi kertaskreytingar sem eru sprautaðar með eldvarnarefni eða þá að kertin eru sett í kramarhús úr málmi sem tryggja að kertaloginn nær aldrei niður í eldfimar skreytingarnar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Sjóvá. hægt er að koma í veg fyrir flesta eldsvoða af völdum aðventu- skreytinga. „Jólaskreyting sem húð- uð hefur verið með eldtefjandi efni er öruggari. Sumar blómaverslanir hafa boðið upp á sjálfslökkvandi kerti, þar sem kveikurinn nær ekki alla leið nið- ur. Einnig hefur verið boðið upp á kertaslökkvara sem settur er á kertið og slekkur logann um leið og kertið brennur fram hjá honum.“ Að lokum eru nokkur atriði sem vert er að hafa í huga.  Farið aldrei frá logandi kerti.  Hafið kerti eða skreytingar ekki þar sem lítil börn ná til þeirra.  Hafið kerti og skreytingar í góðri fjarlægð frá opnum gluggum, gardínum eða öðru sem lent getur í kertaloganum.  Festið kertin vel í skreytinguna.  Kerti eru misfljót að brenna nið- ur. Fylgist vel með þeim.  Notið helst öruggar kertaskreyt- ingar, t.d. kramarhús með spritt- kertum.  Ef kertið stendur upp úr brenn- anlegri skreytingu ætti að sprauta eldtefjandi efni á skreyt- inguna.  Skiptið um kerti áður en það brennur niður að skreytingunni.  Hafið eldfasta undirstöðu undir skreytingunni. Þarf að passa jólaskreytingarnar  JÓL | Aldrei of varlega farið með eld VERSLUNUM sem eru vel og vandlega skreytt- ar fyrir jólin gengur betur en þeim þar sem skreytingar virðast lítt hugsaðar og tilvilj- anakenndar. Þetta kemur fram á vefnum forskning.no og vitnað er í vísindatímaritið Nature. Jólalyktin og jólatónlistin þarf að vera fyrir hendi svo viðskiptavinirnir vilji taka upp veskið í viðkomandi verslun. Kannanir hafa leitt í ljós að samsetningin verður að vera rétt, þ.e. hvort tveggja þarf að vera til staðar, annars minnkar kaupgleðin. Vísindamenn við Washington State Háskól- ann fengu 130 sjálfboðaliða til að taka þátt í könnun í þykjustubúð. Í bakgrunni var tónlist, jólatónlist eða önnur, sumir fengu að njóta jóla- ilms af greni eða kanil en aðrir ekki. Eftir á fylltu þátttakendur út spurningalista um hversu aðlaðandi þeim þótti búðin og varningurinn á skala frá einum og upp í sjö. Búðin fékk með- aleinkunnina 6,65 með jólalykt og jólatónlist og meðaleinkunnina 6,69 með venjulegri tónlist og engri lykt. Hins vegar lækkuðu einkunnirnar þegar aðeins annað var fyrir hendi, þ.e. jólalykt eða -tónlist. Jólatónlist gaf meðaleinkunnina 6,06 og jólalykt 5,69.  JÓLASKRAUT Borgar sig að skreyta búðir? Morgunblaðið/Sverrir Verið að leita að réttu jólagjöfinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.