Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 30

Morgunblaðið - 21.12.2005, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. S máey ehf. keypti í gær allt hlutafé í P. Sam- úelssyni hf., umboðs- aðila Toyota og Lexus á Íslandi, og fasteignir sem tilheyra rekstri fyrirtækisins. P. Samúelsson hf. er stærsta bíla- umboð á Íslandi og starfa hjá því um 150 manns. Kaupverðið er trún- aðarmál. Fjárfestingafélagið Smáey ehf. er í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns frá Vestmanna- eyjum sem einnig er varaformaður Straums-Burðaráss fjárfestinga- banka hf. Magnús tók við stjórn P. Samúelssonar hf. í gær og er nýr stjórnarformaður fyrirtækisins. Tilkynnt verður um nýja stjórn á morgun, fimmtudag. Lykilstjórn- endur félagsins halda allir áfram störfum, að sögn Magnúsar. Söluhæsta tegundin frá 1990 Fyrirtækið P. Samúelsson hf. var stofnað 17. júní 1970 til innflutnings og sölu Toyota-bifreiða á Íslandi. Það varð umboðsaðili Toyota Motor Corporation 1980 og hóf milliliða- lausan innflutning bíla frá Japan. Toyota var þá lítið þekkt bifreiða- tegund á Íslandi en eigendur fyr- irtækisins settu sér það markmið að Toyota yrði algengasta bifreiða- tegundin á Íslandi. Það markmið náðist árið 1988 þegar flestar bif- reiðir af einni tegund voru frá Toyota, þrátt fyrir að Toyota hafi ekki náð því að vera söluhæsta teg- undin hér á landi fyrr en 1990. Toyota hefur haldið því sæti síðan. Fyrirtækið hóf sölu Lexus-bíla á Ís- landi árið 2000 og í árslok 2002 hóf fyrirtækið innflutning og sölu á Yamaha-vélhjólum, snjósleðum og tengdum vörum. Toyota er nú á þröskuldi þess að verða stærsti bílaframleiðandi heims, að því er segir í frétta- tilkynningu vegna eigendaskipt- anna. Einnig kemur þar fram að „Toyota Motor Marketing Europe (TMME) vill þakka Páli Sam- úelssyni sérstaklega fyrir velgengni hans sem umboðsaðila Toyota og Lexus. Toyota býður nú Magnús Kristinsson velkominn sem um- boðsaðila Toyota og Lexus á Íslandi og vonast TMME til þess að nýtt eignarhald á íslenska umboðsaðil- anum muni halda áfram að laða til sín þá hæfileikaríku starfsmenn sem fyrirtækið hefur verið þekkt fyrir og að samband fyrirtækisins við viðskiptavini sína muni halda áfram að dafna. Toyota vill upplýsa alla eigendur Toyota- og Lexus-bíla á Íslandi um að þrátt fyrir eig- endaskipti fyrirtækisins mun Toyota sem framleiðandi og mark- aðsfyrirtæki halda áfram að styðja og þjónusta íslenska markaðinn með sama hætti og hingað til.“ Ráðgjafar seljanda við kaupin voru Straumur-Burðarás fjárfest- ingabanki hf. og Jón Sveinsson hrl., Landslögum – lögfræðistofu. Ráð- gjafi kaupanda var Þorvarður Gunnarsson, Deloitte hf. Smáey ehf. keypti P. Salan handsöluð. F.v. Pál hans. Hjónin Lóa Skarph Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is KAFLASKIPTI urðu í lífi Páls Samúelssonar í gær þegar hann sleppti hendinni af fyrirtæk- inu sem hann stofnaði fyrir 35 árum. Á blaða- mannafundi vegna sölunnar lýsti hann ánægju sinni með Magnús Kristinsson sem kaupanda og sagði að sér hefði ekki verið sama um í hvers hendur fyrirtækið færi. „Að sumu leyti er þetta eins fyrir mig og að selja börnin. Ég er búinn að vera í þessu og byggja þetta upp alveg frá byrjun,“ sagði Páll. „Auðvitað er eftirsjá að fyrirtækinu, en allt hefur sitt upphaf og endi.“ Gott orðspor fyrirtækisins og hve góðum árangri það hefur náð er það sem Páll er ánægðastur með þegar hann lítur um öxl. Fyr- irtækið hafi verið í 1. sæti með Toyota hér á landi frá 1990 og með um 25% markaðs- hlutdeild síðustu ár, en í ýmsum Evrópu- löndum væri Toyota með 2%–5% markaðs- hlutdeild. Sagði Páll að Toyota, bæði í Evrópu og Japan, hafi oft notað P. Samúelsson hf. sem viðmiðun um þann árangur sem hægt sé að ná. Páll sagði fyrirtækið hafa haft frábært starfsfólk og störf hjá því verið eftirsótt. Þá þakkaði hann Boga syni sínum mikilvægan hlut hans í framgangi fyrirtækisins. „Hann rey þes þet sér A þeg Ma Sig því Ma irtæ firð Fri víð stjó hef sem P str um rey fan ið m sem um þei boð lagði drögin að þessu, hafði ákveðna stefnu, er kynslóðinni yngri og kannski framsýnni.“ Í fréttatilkynningu um söluna er haft eftir Páli að nú hafi verið réttur tími til að selja og snúa sér að öðrum verkefnum. Hann var spurður hver þau væru. „Ég hef ekki verið í miklu öðru, fyrirtækið hefur eðlilega tekið allan minn tíma og hug. Áhugamál mitt er skógrækt. Ég hef stutt hana og langar að gera það áfram,“ sagði Páll. Vill rækta upp landið sitt „Afrakstrinum af rekstri mínum er vel var- ið ef hann fer í að rækta upp landið. Ég vil láta eitthvað gott af mér leiða fyrir þjóðfélagið. Þegar við opnuðum nýjan sýningarsal, þar sem BYKO var áður, sagði Bogi sonur minn að sér fyndist að ef fyrirtækið gengi vel bæri því að skila aftur til þjóðfélagsins hluta af af- rakstrinum. Við höfum reynt að gera það og það hefur reynst okkur vel. Ef maður reynir að gera fyrir aðra það sem maður vill að aðrir geri, þá held ég að það sé gott.“ Páll sagði að hann hafi ekki þótt besti sölu- maðurinn í fyrirtækinu. „Ég hef gengið hér um og reynt að fá afslætti fyrir fólk. Ef ein- hverjir hafa lent í greiðsluerfiðleikum hef ég Páll Samúelsson sleppir hendinni af fyrirtæki sínu ef „Allt hefur sitt upphaf o SAMNINGAVIÐRÆÐUR um kaup Smáeyjar ehf. á P. Sam- úelssyni hf. stóðu í rétt rúma tvo mánuði, að því er Magnús Krist- insson sagði á blaðamannafundi vegna sölunnar í gær. Hann sagði einnig að sig hafi langað að eign- ast fyrirtækið um nokkurn tíma. Kaupin voru háð samþykki Toyota í Japan og barst skeyti með samþykkinu snemma í gær- morgun. „Við skrifuðum þá undir öll skjöl. Þetta er orðinn veruleiki að ég er búinn að kaupa Pál Sam- úelsson hf. og tek við rekstrinum frá og með deginum í dag,“ sagði Magnús. Í gærmorgun hélt hann fund með starfsfólki P. Sam- úelssonar ehf. þar sem hann kynnti sig. Hann kvaðst líta fram- tíðina björtum augum. Magnús er fæddur 3. desember 1950 í Vestmannaeyjum og ólst þar upp. Sjávarútvegur og útgerð stjórnum lífeyrissjóða. Árið var Magnús skipaður í nefnd vegum sjávarútvegsráðherra að endurskoða ákvæði laga u veiðar í fiskveiðilandhelgi Ís Magnús er kvæntur Lóu S héðinsdóttur og eiga þau fjög börn og sex barnabörn. Fer létt í gegnum þetta Í samtali við Morgunblaðið s Magnús að kaupin á P. Sam- úelssyni hf. hefðu ekki áhrif annan atvinnurekstur sem h hefur sinnt.„Ég dúlla við þet saman og fer létt í gegnum þ sagði Magnús léttur í bragði verða einhverjar áherslubrey ingar í rekstri P. Samúelsson hf. við eigendaskiptin? „Auðvitað verða einhverja breytingar með nýjum mönn en það er ekkert í augsýn næ daga. Ég á eftir að kynna mé þetta og fara yfir með starfs hefur verið helsti starfsvett- vangur hans. Að loknu versl- unarnámi í Verzlunarskóla Ís- lands og við viðskiptaskóla í Cambridge í Englandi hóf hann störf hjá fyrirtæki föður síns, Bergi-Hugin ehf. 1972 og varð framkvæmdastjóri þess 1978. Magnús hefur setið í stjórn fyr- irtækisins og verið fram- kvæmdastjóri þess síðan. Magnús hefur gegnt fjölda stjórnunar- og trúnaðarstarfa í öðrum fyrirtækjum og félögum. Hann er m.a. eigandi, stjórn- arformaður og framkvæmdastjóri fjárfestingafélagsins Smáeyjar ehf. og stjórnarformaður fjárfest- ingafélagsins MK44 þar sem hann er einn aðaleigenda. Einnig er Magnús varaformaður stjórnar Straums-Burðaráss fjárfestinga- banka hf. Hann hefur átt sæti í stjórnum hagsmunafélaga og samtaka í sjávarútvegi og setið í Magnús Kristinsson, nýr eigandi P. Samúelssonar hf Sonurinn sem keypti kóngs ÞÆGINDI OG ÞAGNARSKYLDA Komin er upp deila milli rík-isskattstjóraembættisins ogbankanna vegna forskrán- ingar upplýsinga á skattframtöl. Skattstjóri hefur farið fram á upp- lýsingar frá bönkunum um stöðu lána einstaklinga um áramót til að forskrá á skattframtöl, með sam- bærilegum hætti og upplýsingar um launagreiðslur, húsnæðislán frá Íbúðalánasjóði, bílalán o.fl. eru nú forskráðar á skattframtalið. Sam- tök banka og verðbréfafyrirtækja telja sig ekki hafa heimild í lögum til að veita ríkisskattstjóra þessar upplýsingar án þess að viðskipta- menn þeirra biðji um það sérstak- lega. Samtökin benda á þagnar- skyldu bankanna um fjármál viðskiptavina þeirra. Indriði Þorláksson ríkisskatt- stjóri vísar til þess í Morgun- blaðinu í gær að fyrst og fremst væri um þjónustu við viðskiptavini bankanna að ræða. Hann lýsir síð- an furðu sinni á „kaþólskum við- brögðum“ og „fornaldarviðhorfum“ bankanna með því að þeir vilji ekki láta þessar upplýsingar af hendi umyrðalaust. Þetta mál er að sjálfsögðu ekki svona klippt og skorið. Það er upp- lýsandi að lesa svarbréf Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja til ríkisskattstjóra, en þar er vitnað til upphafs ágreinings um skil upplýs- inga vegna forprentunar á framtöl. Í bréfinu segir: „SBV lýstu strax fullum skilningi á þeim þörfum að þeir framteljendur sem þess ósk- uðu gætu fengið slík yfirlit for- prentuð og tilnefndu með bréfi dags. 10. maí 2001 fjóra fulltrúa í vinnuhóp RSK um forprentun upp- lýsinga um hlutabréfaviðskipti á skattframtöl og bættu einum full- trúa í þann hóp með tölvuskeyti sem sent var 2. júlí 2001. Samstaða var um að RSK stýrði vinnu hóps- ins og kallaði saman fundi. Þrátt fyrir þennan mikla vilja SBV til að vinna að þessu framgangsmáli með ríkisskattstjóra, sá embættið aldrei ástæðu til að kalla hópinn saman.“ Þægindi skattgreiðenda af því að sem flest af þeim upplýsingum, sem þeir ber að veita í skattframtali, sé forskráð í framtalið fara ekkert á milli mála. Stór hluti skattgreið- enda kysi vafalaust að geta bara skrifað undir tilbúið skattframtal, eins og ríkisskattstjóri vill að verði hægt innan fimm ára. En það er full ástæða til að gjalda varhug við því að upplýsingar um fjármál fólks og einkahagi séu sendar beint til ríkisskattstjóra frá fyrirtækjum og stofnunum, sem um ræðir, án þess að framteljandinn sé spurður álits. Upplýsingakerfi nútímans eru orð- in svo þróuð að það á ekki að vera flókið að gefa framteljendum t.d. kost á að velja í skattframtali hvaða upplýsingar þeir óski að verði forskráðar í framtal næsta árs. Sömuleiðis kemur fram í Morg- unblaðinu í gær að ríkisskattstjóra- embættið stefni að því að framtelj- endum gefist kostur á að senda nauðsynlegar upplýsingar vegna skattframtalsins úr heimabanka sínum og beint inn í framtalið á Netinu með einfaldri aðgerð. Myndi það ekki sömuleiðis leysa málið; vera til þæginda fyrir fram- teljendur en jafnframt gera ráð fyrir upplýstu samþykki þeirra við því að skattyfirvöldum séu sendar upplýsingarnar með rafrænum hætti? Sú þróun, að opinberar stofnanir hafi aðgang að stöðugt meiri upp- lýsingum um einkahagi fólks, er ekki sjálfsögð. Í því samhengi skiptir engu máli hvernig kaupin gerast á eyrinni í nágrannalönd- unum, þótt ríkisskattstjóri vísi til þess hvernig málum er háttað ann- ars staðar á Norðurlöndum. Það á að vera grundvallarregla, alveg burtséð frá því hvort fólki ber laga- skylda til að veita tilteknar upplýs- ingar eða ekki, að þær séu ekki veittar af öðrum án vitundar og vilja einstaklingsins. FRUMVARP UM FJÖLMIÐLA Þorgerður Katrín Gunnarsdóttirmenntamálaráðherra tilkynnti í gær að hún hygðist skipa nýja nefnd til að semja frumvarp til laga um fjölmiðla. Nefndin verður skipuð einum fulltrúa frá hverjum þing- flokki, auk tveggja lögfræðimennt- aðra sérfræðinga sem eru Páll Þór- hallsson, starfsmaður forsætisráðu- neytisins, og Páll Hreinsson laga- prófessor. Menntamálaráðherra lýsti því yfir við fjölmiðla í gær að nefndin myndi í störfum sínum byggja á skýrslu fyrri þverpólitískrar fjölmiðlanefnd- ar, sem skilaði áliti í apríl síðast- liðnum. Segja má að mikilvægasta atriðið í niðurstöðu þeirrar nefndar hafi verið það, að sátt var um það á milli þingflokkanna að ástæða væri til þess í lýðræðisþjóðfélagi að setja sérstök lög um eignarhald á fjöl- miðlum. Það er auðvitað fagnaðar- efni að haldið skuli áfram þar sem frá var horfið, með það að markmiði að samþykkja slíka löggjöf. Hitt er svo annað mál, eins og Morgunblaðið hefur áður bent á, að einstakar tillögur fjölmiðlanefndar- innar eru bitlausar og munu litlu eða engu breyta um þá samþjöppun eignarhalds og áhrifa í fjölmiðlum, sem átt hefur sér stað hér á landi. Ýmislegt hefur hins vegar breytzt frá því að skýrsla fjölmiðlanefndar- innar lá fyrir. Á síðustu mánuðum hefur orðið ljóst að misbeiting fjöl- miðlasamsteypu í þágu valdamikilla eigenda er ekki bara fjarlægur möguleiki, heldur raunveruleikinn í íslenzku samfélagi. Fulltrúar stjórnmálaflokkanna þurfa að ræða sín á milli hvort þeir telji það viðunandi stöðu í lýðræð- isríki að fyrirtækjasamsteypur séu í aðstöðu til að stýra skoðanamyndun og fréttaflutningi í landinu. Ef þeir telja svo ekki vera þurfa þeir að finna aðrar aðferðir en þá takmörk- un á eignarhluta í fjölmiðlafyrir- tækjum, sem var sú tillaga fyrri fjöl- miðlanefndar, sem lengst gekk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.