Morgunblaðið - 21.12.2005, Side 41
Í gagnfræðaskólanum voru oft eyð-
ur í skóladeginum og oft var þramm-
að vesturúr og austurúr og stoppað í
sjoppunum þar og við Ólöf byrjuðum
að reykja. Hún passaði fyrir Júlla og
Gullu og um helgar voru sveitaböll.
15 ára fórum við í útilegu um versl-
unarmannahelgi, það var skrautlegt.
Ólöf var alltaf hörkudugleg og vann
mikið. Vorið sem við vorum 16 ára
dreif hún sig til Eyja að vinna í fiski,
hún hringdi fljótlega í mig og ég fór
líka. Við bjuggum á verbúðunum
sumarlangt og þar gerðust mörg
ævintýr. Ég sneri heim síðsumars
en Ólöf hélt áfram að vinna. Hún var
alltaf að keppast í bónus og lagði
mikið á sig. Svo fluttum við í bæinn.
Ólöf var ein af mörgum vinkonum
mínum sem dvaldi tímabundið hjá
mér í Blikahólunum. Hvar sem Ólöf
dvaldi gerði hún heimilislegt í kring-
um sig með dúkum, útsaumi og
blómum. Rósa systir hennar bjó við
Laugaveginn, bakvið Buxnaklauf-
ina. Það var spennandi að koma til
Rósu og litla drengsins hennar. Í
bænum tók Klúbburinn við. 19 ára
eignaðist hún Marvin, hann var
skírður í höfuðið á Margréti og
Baldvin. Mér þótti það alltaf svo
sniðuglega til fundið. Ólöf var fyrst
ein með Marvin en svo fóru þau Ingó
pabbi hans að búa saman. Síðar kom
Þóra Björk. Þau bjuggu um tíma á
Selfossi. Þá naut Ólöf sín í húsmóð-
ur- og móðurhlutverkinu. Svo skildu
leiðir. Ólöf og Ingó skildu og ég
heyrði alltaf minna og minna frá
henni. Lengi sendum við hvor ann-
arri jólakort. Ég sendi alltaf kort á
Selfoss til Möggu, því ég vissi ekki
alltaf hvar hún bjó. Það liðu oft
nokkur ár á milli korta frá Ólöfu, en
alltaf var jafn ánægjulegt að frétta
af henni. Hún átti við heilsuleysi að
stríða og fór vissulega ekki alltaf vel
með líkama og sál. Hún á yndisleg
börn sem pluma sig vel.
Fyrir nokkrum árum ætlaði ferm-
ingarhópurinn að hittast, það hafði
staðið til lengi. Á síðustu stundu
gekk það ekki upp, en við því var
ekkert að gera. Við hin setjum okk-
ur það að hittast, þótt Ólöfu vanti.
Það eru nokkur ár síðan ég sá Ólöfu
síðast en það eru ekki skiptin sem
fólk hittist sem hafa allt að segja,
heldur sá þráður sem er á milli fólks.
Á milli okkar Ólafar var alltaf þráð-
ur vináttu og væntumþykju. Ég veit
henni líður nú vel og er búin að fá
lausn frá sínum þrautum. Hún er
vonandi líka búin að fá svör við öllu
því sem þvældist fyrir henni í lífi
hennar og hún skildi aldrei alveg.
Hvíl í Guðs friði.
Margrét Ívarsdóttir.
Elsku Ólöf mín, það var eins og
því væri hvíslað að mér að þú værir
dáin, ég hringdi í Inga til að spyrjast
fyrir um þig og fékk þannig þessar
sorglegu fréttir. Mér var mjög
brugðið.
Yndislega vinkona, við áttum góð-
ar stundir saman. Ég man sérstak-
lega eftir hlátursköstunum sem við
fengum stundum þegar allt gekk vel.
Þú áttir falleg heimili og það var
alltaf gott að heimsækja þig. Þú
varst góð kona, Ólöf mín, máttir
ekkert aumt sjá og vildir hjálpa öll-
um. Þú áttir oft erfitt, en nú ertu hjá
Guði og þá líður þér vel.
Marvin, Þóra, Ingi, Margrét og
aðrir ættingjar, ég samhryggist
ykkur, megi Guð gefa ykkur styrk.
Kveðja
Guðmunda Ragnarsdóttir.
Elsku Ólöf mín, ég á svo bágt með
að trúa að þú sért farin. Þú varst
alltaf svo góð og hlý við alla í kring-
um þig, ég man þegar ég hitti þig
fyrst, þá tókstu mér strax opnum
örmum. Alltaf vildirðu gera allt fyrir
mann, þú varst alltaf svo góð við
mig. Þú ert búin að stríða við erfið
veikindi svo lengi og ég veit að þér
líður betur þar sem þú ert nú. Mér
þykir svo vænt um þig, elsku Ólöf
mín, og kveð ég þig með söknuði.
Elsku Þóra, Marvin og fjölskylda,
ég sendi ykkur mínar dýpstu sam-
úðarkveðjur, megi guð og englar
hans styrkja ykkur á þessum erfiða
tíma.
Kveðja,
Sveinsína Ósk.
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 41
MINNINGAR
✝ Kristín Daníels-dóttir fæddist í
Reykjavík hinn 20.
mars 1920. Hún lézt
á heimili sínu, Lind-
argötu 66 í Reykja-
vík, hinn 12. desem-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Áslaug Guð-
mundsdóttir handa-
vinnukennari, f. í
Hafnarfirði 1890, d.
1969 og Daníel
Kristinsson búfræð-
ingur, f. á Söndum í
Dýrafirði 1888, d. 1950. Systkini
Kristínar eru Ida Sigríður, f.
1917, Magnús S., f. 1919, d. 2003,
Kristinn, f. 1926 og Hjördís Ing-
unn kjörsystir, f. 1940.
Hinn 22. apríl 1948 giftist
Kristín Guðmundi Borgari Svein-
bjarnarsyni klæðskerameistara,
f. 28. maí 1924, d. 10. janúar 1993.
Þau slitu samvistum eftir stutta
sambúð. Foreldrar hans voru
Sveinbjörn Frið-
finnsson iðnrekandi
frá Vopnafirði, f.
1891, d. 1988 og
Guðrún Guðmunds-
dóttir frá Hellatúni
í Rangárvallasýslu,
f. 1900, d. 1967.
Kristín og Guð-
mundur eignuðust
tvö börn, þau eru:
Guðrún, f. 7. janúar
1949, maki Haukur
Árnason, f. 1934 og
Daníel, f. 9. júní
1950, maki Kristín
Márusdóttir, f. 1951. Barnabörn
eru 9 og barnabarnabörn eru
átta.
Kristín starfaði hjá heildversl-
un Sverris Bernhöft þar til hún
hóf störf hjá Flugmálastjórn um
1960 þar sem hún vann fram að
67 ára aldri.
Útför Kristínar fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
Ég kveð tengdamóður mína, en
útför hennar fer fram í dag.
Það er orðið langt síðan ég hitti
hana fyrst 1948, er hún og eig-
inmaður hennar komu í brúðkaups-
ferð til Akureyrar. Þau voru gefin
saman 22. apríl 1948. Hún átti ætt-
ir að rekja til Stóra-Eyrarlands,
sem stóð syðst í núverandi Lysti-
garði á Akureyri. Langafi hennar
var prestur á Hrafnagili (Daníel
Halldórsson). Hann gaf Akureyri
kirkjugarð þann, sem enn er not-
aður.
Leiðir okkar lágu saman aftur
fyrir rúmum 20 árum, er við Guð-
rún, frumburður hennar, hófum
sambúð. Kristín vann hjá flugmála-
stjóra sem bókari og hafði unnið
þar í áratugi, hjá Agnari Koofoed-
Hansen og síðan sporgöngumönn-
um hans. Hún fór á eftirlaun við
sjötugsaldur.
Kristín var mikil hannyrðakona,
listsaumur, hekl og aðrar hann-
yrðir, sem ég hef lítið vit á. Kristín
var mjög geðgóð kona, rökföst og
fylgin sér.
Ég kveð þig, Kádí tengdamóðir,
með djúpum söknuði,
Haukur.
Elsku amma Kádí, ég er búin að
sitja hér lengi og stara á autt blaðið.
Mér er hugsað til eins haust-
kvölds þegar Elsa bjó á Háteigs-
vegi. Hún bauð okkur í kvöldmat.
Hún eldaði handa okkur uppáhalds
matinn þinn, kjötfars með hvítkáli
og kartöflum. Áður en við komum
til Elsu bað hún mig um að kaupa
hvítkál, sem ég gerði.
Þegar til hennar var komið
þurftum við að ganga upp nokkrar
tröppur. Ég studdi við þig á hægri
hönd og í vinstri hönd hélt ég á
poka með hvítkáli í, sem þú tókst
ekki eftir. Elsa kom út og tók á
móti okkur á meðan við gengum
rólega upp stigann. Ég leit á Elsu
og sagði brosandi: Ég kom með
kálhausinn með mér.
Amma mín, þú leist á mig furðu
lostin og trúðir ekki þínum eigin
eyrum hvað ég hafði látið út úr mér.
Þú sagðir: Lísa mín, er ég kálhaus-
inn sem þú komst með? Þú varst
varla búin að sleppa orðinu þegar
þú sást pokann sem ég var með í
vinstri hönd. Við sprungum allar úr
hlátri og áttum í erfiðleikum með að
klífa síðustu þrjú þrepin. Ég get
ekki annað en hlegið þegar hugur
minn reikar til þessa síðdegiskvölds.
Elsku amma mín, áður en ég kveð
þig langar mig að fara með þér með
bæn, sem mér þykir vænt um.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þín
Elísabet.
Það er mikill eftirsjá eftir
ömmu. Hún var yndisleg kona og
frábær félagi og vinur. Hún var
glöð og kát í eðli sínu hafði dillandi
léttan hlátur, var alltaf vel til höfð
og fín og var reyndar mjög falleg
kona.
Hún sagði mér einusinni að þeg-
ar hún var pínulítil í vöggu hefði
pabbi hennar byrjað að kalla hana
Kádí því hún var alltaf svo kát og
þess vegna var hún alltaf kölluð
Kádí.
Svona mun ég muna hana: Ég
hringi bjöllunni hjá henni því ég er
að koma í kaffi. Þegar hún kemur
loksins til dyra gerum við létt grín
að því hvað hún sé orðin gömul og
hægfara.
Við gerum að gamni okkar og
hlæjum og flissum. Hún vill endi-
lega að við fáum okkur kaffi og
kökur, og ég þigg það alltaf. Hún
er heillengi að hella uppá og við
tölum svo mikið og höfum svo mik-
ið að segja að stundum gleymir
hún að kveikja á kaffivélinni, eða
gleymir að setja kaffið í hana. Það
er voða fyndið og við getum flissað
yfir því. Hún vill kenna aldrinum
um en ég sannfæri hana um að
þetta hljóta að vera genin, því ég
er líka svona. Svo tölum við og töl-
um og mösum og mölum.
Amma heklaði mikið. Hún hekl-
aði einhver býsn af dúkum, engl-
um, stjörnum og dúllum. Jóla-
skraut var heklað, föndrað og
perlað.
Með svona skrauti skreytti hún
jólagjafirnar okkar og í dag á ég
svo mikið að það þekur næstum
allt jólatréð mitt. Hún hafði oft
boðist til að kenna mér að hekla og
eitt árið fór ég í tíma til hennar.
Hún var ekkert rosalega þolinmóð-
ur kennari og við gátum eitthvað
brosað að pirringnum, en það end-
aði samt mjög vel og í dag er ég
prýðisgóður heklari. Hún var mjög
stolt af mér þegar ég sýndi henni
afraksturinn.
Fyrir tveimur mánuðum fór hún
í aðgerð þar sem mjöðmin á henni
var löguð. Sú aðgerð tók mjög á
hana en sex vikum eftir aðgerðina
var hún aftur orðin eins og hún
átti sér.
Þegar hún var á spítalanum
sagði hún mér að sér fyndist for-
eldrar sínir vera hjá sér. Ég bað
hana um kveðju til þeirra, hún
skilar henni ábyggilega núna. Ég
hitti hana aftur þegar minn tími
kemur.
Ásta Ágústsdóttir.
KRISTÍN
DANÍELSDÓTTIR
Elskulega amma mín, sár-
lega ég sakna þín. Fórst svo
fljótt, amma mín, við fjöl-
skyldan söknum þín. Hvíl í
friði, amma Kádí.
Þín
Valgerður Helga.
HINSTA KVEÐJA
Elsku Dísa, nú ertu
búin að fá hvíldina
sem þú þráðir. Þú ert
komin heim til Benna mannsins
þíns og Svavars sonar þíns, heim
til Jesú. Þú varst búin að vera svo
lasin í meira en heilt ár og svo
brotnaðir þú og varðst enn þá
meira veik. Þú sem varst alltaf svo
hress og kát. Ég vil þakka þér fyr-
ir öll árin sem við fengum að verða
samferða í þessu lífi. Þakka þér
fyrir allt sem þú varst mér, alltaf
tilbúin að passa börnin okkar
Gríms, svo fórnfús og kærleiksrík í
verki.
Þú áttir ekki auðvelt með að
sýna kærleik í orðum, en verkin
þín sögðu svo mikið, umhyggja þín
fyrir börnunum og barnabörnunum
og okkur tengdabörnunum, var svo
sýnileg í verkum þínum og frá
Benna tengdapabba. Þið voruð
mjög samrýnd hjón. Ég er svo
þakklát fyrir árin sem við fórum
saman á kristileg mót. Þá komst
þú alltaf með hveitikökur með þér,
og allir fengu að njóta þess með
ykkur. Við Grímur áttum mjög
ánægjulegar stundir með ykkur og
börnin líka. Þú kenndir mér margt
mjög gott, sem ég nýti mér enn í
dag.
Ég man svo vel eftir þér í eld-
húsinu, við uppvaskið, þá áttir þú
til að að syngja lagið „Þig sem í
fjarlægð fjöllin bak við dvelur“. Þú
varst með góða söngrödd, svo
varstu mjög glæsileg kona og barst
þig svo vel alltaf. Þú áttir flottustu
kjólana og skóna líka og valdir
bara það flottasta.
Ég man líka hvað Benni tengda-
pabbi var alltaf ástfanginn af þér,
það sá maður og heyrði. Nú kveðj-
um við þig við Grímur sonur þinn
og börnin okkar og barnabörn og
þökkum Guði fyrir þig.
Við söknum þín nú þegar, en við
vitum að við hittumst hjá Jesú á
himnum. Það verða miklir fagn-
aðarfundir það er ég viss um.
ÞÓRDÍS
ÞORGRÍMSDÓTTIR
✝ Þórdís Þor-grímsdóttir
fæddist í Baldurs-
haga í Ólafsvík 13.
október 1917. Hún
lést á Hrafnistu í
Reykjavík 8. desem-
ber síðastliðinn og
var útför hennar
gerð frá Ólafsvíkur-
kirkju 17. desem-
ber.
Hafðu þökk fyrir allt,
elsku Dísa mín.
Þín tengdadóttir,
Kristín.
Ég kynntist Dísu
fyrst þegar Kristján
sonur minn hóf sam-
búð með tengdadótt-
ur minni Sigrúnu
Arnarsdóttur, fóstur-
dóttur Dísu. Dísa var
hress kona sem hafði
gaman af að spjalla
um menn og málefni.
Hún vildi alltaf vera fín og vel til
höfð og leitaði þá gjarnan til Sig-
rúnar sem var mjög lagin við að
laga á henni hárið, snyrta hana og
mála. Þegar Sigrún hafði sinnt
henni þannig var hún ákaflega
ánægð og glöð. Við hittumst alltaf í
fjölskylduboðum hjá Sigrúnu og
Kristjáni og eyddum saman mörg-
um hátíðum, jólum og áramótum
gegnum tíðina. Oft tókum við Dísu
með okkur upp í Mosfellsbæ og
heim á Hrafnistu aftur, eftir að
hún kom þangað. Ég fylgdi henni
þá upp á hebergið hennar, sem
alltaf var fínt og snyrtilegt. Dísa
vildi alltaf hafa þannig í kringum
sig og þegar við vorum saman að
passa barnabörnin vildi hún helst
alltaf vera að snurfusa eitthvað í
kringum sig. Dísa var alltaf mjög
elskuleg við okkur hjónin og það
gladdi okkur hve ánægð hún var
með Kristján. Hún átti greinilega
líka mjög náið samband við Sig-
rúnu og aldrei stóð á Sigrúnu og
Kristjáni að aðstoða hana við stórt
og smátt. Hún var barnabörnum
okkar góð amma og þau sýndu
henni mikla hlýju og væntumþykju.
Þó að heilsu Dísu hrakaði eitt-
hvað síðustu árin var hún alltaf
ótrúlega hress og virtist fljót að ná
sér þótt eitthvað bæri út af.
Dísu leið vel á Hrafnistu og
kunni vel að meta það sem þar var
í boði fyrir heimafólk. Hún var þá
líka í nálægð við Sigrúnu og þær
gátu hist oftar en þegar hún bjó
fyrir vestan. Ég vil með þessum
fáu orðum þakka Dísu góð kynni
og vináttu og við hjónin sendum
fjölskyldu hennar og vinum einlæg-
ar samúðarkveðjur. Minningin lifir
um dugmikla og mæta konu. Guð
blessi minningu Þórdísar Þor-
grímsdóttur.
Þrúður Kristjánsdóttir,
Búðardal.
✝ Magnús ValurÞorsteinsson
fæddist 24. apríl
1937. Hann andaðist
á líknardeild Landa-
kots 4. desember
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Þorsteinn Magnús-
son, kjötmatsmað-
ur, f. 31. október
1901, d. 29. febrúar
1988, og Svanhvít
Magnúsdóttir frá
Vík í Mýrdal, hús-
móðir, f. 25. nóvem-
ber 1908, d. 26. febrúar 1990.
Systir Magnúsar er Erna, f. 28.
apríl 1931. Magnús
ólst upp í Reykholti í
Mosfellshreppi.
Kona Magnúsar er
Súsanna Pálsdóttir.
Hún á þrjú uppkom-
in börn úr fyrra
hjónabandi, þau
eru: Þorfinnur, í
sambúð með Svan-
hildi Ólöfu, Páll og
Júlíus. Barnabörnin
eru Fannar Þór,
Þorfinnur Gústaf,
Karen Mjöll, Pálmi,
Hörður og Ásdís.
Útför Magnúsar fór fram frá
Grafarvogskirkju 14. desember.
Ég fékk í morgun þá dapurlegu
frétt að elsku karlinn hann Mangi
væri búinn að yfirgefa þennan
heim. Það veldur mér sorg að
svona góður maður skuli þurfa að
fara svona snemma á braut. Mangi
hefur reynst mér og mínum mjög
vel. Hann gekk syni mínum í afa-
stað og stóð sig eins og hetja í því
hlutverki. Sennilega hefur hann
verið mikil hetja í sínu daglega lífi
því að enginn heyrði hann kvarta
þó svo að veikindin hafi sjálfsagt
verið til staðar í nokkuð langan
tíma.
Dauðastríð Manga stóð stutt og
það er ljósi punkturinn sem ég
horfi á í dag, að hann þurfti ekki að
þjást lengur.
Elsku Mangi afi. Takk fyrir allt
sem við höfum átt saman að sælda.
Guð geymi þig og eftirlifandi eig-
inkonu þína.
Guð sér um sína einn dag í einu.
Birna Jennadóttir og
Þorfinnur Gústaf Þorfinnsson.
MAGNÚS VALUR
ÞORSTEINSSON