Morgunblaðið - 21.12.2005, Qupperneq 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
SMÁEY ehf., fjárfestingarfélag
í eigu Magnúsar Kristinssonar
útgerðarmanns frá Vest-
mannaeyjum, keypti í gær allt
hlutafé í P. Samúelssyni hf.,
umboðsaðila Toyota og Lexus á
Íslandi, og fasteignir sem til-
heyra rekstri fyrirtækisins.
Kaupverðið er trúnaðarmál.
Magnús tók við stjórnarfor-
mennsku P. Samúelssonar hf. í
gær. Tilkynnt verður um nýja
stjórn félagsins á morgun. Lyk-
ilstjórnendur munu allir halda
áfram störfum hjá félaginu, að
sögn Magnúsar.
P. Samúelsson hf. er stærsta
bílaumboð á Íslandi og starfa
hjá því um 150 manns. Toyota
hefur verið söluhæsta bílateg-
undin hér á landi frá 1990. Páll
Samúelsson, sem stofnaði fyr-
irtækið fyrir 35 árum, sagði að
vissulega væri viss eftirsjá að
fyrirtækinu en allt hefði sitt
upphaf og endi. Hann sagði að
gott orðspor fyrirtækisins og
hve góðum árangri það hefði
náð í markaðsmálum væri það
sem hann væri ánægðastur með
þegar hann liti um öxl.
Magnús Kristinsson sagði að
auðvitað yrðu einhverjar breyt-
ingar með nýjum mönnum, en
þær væru ekki í augsýn næstu
daga. Kvaðst Magnús helst vilja
víkka starfsemi fyrirtækisins út
og styrkja rekstur þess.
Stærsta bílaumboð landsins selt
Morgunblaðið/Golli
Magnús Kristinsson er sestur undir stýri hjá P. Samúelssyni hf. og
Páll Samúelsson kveður fyrirtækið eftir 35 ára starf. Smáey ehf. keypti | Miðopna
HEIMIR Fjeldsted og páfagaukurinn Ólöf Jóna hafa verið óaðskiljanleg
frá þeirra fyrsta fundi og hún fylgir honum hvert sem hann fer, nema í
vinnuna. „Ég hugsa að Ólöf Jóna verði að vera í búrinu sínu á meðan við
borðum jólamatinn, því hún er ekki alveg nógu vel að sér í borðsiðum
ennþá,“ segir Heimir þegar spurt er um jólasiði Ólafar Jónu í Daglegu
lífi í dag. „Það er víst ekki mjög vinsælt að hún sé að spranga á milli
matardiskanna á meðan fólk borðar hátíðarmatinn.“ Á myndinni horfa
afabörnin Daníel Már og Erla Rós hugfangin á Ólöfu Jónu. | 26
Morgunblaðið/Ómar
Fylgjast hugfangin með Ólöfu Jónu
NOKKUR félög háskólamanna eru enn með
lausa samninga við launanefnd sveitarfélaga og
Reykjavíkurborg. Sex félög hafa vísað kjara-
deilunni við borgina til ríkissáttasemjara. Þ.á m.
eru Félag íslenskra fræða, viðskipta- og hag-
fræðingar, Stéttarfélag bókasafns- og upplýs-
ingafræðinga, lögfræðingar og Útgarður – félag
háskólamanna.
Lítið hefur miðað í samkomulagsátt þrátt fyr-
ir fundarhöld að undanförnu. Boðað er til sátta-
fundar á morgun og er allt eins búist við áfram-
haldandi viðræðum á milli jóla og nýárs.
„Það gengur ósköp hægt vegna þess að borg-
in vill koma á starfsmati, sem við viljum ekki,“
segir Halldóra Friðjónsdóttir, formaður BHM.
„Þeir hafa verið að reyna að koma öllum sem
þeir semja við inn í starfsmat. Upphaflega varð
það sérstaklega til að hækka umönnunarstéttir
og kvennastéttir, en starfsmatið sem þeir tóku
upp er ekki hannað fyrir háskólamenntaðar
stéttir og sérfræðinga að okkar mati.“
Skilja vel afstöðu leikskólakennara
Umdeildur kjarasamningur Reykjavíkur-
borgar við Eflingu stéttarfélag og Starfsmanna-
félag Reykjavíkurborgar kom til umræðu á mið-
stjórnarfundi BHM. Þar var samningnum
fagnað og lýst ánægju með að tekist hefði að
hækka laun þeirra sem lökust hafa kjör og um
leið jafna launamun í þjóðfélaginu, bæði kyn-
bundinn og almennan. Kom fram gagnrýni á
viðbrögð stéttarfélaga við kjarasamningum þar
sem, eins og í þessu tilviki, næðist sá árangur að
hækka lægstu laun, skv. upplýsingum Halldóru.
„Við skiljum hins vegar afstöðu leikskóla-
kennara afskaplega vel,“ segir Halldóra og
bendir á að það geti varla verið auðvelt fyrir
leikskólakennara að vera með bundna kjara-
samninga í heilt ár þegar svo háttar til að við
hlið sérmenntaðs leikskólakennara starfar ófag-
lærður starfsmaður með töluvert hærri laun.
„Auðvitað koma þessir samningar til með að
hafa mjög mikil áhrif vegna þess að ef þeir sem
eru á botninum hækka mikið, þá þrýstir það
alltaf upp,“ segir Halldóra ennfremur.
Hægt miðar í viðræðum háskólamanna við Reykjavíkurborg og launanefnd
Sex félög vísa deilunni
til ríkissáttasemjara
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
FRÁ ÁRINU 1996 hefur aðeins tvisvar
verið snjór í Reykjavík á jóladagsmorgun
og hafa jólin verið sjaldnar hvít síðan þá
en árin á undan.
Einar Sveinbjörns-
son, veðurfræðingur á
Veðurstofu Íslands, seg-
ir að samkvæmt snjó-
mælingum Veðurstof-
unnar megi skipta
síðustu fjórum áratug-
um gróflega í þrjú tíma-
bil, en þess má geta að
rauð jól eru samkvæmt
skilgreiningu Veður-
stofunnar þegar snjó-
laust er kl. níu á jóladagsmorgun. „Fram-
an af, frá 1961–1978, var almennt séð
snjólítið í Reykjavík um jólaleytið, það
snjóaði sjaldan og yfirleitt var bara um
smáföl að ræða. Svo kemur snjóatímabil,
frá 1979–1995, þá var oftast hvítt að
morgni jóladags. Frá 1996–2004 hefur síð-
an aftur verið snjólítið á jólum,“ segir Ein-
ar.
Samkvæmt veðurspánni fyrir jólin sem
nú fara senn í hönd eru yfirgnæfandi líkur
á að jólin verði rauð á höfuðborgar-
svæðinu. | 8
Rauð jól æ
algengari
ENGIN skólaböll verða haldin í Mennta-
skólanum við Sund (MS) fram á vor sam-
kvæmt ákvörðun Lögreglustjórans í
Reykjavík. Er það í kjölfar óláta og drykkju
á tveimur böllum í haust. Rektor skólans
telur lögreglu ekki hafa farið að stjórn-
sýslulögum og hefur ritað dómsmálaráð-
herra bréf vegna málsins.
Már Vilhjálmsson, rektor MS, ákvað að
kæra ekki ákvörðunina. Hann segir bannið
viðleitni lögreglu til að berjast gegn ung-
lingadrykkju, sem sé mikil þörf á, þótt deila
megi um aðferðirnar í þessu tilviki. Hann
mótmælti hins vegar bréflega við ráðherra,
og segist vonast til þess að lausn finnist á
fundi sínum með fulltrúum lögreglu á næst-
unni. | 10
Lögreglan
bannar skóla-
böll í MS
♦♦♦
STJÓRN og trúnaðarráð Starfsmanna-
félags Kópavogs skorar á Kópavogsbæ að
draga umboð sitt til launanefndar sveitarfé-
laganna til baka og semja beint við félagið.
Mikill ótti er við að atgervisflótti verði úr
bæjarfélaginu, segir Jófríður Hanna Sig-
fúsdóttir, formaður starfsmannafélagsins.
„Það gefur auga leið að fólk mun hugsa
sér til hreyfings þegar launin í Reykjavík
eru mun hærri en þau eru hjá okkur í Kópa-
vogi,“ segir Jófríður. Í ályktun stjórnar og
trúnaðarráðs félagsins er lýst áhyggjum af
þeim launamuni sem orðinn er á milli félaga
í starfsmannafélaginu og félaga í Starfs-
mannafélagi Reykjavíkurborgar.
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópa-
vogi, segist ekki reikna með því að brugðist
verði sérstaklega við áskorun starfsmanna-
félagsins fyrr en eftir launaráðstefnu sem
launanefnd sveitarfélagana hefur boðað til
20. janúar nk.
Hann segist ekki óttast atgervisflótta.
„Ég vona að það verði ekki, þeir samningar
sem við gerðum við starfsmannafélagið
voru á þeim nótum að þeir lægstlaunuðu
fengu mest, og við vorum stoltir að gera þá
samninga.“
Óttast at-
gervisflótta
úr Kópavogi
♦♦♦