Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 1
● og fær að taka af því myndir
Atli Már Hafsteinsson:
▲
SÍÐA 42
Bankar upp á
hjá fólki
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
FÖSTUDAGUR
TOPPSLAGUR Í KAPLAKRIKA
Einn leikur verður í Landsbankadeild
karla í knattspyrnu í kvöld. FH og Keflavík
eigast við á Kaplakrikavelli og hefst leik-
urinn klukkan 19.15
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
LÍTIL SÓL Í DAG Víðast nokkuð
skýjað.Gæti dropað á Suðurlandi
og það jafnvel náð til höfuðborgar-
svæðisins. Milt í veðri Sjá síðu 6
28. maí 2004 – 145. tölublað – 4. árgangur
ÞINGSTÖRFIN Fjölmiðlalög fá sömu
meðferð og önnur lög sem sett hafa verið
á Alþingi síðustu sextíu ár, segir forsætis-
ráðherra. Tryggja verður að stjórnarand-
staðan fái að tjá sig um málið, neiti forset-
inn að skrifa undir lögin. Sjá síðu 2
HERNES LAUST Vikurflutningaskipið
sem tók niðri á sandhrygg í Þorlákshöfn í
fyrradag rak á varnargarð um kvöldið. Varð-
skip dró það til Hafnarfjarðar þar sem
skemmdir þess voru kannaðar. Sjá síðu 4
STÆKKUN HRINGBRAUTAR Spurn-
ingar hafa vaknað um þörfina á sex akreina
Hringbraut í Vatnsmýrinni. Bæði austan og
vestan nýja kaflans verða flöskuhálsar.
Sjá síðu 6
ORÐ SKULU SVIKIN Formaður smá-
bátaeigenda í Ísafjarðarsýslum segir að sá
viðsnúningur sem orðið hafi á smábáta-
frumvarpi sjávarútvegsráðherra í meðförum
sjávarútvegsnefndar Alþingis hafi verið
ákveðinn fyrir löngu. Sjá síðu 10
2 8 . M A Í T I L 3 . J Ú N Í 2 0 0 4
birta
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
NR. 21 . 2004
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
Erna Gísladóttir:
Doppur ganga aftur
Ótrúlegur árangur í Líkama fyrir lífið
Þurfum að læra að segja nei við börnin
Persónuleikapróf
Nýir umsjónarmenn Hjartsláttar
Hvert á að bjóða nýrri kærustu
– á eigin forsendum
Kona í
karlaheimi
Erna Gísladóttir:
▲
Fylgir Fréttablaðinu dag
Kona í heimi
karla
birta
● hvert á að bjóða elskunni?
36%50%
Kvikmyndir 38
Tónlist 32
Leikhús 32
Myndlist 32
Íþróttir 26
Sjónvarp 40
Eggert Pétursson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Japanskir hnífar
í uppáhaldi
● matur ● tíska ● heimili
Jón Arnþórsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Iðnaðarsafn á
Akureyri
● ferðir ● gisting ● afþreying
Olíurisinn Yukos:
Í þrot
vegna skatta-
skulda
RÚSSLAND, AP Rússneska olíufyrir-
tækið Yukos óttast gjaldþrot eft-
ir að því var gert að greiða sem
svarar til tæplega 250 milljarða
íslenskra króna vegna vangold-
inna skatta. Mikhaíl Khodorkov-
sky, aðaleigandi Yukos, var
handtekinn í Síberíu í október á
síðasta ári vegna gruns um fjár-
svik, undanskot frá skatti og
önnur brot. Ekki hefur enn verið
réttað yfir Khodorkovsky vegna
þessa en búið er að rétta í máli
olíufyrirtækis hans vegna van-
goldinna skatta. Yukos tilkynnti
að það ætti ekki fyrir sektinni
og fátt annað en þrot blasti við
olíurisanum. Allar eignir fyrir-
tækisins hafa verið frystar og
því óhægt um vik að afla fjár
með sölu hlutafjár. ■
HAÍTÍ Óttast er að um 2.000 manns
hafi látið lífið í flóðunum í
Dóminíska lýðveldinu og á Haítí
síðasta mánudag. Um 500 lík hafa
fundist á Haítí og litlu færri í
Dóminíska lýðveldinu. Óttast er
að um 1.000 manns hafi látist í
bænum Mapou á Haítí.
Þriggja metra djúpt vatn
liggur yfir Mapou og þar hafa
þegar fundist 300 lík. „Ástandið
er verst í Mapou vegna þess að
bærinn er allur á kafi í vatni,“
sagði Dave Lapan, höfuðsmaður
í Bandaríkjahers, sem var send-
ur á vettvang með hjálpargögn.
„Við erum líka í kappi við tím-
ann vegna þess að veðrið er að
versna á ný,“ bætti hann við.
Flóðin lögðu þorp víða á Haítí
og í Dóminíska lýðveldinu í rúst.
Náttúruhamfarirnar eru með
þeim mestu sem hafa riðið yfir á
Karíbahafssvæðinu um áratuga-
skeið.
„Fljótið tók allt, það er ekkert
eftir,“ sagði Jermanie Vulsont,
móðir fimm barna sem flóðið bar
á brott með sér í landamærabæn-
um Fond Verrette. ■
M
YN
D
/A
P
RÍKISÚTVARPIÐ Stefnt er að því að
leggja fram frumvarp um
endurskipulagningu Ríkisút-
varpsins fyrir upphaf næsta
þings, að sögn Þorgerðar Katrín-
ar Gunnarsdóttur menntamála-
ráðherra. Hún vill að afnota-
gjöld verði afnumin og þess í
stað tekinn upp nefskattur eða
jafnvel gjöld tengd fasteigna-
grunni.
Gert er ráð fyrir verulegri
breytingu á hlutverki útvarps-
ráð. Líklegt er að íhlutun stjórn-
málaflokka í ráðinu verði af-
numin. Stjórnskipulag RÚV
verður stokkað upp svo það
verði skarpara.
Undirbúningsvinna að frum-
varpinu er þegar hafin og nefnd
sem mun vinna að endurskil-
greiningu hlutverks RÚV mun
taka til starfa á næstunni og
skila skýrslu og frumvarpi í lok
sumars.
„Markmiðið er að skapa skil-
virkari og skarpari stefnu um
RÚV svo meiri sátt náist um
hlutverk stofnunarinnar,“ segir
Þorgerður.
Sérfræðingar í fjölmiðla-
rétti og Evrópulögum sögðu
við Fréttablaðið að skilgreina
þyrfti hlutverk stofnunarinnar,
líkt og ríkisstjórnin hyggist nú
gera. Takmarka yrði jafnframt
þá opinberu fjármögnun sem
þörf væri á svo tryggja mætti
að almenningsútvarpið fengi
sinnt þeim skyldum sem skil-
greindar hafi verið. Þá þyrfti
að meta hversu mikil þörf væri
á þjónustu í almannaþágu og
hvert hlutfall hennar eigi að
vera. Þá yrði að meta hvort
þjónustan feli í sér of mikil
framlög frá ríkinu. Jafnframt
er það talið nauðsynlegt að
halda aðgreindum fjárhag til
verkefna sem flokkast undir
skylduhlutverk RÚV og ann-
arra verkefna.
„Skoðað verður hvernig hægt
sé að skilgreina hlutverk RÚV
svo það geti líka uppfyllt kröfur
og skyldur sem það er undir-
orpið gagnvart almenningi,“
segir Þorgerður Katrín.
Sjá nánar síður 18 og 19.
sda@frettabladid.is
Sífellt fleiri lík finnast eftir flóðin á Hispaníólu:
Óttast að 2.000 hafi látist
Frumvarp um Ríkisútvarp
tilbúið fyrir næsta þing
Stefnt er á að frumvarp um endurskipulagningu RÚV verði lagt fram fyrir haustþing.
Menntamálaráðherra vill leggja niður afnotagjöld og gjörbreyta hlutverki útvarpsráðs, jafnvel
afnema íhlutun stjórnmálaflokka í ráðinu.
ÞAR STÓÐ ÁÐUR BÆR
Eyðileggingin er nær algjör í Fond Verrette.
Þar hafa meira en 250 lík fundist og um
150 manns er enn saknað og þeir taldir af.
RÚSTIR EINAR Palestínskur karlmaður bjargar því sem eftir er af eigum sínum úr rústum húss í Rafah-flóttamannabúðunum á Gaza.
Undanfarnar tvær vikur hafa ísraelskar hersveitir jafnað tugi húsa við jörðu í þeim tilgangi að finna vopn og felustaði Palestínumanna.