Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 78
42 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR
Blaðið inniheldur meðal annarsdagskrá yfir alla atburði sem
eiga sér stað í Reykjavík allt frá
opnun safna til tónleika og
skemmtana,“ segir blaðamaðurinn
Jón Trausti Sigurðarson um
tímaitið Grapevine en fyrsta blað
sumarsins kemur út í dag.
Í þessu fyrsta blaði kennir
ýmissa grasa. „Við fjöllum meðal
annars um Klink og Bank, Jeff
Koons og sýninguna hjá Ragnari
Kjartanssyni í ASÍ safninu. Svo
er Hallgrímur Helgason í forsíðu-
viðtali þar sem hann viðrar skoð-
anir sínar og er að sjálfsögðu
fyndinn og skemmtilegur að
venju,“segir Hilmar Steinn
Grétarsson.
Blaðið er með svipuðu sniði og
í fyrrasumar þegar það var fyrst
gefið út. „Það er sami kjarni blaða-
manna og í fyrra en við settum
upp nokkrar auglýsingar í vor til
að athuga hvort einhverjir útlend-
ingar myndu vilja skrifa í blaðið,“
segir Jón en allt efni blaðsins er að
venju skrifað á ensku.
„Um þrjátíu manns sóttu um og
það sýnir hvað það er mikil þörf
fyrir miðil þar sem útlendingar
geta tjáð sig. Það eru nokkrir
lausapennar hjá blaðinu en við
fastréðum líka breska rithöfund-
inn og blaðamanninn Robert
Jackson. Hann býr hérna með ís-
lenskri konu og hefur meðal
annars unnið að því að skrifa
barnabók með Bubba Morthens.“
Strákarnir segjast hafa lært
mikið af reynslunni frá því í fyrra.
„Nú erum við búnir að selja
stærstan hluta auglýsinganna
fyrir allt sumarið en í fyrra höfð-
um við alltaf bara tvær vikur til að
selja allar auglýsingar í blaðið
sem var algjör geðveiki. Svo erum
við líka komnir með svo gott
dreifikerfi,“ segir Hilmar og Jón
bætir við. „Já, blaðið fer út um alla
landsbyggðina og svo teppaleggj-
um við algjörlega miðbæinn.“ ■
Teppaleggja miðbæinn með Grapevine
■ VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Amund Utne.
Porto frá Portúgal.
Baldur á Bessastaði.
Lárétt:
1 járnbraut, 5 málmur, 6 skammstöfun,
7 hreyfing, 8 arinn, 9 fánýti, lo leit,
12 belta, 13 snák, 15 til, 16 gauf,
18 komist.
Lóðrétt:
1 handbendi, 2 svardaga, 3 öfug röð,
4 starfsheiti, 6 sæti, 8 mar, 11 djöfla,
14 grip, 17 eignast.
Lárétt:1lest,5eir,6sj,7ið,8stó,
9hjóm,10sá,12óla,13orm,15að,
16pauf,18náir.
Lóðrétt:1leiksopp,2eið,3sr,4sjómað-
ur,6stóla,8sjó,11ára,14mun,17fá.
Lausn:
1
5 6
7 8
13 14
16 17
15
18
2 3
11
9
1210
4
notaðir bílarIngvarHelgason
Sævarhöfða 2 · Sími 525 8000 · ih@ih.is · www.ih.is
Komdu í heimsókn til okkar á Sævarhöfða 2
og gerðu góð bílakaup fyrir sumarið.
Sölumenn okkar taka vel á móti þér.
Opið virka daga kl. 9–18 og laugardaga kl. 13–17.
HJÁ INGVARI HELGASYNI
STÓRÚTSALA
Á NOTUÐUM BÍLUM
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
0
9
6
1
3
GRAPEVINE-FÉLAGAR
Þeir Jón Trausti Sigurðarson og Hilmar
Steinn Grétarsson segja mikla þörf fyrir
miðil handa útlendingum.
Atli Már Hafsteinsson er einnaf níu ljósmyndurum frá sex
löndum sem taka þátt í þriggja
ára verkefni Nordic Photographic
Center í Finnlandi. Snýst það um
að taka myndir í sex borgum á
norðurhveli jarðar.
Um er að ræða borgirnar Oulu
og Tornio í Finnlandi, Tromsö í
Noregi, Haparanda í Svíþjóð,
Syktyvkar og Múrmansk í Rúss-
landi og loks Reykjavík, sem er
síðasta borgin sem er mynduð.
Þar eru ljósmyndararnir einmitt
staddir um þessar mundir og fara
þeir af landi brott eftir helgi.
Að sögn Atla Más hefur það
vantað að ljósmyndarar taki
myndir af hefðbundnu lífi á
norðurhveli jarðar en ekki bara af
sérstökum þjóðfélagshópum eins
og Sömum eða Inúítum. Markmið-
ið með verkefninu var að fanga
lífsstíl fólks sem býr í „venjuleg-
um“ borgum, líkt og í Reykjavík
og reyna á sama tíma að veita inn-
sýn í hugarheim þess.
Valdar voru borgir sem hingað
til hafa ekki verið í alfaraleið
ferðamanna en eru ekki síður
mikilvægar en stórborgirnar líkt
og Moskva eða Stokkhólmur. Er
hópurinn til að mynda nýlega
kominn frá Múrmansk, sem þau
segja að hafi verið mögnuð upplif-
un. Túlkuðu ljósmyndararnir síð-
an þemað hver á sinn hátt.
Atli Már, sem er 26 ára og
starfar sem ljósmyndari í lausa-
mennsku, segist hafa sótt um að
fá að taka þátt í verkefninu. Í ljós
kom að hann er eini Íslendingur-
inn sem var valinn.
„Þetta er búið að vera frábært
og þetta er frábær hópur. Við
pössum öll mjög vel saman,“ sagði
Atli í spjalli við Fréttablaðið. „Ég
er búinn að vera að labba um og
banka upp á hjá fólki og taka
myndir af því fyrir utan húsið hjá
sér. Það er mjög misjafnt á milli
landa hvernig fólk tekur slíka ósk.
Ég hef reynt að taka mynd sem
sýnir borgina sem fólkið býr í í
réttu ljósi.“
Á næsta ári verður ljósmynda-
sýning með verkum hópsins hald-
in í Finnlandi. Árið eftir verður
sýningin síðan haldin hér á landi
og fáum við Íslendingar þá tæki-
færi til að skyggnast betur inn í
hugarheim nágrannaþjóða okkar.
Ekki verður síður spennandi að
sjá hvernig ljósmyndararnir frá
þessum mismunandi löndum
túlka viðfangsefni sitt og hvernig
þau sjá hina venjulegu íbúa
þessara landa.
freyr@frettabladid.is
LJÓSMYNDUN
ATLI MÁR HAFSTEINSSON
■ er einn af níu ljósmyndurum sem
hafa undanfarið ár flakkað um sex borgir
á norðurhveli jarðar.
TÍMARIT
REYKJAVÍK GRAPEVINE
■ Skrifa um hvað er að gerast í borginni
á ensku fyrir útlendinga.
Bankar upp á og myndar fólk
Til stendur að opna vínbúð áKirkjubæjarklaustri á næst-
unni. Reksturinn hefur verið boð-
inn út og verður gengið frá samn-
ingum í næstu viku. Talið er víst
að lögregluvarðstjórinn á staðn-
um fái reksturinn í sína umsjón,
en hann á fyrir bæði kaffi- og
öldurhús í bænum. Með þessu má
segja að komið sé á eina hendi
framkvæmda- og vínveitinga-
valdið í bænum og má ef til vill
búast við því að löggæsla verði
öllu skilvirkari þegar varðstjór-
anum er fullkunnugt hverjir
keyptu mest af guðaveigunum og
eru líklegir til afreka undir áhrif-
um þeirra.
Vonandi fer ekkieins fyrir Ást-
þóri Magnússyni
og Snorra
Ásmundssyni, það
er að halda upp á
sigur forsetakosn-
inganna of snem-
ma. Það var ein-
ungis viku eftir að kalla þurfti til
lögreglu að húsakynnum sem
Snorri hefur aðgang að að hann
kvaddi þetta kapphlaup. Málverj-
ar hafa nefnilega í skoðunarkönn-
un á Málefnin.com valið Ástþór
sem sigursælasta frambjóðand-
ann af þeim sem í boði eru. Þó var
einnig hægt að velja um að skila
auðu og sitja heima. Reyndar voru
það ekki nema 112 manns sem
kusu og þar af 44 sem vildu sjá
Ástþór á Bessastöðum. 41 kaus
Ólaf til áframhaldandi setu. ■
■ FÓLK Í FRÉTTUM
ATLI MÁR HAFSTEINSSON
Atli segir að verkefnið hafi verið frábært og
hann hafi kynnst mörgu skemmtilegu fólki.