Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 39
Sauðfé í sögu þjóðar er
heiti sýningar í Sævangi
við Steingrímsfjörð. Þar
er til haga haldið flestu
því sem heyrir til sauð-
fjárrækt í landinu. Hér
er fjárhúsjatan og fleira.
Skrifborð bóndans er
þakið búreikningum og
rollubókum.
[ SAUÐFJÁRSÝNING ]
28. maí 2004 FÖSTUDAGUR 11
Boðið er upp á heimilismat í
huggulegum borðsalnum.
Yngri og eldri skemmta sér í
útreiðartúrunum.
Tölt heim að
Hlíðarenda
„Við byrjuðum 1986 með gistingu í tveimur
herbergjum. Síðan hefur ferðaþjónustan
okkar verið að smá breytast og aukast eins
og svo víða,“ segir Guðný Geirsdóttir, hús-
freyja í Smáratúni í Fljótshlíð. Nú leigir hún
út níu herbergi og einnig átta sumarbústaði
í tveimur stærðum. Allt eru það heilsárshús
með sturtu og sjónvarpi.
Í Smáratúni er búið með nautgripi og hesta
og hestarnir eru leigðir út til lengri og
styttri ferða. „Það fer nokkuð eftir því
hversu fólkið er vant,“ segir Guðný. Stund-
um er riðið að Hlíðarenda og heilsað í and-
anum upp á Gunnar. „Það koma hingað út-
lendingar sem eru svo vel heima í Njálu að
maður skammast sín,“ segir hún og þakkar
Sögusetrinu á Hvolsvelli að hafa aukið
áhuga Íslendinga á þeirri góðu bók. Golf-
völlur er að Hellishólum sem er í tveggja
kílómetra fjarlægð. „Hann er þó ekki á okk-
ar vegum,“ segir Guðný, „en við erum með
veiði í tjörn sem er mjög vinsæl hjá fjöl-
skyldufólki.“ Hún kveðst bjóða upp á morg-
unmat og heimilislegan kvöldverð sem hún
beri á borð í garðhýsi og er auk þess með
stórt útigrill undir torfþaki ætlað fyrir
gesti. „Þar er hellulögð stétt með borðum og
stólum og umhverfið verður mjög róman-
tískt, ekki síst þegar fer að húma. Þá erum
við með lugtir og útikerti. Það er oft svo
lygnt hér í hlíðinni,“ segir hún að lokum.