Fréttablaðið - 28.05.2004, Page 17

Fréttablaðið - 28.05.2004, Page 17
17FÖSTUDAGUR 28. maí 2004  !"      !                              ! "   #    $      % & '(   )  *       +  ,      !  !  "    8    8   A    B  -   !(#&# 1 %   "' $C()*D " +, -   0,+<- =5 8%   $E5    0..   2  4     -  @.A   2    /    C-% 1  FF-   A; =< *.;  : F=< > G:     5  "  $ '()   !  *+  ! , * % -&      !       .  & /     0 1 .  /   3    4    .  -%%         ./,.0.//1 Verkfall: Herinn skaut mót- mælendur LÍBANON, AP Þrír létu lífið og ellefu særðust þegar hermenn skutu á mótmælendur sem brenndu dekk og grýttu hermenn. Mótmælin fylgdu í kjölfar ákalls landssam- taka verkalýðsfélaga sem hvatti fólk til að leggja niður störf til að knýja stjórnvöld til að lækka elds- neytisverð um þriðjung. Embættismenn segja hermenn hafa verið senda á vettvang til að dreifa mótmælendum, þeim hafi verið skipað að skjóta yfir höfuð mótmælenda en hitt einhverja þeirra. ■ JERÚSALEM, AP Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, mun aðeins fara fram á að ríkisstjórn sín sam- þykki fyrsta hluta áætlunar sinn- ar um brotthvarf frá Gaza, þegar áætlunin verður rædd á ríkis- stjórnarfundi um helgina. Samkvæmt nýrri áætlun Shar- ons munu landnemabyggðir á Gaza-svæðinu verða lagðar af og Ísraelsher kallaður á brott í fjór- um áföngum. Í fyrsta áfanganum er gert ráð fyrir að landtökumenn hverfi á brott frá þremur litlum landnemabyggðum. Alls er 21 landnemabyggð á Gaza. Þar sem Sharon hefur gengið illa að vinna fylgi við áætlun sína innan ríkisstjórnarinnar mun hann aðeins óska eftir staðfest- ingu á fyrsta hlutanum. Að sögn ísraelskra embættismanna hefur hann þegar tryggt sér meirihluta- stuðning í ríkisstjórninni við þennan fyrsta áfanga. Meðal þeir- ra sem hafa lýst stuðningi við hann eru Benjamin Netanyahu fjármálaráðherra og Silvan Shalon utanríkismálaráðherra sem áður hafa lýst sig andsnúna öllum brottflutningi frá Gaza. ■ EINMANA RÁÐHERRA Það var ekki fjölmenninu fyrir að fara í kringum Dieter Böhmedorfer dómsmála- ráðherra þegar hann svaraði spurningum í austurríska þinginu. Franskur bæjarstjóri: Bannað að gifta homma FRAKKLAND Saksóknari í suðvest- urhluta Frakklands hefur bann- að bæjarstjóra einum að gefa saman tvo karlmenn. Áður hafði dómsmálaráðherra Frakklands lýst andstöðu sinni við giftinguna og sagt þing- mönnum að hann hygðist óska eftir því við saksóknarann að hann bannaði hana. Noel Mamere, bæjarstjóri í Begles, hafði lýst því yfir að hann myndi gefa mennina sam- an en það yrði fyrsta hjónaband samkynhneigðra í Frakklandi. Bæjarstjórinn segir ekkert í lögum mæla gegn hjónavígslu samkynhneigðra. ■ FANGAMISÞYRMINGAR Yfirheyrslur fanga í Abu Ghraib-fangelsi í Írak og öðrum fangelsum hafa litlum upplýsingum skilað, eftir því sem dagblaðið International Herald Tribune hefur eftir heimilda- mönnum í Bandaríkjaher. Blaðið vitnar enn fremur í skýrslu sem tekin var saman af hálfu Banda- ríkjahers en þar kemur fram að misþyrmingar á föngum hafa ver- ið útbreiddari en áður var þekkt. Mikil áhersla var lögð á að yfirheyra fanga sem voru taldir búa yfir mikilvægum upplýsing- um. Eftir að hafa farið yfir upp- lýsingar sem fengust upp úr föng- um við handtöku annars vegar og hins vegar við yfirheyrslur í Abu Ghraib, sem tóku oftast nokkra mánuði, komust viðmælendur blaðsins að þeirri niðurstöðu að þær síðarnefndu skiluðu litlum árangri. Skýrsla hersins er samantekt á atvikum sem áttu sér stað frá 15. apríl í fyrra þar til í síðasta mán- uði. Þeirra á meðal eru áður óþekkt dæmi um misþyrmingar, kæfingar og kynferðislegt of- beldi. Að auki er fjallað um andlát háttsetts herforingja í Íraksher sem lést eftir að hafa verið beitt- ur ofbeldi. ■ Efasemdir um gagnsemi harkalegra yfirheyrsluaðferða: Aðferðir skiluðu litlum árangri MÓTMÆLT VIÐ ABU GHRAIB George W. Bush Bandaríkjaforseti vill ljúka vandamálinu með því að rífa fangelsið. Írakar segja það misráðið þar sem þá þyrfti að verja fé í að byggja annað í staðinn. Sharon óskar aðeins samþykkis á hluta áætlunar sinnar: Frá Gaza í litlum skömmtum VOPNABRÆÐUR FAÐMAST Sharon vígði nýlega minnisvarða um fallna hermenn. Þar var staddur gamall vopna- bróðir sem bjargaði lífi Sharons á sínum tíma.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.