Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 4
4 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR Fara hvalaskoðun og hvalveiðar saman? Spurning dagsins í dag: Á að heimila tryggingafélagi að eiga apótek? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 31% 69% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Þinginu líklegast frestað eftir daginn: Mikilvæg mál bíða haustsins ALÞINGI Einar Kristinn Guðfinns- son, þingflokksformaður Sjálf- stæðisflokksins, segir alla vinnu miða að því að þinginu ljúki um helgina. „Það tekst ekki nema með góðu samstarfi meirihluta og minnihluta í þinginu og mér hefur fundist vera fullur vilji hjá báðum aðilum að það takist,“ segir Einar. Hjálmar Árnason, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins, tók undir orð Einars og sagði þreifingarnar miða að því. „Það geta þó alltaf orðið kvikuhlaup,“ segir Hjálmar. Hann vildi ekki nefna eitt mál umfram annað sem bíða ætti haustsins. Öll mál væru mikilvæg og bæri að ræða. Kristján Möller, þingflokksfor- maður Samfylkingar, sagði að á fundi þingflokksformanna um eittleytið hafi mest mætt á svokölluðu gjafsóknarmáli. „Þetta er svo tvísýnt. Þetta getur allt far- ið á kolrangan veg,“ segir Krist- ján. ■ Hernes rak á varnargarð Vikurflutningaskipið sem tók niðri á sandhrygg í Þorlákshöfn í fyrradag rak á varnargarð um kvöldið. Varðskip dró það til Hafnarfjarðar þar sem skemmdir þess voru kannaðar. Útgerðin metur stöðina að því loknu. STRAND „Það eina sem er víst er að fjárhagslegt tjón verður mikið, en ég get ekki nefnt neina tölu eins og er. Það verður að bíða og sjá hversu miklar skemmdirnar eru,“ segir Guðmundur Ásgeirsson, stjórnarformaður Nesskipa, sem gerir vikurflutningaskipið Hernes út. Verr gekk en vonast var til að draga skipið af strand- stað í fyrrakvöld. Þegar leið á kvöldið jókst sjó- gangur sem ýtti skipinu á varn- argarð sem ver- ið er að reisa við innsiglinguna, með þeim afleið- ingum að stýri þess laskaðist. Áhöfnin var aldrei talin í hættu en þyrla Landhelgisgæsl- unnar var í við- bragðsstöðu. Varðskipið Týr kom á svæðið á níunda tímanum í fyrrakvöld, en lóðsari frá Vest- manneyjum freistaði þess að draga Hernes af sandhryggnum sem það tók niðri á. Þegar ljóst varð að það myndi ekki takast og skipið fór að færast í átt að varn- argarðinum var óskað eftir hjálp frá varðskipinu, sem kom tóg um borð í Hernes og losaði það stuttu fyrir miðnætti. Týr dró svo skipið áleiðis til Hafnarfjarðar, en þang- að kom það um þrjúleytið í gær. Þar kannaði kafari skemmdir á stýri, skrokk og skrúfu. Guðmundur sagðist mundu skoða ýmsa möguleika í stöðunni. „Einn kosturinn er að láta draga skipið með farminn til Álaborgar, en það hefur engin ákvörðun ver- ið tekin með það. Við sjáum til hvaða skemmdir koma í ljós,“ Verði að draga skipið í slipp er ljóst að það þarf að tæma 5.000 tonna vikurfarminn úr því fyrst. Ekki var lokið við að kanna skemmdirnar þegar blaðið fór í prentun í gærkvöldi. bergsteinn@frettabladid Ályktun um Írak: Verulegra bóta þörf GVATEMALA, AP Jacques Chirac Frakklandsforseti segir verulegra bóta þörf á ályktunartillögu Breta og Bandaríkjamanna áður en hægt sé að samþykkja hana. Frakklandsforseti segir að ekki sé nóg gert til að trygga að fullveldi Íraks verði í höndum heimamanna eftir valdaskiptin sem fyrirhuguð eru eftir rúman mánuð, 30. júní. Chirac sagði tillögur Bandaríkja- manna og Breta góðra gjalda verð- ar. hins vegar þyrfti meira að gera til að tryggja að Írakar réðu sjálfir yfir auðlindum sínum og öryggis- málum. ■ SPRENGIEFNIÐ Sprengiefnið sem fannst, breitt út á bíl- húddi. Nató-fundur: Sprengiefni í nágrenni SLÓVAKÍA Lögreglumenn fundu tvo poka með hálfu kílói af sprengiefn- um í miðborg Bratislava, nærri staðnum þar sem um 300 þingmenn aðildarríkja Atlantshafsbandalags- ins koma til fundar í dag. Þeirra á meðal eru þeir Einar Oddur Krist- jánsson, Guðmundur Árni Stefáns- son og Magnús Stefánsson fyrir Ís- lands hönd. Talsmaður slóvakíska innanrík- isráðuneytisins sagði að sprengi- efnið hefði ekki getað sprungið eins en svaraði því ekki hvort sprengi- efnin tengdust Nató-fundinum. Hann sagði aðeins að öryggi fund- arins væri tryggt. ■ LEITAÐ AÐ CIRILLO Þegar Cirillo skilaði sér ekki heim dreifði kona hans miðum og auglýsti eftir honum. Frambjóðandi myrtur: Afhöfðaður ÍTALÍA, AP Rúmlega fertugur karl- maður fannst hálshöggvinn í Pompei í suðurhluta Ítalíu tveim- ur dögum eftir að hann hvarf. Maðurinn, Carlo Cirillo, var í framboði til bæjarstjórnar Pompei en ekki er vitað til þess að morðið á honum tengist framboði hans eða skipulögðum glæpasam- tökum. Camorramafían hefur mikil ítök á þessum slóðum. Cirillo hvarf á leið til vinnu á þriðjudag. Þegar lík hans fannst var búið að höggva höfuðið af, að því er virtist með exi. ■ ■ EVRÓPA MANNSKÆTT UMFERÐARSLYS Átta létust og ellefu særðust þeg- ar farþegarúta lenti á flutninga- bíl á hraðbraut fyrir utan Moskvu þegar bílstjórinn reyndi að forðast að aka á bíl sem kom á móti rútunni. Þeir látnu voru leikmenn knattspyrnuliðs sem lék í rússnesku annarri deildinni á síðasta ári en var ekki skráð til keppni í ár. SÝKNAÐUR OG DÆMDUR Franskur grínisti var í gær sýkn- aður af ákæru um að níða gyð- inga í atriði þar sem hann klæddi sig í búning bókstafstrúaðs gyð- ings og heilsaði með nasista- kveðju. Daginn áður var hann dæmdur til sektargreiðslu fyrir að segja gyðinga hafa keypt sér áhrif í fjölmiðlum. Hæstiréttur mildar dóm Héraðsdóms yfir tveimur lögregluþjónum: Annar sýknaður DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi lög- reglumanninn Þórjón Pétur Pét- ursson í tveggja mánaða skilorðs- bundið fangelsi í gær. Þórjón var sakfelldur fyrir ólöglega hand- töku og ranga skýrslugerð henni tengdri og sömuleiðis fyrir notk- un úðavopns án tilefnis. Atvikin áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur nótt eina á síðasta ári. Samstarfsmaður Þórjóns, Þórir Marínó Sigurðsson, var sýknaður af öllum ákæruliðum. Héraðsdómur hafði áður dæmt mennina í fimm og tveggja mán- aða fangelsi. „Ég tel að Hæstiréttur hafi komist að réttri niðurstöðu,“ segir Helgi Jóhannesson, verjandi Þór- is Marínós. „Ef niðurstaða héraðs- dóms hefði verið staðfest hefði það haft mjög alvarlegar afleið- ingar fyrir lögregluna.“ Þórjón varðist allra fregna af dómnum en Þórunn Guðmundsdóttir, verjandi hans, segir gleðilegt að hann hafi verið sýknaður af nokkrum ákæruliðum. „Ég hefði þó viljað sjá sýknun af öllum ákæruliðum. Þetta gerist í villtum dansi í næt- urlífi Reykjavíkur þar sem ákveða þarf á sekúndubroti hvort handtaka á að eiga sér stað.“ ■ HERNESIÐ VIÐ VARNARGARÐINN Skipsstýrið laskaðist þegar það rakst á varnargarðinn. ALÞINGI Þegar blaðið fór í prentun sátu þingflokks- formenn á fundi og reyndu að semja um hvaða mál bæri að afgreiða og hver skyldu bíða til haustsins. Stjórnarandstaðan vill helst sjá frumvörp um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, einkamálalög og þjóðlendulög bíða haustsins. DÓMURINN SKOÐAÐUR Þórjón Pétur Pétursson skoðar dóminn með verjanda sínum, Þórunni Guðmundsdóttur. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA ■ EVRÓPA DENKTASH HAFNAÐ Bandaríkjastjórn segist ekki munu ræða við Rauf Denktash, forseta Kýpur-Tyrkja, heldur for- sætisráðherrann Mehmet Ali Talat þegar kemur að því að reyna að sameina eyjuna. Denktash fordæmdi þetta og sagði Bandaríkjamenn hegða sér eins og kúreka. FRAMSELDUR Þýska lögreglan leitar nú Muhammed Metin Kaplan, sem dómstólar hafa heimilað að verði framseldur til Tyrklands þar sem hann er sakaður um þjóðráð og að skipuleggja skemmdarverk. Þegar átti að sækja hann og flyt- ja úr landi var hann horfinn. VIÐ HÖFNINA Í HAFNARFIRÐI Kanna á skemmdir skipsins og mun út- gerðin ákveða hvað eigi að gera í kjölfarið. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. „Einn kost- urinn í stöð- unni er að láta draga skipið með farminn til Álaborgar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.