Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 30
„Ég hef áhuga á að bjóða upp á nokkurs konar alpagönguferðir hér í nálægum fjöllum,“ segir Ein- ar Rúnar Sigurðsson, fjallaleið- sögumaður Öræfaferða í tíu ár. Hann hefur uppfyllt draum margra um að komast á hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk, „og niður aftur sem er enn mikilvæg- ara,“ svo notuð séu orð hans. Auk þess aðstoðar hann föður sinn við að keyra fólk í Ingólfshöfða á dráttarvél. Einar býður upp á tveggja daga ísklifurnámskeið, styttri ferðir á broddum á skrið- jöklum Öræfa, gönguskíðaferðir á Vatnajökli og nú hyggst hann bæta við flóruna meira krefjandi fjalla- ferðum. „Það sem ég er með í huga eru enn tilkomumeiri leiðir á Hvanna- dalshnúk en þær sem oftast eru farnar, auk ferða á Þverártinds- egg og Hrútsfjallstinda svo eitth- vað sé nefnt,“ segir hann. Sjálfur er hann ný-kominn af námskeiði hjá nýsjálenskum fjallagarpi þar sem hann lærði á þá tækni sem nefna má stuttvaðstækni (short roping) og hentar best til að tryggja öryggi tveggja viðskipta- vina í senn í fjalllendi. Segir hann hana mikið notaða í Ölpunum og víðar en hafa lítið tíðkast á Íslandi. „Hún gerir manni kleift að fara með fólk áhættusamari leiðir en áður og felst auðvitað fyrst og fremst í því að tryggja öryggi viðskiptavinarins fullkomlega,“ segir hann. En býst hann við eftir- spurn eftir svona ferðum? „Já, ég hef oft verið spurður eftir þeim í gegn um árin. Margir útlendingar þekkja þær og ég veit að það kemur líka að Íslendingum,” svarar hann og hefur augu sín til fjallanna. 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR2 ÍSLANDSHANDBÓKIN – náttúra, saga og sérkenni Dýrmæt leiðsögn um landið, 3000 staðir í byggðum og óbyggðum. Tvö bindi í öskju, 1000 bls., 1300 litmyndir. Efninu er skipt eftir sýslum. Sýslukort með öllum þeim stöðum sem fjallað er um. Allar helstu hálendisleiðir. Súðarvogi 48, Kænuvogsmegin, sími 588 2013 Einsta kt sumart ilboð! Fimmþ úsund króna afsláttu r 9.900. - í stað 14.90 0.- Sólstöðuganga JC Vestfjarða 2004 Laugardaginn 26. júní n.k. er hin árlega sólstöðuganga JC Vestfjarða. Að þessu sinni er förinni heitið á Folafót í Ísafjarðardjúpi. Barði Ingibjartsson fræðir göngufólk um staðhætti og örnefni á leiðinni. Frá Folafæti verður fylgst með sólarlaginu í einstakri náttúrufegurð við Ísafjarðar- djúp. Einnig verður tendraður varðeldur og sungið við gítarleik. Verð krónur 2000 Skráning og nánari upplýsingar hjá Sigríði Sigþórsdóttur í síma 893-1769 Netfang: siggasigt@simnet.is ÚTIVISTARVÖRUR HAFNARBÚÐIN ÍSAFIRÐI Öræfi og Suðursveit: Alpagönguferðir á Íslandi 1 2 3 4 1. Fjallaleiðsögumennirnir Guðjón Marteinsson og Jón Gauti Jónsson í Alpalands- lagi Suðursveitar. 2. Í hæstu hæðum. 3. Einar í hlíðum Öræfajökuls. 4. Á leið af Þverártindsegg niður í Kálfafellsdal.  [ EYJAFJÖLL ] Í friðsælum fjallasal að Seljavöllum undir Eyjafjöllum er ein af snotrum sundlaugum þessa lands. Þar í kring þykir mörgum gott að tjalda og auk þess er Hótel Edinborg skammt undan. M YN D IR : E IN AR R Ú N AR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.