Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 32
28. maí 2004 FÖSTUDAGUR4 Kárahnjúkar: Sandfell og Urgur góðir útsýnisstaðir „Við viljum gera almenningi kleift að komast inn að Kárahnjúkum fyrirhafnarlítið og njóta þess að sam- eina náttúruskoðun á svæðinu og kynnast fram- kvæmdunum,“ segir Þorsteinn Hilmarsson, upp- lýsingafulltrúi Landsvirkjunar. Í Végarði, félagsheimili Fljótsdælinga, hefur fyrir- tækið sett upp sýningu um framkvæmdirnar og ferðamöguleikana og fyrir þremur árum gaf það út kort af svæðinu fyrir ferðamenn, „í samvinnu við fjölmarga fróðleiksmenn á svæðinu,“ eins og Þor- steinn orðar það. Kortið er til sölu á ensku og ís- lensku. Þorsteinn nefnir líka útsýnisstaði með upp- lýsingaskiltum sem Landsvirkjun hefur látið gera, meðal annars undir Múlanum í Fljótsdal, gegnt væntanlegu stöðvarhúsi. „Af Sandfelli er besta út- sýnið yfir stíflugerðina og við erum að útbúa fleiri útsýnisstaði þar í kring,“ segir hann. Á leiðinni inn að Kárahjúkum á svæði sem heitir Urgur og er upp af Hrafnkelsdalnum er útskot í nýja veginum. Í góðu veðri blasir allt lónsstæðið við, frá jökli niður að Kárahnjúkum, þaðan sést til Kringilsárrana, Kverk- fjalla og Herðubreiðar. „Þetta er einstaklega góður staður til að gera sér grein fyrir þessum víðernum öllum,“ segir Þorsteinn. Hann segir ýmsa ferða- þjónustuaðila með skipulagðar ferðir um svæðið og með malbikun vegarins hafi leiðin orðið greið öllum bílum úr Fljótsdal. „Auðvitað eru stórir trukkar á ferð og fólk verður að fara með gætni og varast að fara inn á framkvæmdasvæðið sjálft. Stór skilti sýna hvar umferð almennings er bönnuð og mikilvægt er að fólk virði þær reglur,“ segir Þorsteinn og bætir við: „því vissulega eru þarna hættur“. [ BYGGÐASAFN HAFNARFJARÐAR ] Byggðasafn Hafnarfjarðar hefur flutt alla sýningastarf- semi sína í Pakkhúsið að Vest- urgötu 8. Það mun hýsa þrjár nýjar sýningar í sumar og verða þær opnaðar þann 5. júní. Sú stærsta er sögu- sýningin „Þannig var...“ þar sem saga Hafnarfjarðar er rakin frá landnámi til okkar daga með aðstoð sagnfræði- legra texta, ljósmynda, teikn- inga og fjölda muna er glæða söguna lífi. Meðal annars má lesa um jólin sem hurfu Hafn- firðingum, handknattleiks- leikinn sem aldrei lauk, hvernig menn fengu borgað í brennivíni og hvers vegna Reykvíkingar flykktust til Hafnarfjarðar í bíó. Á efstu hæð hússins hefur verið sett upp sérstök sýning fyrir börn, um börn og barna- menningu. Á safninu er varð- veitt eitt stærsta leikfanga- safn landsins og það verður kjölfestan í þessari sýningu. Í þriðja lagi er ljósmyndasýn- ing sem birtir fjölmargar gamlar myndir af Hafnarfirði og Hafnfirðingum. [ HORNAFJÖRÐUR ] Í Árnanesi í Hornafirði er ferðaþjónusta þar sem boðið er upp á gistingu í herbergjum og smáhýsum og hestar leigðir út til styttri reið- túra. Í Árnanesi búa Ásmundur Gíslason og Helga Erlendsdóttir, listakona. Hún er ein- mitt að opna málverka- sýningu í veitingasal heimilisins nú á laugar- daginn, hinn 29. maí. Tröllaukið landslag sem tekur stöðugum breytingum. RATLEIKUR Í HAFNARFIRÐI Gamlar þjóðleiðir í öndvegi Ratleikur Hafnarfjarðar hefur nú verið lagður í níunda skipti og er hægt að nálgast rat- leikskortið í þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6. Leikurinn er auðveldur og skemmtilegur útivistarleikur sem stendur í allt sumar. Leit- að er að merkjum á stöðum sem merktir eru á rat- leikskortið. Ekki er um kapp- hlaup við tímann að ræða og margir kjósa að krydda göngu- ferðir fjölskyldunnar með þessum skemmtilega leik. Að þessu sinni er ratleiknum fundinn staður í námunda við gamlar þjóðleiðir og göngu- slóða í nágrenni Hafnarfjarð- ar. Jónatan Garðarsson, hefur um langt skeið safnað fróðleik um minjar frá fyrri tíð sem margar hverjar eru að hverfa. Með ratleikskortinu fylgja nú leiðarlýsingar Jónatans um gamlar þjóðleiðir og einnig fróðleiksmolar um áhuga- verðar minjar í námunda við felustaði ratleiksmerkjanna. M YN D : S IG FI N N U R SN O RR AS O N Þrjár sýningar í sama húsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.