Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 40
28. maí 2004 FÖSTUDAGUR12
Skriðuklaustur:
Hefur yfir sér höfðingjasvip
Alþjóðlega listsýningin Fantasy Island verður opnuð á Skriðuklaustri í
Fljótsdal nú á sunnudaginn og stendur til 25. júní. Þá tekur við sýning-
in Að sigra heiminn, til minningar um þá Gunnar Gunnarsson skáld og
Svavar Guðnason listmálara, og í framhaldi af henni Íslensk grafík –
sýning á samtímalist.
Stofnun Gunnars Gunnarssonar rekur menningar- og fræðasetur í húsi
skáldsins á Skriðuklaustri. Þar dvelja fræði- og listamenn við andlega
iðkun og sýningar sem aðrir viðburðir eru fastur liður í starfseminni.
Húsið sjálft hefur yfir sér höfðingjasvip enda byggt sem evrópskur
herragarður árið 1939 eftir teikningum þýska arkitektsins Fritz J.F.
Höger. Munnur og magi gleymast ekki heldur á þessum stað því kaffi-
hlaðborð og réttir af ýmsu tagi eru þar á boðstólum.
Fornleifauppgröftur hefur staðið yfir á Skriðuklaustri síðustu sumur
og heldur áfram í ár. Verið er að rannsaka rústir klaustursins sem
þarna stóð á tímabilinu 1493–1552 og að sögn Skúla Björns Gunnarsson-
ar forstöðumanns hafa margir ferðamenn gaman af að fylgjast með því
starfi. Opið er á Skriðuklaustri alla daga kl. 10–18.
Skriðuklaustur er ör-
stutt frá veginum upp í
Kárahnjúka.
Veitinga notið á sól-
sólríkum degi við hús
skáldsins.
M
YN
D
: S
IG
U
RÐ
U
R
ST
EF
ÁN
J
Ó
N
SS
O
N
Svava er mikil matmóðir, rétt
eins og Þóra í Langaholti var
fyrir þúsund árum
Langaholt stendur undir nafni.
Langaholt á Snæfellsnesi:
Fjaran, jökullinn og fólkið laðar að
Landnámabók greinir frá húsfreyjunni Þóru í
Langaholti á Snæfellsnesi sem reisti skála um þjóð-
braut þvera og veitti beina ferðamönnum. Nú,
þúsund árum síðar, er Langaholt líka viðkomustað-
staður margra. Þar er gisting, golfvöllur, tjald-
stæði og veitingasala og þaðan ber jökulinn við loft.
„Símon, eiginmaður minn, telur að ég komist bara
með tærnar þar sem Þóra var með hælana,“ segir
húsfreyjan, Svava Guðmundsdóttir, sposk á svip og
heldur áfram. „Þóra laðaði að gesti og var afskap-
lega góð matmóðir. En vegna mannkvæmdar gafst
karl hennar upp og fór. Hann var svo leiður á túr-
istunum. Það er Símon hins vegar ekki. Sumir halda
að Þóra hafi verið lauslát en Jón Böðvarsson telur
hana hafa bara verið svona gestrisna. Hún er okkur
örugglega til aðstoðar við reksturinn.“
Byrjuðu með eitt herbergi
Svava og maður hennar, Símon Sigurmonsson, búa
að Görðum, ættaróðali Símonar. Voru með hefð-
bundinn búskap en hófu ferðaþjónustu árið 1978. Í
smáum stíl fyrst. Svava lýsir því: „Við byrjuðum
með gistingu í einu herbergi inni á heimilinu en okk-
ur þótti þetta gaman og þegar aðrir fóru að byggja
yfir loðdýr til að redda búskapnum þá byggðum við
„vesturálmuna“ eins og við kölluðum Langaholt
fyrst. Vorið 1985 komu fyrstu gestirnir í nýja húsið,
við hættum með fjárbúskap haustið 86, byggðum
viðbót við Langaholt og höfum verið að smá bæta
við þannig að nú erum við komin með 12 herbergi
með baði og getum tekið 40 í uppbúin rúm.
Í sama bás og síðast
Enn eru framkvæmdir í gangi. Nú er verið að
stækka matsalinn. „Við bjóðum upp á morgunmat
og kvöldmat og súpu í hádeginu ef fólk vill. En
veitingar þarf að panta fyrirfram,“ segir Svava.
Gestir í Langaholti geta líka eldað sjálfir í sérstöku
eldhúsi eða grillað á pallinum, setið móti kvöld-
sólinni með útsýni til jökulsins.
Tjaldstæðið er niðri á bökkunum. Þar eru bollar og
básar og Svava segir sama fólkið koma aftur og
aftur til að tjalda. Helst í sama bás og síðast.
„Krakkarnir elska að leika sér í fjörunni og hér er
mikið fuglalíf sem gaman er að fylgjast með. Elsti
strákurinn er með níu holu golfvöll á túninu, svo er
veiði í vötnum í kring, hestaleiga á Lýsuhóli, í
nokkurra kílómetra fjarlægð og þar er heitt öl-
kelduvatn í sundlaug.“ Svava segir lífið snúast
mikið um ferðamenn á Snæfellsnesi. Hún telur upp
fleiri vinsæla gististaði í næsta nágrenni: Hof, Ytri
-Tungu, Lýsuhól, Hótel Búðir, Snjófell á Arnarsta-
pa, Brekkubæ og Gíslabæ á Hellnum. „Allt styður
hvað annað og fólk veit að því er óhætt að koma á
nesið. Það fær einhvers staðar gistingu,“ segir hún
að lokum.
M
YN
D
: G
U
N
N
ÞÓ
RA