Fréttablaðið - 28.05.2004, Page 47
Áætlun Herjólfs Brottfarartímar
Nánari upplýsingar er að finna á www.herjolfur.is
og á síðu 415 í Textavarpi RÚV, auk þess sem
upplýsingar eru veittar í síma 481-2800.
ar
gu
s
–
0
4-
03
09
Sumar 1.5.–31.8.
Sun.–fös. 8.15 / 16.00 12.00 / 19.30
Lau. 8.15 12.00
Frá Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn
AUSTURLAND
Dagpassi í söfnin,
sundið og ræktina
„Þetta hús verður þungamiðja
í afþreyingu ferðamanna hér
í plássinu með þrjú vegleg
söfn og veitingastofu,“ segir
Pétur Sörenson ljósmyndari
og bendir á bárujárnsklætt
timburhús á þremur hæðum í
hjarta Neskaupstaðar, nánar
tiltekið Egilsbraut 2. Pétur er
yfirmaður safna á Austur-
landi og er kátur því verið er
að opna tvær neðri hæðirnar í
þessu herlega húsi. Þar njóta
málverk Tryggva Ólafssonar
sín vel á annarri hæðinni og
Sjóminja- og smiðjumunasafn
Jósafats Hinrikssonar á hinni.
Meiningin er svo að Náttúru-
gripasafn Neskaupstaðar
flytji upp á þá þriðju í fram-
tíðinni. Umhverfið er ekta því
beint fram af húsinu er
bryggja. Pétur segir fleira
gott fyrir ferðamenn í Fjarða-
byggð. „Hér er sund og golf
og frí tjaldstæði alls staðar. Í
sumar erum við líka með dag-
passa fyrir söfnin sem auk
þessara nýju safna eru
Náttúrugripasafnið í Nes-
kaupstað, Stríðsárasafnið á
Reyðarfirði og Sjóminjasafn
Austurlands á Eskifirði. Pass-
inn kostar 500 kall og gildir í
öll söfnin, sundið og líkams-
ræktarstöðvarnar. Þannig að
þetta er gott tækifæri.“