Fréttablaðið - 28.05.2004, Qupperneq 60
Þrefalt afmæli í fjölskyldunni
Það háttar þannig til í minnifjölskyldu að ég á afmæli í
dag, konan mín, Birna Pálsdóttir,
á sunnudaginn og yngsti sonur-
inn, Snorri, 1. júní,“ segir Helgi
Pétursson. Helgi hefur komið
víða við, þó svo flestir muni eftir
honum sem einn þriggja meðlima
Ríó tríósins en nú starfar hann
sem sérfræðingur hjá kynningar-
deild Orkuveitu Reykjavíkur.
Afmælisbarn dagsins er 55
ára í dag þannig að um hálfgert
stórafmæli er að ræða. „Þar sem
afmælisdaga þriggja fjölskyldu-
meðlima ber upp um sama leyti
hefur þetta orðið sameiginleg
stórhátíð, þó svo fókusinn hafi
oftast verið á syninum. Það er þó
sérstök ástæða til þess núna þar
sem hann er einnig að útskrifast
sem stúdent. Því munum við slá
þessu saman í eitt allsherjar húll-
umhæ með fjölskyldu og vinum.“
Það er því við því að búast að
mikill fögnuður verði á heimili
Helga þessa hvítasunnuhelgi.
Helgi segir meiri fyrirhöfn
fylgja afmælisdeginum þegar
tilefnið er þrefalt tilefni. „Ætli
við gerum ekki meira úr afmæl-
isdögunum þar sem þeir liggja
allir saman,“ segir Helgi.
Aðspurður um eftirminnileg-
an afmælisdag segir Helgi brúð-
kaupsdag þeirra hjóna vera efst á
blaði. „Það var mjög eftirminni-
legt og fallegt brúðkaup fyrir 27
árum. Við giftum okkur á afmæl-
isdegi mínum í Kópavogskirkju,
þar sem ég á gamlar rætur þang-
að en kona mín er Hlíðabúi og við
fórum því bil beggja í því máli.
Síðan héldum við klassíska og
fína veislu heima hjá tengdafor-
eldrum mínum.“ Það má því með
sanni segja að það sé margfalt til-
efni til hátíðarhalda hjá Helga
þessa dagana. ■
Höfuðborg Eþíópíu, AddisAbaba, féll til uppreisnar-
manna fyrir þrettán árum. Sigur-
inn markaði endalok sautján ára
stjórnartíma marxista í landinu.
Árið 1974 voru völdin tekin af
Haile Selassie með uppreisn hers-
ins, en hann hafði verið við stjórn
frá 1930. Nýir stjórnendur sem
komust til valda með hervaldi
drápu þúsundir pólitískra and-
stæðinga og lýstu sig hliðholla
Sovétríkjunum. Áttundi áratugur-
inn markaðist svo af stríði gegn
Sómalíu og miklum þurrkum sem
leiddi til hungursneyðar. Vegna
þessa ófremdarástands varð mikil
ólga meðal Eþíóbíubúa sem ýtti
meðal annars undir sjálfstæðis-
kröfu íbúa í Eritreu og Tígre.
Snemma árið 1991, náði and-
spyrnihópurinn EPRDF undir for-
ystu Meles Zenawi árangri með
baráttu sinni fyrir lýðræði í land-
inu. Þeir sigruðu herinn og ein-
ræðisherrann Haile Mariam
Mengistu flúði land. Á þessum
degi fyrir 13 árum komu skrið-
drekar EPRDF inn í Addis Ababa
óvænt. Fljótlega komust þeir til
valda og ný stjórn var mynduð
með Meles Zenawi sem forseta. Í
júlí sama ár voru gerð drög að
uppbyggingu lýðræðisríkis og
gekk það eftir. ■
■ ÞETTA GERÐIST
HAILE SELASSIE
Réð ríkjum í Eþíópíu1930-1974, þegar
marxistar undir stjórn Mengistu gerðu
uppreisn.
24 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR
■ ANDLÁT
■ AFMÆLI
28. MAÍ 1991
EÞÍÓPÍA
■ Addis Ababa fellur í hendur
uppreisnarmanna.
AFMÆLI
HELGI PÉTURSSON
■ er 55 ára í dag. Það er margfalt tilefni
til hátíðarhalda hjá honum þessa dagana.
KYLIE MINOGUE
Söngkonan er 36 ára í dag. Hún byrjaði
feril sinn í áströlsku sápuóperunni Ná-
grönnum en gaf út fyrstu smáskífuna sína
árið 1988 og sló strax í gegn.
28. MAÍ
Íþessum mánuði eru hundrað ársíðan Hjálpræðisherinn hóf form-
legt starf á Akureyri. Hefur starfs-
emin haldist óslitin allan þennan
tíma.
Af þessu tilefni var haldin afmæl-
ishátíð á Akureyri um síðustu helgi.
Gospelkór kom fram skipaður ungu
fólki sem hefur sótt fundi og sér-
stakir gestir voru Anne Marie og
Harold Reinholdtsen, yfirforingjar
Hjálpræðishersins á Íslandi og fyrr-
um flokksstjórar á Akureyri. Auk
þeirra mætti Miriam Fredriksen, að-
alritari Hjálpræðishersins í Noregi,
Íslandi og Færeyjum.
Að sögn Rannveigar Óskarsdótt-
ir, flokksstjóra Hjálpræðishersins,
gekk afmælishátíðin ljómandi vel og
mættu 200-300 manns til að fagna
tímamótunum. Um kvöldið var síðan
haldin veisla og sóttu hana rúmlega
eitt hundrað manns. „Starfið hjá okk-
ur er mjög blómlegt. Vikulega eru
um hundrað börn og unglingar sem
fara hérna inn og út um salinn,“
sagði Rannveig. „Svo er fullorðins-
starfið líka gott.“
Hjálpræðisherinn á Akureyri rak
um tíma gesta- og sjómannaheimili í
Laxamýri við Strandgötu og hefur í
áratugi staðið fyrir peningasöfnun
fyrir jólin fyrir þá sem minna mega
sín. Megináhersla hans hefur samt
allt tíð verið boðun fagnaðarerindis
Jesú Krists, bæði fyrir börn og full-
orðna.
Um helgina verður síðan haldið
ársþing Hjálpræðishersins í Reykja-
vík. Þangað koma hópar frá Dan-
mörku, Færeyjum og Noregi. Lúðra-
sveitir munu spila og gospelkórar
syngja. Aðalsamkoman verður hald-
in í Neskirkju en einnig verður ýmis-
legt um að vera í Fíladelfíu. ■
Tímamót
HJÁLPRÆÐISHERINN
■ á Akureyri er 100 ára í
þessum mánuði.
Hjálpræðisherinn
í hundrað ár
HÁTÍÐARHÖLD
Afmælishátíðin á Akureyri heppnaðist mjög vel og vöktu skemmtiatriðin mikla lukku.
HELGI PÉTURSSON
Brúðkaupsdagur þeirra
hjóna er eftirminnilegasti
afmælisdagur Helga. 27 ár
eru liðin frá þeim degi.
Uppreisnarmenn ná Addis Ababa
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
ÞORBJÖRN PÉTURSSON
Gullsmára 9, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 26. maí.
Fyrir hönd aðstandenda,
Erla Svanhvít Guðmundsdóttir
Guðrún J. Þorbjörnsdóttir, Jón Vilhjálmsson
Guðmundur Þorbjörnsson, Ingibjörg Þorfinnsdóttir
Oddrún Þorbjörnsdóttir, Gunnar Jónasson
Svanþór Þorbjörnsson, Petrína Ólafsdóttir
Katrín M. Þorbjörnsdóttir, Stefán Daði Ingólfsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Bragi Ásgeirsson myndlistarmaður er
73 ára.
Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir þula
er 63 ára.
Guðni Kolbeins-
son íslenskufræð-
ingur er 58 ára.
Högni Magnússon frá Drangshlíð, Aust-
ur-Eyjafjöllum, Boðahlein 28, Garðabæ,
lést þriðjudaginn 25. maí.
13.00 Mogens Thaagaard Ilskov, Dan-
mörku, verður jarðsunginn frá
kirkjunni í Mariager, Danmörku.
13.30 Knútur Ármann rafvirkjameistari,
Breiðvangi 8, Hafnarfirði, verður
jarðsunginn frá Víðistaðakirkju.
13.30 Kristinn Ármannsson, Holtsgötu
41, Sandgerði, verður jarðsunginn
frá safnaðarheimilinu í Sandgerði.
13.30 Stefán Stefánsson útgerðarmað-
ur og skipstjóri, Dalvík, verður
jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju.
13.30 Una Hauksdóttir, Hátúni 10b,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Neskirkju við Hagatorg.
14.00 Aðalheiður Jónsdóttir, Lönguhlíð
7a, Akureyri, verður jarðsungin frá
Glerárkirkju.
15.00 Gunnlaugur Björnsson viðskipta-
fræðingur, Hrauntungu 9, Kópa-
vogi, verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju.
1533 Erkibiskupinn á Englandi lýsir því
yfir að hjónaband Hinriks áttunda
og Önnu Boleyn sé gilt.
1937 Franklin D. Roosevelt, forseti
Bandaríkjanna, ýtir á hnapp í
Washingtonborg og gefur þar
með merki um að heimilt sé að
aka yfir Golden Gate brúna í Kali-
forníu, sem þá var nýopnuð.
1937 Neville Chamberlain verður for-
sætisráðherra Bretlands.
1940 Belgíski herinn gefst upp fyrir inn-
rásarher Þjóðverja í seinni heims-
styrjöldinni.
1972 Hertoginn af Windsor, sem gaf frá
sér bresku krúnuna til þess að
geta kvænst Wallis Warfield
Simpson, deyr í París, 77 ára að
aldri.
1987 Ungur Þjóðverji, Mathias Rust,
lendir einkaflugvél á Rauða torg-
inu í Moskvu án þess að hafa
fengið leyfi til að fljúga inn í sov-
éska flughelgi.
2002 Atlantshafsbandalagið veitir Rúss-
landi takmarkaða aðild.
■ JARÐARFARIR