Fréttablaðið - 28.05.2004, Blaðsíða 64
28 28. maí 2004 FÖSTUDAGUR
GLEÐI Í PORTO
Stuðningsmenn Porto fagna sigri félagsins
í Meistaradeild UEFA.
FÓTBOLTI
Otto Baric, þjálfari Króata, vill að leikmenn sínir losi um hömlurnar:
Kynlíf er ekki á bannlistanum
FÓTBOLTI Þjálfari króatíska lands-
liðsins í knattspyrnu, Otto Baric,
setur leikmenn sína ekki í kyn-
lífsbann meðan á Evrópukeppn-
inni í Portúgal stendur:
„Að sjálfsögðu ekki, kynlíf er
ekki á bannlistanum hjá okkur,“
sagði Baric í samtali við króat-
íska blaðið Daily Jutarnji í vik-
unni. Hann bætti við:
„Eftir hvern leik í Portúgal fá
leikmann frídag og hafa þá alveg
frjálsar hendur og geta þá hitt
eiginkonur sínar eða kærustur,“
sagði Baric, en hann verður ein-
mitt 71 árs í júní og spurning
hvort hann nýti frídaga sína með
fullri reisn.
Landslið Vestur-Þjóðverja
komst á forsíður blaðanna meðan
á heimsmeistarakeppninni í
Mexíkó árið 1986 stóð, en þá
komst það upp að forráðamenn
liðsins keyptu þjónustu vændis-
kvenna fyrir leikmenn þess.
Þær voru innfluttar frá föður-
landinu og alnæmisprófaðar og
virðast hafa gert góða hluti - í
það minnsta komust Vestur-Þjóð-
verjar í úrslitaleikinn þar sem
þeir biðu naumlega lægri hlut
fyrir Argentínumönnum, 3-2, í
einum besta úrslitaleik allra
tíma.
Í gegnum tíðina hafa þjálfarar
oftsinnis bannað leikmönnum að
stunda kynlíf á meðan á stórmót-
um stendur en skiptar skoðanir
eru um það.
Talað hefur verið um að kynlíf
hafi neikvæð áhrif á leikmenn,
dragi úr krafti þeirra og árásar-
girni en á hinn bóginn benda
margir á að ástundun kynlífs
fyrir stóra íþróttaviðburði geri
mönnum kleift að slaka betur á
og ná þar af leiðandi meiri yfir-
vegun.
Þetta er greinilega skoðun
Otto Barics en króatíska liðið
undirbýr sig nú af kappi fyrir
Evrópumótið og tveir síðustu
leikir liðsins fyrir það verða
gegn Slóvenum og Dönum. ■
Alan Smith farinn til Manchester United:
Ætlar í byrjunarliðið
FÓTBOLTI Alan Smith, sem var
seldur til Manbchester United frá
Leeds fyrir sjö milljónir punda í
gær, segist ekki hafa gengið til
liðs við félagið til að sitja á
bekknum. Smith sagði í samtali
við enska fjölmiðla í gær að hann
ætlaði sér sæti í byrjunarliði
félagsins strax í upphafi komandi
tímabils. “Ég veit að ég er nógu
góður til að spila með þessu
frábæra fótboltaliði. Góðir
knattspyrnumenn blómstra með
góðum liðum og ég er sannfærður
um að það verði raunin með mig,”
sagði Smith, sem þarf að berjast
við Ruud van Nistelrooy og Louis
Saha um framherjastöðuna. ■
■ FÓTBOLTI
Nú gerum við enn betur
- fyrir þig og þína
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað – Það borgar sig
Erum í 170 löndum og á 5000 stöðum - fyrir þig.
Hringdu í AVIS í síma 591-4000
www.avis.is
Við
gerum
betur
Munið Visa afsláttinn
Verð erlendis háð breytingu á gengi.
A
vi
s
DANMÖRK
Frír tankur af bensíni.
Ekkert skilagjald
Miðað við 7 daga leigu A
vi
s
ÞÝSKALAND
Frítt GPS - Þú týnist ekki í Þýskalandi
(ef þú bókar flokk H Opel Astra
eða sambærilegan).
Miðað við 7 daga leigu
Frír tankur af bensíni í Danmörku og USA í öllum flokkum
ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004
Opel Corsa kr. 2.140, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.Spánn
Opel Corsa kr. 2.400, - á dag m.v. B flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.Ítalía
Opel Corsa kr. 2.700, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.
H flokkur Opel Astra fylgir frítt GPS ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004.Þýskaland
Opel Corsa kr. 3.600, - á dag m.v. A flokk og 7 daga leigu
innifalið: ótakmarkaður akstur, VSK, kaskótrygging, þjófatrygging og afgreiðslugjald.
Frír tankur bensín ef bókað og greitt fyrir 15. maí 2004 á öllum flokkum.Danmörk
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
1. júní
FJÖLNISMENN FÁ LIÐSSTYRK
1. deildarlið Fjölnis, sem hefur
tapað báðum leikjum sínum það
sem af tímabilinu, hefur fengið til
þrjá leikmenn frá Serbíu/Svart-
fjallalandi. Leikmennirnir sem
eru að ræða eru Mladen Ilic, 28
ára gamall sóknarmaður, Dragan
Vasiljevic, 33 ára gamall sóknar-
maður, og miðjumaðurinn Slavisa
Matic sem er 24 ára gamall. Þeir
verða löglegir með félaginu í
leiknum gegn Njarðvík í kvöld.
Fyrir eru tveir Serbar hjá félag-
inu en auk þess leika tvær serb-
neskar knattspyrnukonur með
kvennaliði félagsins í Lands-
bankadeildinni en þær hafa verið
bestu menn liðsins það sem af er
tímabilinu.
Á BAKINU
Króatíski landsliðsmaðurinn og leikmaður
Mónakó, Dado Prso, sést ásamt samherja
sínum hjá Mónakó, Julien Rodriguez.
ALAN SMITH
Ekki til United til að sitja á bekknum.
Þriðji leikurinn í úrslitum Austurdeildarinnar:
Annar sigur
Detroit í röð
KÖRFUBOLTI „Við verðum að byrja
miklu betur í næsta leik því það er
rosalega erfitt að vera undir í ein-
víginu og spila á útivelli,“ sagði
Rick Carlisle, þjálfari Indiana
Pacers, eftir að lið hans hafði beð-
ið lægri hlut gegn Detroit Pistons
sem þar með vann annan leikinn í
röð í úrslitum Austurdeildar
NBA-körfuboltans. Leikurinn,
sem fram fór í Detroit, endaði 85-
78, og er staðan því 2-1 fyrir
Detroit.
Carlisle bætti við að hann hefði
verið ánægður með baráttu liðs-
ins: „Það er fullt af hlutum sem
við verðum að laga fyrir næsta
leik en það var þó ánægjulegt að
sjá liðið koma til baka í seinni
hálfleik og eiga möguleika á sigri
eftir að hafa lent þrettán stigum
undir.“
Heimamenn voru mun sterkari
aðilinn lengstum en gestirnir
héngu inni og neituðu að gefast
upp. Talsverð spenna hljóp í leik-
inn undir lokin og gestirnir frá
Indiana minnkuðu muninn í tvö
stig, 80-78, þegar fjörutíu og átta
sekúndur lifðu leiks. Þeir komust
þó ekki lengra og Detroit skoraði
fimm síðustu stig leiksins.
Richard Hamilton og Rasheed
Wallace voru atkvæðamestir hjá
Detroit með 20 stig hvor. Ben
Wallace var sterkur með 17 stig
og 16 fráköst auk þess að verja
þrjú skot. Chauncey Billups var
síðan með 14 stig og átta
stoðsendingar og þetta sagði hann
eftir leik:
„Eins ljótt og þetta var, þá
fannst mér fallegt hvað okkur
gekk vel að halda forskotinu.“
Hjá Indiana var Jermaine
O’Neal fremstur í flokki með 24
stig og 9 fráköst. Þeir félagar Ron
Artest og Al Harrington skoruðu
báðir 13 stig og Jamaal Tinsley
var með 12. Jermaine O’Neal
sagði lið sitt verða að nýta skotin
betur:
„Við fengum fullt af galopnum
færum en nýttum þau afar illa og
því verðum við einfaldlega að
kippa í liðinn fyrir næsta leik -
þetta er ekkert flóknara en það,”
sagði O’Neal. ■
ELSKAÐU MIG!
Hér sjást þeir Rasheed Wallace og Richard Hamilton, leikmenn Detroit Pistons, í inni-
legum loftfaðmlögum. Detroit er með góða stöðu eftir tvo sigra á Indiana í röð.