Fréttablaðið - 28.05.2004, Page 65

Fréttablaðið - 28.05.2004, Page 65
29FÖSTUDAGUR 28. maí 2004 Signý Hermannsdóttir er varafyrirliði íslenska landsliðsins: Mikil tilhlökkun í hópnum KÖRFUBOLTI Signý Hermannsdóttir, varafyrirliði kvennalandsliðsins, lék í vetur á Spáni en hefur nú á nýjan leik gengið til liðs við sitt gamla fé- lag, ÍS. Hún segist vera mjög spennt fyrir komandi sumri hjá landsliðinu sem hefur aldrei spilað jafnmarga leiki á einu ári og nú: „Það er mikið af verkefnum framundan, nýr þjálfari og allt í gangi og mikil tilhlökkun í hópnum. Það verður gaman að sjá hvar við stöndum og þessir leikir við Eng- lendinga eru mikilvægur liður í und- irbúningi liðsins fyrir mótin tvö í sumar.“ Signý segir það vera mikinn heiður að spila fyrir Íslands hönd: „Það er alltaf gaman að spila landsleiki og þeir mættu gjarnan vera miklu fleiri. Það hafa orðið framfarir í kvennakörfuboltan- um hér heima en það má alltaf gera betur og það er alltaf hægt að nota fleiri góða leikmenn. Það er reyndar fullt af efnilegum leikmönnum að koma upp og það verður spennandi að sjá hvernig landsliðið kemur til með að þró- ast á næstu árum - árangurinn hjá 16 ára landsliðinu um daginn á Norðurlandamótinu var auðvit- að alveg meiriháttar og því engin spurning að málin eru í góðum farvegi.“ En hver eru markmið lands- liðsins fyrir mótin í sumar: „Við stefnum ótrauðar á sigur á mótinu úti í Andorra - það er alveg á hreinu - og síðan höfum við verið að sækja á hinar Norður- landaþjóðirnar og stefnum á að halda því áfram. Miðað við stemninguna og tilhlökkunina í hópnum þá eru góðir hlutir í upp- siglingu,“ sagði miðherji og vara- fyrirliði íslenska landsliðsins, Signý Hermannsdóttir. ■ SIGNÝ HERMANNSDÓTTIR Varafyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Með mannskap til að spila hraðan bolta Segir Ívar Ásgrímsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í körfubolta. Þrír leikir verða um helgina gegn Englendingum. KÖRFUBOLTI Ívar Ásgrímsson er þjálfari íslenska kvennalands- liðsins í körfubolta og eru þetta fyrstu leikir þess undir hans stjórn: „Þetta starf leggst vel í mig,“ segir Ívar aðspurður og bætir við: „Stelpurnar hafa verið duglegar við æfingarnar og liðið á að vera í mjög góðu formi og því verður væntanlega engan sumar- brag að sjá. Einhver þyngsli gætu þó gert vart við sig vegna stífra æfinga en það kemur bara í ljós.“ Ívar nefnir að það sem helst hái landsliðinu séu fáir landsleik- ir: „Það væri gott að fá fleiri leiki og sjá betur hvar liðið stendur og bæta samspilið og þessir þrír leik- ir við Englendingana eru því kær- komið tækifæri sem við verðum að nýta vel.“ Mikill efniviður En hvað með efniviðinn, er hann góður? „Já, á því leikur engin vafi,“ segir Ívar: „Það sást hvað best á Norður- landamótinu en þar vann 16 ára liðið til gullverðlauna og þar eru þær stelpur sem við erum með í huga sem framtíðarleikmenn landsliðsins. Það er þó smá bil á milli þeirra sem eru í aðalhlut- verkum núna og þeirra sem koma til með að taka við en það kemur fyrir af og til í flestum íþrótta- greinum.“ Ívar vill gjarnan láta liðið spila hratt og segir efni vera til þess: „Við erum með mjög hraðan bak- vörð sem heitir Hildur Sigurðar- dóttir en hún er mjög fljót upp með boltann. Birna Valgarðsdóttir er síðan öflug á kantinum og mjög dugleg og fljót að hlaupa upp völl- inn. Síðan eru margir góðir skot- menn í liðinu og tveir sterkir mið- herjar. Okkur myndi reyndar ekki veita af því að hafa fleiri stóra leik- menn en það er vandamál sem er vel þekkt í körfuboltanum hér á landi og við verðum því einfaldlega að huga betur að öðrum þáttum. Við munum prófa nýjar varnir í leikjunum núna sem við erum búin að fara yfir á æfingum að undanförnu. Það verður helsti áherslupunktur þessara leikja og vonandi getum við síðan notað þær með góðum árangri í mótun- um í sumar. Það tekur töluverðan tíma og margar æfingar að ná tök- um á þeim varnarafbrigðum sem við erum að æfa upp.“ Ekki mikill munur á félagsliði og landsliði En finnst Ívari vera frábrugðið að þjálfa félagslið og landslið? „Hingað til hefur mér ekki fundist munurinn svo ýkja mikill. Hann liggur kannski helst í því að í landsliðinu er maður að vinna með marga mjög góða leikmenn og æfingar eru á allt öðru og hærra plani en hjá félagsliðunum. Síðan verður maður væntanlega meira var við muninn þegar út í mótin er komið og liðið þarf að spila dag eftir dag. þetta á þó allt eftir að koma í ljós, ég er rétt að byrja og hlakka bara til komandi verkefna enda engin ástæða til annars,“ sagði Ívar Ásgrímsson, þjálfarikvennalandsliðsins. ■ ÍVAR ÁSGRÍMSSON Fyrstu leikir kvennalandsliðsins undir hans stjórn verða um helgina gegn Englendingum. ÍA OG FH Leika í UEFA-bikarkeppninni sem hefst 15. júlí. UEFA-bikarkeppnin 2004-2005: Hefst um miðjan júlí FÓTBOLTI Úrslitaleik Porto og Monaco í meistaradeildinni var rétt nýlokið þegar UEFA birti dagskrá yfir næstu Evrópu- keppnir félagsliða. Keppni í meistaradeildinni er með svip- uðu sniði og áður en UEFA- bikarkeppnin hefst fyrr en áður og verður með breyttu sniði. ÍA og FH leika í UEFA-bikar- keppninni sem hefst að þessu sinni 15. júlí. Leiknar verða þrjár umferðir í undankeppn- inni en 21. október hefst riðla- keppni. Þar keppa 40 félög í átta riðlum og komast 24 félög áfram í útsláttarkeppni á næsta ári. Dregið verður í fyrstu umferð UEFA-bikarkeppninnar 25. júní og sama dag verður dregið í fyrstu tvær um- ferðirnar í undankeppni meistaradeildarinnar. KR leikur í undankeppni meistara- deildarinnar sem hefst 14. júlí. Fylkir tekur þátt í getrauna- keppni UEFA og leikur við Gent frá Belgíu 19. og 26. júní. Sigur- vegarinn mætir félagi frá Kýpur eða Makedóníu. ■ Líf og fjör hjá Bayern München: Lucio í hópinn FÓTBOLTI Þýska stórkarlaliðið Bayern München hefur fest kaup á brasilíska varnarmanninum Lucio, en hann kemur frá Bayer Leverkusen. Lucio, sem er tutt- ugu og sex ára að aldri, hefur þegar samþykkt samning við Münchenarliðið en kaupverðið er talið í námunda við átta milljónir punda. Það er því mikið að gerast innan herbúða liðsins því á dögun- um var Felix Magath ráðinn nýr knattspyrnustjóri og íranski sóknarmaðurinn Vahid Hashem- ian er væntanlegur frá Bochum. ■ Mitre Academy Legghlífar Kr. 990.- Án/ökklahlífar Markmannshanskar fyrir krakka kr. 990.- Mitre MS2 Legghlífar Kr. 1790.- m/ökklahlíf Mitre Hydro Frá kr. 3.990.- Mitre Superfit Æfingahanskar Kr. 3.990.- Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36, Reykjavík, sími 588 1560 www.joiutherji.is sendum í póstkröfu Mitre GRT Pro Keppnishanskar Kr. 5.990.- Við eigum gott úrval af HM vörum HÓPURINN Nafn, lið leikir Alda Leif Jónsdóttir, ÍS 32 Birna Valgarðsdóttir, Keflavík 45 Erla Reynisdóttir, Keflavík 22 Erla Þorsteinsdóttir, Keflavík 34 Hildur Sigurðardóttir, KR 27 Lovísa Guðmundsdóttir, ÍS 12 María Ben Erlingsdóttir, Keflavík Nýliði Marín R. Karlsdóttir, Keflavík 20 Ólöf Helga Pálsdóttir, Grindavík Nýliði Petrúnella Skúladóttir, Grindavík Nýliði Rannveig K. Randversdóttir, Keflavík 6 Signý Hermannsdóttir, ÍS 18 Sólveig Gunnlaugsdóttir, Grindavík 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.