Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 69
STÓRA SVIÐIÐ KL. 20:00 Klaufar og kóngsdætur sun. 4/9 kl. 14:00,
sun. 18/9 kl. 14:00, sun. 25/9 kl. 14:00. Edith Piaf lau.3/9, sun. 18/9,
fim. 22/9, fös. 23/9, lau. 24/9. Kirsuberjagarðurinn – gestasýning
fim. 8/9, fös. 9/9. Að eilífu – gestasýning lau. 10/9, sun. 11/9.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ KL. 20:00 Rambó 7 lau. 3/9, fös. 11/9, lau. 12/9.
LITLA SVIÐIÐ KL. 20:00 Koddamaðurinn fim. 8/9, fös. 9/9, lau. 10/9,
sun. 11/9.
Miðasalan er opin kl. 12:30-18:00 mánudaga og þriðjudaga.
Aðra daga kl.12:30- 20:00. Símapantanir frá kl. 10:00 virka daga.
midasala@leikhusid.is. Sími 551-1200. Miðasala á netinu:
www.leikhusid.is
Klaufar og kóngsdætur Edith PiafRambó 7
48 3. september 2005 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
ÞÝSKUNÁMSKEIÐ
GOETHE ZENTRUM
www.goethe.is
551 6061
12. sýn. sun. 4/9 kl. 14
13. sýn. fim. 8/9 kl. 19
14. Sýn. laug. 10/9 kl. 14
Umboðsskrifstofan Gigg.is, André Bachm
ann, Jóhann Bachmann & hljómsveitin T
ilþrif kynna:
STYRKTARDANSLEIKUR
Á BROADWAY
laugardaginn 3. september 2005
AÐEINS 1.500 KR.
Umboðsskrifstofan Gigg.is, André Bachmann,
Jóhann Bachmann og hljómsveitin Tilþrif kynnir:
Styrktarskemmtun og dansleikur fyrir Slasaða
vagnstjórann hjá Strætó b/s á Broadway!
Fornbílaklúbburinn verður verður á staðnum!
Kynnar kvöldsins eru:
Sigmundur Ernir Rúnarsson
og Edda Andrésdóttir
Dansarar frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru taka á móti gestum!
Lögreglukórinn
- undir stjórn Guðlaugar viktorssonar.
Strætókórinn
- undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar.
Stefán Stefánsson.
- hinn stórefnilegi Óperu tenórsöngvari.
Hulda Gests.
- stórkostlega söngkonan.
Ragnar Bjarnason.
- stórsöngvarinn engum líkur alltaf síungur.
Þorgeir Ástvaldsson.
- útvarps og dagskrágerðarmaður
Jónsi & í svörtum fötum
Árni Johnsen.
Gleðigjafinn
André Bachmann söngvari.
Þórhallur Sigurðsson(Laddi)
-leikari og söngvari verður í gír.
TOUCH
VAX
Kalli Bjarni og hljómsveitin Tríund
Hjálmar
Nylon
Smack
Mike Pollock og Siggi Sig. með blues
...og síðast en ekki síst /
Tilþrif leika fyrir dansi!
Margir fleiri listamenn koma og skemmta!
Húsið opnar 21 á Broadway.
1500 kr miðinn.
Miðasala á midi.is
Takk fyrir stuðninginn!
STÓRA SVIÐ
KALLI Á ÞAKINU
e. Astrid Lindgren
Í dag 3/9 kl 14, Su 4/9 kl 14, Su 11/9 kl
14, Su 18/9 kl 14
HÖRÐUR TORFA LENGI LIFI
Ýmsir listamenn leika lög eftir Hörð í
tilefni 60 ára afmælis listamannsins.
Lau 10/9 kl. 21
KYNNING LEIKÁRSINS
Leikur, söngur, dans og léttar veigar
Su 11/9 kl 20
Opið hús og allir velkomnir
NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN
REYKJAVIK DANCE FESTIVAL
Nútímadanshátíð
1.-4. September
Í dag 3/9 kl 15 og 17 Videoverk í Regn-
boganum
Su 4/9 kl 14 Heima er best-barnasýning
kr. 800
Kl 20 Who is the horse, Love story
Almennt miðaverð kr 2000
Passi á allar sýningarnar kr 4000
ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR
Í kvöld 3/9 - kl 20, UPPSELT, Fi 8/9 kl. 20,
Fö 9/9 kl 20, Lau 10/9 kl 20,
Su 11/9 kl 20 UPPSELT, Fi 15/9 kl. 20
Miðasölusími 568 8000
midasala@borgarleikhus.is
Miðasala á netinu www.borgarleikhus.is
Miðasalan í Borgarleikhúsinu er opin:
10-18 mánudaga og þriðjudaga, 10-20
miðviku-, fimmtu- og föstudaga
12-20 laugardaga og sunnudag
Endurnýjun
áskriftarkorta er hafin!
Sala nýrra áskriftarkorta hefst
laugardaginn 3. september
- Það borgar sig að vera áskrifandi -
Sinfóníudagurinn er í dag,
en milli klukkan 13 og 16
býður Sinfóníuhljómsveit
Íslands öllum í heimsókn
í Háskólabíó. Heimboðið
markar upphaf fjöl-
breytts starfsárs Sinfón-
íuhljómsveitarinnar.
Milli klukkan 13 og 16 í dag boðar
Sinfóníuhljómsveit Íslands til sér-
staks Sinfóníudags. Markar hann
upphaf starfsárs Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar en ítarlegur bæklingur
með dagskrá sveitarinnar 2005-2006
kom út í vikunni.
Dagskráin á Sinfóníudeginum er
helguð fjölskyldunni, Bárður og
Birta úr Stundinni okkar verða á
svæðinu og boðið verður upp á ljúf-
ar veitingar auk þess sem Sinfóníu-
hljómveitin stígur á stokk og leikur
fyrir gesti. Leikið verður verkið
Fanfare for the common man eftir
Aaron Copland og Forleikur, Girl
Crazy eftir George Gershwin auk
áður óþekkts verks eftir mann sem
hugsanlega er afkomandi Johanns
Sebastians Bach, P.D.Q. Bach, og
heitir Overture for a really big
orchestra. Víkingur Heiðar Ólafs-
son píanóleikari leikur svo Píanó-
konsert nr. 2 eftir Dímítrí Sjosta-
kovitsj.
Dagskrá Sinfóníuhljómsveitar-
innar 2005 til 2006 er afar fjölbreytt
og vönduð að vanda.
„Við höldum áfram með Sjosta-
kovitsj-hringinn svokallaða en
Rumon Gamba hratt hringnum af
stað árið 2002. Í ár verða leiknar
fjórar sinfóníur Sjostakovitsj, frá
nr. 8 til 11. Árið 2006 markar tíma-
mót því þá eru 250 ár liðin frá fæð-
ingu Mozarts og verða þrennir tón-
leikar tileinkaðir honum vegna
þess. Hamrahlíðarkórinn mun svo
taka þátt í flutningi á Sálumessu
Mozarts en að hlusta á messuna er
nokkuð sem maður verður að gera
endrum og eins til að halda geð-
heilsunni,“ segir Sváfnir Sigurðar-
son, kynningarstjóri hjá Sinfóníu-
hljómsveitinni.
„Af léttari viðburðum verður
skemmtilegt að sjá Eivöru Pálsdótt-
ur og Ragnheiði Gröndal syngja ís-
lenskar dægurperlur í útsetningu
Hrafnkels Orra Egilssonar á tón-
leikum í apríl. Í febrúar verður flutt
stytt útgáfa af söngleik Jeffs
Wayne, War of the Worlds, sem
gerður var upp úr sögu H.G. Wells,
og verður Jóhann Sigurðarson í
hlutverki sögumannsins sem Rich-
ard Burton gerði eftirminnilegt á
plötunni sem gefin var út árið
1978,“ segir Sváfnir.
Af öðrum viðburðum starfsárs-
ins hjá Sinfóníuhljómsveitinni ber
að geta þess að fjölskyldutónleikar
Sinfóníuhljómsveitarinnar, Tón-
sprotinn, halda áfram og verða fjór-
ir tónleikar á árinu í þeirri röð. Af-
mælistónleikar til heiðurs Jóni Nor-
dal tónskáldi verða haldnir 9. mars
þar sem fluttir verða fjórir konsert-
ar Jóns frá ólíkum skeiðum í tón-
sköpun hans.
Fræðast má nánar um dagskrá
starfsársins 2005-2006 hjá Sinfóníu-
hljómsveitinni á vefsíðunni
www.sinfonia.is. ■
Starfsár Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands hefst í dag
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS Starfsár sveitarinnar hefst í dag með fjölskyldudegi í
Háskólabíói milii klukkan 13 og 16.
Klukkan 15 í Gerðarsafni í dag
verður opnuð sýning sem ber heit-
ið Meistari Kjarval 120 ára. Á
aldarafmæli Jóhannesar Kjarval
15. október 1985 opnuðu hjónin
Þorvaldur Guðmundsson og Ingi-
björg Guðmundsdóttir sýningu á
verkum meistarans úr einkasafni
sínu í sýningarsal í Háholti í Hafn-
arfirði. Safn þeirra hefur verið í
vörslu Gerðarsafns síðastliðin
fjögur ár og Kjarvalssýningin nú
er haldin í tilefni þess að í ár eru
120 ár liðin frá fæðingu meistar-
ans. Verk Kjarvals í safni þeirra
hjóna skipta tugum og mun láta
nærri að þar megi finna myndir
frá flestum árum á ferli hans.
Á sýningunni Meistari Kjarval
120 ára eru bæði stórbrotin lands-
lagsmálverk og fantasíur auk
nokkurra frábærra mannmynda.
Og síðast en ekki síst eru þar sýnd-
ar öndvegisteikningar eftir þenn-
an höfuðsnilling íslenskra teikn-
ara.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
2. október. ■
Meistari Kjarval 120 ára