Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 50
SVIPMYND
EYRARBAKKI
Eyrarbakki: Kauptún í Flóanum, skammt fyrir austan ósa Ölfusár.
Upphafið: Eyrarbakka er oft getið í fornsögum og þangað var siglt frá upphafi
Íslandsbyggar. Þangað var siglt með vörur allt fram yfir síðari heimsstyrjöld.
Skólinn: Barnaskóli Eyrarbakka var fyrsti barnaskóli landsins, stofnaður 1852.
Þáttur í sögunni: 1602 var ein af höfnum einokunarverslunarinnar á Eyrar-
bakka.
Íbúatala nú: 575
Hús: Húsið á Eyrarbakka er byggt 1765 og er enn í dag eitt af reisulegustu
og fegurstu húsum staðarins. Það hýsir byggðasafn og heimilislegar stofur
þess eru oft notað fyrir minni samkomur.
Frægir: Þekktir einstaklingar sem fæðst hafa á Eyrarbakka eru meðal annars
Sigfús Einarsson tónskáld, Sigurjón Ólafsson myndhöggvari og Ragnar
kenndur við Smára. Meðal þeirra sem þar kjósa að dvelja eru skáldið Sjón og
kona hans, Ásgerður Júníusdóttir söngkona.
Gott að vita: Rauða húsið á Eyrarbakka er vinsælt veitingahús.
Fimm leiksýningar og ball
Guðjón Davíð Karlsson leikari hefur lítinn áhuga á að slaka á yfir drauma-
helgina.
Það er ekki auðvelt að ná í Guðjón Davíð Karlsson, nýútskrifaðan leikara, enda
er hann greinilega með mörg járn í eldinum. Hann gefur sér samt tíma til að
segja blaðamanni frá því hvernig hin fullkomna helgi myndi líða í hans huga.
„Ég sé helgina fyrir mér hefjast þannig að ég vakna snemma á laugardags-
morgni, á notalega stund og fæ mér staðgóðan morgunverð,“ segir Guðjón.
„Svo mæti ég í leikhúsið um hádegið til að undirbúa tvær barnasýningar sem
ég leik yfir daginn. Um kvöldið leik ég svo leikrit fyrir fullorðna og að því loknu
skelli ég mér á einhvern frábæran skemmtistað með hljómsveitinni minni
Hollywood sem leikur tónlist frá árabilinu áttatíu og fimm til níutíu og fimm.
Við höldum uppi trylltri gleði fram undir morgun og allir dansa og skemmta sér.
Svo vakna ég vel á sunnudagsmorgninum, fer kannski í messu og leik svo
barnasýningu og aftur sýningu um kvöldið. Ég nota svo mánudaginn til að slaka
á og hugleiða þessa góðu helgi, mæti kannski á eina góða æfingu milli tíu og
fjögur. Ég held að svona helgi væri fullkomin fyrir nýútskrifaðan leikara,“ segir
hann að lokum. Hver veit nema þessi draumur rætist hjá Guðjóni Davíð, eða
Góa, eins og hann er kannski betur þekktur, í það minnsta er hann rokinn á
æfingu um leið og samtalinu er lokið.
Gói vill helst hafa nóg að gera um helgar.
DRAUMAHELGIN
20