Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 26
Við verðum að nálgast fram-tíðina í stað þess að bíðaeftir henni. Ef ég sé eitt-
hvað sem virðist ómögulegt að
framkvæma þá langar mig að
gera það mögulegt. Mér líkar
áskoranir.“ Þessi orð Mohammed
bin Rashed al-Maktum, furstans í
Dúbaí og varaforseta Sameinuðu
arabísku furstadæmanna, lýsa
kannski best þeim gríðarlega upp-
gangi sem hefur verið í Dúbaí
undanfarin ár.
Ekki eru mörg ár síðan fæstir
vissu í raun nokkuð um þetta litla
furstadæmi. Í dag vita hins vegar
margir eitthvað um landið. Þeir
sem fylgjast með ensku knatt-
spyrnunni hafa væntanlega tekið
eftir því Eiður Smári Guðjohnsen
og félagar hans í Chelsea auglýstu
flugfélagið Emirates um árabil.
Flugfélagið er einmitt í eigu
furstans í Dúbaí. Chelsea er
reyndar hætt að auglýsa flugfé-
lagið en furstinn sneri sér þá bara
til Arsenal og ákvað að styrkja þá
duglega. Nýi heimavöllur liðsins,
sem verður tekinn í notkun á
næsta ári, mun heita Emirates-
völlurinn.
Ekki fylgjast allir með enska
boltanum en líkur eru á að þeir
sem hafi ferðast til einhverra
stórborga Evrópu undanfarin ár
hafi einnig rekist á veggspjöld á
flugvöllum eða lestarstöðvum þar
sem Dúbaí er auglýst sem vin í
eyðimörkinni, perla hins sól-
þyrsta ferðamanns sem vill njóta
alls hins besta í fríinu sínu. Slíkar
auglýsingar eru einnig tíðar í er-
lendum glanstímaritum sem og á
stóru fréttasjónvarpsstöðunum
Sky og CNN.
Súrrealískt hugmyndaflug
Hvaða fyrirbæri er þetta eigin-
lega? Í hugum flestra er Arabíu-
skaginn kannski ekki sá staður
sem kemur upp í hugann þegar
hugsað er um lúxushótel og eftir-
sóttan áfangastað ferðamanna
sem vilja sækja suður á bóginn í
sólina. Það er hins vegar að breyt-
ast. Þökk sé furstanum í Dúbaí.
Undanfarin ár hefur hann lagt
ómælt fé í uppbyggingu ferða-
mannaiðnaðarins og viðskipta-
miðstöðvar í miðri eyðimörkinni.
Hugmyndaauðgi hans virðist ekki
eiga sér nein takmörk. Nú er svo
komið að stærsta hótel í heimi er
að finna í Dúbaí, verið er að
byggja stærsta skýjakljúf í heimi
í borginni og stærstu verslunar-
miðstöð (kringlu) utan Bandaríkj-
anna. Landfyllingar undan strönd-
um borgarinnar eru svo súrreal-
ískar að maður trúir ekki að
nokkrum manni detti í hug að
leggja út svona framkvæmdir
fyrr en maður sér myndir af
þeim.
Risastórt segl í hafinu
Eitt þekktasta kennileiti Dúbaí í
dag er Burj al-Arab-hótelið sem
rís 321 metra upp úr hafinu
skammt undan strönd Dúbaí-
borgar, eins og risastórt segl. Hót-
elið, sem var tekið í notkun árið
1999, er sannkallað lúxushótel.
Aðeins eru svítur á hótelinu og
eru þær alls 202 talsins. Nóttin í
ódýrustu svítunum kostar um 60
þúsund krónur en í fyrir nótt í
þeim dýrustu verða gestir að
reiða fram ríflega 300 þúsund
krónur. Minnstu svíturnar eru 170
fermetrar en þær stærstu 780.
Allar svíturnar eru á tveimur
hæðum. Stærstu svíturnar eru
með litlum bíósal, einkalyftu,
bókasafni og í það minnsta tveim-
ur baðherbergjum svo eitthvað sé
nefnt. Já, og hverri svítu fylgir
einkaþjónn. Burj al-Arab, sem
þýðir arabíski turninn, er meðal
stærstu bygginga í heiminum –
aðeins fáeinum metrum lægri en
Empire State-byggingin í New
York. Turninn er holur að innan
þannig að þegar staðið er í mót-
tökunni á jarðhæð og litið er upp
sést þakið á byggingunni.
Landfyllingar í líki pálmatrés
Byggingarkranar, sandflutninga-
skip og stórtækar vinnuvélar bera
vitni um þær gríðarlegu fram-
kvæmdir sem nú standa yfir í
Dúbaí. Verið er að byggja fjöl-
mörg háhýsi sem hýsa munu fjár-
málastofnanir og aðra starfsemi
en furstinn hefur lýst því yfir að
hann vilji byggja upp viðskipta-
miðstöð í borginni. Stærstu verk-
efnin snúa samt að ferðamanna-
iðnaðinum.
Þegar staðið er á ströndinni má
sjá fjölmörg sandflutningaskip
dæla sandi í sjóinn. Ástæðan – jú
það er verið að stækka borgina
með landfyllingum sem eiga sér
engin fordæmi.
Fyrst ber að nefna landfylling-
arverkefni sem gengur undir
nafninu Pálmatrén (The Palm).
Um er að ræða landfyllingar sem
verða í laginu eins og pálmatré úti
á hafinu. Verkefnið er komið tölu-
vert langt á veg. Úti á fyllingun-
um mun rísa mörg þúsund manna
byggð. Þar verða reist fjölbýlis-
hús, lúxusvillur með einka-
bryggju fyrir snekkjuna, fimmtíu
til sextíu hótel, skemmtigarður,
verslunarmiðstöð og íþróttamið-
stöð svo eitthvað sé nefnt.
Þetta er ekkert smá verkefni –
þegar búið verður að ljúka því full-
yrða hönnuðirnir að það sjáist utan
úr geimnum. Ef gerður væri
tveggja metra hár og hálfs metra
breiður veggur úr öllu því efni
sem notað er í landfyllinguna
myndi veggurinn ná þrjá hringi í
kringum jörðina. Þetta verður ein
stærsta ef ekki stærsta landfylling
sem gerð hefur verið í heiminum.
Ísland stærst Norðurlandanna
Oft er talað um lönd komi sér á
heimskortið með einhverjum
ákveðnum hætti. Eitt merkileg-
asta verkefnið í Dúbaí ber vott um
að furstinn hafi verið orðinn úr-
kula vonar um að Dúbaí kæmist
nokkurn tímann á heimskortið.
Hann ákvað nefnilega að byggja
sitt eigið heimskort.
Vissulega hafa Pálmatrén vak-
ið athygli en þó ekki jafn mikla at-
hygli og Heimurinn (The World).
Ef þú átt sand af seðlum og langar
að eignast þína eigin eyju, til
dæmis Ísland, þá er Heimurinn
kannski eitthvað fyrir þig. Heim-
urinn er líkt og Pálmatrén búinn
til á landfyllingu út af strönd
Dúbaí. Verið er að byggja 300 eyj-
ur sem mynda heimskort úti á
hafinu. Eyjurnar eru frá einum
hektara upp í tæpa 4,5 að flatar-
máli en samanlegt er eyjaklasinn
sem myndar Heiminn níu kíló-
metrar að lengd og sex á breidd.
Eyjurnar eru seldar til einstak-
linga eða fjárfesta sem vilja eign-
ast sitt eigið „land“. Minnstu eyj-
urnar er hægt að fá fyrir litlan
hálfan milljarð króna en þær
stærstu kosta margfalda þá upp-
hæð. Kaupendurnir ráða nokkurn
veginn hvað þeir byggja á eyjun-
um en þar er gert ráð fyrir lúxus-
villum, fjölbýlishúsum, hótelum
og golfvöllum.
En er virkilega hægt að kaupa
Ísland? Gerðu skipulagssérfræð-
ingarnir virkilega ráð fyrir þess-
ari litlu eyju í norðri þegar þeir
voru að hanna Heiminn? Svarið
við þessum spurningum er já og
já. Það er ekki nóg með að Ísland,
sem fyrir þá sem hafa áhuga á að
kaupa gengur undir heitinu E1 á
heimskortinu, sé á kortinu heldur
er Ísland ein stærsta eyjan eða
um fjórir hektarar. Það kítlar
26 3. september 2005 LAUGARDAGUR
PERLAN Í KATAR Ráðamenn í Katar eru að byggja 160
milljarða króna ferðamannastað skammt undan strönd-
um Doha, höfuðborgar landsins. Staðurinn hefur fengið
nafnin Perlan.
Uppbyggingin í furstadæminu Dúbaí á sér líklega engin fordæmi. fiar er hæsta hótel í heimi og veri› er a›
byggja hæsta sk‡jakljúfinn. Landfyllingar undan ströndum Dúbaí-borgar eru súrrealískar svo ekki sé fastar
a› or›i kve›i›. Í gær var 42 stiga hiti í Dúbaí sem er kannski vel vi› hæfi flví borgin er a› ver›a einn heitasti
lúxus-fer›amannasta›urinn í dag. Trausti Hafli›ason sko›a›i draumaveröld furstans í Dúbaí.
PÁLMATRÉ Í HAFINU Pálmatrén eða
„The Palm“ er landfylling sem verður í lag-
inu eins og pálmatré úti á hafinu. Þar mun
rísa nokkur þúsund manna byggð.
Velheppnuð uppbygging ferðamannaiðnaðarins í Dúbaí hefurvakið nágrannaríkin upp af værum svefni. Nú er svo komið
að Óman, Katar, Barain og Kúveit hyggjast öll feta í fótspor
furstadæmisins. Í Katar er verið að byggja upp 160 milljarða
króna eyju undan ströndum landsins sem mun svipa til landfyll-
inganna í Dúbaí og á að hýsa hótel, lúxusvillur og íbúðir. Einnig
er verið að byggja nýjan alþjóðaflugvöll í Katar sem á að anna
60 milljón farþegum á ári árið 2020. Flugvöllurinn er talinn
kosta um 350 milljarða króna. Í Óman er þegar hafin vinna við
60 milljarða króna landfyllingar skammt frá höfuðborginni
Muscat og í hinu örsmáa ríki Bahrain er verið að byggja þrettán
litlar eyjur þar sem til stendur að reisa hótel og íbúðir fyrir ferða-
menn. Barain-verkefnið er metið á um 80 milljarða króna. Ráða-
menn í hinu íhaldssama landi Kúveit, þar sem áfengi og diskó-
tek er bannað samkvæmt lögum, virðast ætla að slaka aðeins á
stefnu sinni í þeim málum. Á teikniborðinu er hundruð milljarða
króna verkefni sem snýr að því að breyta Failaka-eyju, sem er
um 20 kílómetrum norðaustur af landinu, í ferðamannaparadís.
FETAÐ Í FÓTSPOR DÚBAÍ
ÓVENJULEGT HEIMSKORT UNDAN STRÖND DÚBAÍ Verið er að byggja 300 eyjur úti fyrir
strönd Dúbaí-borgar. Eyjaklasinn mun mynda heimskort og þar verður til að mynda hægt að
reisa lúxus-villu á Íslandi. Minnstu eyjurnar kosta um hálfan milljarð króna.
ÞEKKTASTA KENNILEITI DÚBAÍ Burj al-
Arab-hótelið er líklega þekktasta kennileiti
Dúbaí í dag en það á eftir að breytast.
Nóttin kostar frá 60 þúsund krónum.
TEYGIR SIG 800 METRA TIL HIMINS
Dúbaí-turinn verður 800 metra hár sem er
300 metrum hærra en Taipei-turninn sem
í dag er stærsti skýjakljúfur heims.
FURSTINN Í DÚBAÍ Það verður seint
sagt um Mohammed bin Rashed al-Makt-
um að hann skorti metnað. Hann hefur
reyndar sjálfur sagt að ef eitthvað virðist
ómögulegt að framkvæmda þá vilji hann
gera það mögulegt.
Ísland til sölu í Dúbaí
ÍSLAND Á HEIMSKORTINU
Hér má sjá upplýsingar um Ísland á
heimskortinu í Dubaí.