Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 6
6 3. september 2005 LAUGARDAGUR
ATVINNUMÁL „Þetta eru vissulega
vonbrigði en við erum vongóðir um
að ná öllum þessum störfum til baka
áður en árið er liðið,“ segir Ómar
Már Jónsson, sveitarstjóri Súðavík-
ur, en átján starfsmenn þar í bæ
misstu atvinnu sína í vikunni þegar
rækjuvinnslan Frosti hætti starf-
semi.
Fólkinu hafa verið boðin störf í
bolfiskvinnslu í hraðfrystihúsi
Gunnvarar í Hnífsdal og einnig
hefur sá möguleiki verið ræddur að
fyrirtækið komi að kostnaði ásamt
Súðavíkurbæ við það að flytja fólk
úr og í vinnu.
Ómar Már segir einnig líkur á
því að það takist að fá störf í bæinn
sem fólkið geti ráðið sig í áður en
uppsagnarfrestur þess rennur út
hjá Frosta.
„Við hófum átak fyrr á þessu ári
með það að markmiði að laða hingað
íbúa og fyrirtæki og það er einfald-
lega að skila sér,“ segir Ómar Már en
vill þó ekki segja til um það á þessari
stundu hvaða starfsemi sé von á.
Hann segir enn fremur að nú
þegar hafi náðst árangur með átak-
inu því spurt sé eftir félagslegum
íbúðum í bænum og íbúðaverð hafi
hækkað. - jse
Leikskólinn á Súðavík:
Ókeypis
dagvistun
DAGVISTUN Foreldrar á Súðavík
þurfa ekki lengur að borga fyrir
vist barna sinna í leikskóla bæjar-
ins þar sem hann er gjaldfrjáls
frá og með 1. september.
Það ætti að þyngja pyngju súð-
vískra foreldra því þeir spara
tæpar tvö hundruð þúsund krónur
á ári vegna þessa ef þeir eru með
eitt barn í heilsdags vistun.
Þetta er liður í átaki sveitar-
stjórnar með það að markmiði að
laða íbúa og fyrirtæki til bæjarins.
Fimmtán börn eru í leikskólan-
um en að sögn Ómars Más Jóns-
sonar sveitarstjóra er gert ráð
fyrir því að þeim fjölgi nokkuð á
næstu misserum. - jse
LÖGREGLUFRÉTTIR
SKOÐA STULD STJÓRNANDA Lög-
reglan í Reykjavík rannsakar enn
misferli forstöðukonu sambýlis
fyrir fatlaða í Reykjavík sem
kært var í vor. Talið er að konan
hafi dregið sér vörur út á reikning
sambýlisins og lagði Svæðisskrif-
stofa málefna fatlaðra í Reykjavík
fram ítarleg gögn með kærunni.
Konan lét þegar af stjórn sam-
býlisins.
FRAMKVÆMDIR VIÐ KERSKÁLA Byrjað er
að reisa burðarvirki skálanna fjögurra.
MÓTMÆLENDUR Á FILIPPSEYJUM Krefjast
lögsóknar á hendur forsetanum.
SÚÐAVÍK Átak sveitarstjórnar til að styrkja
byggðina á Súðavík reynist gott veganesti
til að takast á við áfallið þegar rækju-
vinnslan hætti starfsemi í vikunni.
Átján manns missa vinnuna á Súðavík:
Bo›in vinna í Hnífsdal
Stjórnarandstæðingar:
Li›i safna›
gegn Arroyo
FILIPPSEYJAR, AP Stjórnarandstaðan á
Filippseyjum safnar nú liði til að
krefjast lögsóknar á hendur forseta
landsins, Gloriu Macapagal Arroyo,
eftir að stuðningsmenn hennar í
sérstakri þingnefnd ákváðu að falla
frá þremur ákærum á hendur
henni. Arroyo er meðal annars sök-
uð um kosningasvindl.
Hægt er að snúa ákvörðun þing-
nefndarinnar greiði þriðjungur
þingmanna atkvæði gegn henni.
Stjórnarandstaðan þarf 79 atkvæði
til að fella ákvörðunina og segist að-
eins þurfa sex atkvæði til viðbótar
við þau sem hún hafi þegar tryggt.
RANNSÓKNIR Tveir vísindamenn
frá Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna (NASA), Alberto Behar og
Jaret Matthews, komu til Akur-
eyrar síðastliðinn miðvikudag í
þeim tilgangi að gera tilraunir í
Eyjafirði með nýjan hátæknibún-
að til rannsókna á djúpsjávar-
hverum. Behar hefur komið að
margvíslegum rannsóknum hjá
NASA og á þátt í hönnun og smíði
á þjarkabílum til rannsókna á
plánetunni Mars.
Starfsmenn Háskólans á Akur-
eyri (HA) verða erlendu vísinda-
mönnunum innan handar meðan á
dvöl þeirra stendur á Akureyri en
Hreiðar Þór Valtýsson, lektor við
HA, segir að Eyjafjörður hafi
orðið fyrir valinu þar sem hvergi í
heiminum sé vitað um hverastrýt-
ur á minna sjávardýpi. „Því er
hægt að kafa niður að strýtunum
og fylgjast með hvernig búnaður-
inn vinnur. Sýni verða tekin úr
strýtunum og starfsmenn háskól-
ans munu greina þau til að sann-
reyna að búnaðurinn virki eins og
til er ætlast,“ segir Hreiðar.
Búnaðurinn var reyndur í gær
og tilraunum með hann verður
framhaldið í dag en vísindamenn-
irnir halda af landi brott á sunnu-
daginn. - kk
Geimferðastofnun Bandaríkjanna:
Rannsakar hverastr‡tur
á botni Eyjafjar›ar
EINAR Í NESI Vísindamenn NASA nota bátinn Einar í Nesi til að komast að hvera-
strýtunum í Eyjafirði en báturinn er í eigu Hafrannsóknastofnunarinnar.
SAMGÖNGUR Umtalsverðar breyt-
ingar á leiðakerfi Strætó voru
samþykktar á stjórnarfundi í gær.
Vögnum var fjölgað, tímatöflur
lagfærðar og þjónustutími lengd-
ur á tilteknum leiðum. Ágreining-
ur hefur verið í stjórninni um úr-
bætur á kerfinu, en þær breyting-
ar sem nú hafa verið samþykktar
taka gildi 15. október.
Björk Vilhelmsdóttir stjórnar-
formaður segist vera ánægð með
það skref sem stjórnin ákvað að
stíga til að bæta úr þeim ágöllum
sem komið hafa í ljós á leiðakerf-
inu og stuðla þannig að bættum al-
menningssamgöngum. Hún segir
að áætlaður kostnaður vegna þess-
arar breytingar á yfirstandandi
fjárhagsári sé allt að 1,5 milljónir
króna. Gert sé ráð fyrir að sá við-
bótarkostnaður rúmist innan
ramma fjárhagsáætlunar ársins.
Þau atriði sem stjórn Strætó
bs. samþykkti í gær fela í sér að
gerðar verða nauðsynlegar lag-
færingar á tímatöflum þeirra
leiða sem tekst illa að halda áætl-
un, sérstaklega S1, 11, 13, 14, 22
og 24. Jafnframt verða tengingar
á skiptistöðvum milli leiða sér-
staklega skoðaðar og þær lag-
færðar eftir því sem unnt er.
Breytingarnar kalla á rekstur
fleiri vagna til viðbótar þeim sem
áður var gert ráð fyrir. Vögnum
hefur þegar verið bætt inn á sum-
ar leiðanna, að sögn Bjarkar.
Þá mun Strætó bs. óska eftir
samvinnu við sveitarfélögin sem
að Strætó standa um gerð nýrra
biðstöðva.
Þjónustutími Strætó verður
lengdur að hluta á leiðum 12 og 16
til miðnættis frá og með 15. októ-
ber.
Þá er hafin úttekt á leiðakerf-
inu þar sem sérstaklega verður
hugað að athugasemdum og
ábendingum frá vagnstjórum og
farþegum. Enn fremur verður
viðhorf til leiðakerfisins og þjón-
ustutímanskannað. Niðurstöður
úttektarinnar verða nýttar við
endurskoðun leiðakerfisins sem
áætlað er að geti átt sér stað um
næstu áramót.
jss@frettabladid.is
Göllu›u kerfi breytt
Margvíslegar breytingar á lei›akerfi Strætó voru samflykktar á fundi stjórnar
fyrirtækisins í gær. Tímatöflum ver›ur breytt, tengingar á skiptistö›vum lag-
fær›ar og fljónustutími lengdur. Fari› er a› bæta fleiri vögnum inn á lei›irnar.
ÞJÓNUSTUTÍMI Stjórn Strætó bs. samþykkti meðal annars í gær að lengja þjónustutíma á
tilteknum leiðum strætisvagnanna.
Fjarðaál er á áætlun:
Bygging ker-
skála hafin
STÓRIÐJA Framkvæmdir við bygg-
ingu álvers á Austurlandi ganga
samkvæmt áætlun. Byrjað er að
setja saman burðarvirki kerskál-
anna fjögurra.
Um 570 starfsmenn eru á fram-
kvæmdasvæðinu og er um helm-
ingur þeirra af erlendu bergi brot-
inn. Þeim fer fjölgandi á næstunni
og verða um 700 í lok þessa árs og
um 1600 þegar framkvæmdir ná
hámarki um mitt árið 2006.
Framkvæmdaáætlun verkefn-
isins hljóðar upp á tæpa sjötíu
milljarða íslenskra króna.
- grs
Vegkantur gaf sig:
Belti björgu›u
vörubílstjóra
LÖGREGLA Bílbelti björguðu
ökumanni vörubifreiðar frá
teljandi meiðslum þegar
vegkantur gaf sig undan bílnum
þar sem hann var á ferð í Mela-
sveit um klukkan tvö síðdegis í
gær.
Að sögn lögreglunnar í
Borgarnesi var þetta bíll með
festivagn, fulllestaður á leið úr
malarnámu í sveitinni. Bíllinn
skemmdist töluvert en síðdegis
var verið að skera vagninn frá
bílnum og vinnuvélar voru á leið
á staðinn til að moka upp
mölinni.
Lögregla segir mjúkt undir-
lag hafa bjargað miklu um að
ekki fór verr, en nokkur hnykk-
ur kom þó á bílstjórann og
ætlaði hann til öryggis að líta til
læknis.
- óká
LEIÐRÉTTING
STARFAÐI EKKI HJÁ WORLD CLASS
Ranglega var hermt í frétt á
síðu 13 í Fréttablaðinu í gær að
maður sem dæmdur var fyrir að
stela úr búningsklefa í líkams-
ræktarstöð World Class í
Laugardal, hefði verið starfs-
maður stöðvarinnar. Maðurinn,
sem bar við stelsýki, starfaði
hjá öðru fyrirtæki á þessum
tíma og lét af störfum þar eftir
að þjófnaðarmálið komst upp.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Á að leyfa að skjóta máva í
Reykjavík?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Eiga Bílddælingar að vinna á
Patreksfirði fái þeir ekki vinnu
heima fyrir?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
19%
81%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN