Fréttablaðið - 03.09.2005, Blaðsíða 27
óneitanlega aðeins hégómagirnd-
ina að vita að Ísland er stærra en
Svíþjóð, Noregur, Finnland og
auðvitað Danmörk. Þá er Klakinn
jafnstór og Þýskaland, Frakkland
og Bretland. Það er spurning
hvort það ætti ekki að veita Mo-
hammed bin Rashed al-Maktum
Fálkaorðuna fyrir hafa loks séð
heiminn í réttu ljósi. Menn hafa
nú fengið hana fyrir minni afreki
en þetta. Bara svona svo það fylgi
með þá kostar heimskortið furst-
ann litla 130 milljarða króna; hann
hefði getað keypt sér hundrað
milljón nokkuð góðar Atlas landa-
bréfabækur fyrir peninginn í net-
versluninni Amazon.
Hæsti skýjakljúfurinn
Á listanum yfir þrjátíu hæstu
byggingar heims eru þrjár nú þeg-
ar í Dúbaí. Emirates-turninn, sem
er skrifstofubygging, er 355 metra
hár, Burj al-Arab-hótelið er 321
metri og Jumeirah-hótelið er 309
metra hátt. Furstinn í Dúbaí ætlar
ekki að láta hér við sitja. Innan
skamms mun Dúbaí eiga fjóra
skýjakljúfa á þessum lista því ver-
ið er að byggja Dúbaí-turninn sem
mun verða hæsta bygging í heimi.
Hæsti skýjakljúfur heims er
Taipei-turninn í Taívan sem er 508
metra hár. Dúbaí-turninn, sem
þegar er byrjað að byggja, mun
teygja sig 800 metra til himins og
verður því næstum 300 metrum
hærri en Taipei-turninn. Grunnur
byggingarinnar er fimmtíu metra
djúpur og alls verða 160 hæðir í
turninum sem mun hýsa skrifstof-
ur, íbúðir, hótel og verslanir. Í
kringum skýjakljúfinn verður
tjörn.
Skíðabrekka í verslunarmiðstöð
Í lok þessa árs lýkur byggingu
stærstu verslunarmiðstöðvar
(kringlu) utan Bandaríkjanna.
Hún nefnist „Mall of the Em-
irates“ og er að sjálfsögðu í
Dúbaí-borg. Alls verða 350 versl-
anir í kringlunni, bíó með fjórtján
sölum, 500 sæta leikhús og
skemmtigarður svo eitthvað sé
nefnt. Þó er eitt sem mun skilja
þessa kringlu frá öðrum frá öðr-
um verslunarmiðstöðvum. Ef
gestirnir verða orðnir þreyttir á
að rápa milli verslana geta þeir
skellt sér á skíði. Á næsta ári mun
risastórt innanhússkíðasvæði
opna inni í kringlunni. Þar verður
400 metra löng skíðabrekka þar
sem um 1.500 manns geta rennt
sér á sex þúsund tonnum af gervi-
snjó.
ATHYGLISVERÐAR HEIMASÍÐUR
UM DÚBAÍ:
http://www.thepalm.ae
http://www.theworld.ae
http://guide.theemiratesnetwork.com
LAUGARDAGUR 3. september 2005 27
SJÁVARÞORP
AÐ OLÍUVELDI
Dúbaí, sem er aðeins um 3.900ferkílómetrar að flatarmáli, er eitt
af sjö furstadæmum hinna Samein-
uðu arabísku furstadæma.
Í raun má líkja furstadæmunum við
Bandaríkin að því leyti að hvert fursta-
dæmi hefur líkt og hvert ríki Banda-
ríkjanna ákveðna sjálfsstjórn, sína eig-
in dómstóla og höfuðborg. Stjórnskip-
unin er hins vegar með allt öðrum
hætti en á Vesturlöndum. Ákveðnar
ættir skipta með sér völdum og því er
ekkert þjóðkjörið þing í landinu.
Höfuðborg Dúbaí heitir Dúbaí. Þar býr
um ein milljón manna og er borgin
sú önnur stærsta í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum á eftir Abú
Dabí.
Tiltölulega stutt er síðan raunveruleg
byggð varð til í Dúbaí. Fyrsti vísirinn
að borgarbyggð í Dúbaí varð árið
1799. Þá var Dúbaí, sem nú er nú-
tímaleg stórborg, lítið sjávarþorp. Í
kringum 1830 komst Maktoum-ættin
til valda í Dúbaí og hefur hún haldið
völdum þar allt síðan. Á nítjándu öld-
inni var Dúbaí fyrst og fremst fiskiþorp
en þegar líða fór á öldina varð borgin
mikilvæg miðstöð viðskipta, sérstak-
lega var mikið verslað með perlur og
gull. Á þessum tíma settust fjölmargir
Indverjar að í borginni og var töluvert
um að gulli væri smyglað frá Dúbaí til
Indlands.
Árið 1966 urðu vatnaskil í sögu Dúbaí
þegar olía fannst undan ströndum
landsins. Af furstadæmunum sjö sem
mynda Sameinuðu arabísku fursta-
dæmin ræður Dúbaí yfir um þriðjungi
af allri olíunni sem fundist hefur. Abú
Dabí ræður yfir mestu, eða nánast
tveimur þriðju. Í kjölfarið á olíufundin-
um varð gríðarlega uppsveifla í efna-
hagsmálum Dúbaí sem ekki sér fyrir
endann á. Þó er talið að olíubirgðirnir
dugi ekki út þessa öld.
Líkt mörg nágrannaríki var Dúbaí und-
ir hælnum á Breska heimsveldinu í
ríflega eina öld. Ráðamenn í Dúbaí
gerðu fjölmarga samninga Breta á 19.
öld og voru utanríkis- og varnarmál
landsins undir stjórn Breta allt þar til
árið 1971 þegar Dúbaí öðlaðist sjálf-
stæði.
SAMEINUÐU ARABÍSKU
FURSTADÆMIN (LYKILTÖLUR)
Furstadæmin sjö eru: Abú Dabí,
Dúbaí, Ajman, Sharjah, Umm al-Qa-
ywayn, Ra’s al- Khaymah og Al-Fuja-
yrah.
Flatarmál: 82,880 ferkílómetrar
Sjálfstæði: 2. desember árið 1971
frá Bretum
Höfuðborg: Abú Dabí
Stjórnskipun: Furstadæmi (ættar-
veldi)
Náttúrulegar auðlindir: Olía og gas
Íbúafjöldi: 3,5 milljónir (árið 2002)
Meðalævilengd: 75,24 ár
Trúarbrögð: 96% múslímar, önnur
trúarbrögð 4%
Tungumál: Arabíska
Lestrarkunnátta: 77,9%
Atvinnuleysi: 2,4% (árið 2001)
Hagvöxtur: 5,7% (árið 2004)
Fjöldi starfandi eftir atvinnugrein-
um: Þjónustugreinar 78%, Iðnaður
15% og landbúnaður 7%
Gjaldmiðill: Emirati dirham (tengdur
við dollara síðan árið 2002)
Ljósvakamiðlar: 15 sjónvarpsstöðvar
og 21 útvarpsstöð (árið 2004)
Meðalhiti: 24 gráður í janúar, 42
gráður í júlí